Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Reyndu að stinga lögregluna af - táragasbrúsi í bílnum Ökumaður bifreiðar lét sér ekki segjast í nótt þegar lögregla reyndi að stöðva hann við venjubundið eftirlit. Bíllinn ók greitt í burtu og inn í íbúðarhverfi. Þar ók hann hinsvegar á kyrrstæða bifreið. Þrennt var í bílnum og reyndu þau að komast undan. Tveimur þeirra, pilti og stúlku, tókst það en sá þriðji, sem hafði verið farþegi í bílnum var handtekinn af lögreglu. 8.9.2011 08:46
Mest 700 MW til ráðstöfunar á næstu árum Verði þingsályktunartillaga um rammasamkomulag í orku- og umhverfismálum samþykkt verða að hámarki 700 MW til ráðstöfunar í iðnaðaruppbyggingu á næstu fjórum til sex árum. 8.9.2011 08:00
Tilraun sem breytti litlu „Þetta var tilraun og hefði engu breytt. Það var verið að reyna að tryggja hagsmuni ríkisins og þessar kröfur eins og hægt var,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. 8.9.2011 08:00
Roskni ökuþórinn er alræmdur á götunum Tæplega 67 ára maður sem slapp ótrúlega vel úr alvarlegu slysi eftir kappakstur á Hafnarfjarðarvegi á mánudag er umtalaður fyrir hegðun sína í umferðinni. Þeir sem fylgst hafa með aðförum hans eru ekki hissa á að hann hafi nánast orðið sér að aldurtila með glannaskap. 8.9.2011 07:30
Aldrei fleiri ferðamenn Aldrei hafa fleiri ferðamenn heimsótt Ísland í einum mánuði en í ágúst. Samkvæmt talningu Ferðamálastofu fór 101.841 ferðamaður frá landinu í mánuðinum en aldrei áður hafa fleiri en 100 þúsund ferðamenn sótt landið heim í einum mánuði. 8.9.2011 07:00
Innbrot á Akureyri Innbrot var framið í Giljahverfi á Akureyri í gærdag en húsráðendur uppgötvuðu það þó ekki fyrr en þeir komu heim í gærkvöldi. Óljóst er hvernig þjófarnir komust inn í íbúðina því þeir skyldu ekki eftir sig nein verksummerki eða skemmdir. Þeir komust hinsvegar á brott með sjónvarp heimilisins, fartölvu og eitthvað af skartgripum. Að sögn lögreglunnar á Akureyri eru innbrot af þessu tagi mjög fátíð í bænum og er málið í rannsókn. Þá var einn ökumaður tekinn á Akureyri í nótt, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. 8.9.2011 06:26
Tapaði verðmætum í óþekktum leigubíl „Það er alveg skelfilegt að lenda í þessu, sérstaklega vegna þess að maður býst við því að leigubílstjórar séu traustsins verðir,“ segir Ólafur Sigurðsson, sem varð fyrir því á dögunum að gleyma kassa af verðmætum í farangursgeymslu leigubíls. Þrátt fyrir mikla eftirgrennslan hefur hann ekki fundið viðkomandi leigubílstjóra og þar af leiðandi ekki fengið eigur sínar til baka. Ólafur hefur því kært málið til lögreglu. 8.9.2011 06:00
Setja upp hver sína hreinsistöð fyrir skolp „Okkur finnst kominn tími til að fara að gera eitthvað því það liggur við að hér flæði skolp beint út í árnar,“ segir Jón Jóhannsson í Mosskógum í Mosfellsdal. Jón og tveir nágrannar hans hafa keypt hver sína skolphreinsistöðina til að leysa af gagnslitlar rotþrær. 8.9.2011 06:00
Forstjórinn segir uppgjörið vera traust „Uppgjörið er mjög traust, í samræmi við áætlanir og stenst þær arðsemiskröfur sem eru gerðar,“ segir Höskuldur H. Ólafsson, forstjóri Arion banka. 8.9.2011 06:00
Brýnt að losa höftin sem fyrst Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir brýnt að losa gjaldeyrishöftin sem fyrst, þar sem kostnaður við þau vaxi með tímanum. Ábatann af hröðu afnámi verði hins vegar að meta á móti skammtímakostnaði vegna óstöðugleika á gjaldeyrismarkaði sem losunin geti valdið. 8.9.2011 06:00
Óvenjulítið um rifsber í haust Rifsberjauppskera í görðum landsmanna hefur verið heldur dræm þetta haustið. Jón Kr. Arnarson garðyrkjufræðingur segir ástæðuna vera kalt vor með næturfrostum fram í júní og það hafi skaðað blómgun rifsberjarunnanna. Einnig var minna af skordýrum á sveimi til að frjóvga þau blóm sem höfðu frostin af. 8.9.2011 06:00
Þingmenn hvetja stjórnvöld til samninga við Nubo Skiptar skoðanir eru um fyrirhuguð kaup kínverska fjárfestisins Huang Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum. Þingmenn þriggja flokka kölluðu eftir því, á Alþingi í gær, að stjórnvöld settust að samningaborðinu með Nubo og gengju frá málinu í nafni fjárfestinga, uppbyggingar og fjölbreytni í atvinnulífi. 8.9.2011 05:00
Umhverfisráðuneytið veitir verðlaun Dómnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins hefur tilnefnt fjóra til fjölmiðlaverðlauna ráðuneytisins. Verðlaunin verða veitt í fyrsta sinn 16. september næstkomandi, á Degi íslenskrar náttúru. Dómnefndina skipa María Ellingsen, Jónatan Garðarsson og Valgerður A. Jóhannsdóttir. 8.9.2011 05:00
CCP vinnur með frægum hönnuði Nicola Formichetti, listrænn stjórnandi Mugler-tískuhússins, hefur unnið með tölvuleikjafyrirtækinu CCP að sýningu sem opnuð verður á tískuvikunni í New York í dag. 8.9.2011 03:00
Konur fá aðeins brot styrkja „Konur eru stundum ekki nógu duglegar við að stíga fram. Það er ekki nóg að þær hafi hugmynd á blaði, mikilvægt er að gera þær að veruleika og koma þeim í formi vöru á markað, segir Elinóra Inga Sigurðardóttir, formaður og stofnandi Samtaka frumkvöðlakvenna. 8.9.2011 02:00
Tvö hundruð þúsund króna sekt í kveðjugjöf Fjórir erlendir ferðamenn gengust í dag undir sektir vegna utanvegaksturs. Brotin voru framin í umdæmi lögreglustjórans á Húsavík. 7.9.2011 21:30
Hallar á hlut kvenna í íslenskum kennslubókum Námsgagnastofnun ætlar að endurskoða sögubækur fyrir grunnskólanema eftir að rannsókn Jafnréttisstofu leiddi í ljós að verulega hallar á hlut kvenna í bókunum. Dæmi eru um að engin kona sé nefnd í atriðisorðaskrá í kennslubókum. 7.9.2011 20:28
Fræðilegur möguleiki að mönnunum hafi tekist að brjóta á börnum Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, segir að lögreglan sé að styðjast við eftirlitsmyndavélar, sem eru nálægt fyrirtækjum og skólum, til að reyna að finna meinta barnaníðinga sem hafa reynt að lokka börn upp í ökutæki sín á höfuðborgarsvæðinu undanfarið. 7.9.2011 20:20
Óþekkur ökumaður handtekinn Kona á fertugsaldri var handtekin í Kópavogi í fyrradag en sú var ekki sátt við afskipti lögreglu. 7.9.2011 19:45
Neyðarljós sást á lofti Um klukkan hálf fimm í dag barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar tilkynning í gegnum Neyðarlínuna um neyðarljós á lofti yfir Sundunum við Reykjavík. Björgunarskip og björgunarbátar voru kallaðir út til leitar auk þyrlu Landhelgisgæslunnar. 7.9.2011 19:08
Formannsslagur í uppsiglingu? Hanna Birna Kristjánsdóttir útilokar ekki að fara gegn Bjarna Benediktssyni í formannskjöri á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Hún segist þó ekki hafa tekið neina ákvörðun enn. Mikill þrýstingur er innan flokksins á mótframboð. 7.9.2011 18:32
Vann ferð til Flórída fyrir fjölskylduna Dregið var í 25 ára afmælisleik Lottó og Bylgjunnar í þætti Simma og Jóa í sumarlok. Simmi og Jói hringdu í Maríu S. Jensdóttur og færðu henni þær fréttir að hún hefði unnið Flórída ferð fyrir fjölskylduna. 7.9.2011 17:25
Hræringar hugsanlega langtímaforboði eldgoss Í dag var haldinn fundur í Vísindamannaráði almannavarna þar sem rætt var um atburði liðinna vikna undir Mýrdalsjökli. 7.9.2011 16:49
Sprengdu jeppa Sprengja sprakk inn í jeppabifreið yfir utan heimili í Reykjahlíð aðfaranótt þriðjudags. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni brotnuðu rúður bílsins. 7.9.2011 16:47
Harður árekstur í Kópavogi Mög harður árekstur var nú fyrir skömmu á gatnamótum Nýbýlavegar og Dalvegar í Kópavogi. 7.9.2011 15:53
Ekki talið að maðurinnn hafi farist með voveiflegum hætti Ekki er talið að andlát mannsins, sem fannst látinn í fangaklefa sínum hjá lögreglunni á Suðurnesjum aðfaranótt þriðjudags, hafi borið að með óeðlilegum hætti. 7.9.2011 14:18
Sýknuð af fíkniefnaakstri - gaf þvagsýni án hanska Kona var sakfelld fyrir rangar sakargiftir og umferðalagabrot í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Konan var hinsvegar sýknuð af ákæru um að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. 7.9.2011 13:51
70 ára afmæli flugvallarins haldið á laugardag Flugsýning verður haldin á Reykjavíkurflugvelli á laugardag þar sem minnst verður 70 ára afmælis flugvallarins. Breskur herflugmaður í síðari heimstyrjöld var fyrsti flugmaðurinn sem lenti á vellinum og kemur hann sérstaklega til landsins til að fagna tímamótunum. 7.9.2011 13:24
Mikil óánægja með Jón Gnarr Rétt tæplega 62 prósent eru óánægð með störf Jóns Gnarr, borgarstjóra Reykjavíkur, samkvæmt könnun MMR. Þar kemur fram að 38,3 prósent aðspurðra eru ánægð með störf borgarstjórans. 7.9.2011 13:21
Stöðvuðu kannabisræktun í fjölbýlishúsi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í austurborginni í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á 10 kannabisplöntur, auk græðlinga samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. 7.9.2011 12:51
Kostnaður vegna þunglyndislyfja lækkað um hálfan milljarð Kostnaður Sjúkratrygginga Íslands vegna þunglyndislyfja hefur lækkað um tæpan hálfan milljarð á einu ári, frá 1. júní 2010 til 31. maí 2011 miðað við síðustu tólf mánuði þar á undan. 7.9.2011 12:09
Heilbrigðisnefnd samþykkir staðgöngumæðrun í velgjörðaskyni Meirhluti Heilbrigðisnefndar hefur afgreitt þingsályktunartillögu Ragnheiðar Elínar Árnadóttur þingmanns Sjálfstæðisflokksins um að heimila staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni með breytingartillögu. 7.9.2011 12:05
Dæmdur fyrir hnefahögg Karlmaður var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 7.9.2011 11:21
Læknir á bráðamóttöku: Það sem aldrei venst eru umferðaslysin "Eftir nokkra áratuga starf á Slysa- og bráðamóttöku ætti maður að vera kominn með þykkan skráp,“ skrifar Vilhjálmur Ari Arason, læknir á Landspítalanum, um hraðakstur í Fréttablaðið í dag. 7.9.2011 10:40
Segir forseta brigsla ráðamenn um landráð og líkir honum við Lady Ga Ga Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra, gagnrýnir forseta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson, harðlega í grein sem birtist í Fréttablaðinu og á Vísi í dag. Þar segir Jón Baldvin forsetann brigsla ríkisstjórnina um landráð, „með því að semja um Icesave – beygja sig fyrir fáránlegum kröfum og ofbeldi Breta og Hollendinga, eins og hann [Ólafur Ragnar innskt. blm.]kallar það – hafi ríkisstjórnin brugðist þjóðarhagsmunum,“ skrifar Jón Baldvin. 7.9.2011 10:21
Ekki boðið upp á iðjuleysi í Skálholti Verkefni nýs vígslubiskups í Skálholti, séra Kristjáns Vals Ingólfssonar, verða í meiri tengslum við samfélagið heldur en störf vígslubiskupa hafa verið hingað til. 7.9.2011 10:00
Lést í varðhaldi lögreglunnar Karlmaður af pólskum uppruna lést í fangaklefa sínum á Suðurnesjum aðfaranótt þriðjudags. Lögreglan á Suðurnesjum staðfestir í samtali við fréttastofu maðurinn hafi látist í þeirra umsjá, en ekki er vitað dró manninn til dauða. Krufning mun leiða það í ljós. 7.9.2011 09:47
Með fimm vélum til Heidelberg „Það hefur ekki gengið illa hjá okkur,“ segir Þorvarður Gunnarsson, forstjóri endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte, nýkominn heim frá Heidelberg í Þýskalandi þar sem hann fagnaði um helgina árshátíð ásamt starfsmönnum sínum og mökum þeirra. 7.9.2011 08:15
Gæti hafa verið blekktur með staðdeyfilyfi Sautján ára piltur sem tekinn var með 30 þúsund e-töflur í farangri sínum í Leifsstöð fyrir tæpum tveimur vikum reyndist einnig hafa í fórum sínum tvö kíló af staðdeyfilyfinu líkódíni. Þetta hefur efnagreining leitt í ljós. 7.9.2011 08:00
Þyrlan fann tvo villta pilta Víðtæk leit var gerð í nótt að tveimur nítján ára gömlum piltum sem villtust á Reykjanesi. Þeir höfðu verið á fjórhjólum og hringdu í föður annars þeirra um miðnættið og sögðust vera rammvilltir í nágrenni við Fagradalsfjalla norður af Grindavík. Lögreglan á Suðurnesjum hóf strax leit og síðan voru björgunarsveitir kallaðar út ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þyrlan fann svo drengina heila á húfi skömmu eftir að leit hófst og flutti til Grindavíkur. 7.9.2011 07:19
Sex konur til viðbótar ásaka Ólaf Skúlason Að minnsta kosti sex konur til viðbótar segja að Ólafur Skúlason heitinn, fyrrum biskup, hafi brotið gegn sér kynferðislega. Einhverjar af konunum hafa látið fagráð þjóðkirkjunnar vita af málinu. 7.9.2011 07:00
Hröð atburðarás þegar fíklar smitast af HIV Hlutfall HIV-smitaðra sprautufíkla hefur hækkað gífurlega á síðustu árum. Nauðsynlegt er að lágmarka skaðann með vakningu, betra aðgengi að smokkum og hreinum nálum. Þegar fíklar fá fréttir af jákvæðum niðurstöðum búast þeir oft á tíðum við þeim. 7.9.2011 07:00
Áfallahjálp í Office 1 vegna verslunarstjóra „Þetta er hálfpartinn eins og að takast á við dauðsfall í fjölskyldunni,“ lýsir Kjartan Örn Sigurðsson, forstjóri Office 1, áhrifum þess að samstarfsmaður til margra ára var rekinn vegna stórfellds þjófnaðar. 7.9.2011 07:00
Ró yfir Kötlu í nótt Lítið var um jarðskjálfta í Mýrdalsjökli í nótt eftir óróa síðustu daga. Um sjö smáskjálftar sjást á mælum veðurstofunnar en í gær voru þeir á þriðja tug. Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur, flaug yfir Kötlu í gærkvöldi ásamt vísindamönnum, sérfræðingum frá Veðurstofu Íslands og fulltrúa frá Almannavörnum. 7.9.2011 06:45
ESB er enn vandræðamál Enn einu sinni þurftu stjórnarliðar að svara fyrir málsmeðferð sína varðandi aðildarumsókn að Evrópusambandinu á Alþingi í gær. Málið ætlar að reynast stjórninni til ómældra vandræða, enda virðast ekki allir líta svo á að samþykkt Alþingis í málinu hafi úrslitavald. 7.9.2011 06:00