Hreyfing á Helguvík - álverinu tryggð rafskaut Kristján Már Unnarsson skrifar 11. júní 2012 19:00
Hreyfing er á viðræðum um álverið í Helguvík og gæti fengist úr því skorið fyrir lok mánaðarins hvort framkvæmdir fari á fullt upp úr áramótum. Eigandi Norðuráls, Century, tilkynnti í dag um kaup á rafskautaverksmiðju í Hollandi sem annar bæði Grundartanga og nýju álveri í Helguvík. Í tilkynningu Century Aluminum um kaup á hollensku verksmiðjunni kemur fram að ekki aðeins tryggi hún rafskaut til álvers Norðuráls á Grundartanga heldur gæti hún einnig annað þörfum nýs álvers í Helguvík fyrir rafskaut. Þannig virðast kaupin lýsa bjartsýni um að álframleiðsla hefjist í Helguvík en þar er nánast aðeins búið að reisa grind að álveri. Þótt hálft ár sé brátt liðið frá því gerðardómur féll í deilumáli um orkusamning hefur lítið frést af viðræðum Norðuráls og HS Orku og ráðamenn beggja félaga eru varkárir í yfirlýsingum um stöðuna. Stjórnarformaður HS Orku, Ásgeir Margeirsson, sagði í dag að markmiðið væri að reyna að ná þessu saman, unnið væri samkvæmt því, og kvaðst ekki vilja vekja falsvonir með því að segja meira né nefna tímasetningar. Forstjóri Norðuráls, Ragnar Guðmundsson, sagði að áfram væri unnið að málinu með öllum samningsaðilum, en vildi heldur ekki leggja mat á stöðu viðræðna. Heimildir fréttastofu herma að málið hafi þokast áfram undanfarnar vikur. Taldar eru líkur á að fyrir lok þessa mánaðar hafi staðan skýrst nægilega vel til að unnt verði að taka ákvörðun um að setja undirbúning á fulla ferð með það að markmiði að framkvæmdir hefjist upp úr næstu áramótum. Þær yrðu ekki aðeins við álverið í Helguvík heldur einnig hjá HS Orku við stækkun Reykjanesvirkjunar og hjá Orkuveitu Reykjavíkur við Hverahlíðarvirkjun. Viðræður miða við að tryggja orku fyrir 180 þúsund tonna álver og gangi þær áætlanir eftir gæti fyrsti áfanginn, 90 þúsund tonn, komið í rekstur í ársbyrjun 2015.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Sjá meira