Vilja heimild til þess að fylgjast með búsetu kynferðisafbrotamanna Höskuldur Kári Schram skrifar 11. júní 2012 18:27
Barnaverndarstofa vill fá heimild til að fylgjast með búsetu hættulegra kynferðisafbrotamanna eftir að afplánun lýkur. Stofnunin geti þá sett sig í samband við skólayfirvöld ef lögheimili þeirra er nálægt skólalóð. Barnaverndarstofa hefur talið mikilvægt að koma upp skilvirku eftirliti með hættulegum kynferðisbrotamönnum eftir að afplánun lýkur. Þannig megi koma í veg fyrir að þeir brjóti af sér aftur. Heiða Björg Pálmadóttir, lögfræðingur Barnaverndarstofu, segir að nauðsynlegt að kynferðisbrotamönnum verði gert skylt að fara í sérstakt sálfræðimat. „Og út frá þeim greiningum er svo hægt að meta hvort það sé ástæða til að fylgjast með þeim eftir að afplánun lýkur," segir Heiða. Hættulegum kynferðisbrotamönnum verði þá ennfremur gert skylt að tilkynna lögheimili sitt til stofnunarinnar sem síðan gæti brugðist við - til dæmis ef mennirnir búa í nálægð við skóla. „Þá gætum við í fyrsta lagi látið barnaverndanefndina vita í því lögheimili sem að viðkomandi er, barnaverndarnefndin metur þá í rauninni hvar eru hætturnar, er ástæða til þess að láta aðra vita, barnaverndarnefndin með samþykki Barnaverndarstofu, getur þá látið þá aðila í nærsamfélaginu vita sem er talið nauðsynlegt eins og t.d. leikskóli, ef viðkomandi byggi nálægt slíkum stað." Innanríkisráðráðuneytið hefur nú til endurskoðunar þau lagaúrræði sem snúa að eftirliti með kynferðisbrotamönnum að lokinni afplánun. Von er á frumvarpi þessa efnis í haust en ráðherra hefur lýst því yfir að hann vilji stíga varlega til jarðar í málinu. Heiða segir að ekki sé um marga einstaklinga að ræða og því ætti eftirlit að vera auðvelt. „Það er mikilvægt að við náum utanum þessa örfáu einstaklinga og reynum að fylgjast með þeim svo þeir brjóti ekki af sér aftur," segir Heiða.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Sjá meira