Verð sífellt meiri sósíalisti Stígur Helgason skrifar 11. júní 2012 21:00 Jón Gnarr borgarstjóri.
Jón Gnarr hefur setið lengst allra sem borgarstjóri síðan Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hætti og telur sig ekki hafa smitast af veikinni sem hann ætlaði að lækna. Hann gagnrýnir nágrannasveitarfélögin fyrir að víkja sér undan ábyrgð.Þið lofuðuð því þegar þið tókuð við að þið ætluðuð að gera Reykjavík skemmtilegri. Hvernig hafið þið gert það? „Við höfum gert það á margvíslegan hátt. Við höfum lagt mikla áherslu á blómlegt mannlíf í miðborginni. Ég get til dæmis nefnt sumarlokanir á götum, sem er búið að vera mjög flókið verkefni í alla staði. Rekstraraðilar hafa margir verið á móti þessu en reynslan hefur verið gríðarlega góð og íbúar eru ofsalega ánægðir. Síðasta vor gengu svo í gildi reglur sem höfðu ekki verið til áður sem gefa fólki kost á að stunda torg- og götusölu. Ég er mjög stoltur af því, og líka bara almennri ásýnd miðbæjarins, ekki síst utan háannatíma. Ég var til dæmis ofboðslega ánægður með Jólaborgina núna í desember þar sem við vörpuðum myndum af hinum ýmsu jólavættum á veggi.“Þú talar mikið um miðbæinn, hefur afgangurinn af borginni líka orðið skemmtilegri? „Okkur er svolítið legið á hálsi fyrir að leggja of mikla áherslu á miðborgina en það er ekki að ástæðulausu. Það er vegna þess að fyrir borgina er miðborgin svolítið eins og stássstofa og þangað bjóðum við gestum. Núna, þegar ferðamannaiðnaðurinn er að verða einn helsti atvinnuvegur þjóðarinnar, er mjög mikilvægt að hlúa sérstaklega vel að henni. Við höfum vissulega staðið fyrir ýmsum litlum og stórum málum hér og þar í borginni, til dæmis það „stönt“ að velja Reykvíking ársins og gefa alþýðuhetjum tækifæri til að veiða í Elliðaánum. Svo að já, ég tel að við höfum náð að innleiða gleði og skemmtun inn í hverfin.“ Önnur sveitarfélög þvo hendur sínarHvernig hefur þín sýn á stjórnmál breyst á þessum tíma? Þú komst alveg ósnortinn inn í þessa pólitík. Finnst þér þú hafa á einhvern hátt hafa orðið hluti af því sem þú lofaðir að breyta? „Nei, mér finnst það ekki. Ég hef mikið velt því fyrir mér hvort þetta sé smitandi ástand. Ég hef verið spurður að þessu alveg frá því að ég byrjaði en ég hef ekki upplifað þennan ótta hjá mér. Sýn mín á stjórnmálin almennt hefur hins vegar dýpkað mjög og þroskast af samskiptum mínum við fólk í þessum menningarkima. Þau hafa orðið til þess að ég hef þurft að gera upp hug minn í ýmsum málum. Ég hef í raun verið svolítið „lost“ í stjórnmálaskoðunum og þær hafa þroskast og skýrst. Ég verð alltaf meiri og meiri sósíalisti, sem er hugtak sem fólk leggur misjafna merkingu í. Ég átta mig sífellt betur á því hvernig við erum leiksoppar kapítalismans – og ég er sem sagt orðinn sósíalisti. Ég trúi því að við eigum að reyna að skapa hér samfélag jafnræðis og forðast misskiptingu. Ég tel að auðlindir þjóðarinnar eigi að vera í eigu þjóðarinnar og nýtast þjóðinni – og það er sósíalismi. En um leið eigum við að leggja áherslu á frelsi einstaklingsins. Það er þessi tegund sósíalisma sem hefur verið nefnd líbertarían sósíalismi – sem er fansý orð yfir anarkisma – sem ég er svo staðfastur í.“Munum við fá að sjá það birtast með skýrari hætti í borgarmálunum á næstunni? „Ég trúi á mikilvægi beins lýðræðis, þátttökulýðræðis og bind miklar vonir við að sem flestir muni nota vefinn Betri Reykjavík. Mér finnst líka ekki að sveitarstjórnarstig eigi að vera pólitískur átakavettvangur. Það er úrelt aðferðafræði og meiri tækifæri í beinu lýðræði og fagmennsku sem er þó ekki teknókratísk. Svo hef ég talað mjög fyrir samvinnu og sameiningu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Tekjur eru farnar að hafa áhrif á búsetu fólks og það finnst mér grafalvarleg þróun. Ég mun reyna að sporna gegn henni. Mér finnst Reykjavík líka oft fá ósanngjarna útreið í umræðunni. Hún tekur við gríðarlega flóknum málum sem hin sveitarfélögin í kringum okkur þvo hendur sínar af.“ Eins og hvaða málum? „Ég get nefnt útigangsfólk og framboð á félagslegum úrræðum. Þar stendur Reykjavíkurborg sig gríðarlega vel en fær mjög lítið kredit fyrir. Ég hef oft tekið góðgerðarfélög sem dæmi. Skoðum bara Fjölskylduhjálp Íslands. Reykjavíkurborg er eina sveitarfélagið sem styrkir hana, en fólkið sem leitar til hennar er ekki allt með lögheimili í Reykjavík. Annað dæmi, sem mér finnst lýsandi, er Kattholt – dýraverndunarúrræði fyrir týnda ketti. Reykjavík er eina sveitarfélagið sem styrkir það með einhverjum hætti, en kettirnir koma hvaðanæva að. Ég hef hvatt hin sveitarfélögin til þess að taka ríkari þátt í þessu og finnst þetta mikið sanngirnismál.“ Skólamál snerta tilfinningar og öryggiSameining skóla hefur ekki skilað eins miklum sparnaði og stefnt var að og víða er fólk enn mjög reitt. Er ekki ljóst að þið hafið farið rangt að? „Nei, ég tel það ekki. Þarna er bara um rosalega viðkvæmt mál að ræða sem snertir tilfinningar fólks og öryggi þess. Við þurftum að spara og hagræða í skólakerfinu en helst án þess að skerða þjónustuna eða þannig að það bitnaði á kennslunni eða fagmennskunni. Nágrannaþjóðir okkar hafa verið í sömu sporum og víða, til dæmis í Danmörku, hefur þurft að loka skólum. Þar hefur ferlið verið nákvæmlega eins; fólk er reitt, segir að þetta sé óþarfi og heldur kertafleytingar. Við náðum að fara mildari leið með sameiningum og við vissum frá upphafi að það yrði alveg gríðarlega erfitt. Fólk vill helst ekki að þú sért að hræra í skólanum eða leikskólanum. En við hefðum aldrei farið út í þetta að vanhugsuðu máli eða vegna þess að við værum ekki viss um hvað við værum að gera – og hefðum þá heldur aldrei náð að fylgja þessu svona eftir. Samráðið, og hvernig hefur verið staðið að þessari vinnu, hefur verið algjörlega til fyrirmyndar.“ Nasa er ekki á fasteignavefnumFólk furðar sig á málefnum Nasa við Austurvöll. Innan Besta flokksins starfar fólk sem hefur hreinlega verið andlit íslenskrar menningar og lista, jafnvel í áratugi. Þið lögðuð upp með að gera þeim málaflokki hátt undir höfði og voruð meðal annars kosin út á það, en svo kemur einhver hótelbyggjandi á vettvang og þið segið: Sorrí, við getum ekkert gert. Er þetta ekkert skrítið? „Hann náttúrulega kemur ekki, þessi hótelbyggjandi – hann er löngu kominn. Þessi samningu var löngu frágenginn fyrir okkar tíma. Mjög gjarnan er sagt: Þetta er ekkert mál, Reykjavíkurborg á bara að kaupa þetta. Það er mjög sérstakt, vegna þess að mér vitanlega er þetta ekki til sölu. Þetta er ekki inni á fasteignavefnum. Svo er hitt, að ef það væri bara tónlistarfólk og listamenn sem hefði kosið Besta flokkinn þá væri ég ekki borgarstjóri. Ég er borgarstjóri allra Reykvíkinga, ekki bara afmarkaðs hóps af fólki sem er einhvers konar vinir mínir og kunningjar. Í rauninni er eins og það sé verið að biðja um fyrirgreiðslu á þeirri forsendu, sem mér finnst ekki sanngjarnt. Málsmeðferðin sem við á endanum sættumst á var að hafa um þetta samkeppni og reyna að fá heildstæða lausn á þessu svæði, sem er náttúrulega hjarta borgarinnar. Ég hef beðið fólk að slaka aðeins á og bíða eftir því hvað kemur út þeirri samkeppni og „den tid den sorg“. Við bara skoðum það þegar það liggur fyrir.“ Eðlilegt og mikilvægt að fara í boðsferðirEinar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi Besta flokksins, flaug til útlanda í boði WOW Air. Maður spyr sig hvort þú og þið hefðuð verið hrifin af þessu ef þetta hefði verið fulltrúi einhvers annars flokks í aðdraganda síðustu kosninga, til dæmis. Finnst þér þetta eðlilegt? „Ég fellst algjörlega á skýringar Einars á þessu og sé ekki að hann hafi gert neitt ljótt eða óeðlilegt. Í siðareglum borgarfulltrúa er okkur gert að skýra frá öllum hagsmunatengslum á heimasíðu og Einar hefur gert það. Ég hef séð myndir úr þessari ferð og hann er mjög sýnilegur á þeim, þarna voru líka margir fjölmiðlamenn þannig að þetta var ekkert leynimakk eða feluferð. Það fóru líka tveir starfsmenn borgarinnar í þess ferð og fólk hefur spurt hvort það sé eðlilegt. Mér finnst það mjög eðlilegt og beinlínis mjög mikilvægt. Ferðamannastraumurinn til Reykjavíkur er að aukast mjög og við erum að markaðssetja Reykjavík fyrir þá. Kynning á Íslandi og Reykjavík fer mikið fram í gegnum flugfélög og það er mjög mikilvægt að okkar fulltrúar komi þar að, þó ekki sé nema bara til að hafa eftirlit með því hvernig er verið að markaðssetja, hvað er verið að leggja áherslu á, hverjir eru að sýna þessu áhuga og svo framvegis. Það er bara hluti af nútímasamfélagi að það er einhver vettvangur sem heitir „social life“, sem gegnir mikilvægu hlutverki þótt fólk hafi misjafnar skoðanir á því. Við erum, sem þjóð, brennd eftir allar einkaþotuferðirnar og almennan lúxus, en við megum samt ekki halda að allt sem tengist svona ferðum eða samstarfi við einkaaðila sé bara innantómt prjál og algjörlega verðmætalaust, því að það er það ekki.“ Slæm ára yfir AlþingiErtu eitthvað farinn að huga að næsta kjörtímabili? Ætlarðu að fara fram aftur, eða ertu jafnvel að velta fyrir þér landsmálum? „Nei, mér finnst Reykjavík vera alveg feikinógur vettvangur fyrir mig. Það er reyndar sorglegt að það sé ekki spennandi að fara og skipta sér af landsmálum, en það er það bara alls ekki. Það er slæm ára yfir því. Mér finnst tilhugsunin um að fara á Alþingi bara „scary“. Ég brenn fyrir þessari borg. Ég hef haft tækifæri alla ævi til að flytja eitthvert annað en ég hef ekki kært mig um það. Mér finnst vænt um þessa borg – mér þykir alveg vænt um hana á væminn hátt – og ég er stoltur af henni. Og mig langar til þess að vinna henni gagn. Það eru hins vegar óvissuþættir í þessu. Nú eru alþingiskosningar að nálgast. Hvaða áhrif mun það hafa á málin hér? Maður veit það ekki. Við komum inn í borgina eftir hrun á gríðarlega erfiðum tímum. Kannski verður það allt breytt eftir ár og ný tækifæri fyrir hendi. Það væri til dæmis freistandi að hafa úr meiri peningum að spila. Ég hefði miklu frekar viljað vinna að lagningu hjólreiðastíga og léttlestakerfis heldur en að finna leiðir til að spara í skólunum, en þannig hefur þessi stakkur verið og við höfum þurft að sníða okkur inn í hann. Þannig að ég lofa því ekki að ég muni halda áfram en ég útiloka það heldur ekki.“
Mest lesið Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Innlent „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Innlent Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Innlent Drífa Snædal snýr aftur Innlent Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Innlent Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd Innlent Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Innlent Flutti til Reykjavíkur í dag Innlent Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Innlent Fleiri fréttir „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd „Það er ekkert sem tekur við og enginn sem ber ábyrgð“ Drífa Snædal snýr aftur Goddur jarðsunginn Tifandi tímasprengja, oddviti í beinni og breytt Reynisfjara Handtekin fyrir að beita opinberan starfsmann ofbeldi „Þörfin er gríðarleg“ Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Blíðan haft áhrif á gróður sem lætur þó ekki plata sig Reiknar með einu gosi í viðbót Flutti til Reykjavíkur í dag Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Réttað yfir manni sem er grunaður um að nauðga barni og konu sinni Saka stjórnendur Bifrastar um að hafa beitt nemendur þrýstingi Saka stjórnendur um að þrýsta á nemendur að styðja rektor Biðla enn til almennings sjö árum eftir hvarf Jóns Þrastar Þorsteinn fær áheyrn Hæstaréttar Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í borginni Stjórnarformaðurinn verður forstjóri Reykjalundar Íslenska ríkið ræður lobbýista í Washington Jarðskjálftahrinan við Eldey heldur áfram Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ Fjórir handteknir í tengslum við líkamsárásir „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Sjá meira