Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fólk safnast saman í fjöldarhjálpastöðvum Þegar eru komnir 30 manns í fjöldahjálpastöðina á Kirkjubæjarklaustri, segir Elín Valdimarsdóttir, einn fulltrúa Rauða krossins þar. Fjöldahjálparstöðvar voru opnaðar í grunnskólanum á Kirkjubæjarklaustri og í Grunnskólanum í Vík vegna hlaupsins í Múlakvísl og þess goss sem virðist vera hafið í Kötlu. 9.7.2011 09:43
Hnífstunga á Bestu útihátíðinni Um átta þúsund manns eru nú á Bestu útihátíðinni á Gaddstaðaflötum við Hellu. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli var nóg að gera hjá þeim í nótt, talsverðir pústrar í gangi og nokkur óróleiki eins og það var orðað. Einn var stunginn með hnífi en sá mun ekki hafa slasast alvarlega. Sá sem lagði til hans er nú vistaður í fangageymslum og er málið í rannsókn. Þá var tilkynnt um eina líkamsárás á svæðinu. 9.7.2011 09:39
Átt þú myndir af svæðinu? Þeir vegfarendur sem hafa átt eða eiga leið um Múlakvísl og svæðið í kringum Mýrdalsjökul og verið með myndavél meðferðis geta sent myndir á netfangið frettir@stod2.is. 9.7.2011 09:25
Búið að rýma í Álftaveri Búð er að rýma í Álftaveri og bæi í Höfðabrekku. Í Álftaveri var töluverður fjöldi fólks samankominn, að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli, enda stóð til að ættarmót færi þar fram um helgina. Álftaver er lítil sveit í Vestur-Skaftafellssýslu, vestan við Kúðafljót og rétt austan við Mýrdalssand. 9.7.2011 09:06
Róleg nótt hjá lögreglu Þrír ökumenn voru stöðvaðir á Akureyri og í Reykjavík í nótt og morgun grunaðir um ölvunarakstur. Þá stöðvaði lögreglan á Selfossi einn ökumann undir Ingólfsfjalli í gærkvöldi en sá ók á 140 kílómetra hraða en þar er hámarkshraði 90 kílómetrar á klukkustund. Að öðru leyti var nóttin róleg hjá lögregluembættum víða um land. Sæluhelgi fer fram á Suðureyri og segir vaktstjóri hjá lögreglunni á Ísafirði að mikið af fólki sé í bænum og allt hafi farið vel fram. 9.7.2011 09:05
Sorpa reisir dýra gas- og jarðgerðarstöð Sorpa áformar að reisa gas- og jarðgerðarstöð á Álfsnesi en heildarkostnaður við hana gæti orðið vel á annan milljarð að sögn Bjarna Gnýs Hjarðar, yfirmanns þróunar- og tæknideildar Sorpu. 9.7.2011 09:00
Almannavarnir lýsa yfir hættustigi Hætturstigi hefur verið lýst yfir vegna hlaupsins í Múlahvísl. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra en ákvörðunin var tekin í samráði við lögreglustjórann á Hvolsvelli. Brúin yfir Múlahvísl er farin en hún var 128 metra löng byggð árið 1990. 9.7.2011 08:55
Sigkatlar benda til að lítið gos sé hafið Sigkatlar hafa myndast sem gæti verið í samræmi við það að lítið gos sé hafið sem ekki er komið upp á yfirborðið, segir Sigurlaug Hjaltadóttir, jarðskjálftafræðingur á Veðurstofunni. Sigurlaug hefur þetta eftir stýrimanni á þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þyrlan flaug yfir Mýrdalsjökul snemma í morgun. Þá sáust sigkatlarnir, en enginn gosmökkur sást. 9.7.2011 08:45
Suðurlandsvegur enn lokaður Suðurlandsvegi hefur verið lokað í báðar áttir við Vík og austan við Skálm vegna hlaups í Múlakvísl og mögulegs goss í Kötlu. Engar hjáleiðir eru mögulegar, nema Fjallabaksleið, að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli. 9.7.2011 08:26
Líkir meðferð Ísraela við apartheid Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra var á ferð um Vesturbakkann og Jerúsalem í gær að kynna sér aðstæður. Hann segir þær skelfilegar. 9.7.2011 08:00
Kötlugos hugsanlega hafið Ef þetta er gos að þá er um að ræða lítið Kötlugos, segir Sigurlaug Hjaltadóttir, sérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Gosórói hefur mælst í Kötlu á mælum Veðurstofunnar. Sigurlaug segist vera að bíða eftir upplýsingum frá sérfræðingi sem hún sendi með þyrlu Landhelgisgæslunnar fyrr í morgun til þess að kanna aðstæður. 9.7.2011 07:53
Hundur réðst á ísbjörn og beit Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú rottweiler-hunds og eiganda hans eftir að sá fyrrnefndi réðst á gervihvítabjörn á Laugaveginum síðdegis í gær. Myndir náðust af geranda og eiganda hans, sem hurfu á braut. 9.7.2011 07:00
Varasamar biðstöðvar þyrnir í augum Strætó "Þetta er ekki til fyrirmyndar,“ segir Einar Kristjánsson, hjá skipulags- og þróunarsviði Strætós, um tvær biðstöðvar á Vesturlandsvegi. 9.7.2011 06:30
Herflugvélabann undir smásjánni Í utanríkisráðuneytinu er það nú til vandlegrar skoðunar hvort fyrirhugað lendingarbann herflugvéla á Reykjavíkurflugvelli sé mögulegt og í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar Íslendinga. 9.7.2011 06:00
Deilur tefja nýtt fangelsi Ráðherrar í ríkisstjórn Íslands eru ekki sammála um hvaða leið beri að fara við byggingu nýs fangelsis. Mikill fjöldi brotamanna, sem hlotið hefur dóma, gengur laus þar sem ekki er pláss fyrir þá í fangelsum landsins. 9.7.2011 05:00
Lýst eftir Eggerti Davíð Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Eggerti Davíð Jóhannssyni, 16 ára. Talið er að hann sé klæddur í ljósbrúnan jakka, rauðar buxur, í svörtum bómullarbol og í hvítum strigaskóm. Hann er með derhúfu á höfði. Eggert er grannvaxinn og um 177 sm á hæð, með blá augu og stutt, litað ljóst hár. Síðast er vitað um ferðir hans í Hamraborg í Kópavogi um miðjan dag s.l. mánudag. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Eggerts eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000. 8.7.2011 16:13
Vill lögreglurannsókn á vondum bókarskrifum Bókin Saga Akraness, 1. bindi, fær vægast sagt skelfilega útreið í bókargagnrýni Páls Baldvins Baldvinssonar í Fréttatímanum í dag. Bókin hefur hingað til verið þekktust fyrir það að vera dýr í útgáfu en hún kostaði yfir 100 milljónir króna. 8.7.2011 15:12
Líkamsræktarsýning í Hörpu í haust Icelandic Fitness and Health Expo verður haldin í Hörpu í nóvember næstkomandi. Um er að ræða árlega sýningu, ráðstefnu og keppni í hverju sem viðkemur líkamsrækt og heilsu. Keppt verður í vaxtarrækt, aflraunum, kraftlyftingum. 8.7.2011 14:58
Harður árekstur við Hafravatn Harður árekstur varð á Suðurlandsvegi rétt eftir klukkan tvö í dag. Tveir bílar skullu saman austan við afleggjarann að Hafravatni og eru lögregla og sjúkralið á staðnum. Annar bílanna mun hafa oltið við áreksturinn. Engar upplýsingar hafa borist um aðdraganda slyssins eða ástand þeirra sem voru í bílunum. Miklar umferðartafir eru á veginum og biður lögregla vegfarendur að sýna biðlund. Umferð er beint um hjáleið og verður svo næsta klukkutímann í það minnsta. 8.7.2011 14:52
Áreittu 15 ára gamla stúlku á tjaldsvæði Tveir 26 ára gamlir karlmenn voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun dæmdir í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðislega áreitni gegn fimmtán ára gamalli stúlku. Atvikið átti sér stað á tjaldstæði á Flúðum. 8.7.2011 13:46
Kona reyndi sjálfsvíg með kjöthníf Kona sem flutt var í Kópavogsfangelsið í vikunni reyndi að skera sig á háls með kjöthníf. Hún var í fíkniefnavímu þegar hún kom inn. Í Kópavogsfangelsinu er engin aðstaða til að leita á fólki nema á salerni fangelsisins. Illa gekk að hemja konuna við svo erfiðar aðstæður og hún rauk inn í eldunaraðstöðu fanga, greip þar kjöthníf og ætlaði að skera sig á háls. 8.7.2011 13:30
Blaðamaður DV dæmdur fyrir meiðyrði Jón Bjarki Magnússon, blaðamaður á DV, hefur verið dæmdur til að greiða Kim Gram Laurse 500 þúsund krónur í bætur vegna ummæla í grein sem hann skrifaði um forræðisdeilu sem sá síðarnefndi stóð í. Hann er einnig dæmdur til að greiða honum 750 þúsund krónur í málskostnað. 8.7.2011 12:50
Jóhanna á fund Angelu Merkel Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra Íslands, mun eiga fund með Angelu Merkel kanslara Þýskalands á mánudaginn. Merkel boðaði Jóhönnu til fundarins og munu þær stöllur hittast klukkan ellefu á mánudagsmorgun. 8.7.2011 12:03
Götuvirði efnanna var yfir 120 milljónir Götuverð fíkniefnanna sem Junierey Kenn Pardillo Juarez var dæmdur fyrir að flytja inn til landsins nemur um 122 milljónum króna. Samkvæmt verðsamantekt SÁÁ frá því í apríl síðastliðnum kostar bæði e-tafla og LSD skammtur 3000 krónur. Þetta þýðir að heildarverðmæti alsælunnar sem Juares flutti inn nam 108 milljónum króna en heildarverðmæti LSD-efnisins nam 13,5 milljónum. 8.7.2011 11:54
Rúm sex ár fyrir fíkniefnasmygl Junierey Kenn Pardillo Juarez hefur verið dæmdur í sex og hálfs árs fangelsi fyrir fíkniefnainnflutning. Maðurinn var fundinn sekur um að hafa flutt inn 36 þúsund alsælutöflur og 4500 skammta af LSD þann 23. mars síðastliðinn. Maðurinn fluttin efnin inn frá Las Palmas á Kanaríeyjum, en tollverðir fundu fíkniefnin í ferðatöskum ákærða við komu hans til Keflavíkurflugvallar. 8.7.2011 11:14
Ræddi friðarumleitanir í Mið-Austurlöndum Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra ræddi friðarumleitanir í Mið-Austurlöndum, stuðning við Palestínumenn í baráttu þeirra fyrir viðurkenningu á sjálfstæði og tvihliða samskipti Íslands og Jórdaníu á fundi með Nasser Judeh, utanríkisráðherra landsins í Amman í gær. 8.7.2011 10:22
Vöruverð hefur víðast hækkað frá febrúar Vöruverð í verslunum hefur hækkað í flestum verslunarkeðjum um 1-2% frá því í febrúar, nema í Nettó þar sem vörukarfan lækkaði um 5,2% og í Samkaupum-Úrvali um -3,4%. Þetta sýna niðurstöður nýjustu verðkönnunar ASÍ. 8.7.2011 10:16
Vilja reglulegt millilandaflug Stofnaður hefur verið Flugklasi á vegum Markaðsstofu ferðamála á Norðurlandi. Klasinn er samstarfsverkefni fyrirtækja og stofnana sem koma nálægt ferðaþjónustu á svæðinu og hefur það sem markmið að koma á reglulegu millilandaflugi um Akureyrarflugvöll. 8.7.2011 09:15
Ísland fimmta dýrasta landið Mikill verðmunur er á vegabréfum milli Evrópulanda. Það kostar mest að fá sér vegabréf í Belgíu, 2.759 íslenskar krónur fyrir hvert ár sem það gildir, en ódýrast í Tékklandi, 396 krónur fyrir hvert ár. Þetta kemur fram á vef Neytendasamtakanna. 8.7.2011 09:00
Milljónir sáu eldað á eldfjalli Um tuttugu milljónir manna í Japan fylgdust með feðgunum Eiríki Inga Friðgeirssyni og Friðgeiri Inga Eiríkssyni hjá Gallery Restaurant á Hótel Holti elda úti undir berum himni á Fimmvörðuhálsi síðasta sunnudag. Feðgarnir tóku þátt í gerð japansks raunveruleikaþáttar. 8.7.2011 08:30
Ótryggðum vespum beint á göngustíga Litlar rafmagnsvespur hafa á skömmum tíma orðið algengur fararskjóti meðal barna og unglinga á höfuðborgarsvæðinu. Óvissa er um réttarstöðu bæði ökumanna og gangandi vegfarenda verði vespuslys. 8.7.2011 08:15
Fangaverðir lenda ítrekað í lífshættu Fangar í fangelsum landsins verða sífellt hættulegri og erfiðari og fangaverðir eru í stöðugri hættu vegna aðstöðuleysis, segir Einar Andrésson, formaður Fangavarðafélags Íslands, sem starfar í Fangelsinu Kópavogi. 8.7.2011 08:00
Lýðræðistalið er yfirskin Fræðimaðurinn, fyrirlesarinn og kennari við Harold Washington Community College í Chicago, Zalmay Gulzad, gagnrýnir utanríkisstefnu Bandaríkjanna harðlega og telur að aukin menntun og víðsýni ungs fólks í arabaheiminum geri Bandaríkjunum erfiðara að halda yfirráðum sínum. Í samtali við Jón Sigurð Eyjólfsson blaðamann sagði hann einnig að það væru reginmistök að vopnavæða uppreisnarmenn í Líbíu, það hefði sýnt sig að þannig sköpuðu þeir nýja hættu og meiri hörmungar. 8.7.2011 07:30
Ók á rútu og bakkaði á löggubíl Ölvaður ökumaður ók utan í hópferðabíl á Sæbraut, á móts við Kringlumýrarbraut í gærkvöldi og hélt för sinni áfram. Skömmu síðar gáfu lögreglumenn á bíl honum stöðvunarmerki á Skúlagötu og brást hann við með því að snar stoppa bílinn, reka hann í bakkgír og bakka framan á lögreglubílinn. 8.7.2011 07:20
Hljóp í veg fyrir bíl Sex ára drengur, sem var á göngu með móður sinni á Rauðarárstíg í Reykjavík á tíunda tímanum í gærkvöldi, sleit sig lausann frá móðurinni og hljóp út á götuna í veg fyrir bíl. Bíllinn var sem betur fer á lítilli ferð þannig að höggið varð ekki mikið þegar þeir skullu saman. 8.7.2011 07:19
Ósáttur við nýtt samkomulag Kristján Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, er ósáttur við þær áætlanir Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra og Jóns Gnarr borgarstjóra að hætta við byggingu nýrrar samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýrinni. 8.7.2011 07:15
Ungmenni í hrakningum á Meðalfellsvatni Fjórum ungmennum var bjargað, blautum, köldum og hröktum, af hólma í Meðalfellsvatni, eftir að bát þeirra hvolfdi upp úr miðnætti og þau lentu í vatninu. 8.7.2011 07:01
Fallegur fiskur lagður í sósuna Brúnin lyftist heldur betur á Kristjáni Berg í fiskbúðinni Fiskikónginum þegar sjómenn af Þór HF færðu honum guðlax í gær. Þessi sextíu kílóa fiskur slæddist í trollið á 400 faðma dýpi, 230 mílur úti af Reykjanesi. 8.7.2011 07:00
Óvenjulega mikið af birkifrjói Mjög mikið hefur verið af frjókornum í lofti í Reykjavík það sem af er sumri, segir Margrét Hallsdóttir, jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. Mjög lítið hefur aftur á móti verið af frjókornum á Akureyri. 8.7.2011 06:45
Vilja úttekt fyrir Reykjavík Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram tillögu á síðasta borgarráðsfundi um úttekt á áhrifum fyrirhugaðra breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu fyrir Reykjavík. 8.7.2011 06:30
Olli vélsmiðjunni skaða og álitshnekki Vegagerðin hefur verið dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur til þess að greiða Vélsmiðju Orms og Víglundar ehf. um 40 milljónir króna vegna vanefnda á verksamningi og ógreiddra reikninga vegna viðbótarviðgerða á Sæfara, Grímseyjarferjunni svokölluðu. Einnig var henni gert að greiða þrjár milljónir króna í málskostnað. 8.7.2011 06:15
Afrískur matur heillar Fyrsti eþíópíski veitingastaðurinn hér á landi var opnaður á Flúðum á sjálfan þjóðhátíðardag Íslendinga í júní síðastliðnum. Einn eigendanna, Azeb Kahssay, segir að Íslendingar hafi tekið þessari nýbreytni afar vel. 8.7.2011 06:00
Skráningu fornminja áfátt Ísland, eitt Norðurlandaríkjanna, hefur ekki lokið tæmandi fornleifaskráningu. Við gerð 1. og 2. áfanga rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða vegna orkunýtingar þurftu fornleifafræðingar því að reiða sig á heimildarskráningu fornleifafræðinga 19. aldar. Minjayfirvöld telja sig hafa litlar forsendur til að svara því hvaða menningarverðmæti verði fyrir skaða við þá virkjunarkosti sem áætlunin fjallar um. 8.7.2011 05:30
Keppt um besta myndbandið Sterk, samtök gegn vændi og mansali, hafa fengið styrki frá Reykjavíkurborg og innanríkisráðuneytinu til að setja á fót forvarnaverkefni gegn vændi. Verkefnið er myndbandskeppni og fer í gang í haust. Allir undir 35 ára aldri geta tekið þátt. 8.7.2011 05:30
Byggja nýjan snjóvarnargarð Stefnt er að því að ljúka undirbúningsvinnu fyrir snjóvarnargarð á Patreksfirði á næstu mánuðum. 8.7.2011 05:00