Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hátíðarsamkoma á Hrafnseyri við Arnarfjörð Umfangsmiklum endurbótum á Hrafnseyri við Arnarfjörð er nú að ljúka, en í þær var ráðist í tilefni af 200 ára afmælisári Jóns Sigurðssonar, sem fæddist á Hrafnseyri 17. júní 1811. Af því tilefni verður blásið til hátíðarsamkomu þar vestra á morgun og opnuð sýning um Jón. 16.6.2011 06:30
Engin sumarlokun hjá Fjölskylduhjálpinni Fjölskylduhjálp Íslands verður ekki lokað í sumar eins og undanfarin sumur, að sögn Ásgerðar Jónu Flosadóttur stjórnarformanns. 16.6.2011 06:00
Fyrsti tankurinn farinn „Það er mánuður síðan fyrsti tankurinn fór og annar er að fara af stað,“ segir Jón Elías Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Ölvisholts Brugghúss í Flóahreppi. 16.6.2011 05:00
Hliðum enn stolið við Dyrhólaey Íbúar í Mýrdalshreppi hafa síðustu daga haldið áfram að taka niður hlið, keðjur og aðrar hindranir sem Umhverfisstofnun hefur sett upp við Dyrhólaey. Á sunnudag lá við handalögmálum við eyjuna þegar íbúar reyndu að koma í veg fyrir að starfsmaður Umhverfisstofnunar setti upp keðjur á svæðinu. 16.6.2011 05:00
Nefndin bað ekki um landsdóm Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrum utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segir Ögmund Jónasson innanríkisráðherra ekki þekkja niðurstöður Rannsóknarnefndar Alþingis varðandi Landsdómsmálið. Á Facebook-síðu sinni segir Ingibjörg að Ögmundur hafi sýnt fram á það í grein sem birtist í Fréttablaðinu í gær. 16.6.2011 04:30
Koma til Reykjavíkur á morgun - allt gengið vonum framar „Við höfum ekki vigtað okkur ennþá en það eru örugglega einhver kíló farin,“ segir Sveinn Benedikt Rögnvaldsson, sem er einn fjögurra, sem hefur hlaupið hringinn í kringum landið síðustu tvær vikur. Hópurinn er nú staddur í Hvalfirðinum og reikna með að koma í bæinn á morgun klukkan þrjú. 15.6.2011 20:21
Íbúarnir slökktu eldinn í þvottavélinni Eldur kom upp í þvottavél í einbýlishúsi á Dyngjuvegi nú fyrir stundu. Þegar slökkvilið kom á vettvang voru íbúar í húsinu búnir að slökkva eldinn með slökkvitæki sem var í húsinu og koma þvottavélinni út á blett. Ekki þurfti að reykræsta íbúðina og voru gluggar í þvottahúsinu einungis opnaðir, samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. 15.6.2011 19:59
Drekaútboð frestast - orkumálastjóri sleginn Fresta verður Drekaútboðinu um þrjá til fjóra mánuði sökum þess að Alþingi afgreiddi ekki nauðsynlegar lagabreytingar. Orkumálastjóri segist sleginn þar sem nú hafi verið lag að bjóða út olíuleit. 15.6.2011 19:15
Þorvaldseyri: Bestu túnin þar sem mesta askan féll Heyskapur hófst undir Eyjafjöllum í dag, viku síðar en í fyrra. Bóndinn á Þorvaldseyri segir öskuna spara sér mikinn áburð og bestu túnin séu þar sem mesta askan féll. 15.6.2011 18:46
Grunnskólabörn selja rítalíntöflu á fimm þúsund krónur Dæmi eru um að grunnskólabörn á aldrinum 13-15 ára sem taka inn rítalín og önnur skyld lyf vegna ADHD raskana selji rítalíntöfluna á hátt í fimm þúsund krónur á svörtum markaði. ADHD samtökin lýsa yfir áhyggjum vegna þessara mála og hvetja foreldra til að hafa meira eftirlit með lyfjatöku barna sinna. 15.6.2011 18:41
Bónus innkallar Bragðarefsís Bónus hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur ákveðið að innkalla Bónus Bragðarefsís. 15.6.2011 18:09
Hefur þú séð Regínu Sif? Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Regínu Sif Marinósdóttur . Regína er 19 ára gömul um 170 cm á hæð, þéttvaxin, dökkhærð með axlarsítt hár. 15.6.2011 17:43
Bilun í stofnneti Mílu á austurlandi Bilun hefur komið upp í stofnneti Mílu á austurlandi samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu. Bilunin er í örbylgjubúnaði á Gagnheiði og veldur því að sambandslaust er til Mjóafjarðar. 15.6.2011 16:42
Samráðshópur áfallahjálpar fundaði á Kirkjubæjarklaustri Þjónustumiðstöð almannavarna á Kirkjubæjarklaustri var opnuð í kjölfar eldgossins í Grímsvötnum til að aðstoða heimamenn fyrir austan við uppbyggingastarfið samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum. 15.6.2011 16:37
Kirkjan biður Guðrúnu Ebbu afsökunar Fagráð kirkjunnar hefur beðið Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur afsökunar á að hafa brugðist henni með því að styðja hana ekki og leiðbeina henni ekki sem skyldi á árunum 2008-2010. 15.6.2011 15:49
Tveir dýrbítar í Hrunsfirði - eigendur létu bændur vita Hundur af tegundinni Siberian Husky drap lamb í Hraunsfirði á Snæfellsnesi síðasta laugardag samkvæmt fréttavefnum Skessuhorn.is. Það sama gerðist á sunnudeginum, en þá var á ferðinni annar hundur af sömu tegund. 15.6.2011 15:43
Ingibjörg Sólrún setur enn ofan í við Ögmund Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir Ögmund Jónasson, innanríkisráðherra, ekki þekkja niðurstöður Rannsóknarnefndar Alþingis, og að hann hafi staðfest það í Fréttablaðinu í dag. 15.6.2011 14:52
„Rjóður í kynnum“ - nýtt skógakort komið út Í tilefni af alþjóðlegu ári skóga árið 2011 hafa Skógræktarfélag Íslands og Arion banki gefið út kortið ,,Rjóður í kynnum" en í því er að finna upplýsingar um 50 áhugaverða útivistarskóga um land allt. 15.6.2011 14:29
Siðareglur fyrir Bíladaga á Akureyri samþykktar Bílaklúbbur Akureyrar hefur samþykkt sérstakar siðareglur fyrir Bíladaga 2011 þar sem gestir hátíðarinnar eru hvattir til þess að ganga vel um og sýna íbúum og öðrum gestum bæjarins fyllstu tillitssemi. Hátíðin fer fram næstu helgi og hefur verið mjög vinsæl undanfarin ár. 15.6.2011 14:06
Stofna Aldarafmælissjóð Háskóla Íslands Í tilefni af aldarafmæli Háskóla Íslands hefur verið ákveðið að koma á laggirnar Aldarafmælissjóði Háskóla Íslands. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra lýsti þessu yfir á Alþingi í dag á sérstökum þingfundi til minningar um Jón Sigurðsson . Stofnframlag í sjóðinn á afmælisárinu 2011 er 150 milljónir króna en markmiðið með stofnun hans er að efla rannsóknir og nýsköpun sem nýtast muni til uppbyggingar atvinnulífs og verðmætasköpunar í þágu íslensks samfélags og þjóðar. 15.6.2011 13:44
Búið að taka skýrslur af sjö konum Kynferðisbrotadeild lögreglunnar hefur lokið við að taka skýrslur af sjö konum sem saka Gunnar Þorsteinsson, fyrrverandi forstöðumann Krossins, um kynferðisbrot. Málinu hefur verið vísað til ákæruvaldsins. Gunnar hefur frá upphafi neitað sök. Lögreglan tekur ekki afstöðu til þess hvort brot séu fyrnd, en meint brot Gunnars eru allt að tuttugu ára gömul. Ákæruvaldið metur slíkt og ákveður í framhaldinu hvort gefin verður út ákæra. 15.6.2011 13:11
Fréttaskýring: Hvernig var starfi háttað á nýafstöðnu þingi? Fjöldi laga var samþykktur á síðustu starfsdögum þings fyrir sumarfrí. Ber þar hæst minna kvótafrumvarpið, bandorm um ríkisfjármál og lög um þingsköp. Eftirlitshlutverk gegn framkvæmdarvaldi aukið. 15.6.2011 13:00
Dagur hinna villtu blóma Dagur hinna villtu blóma verður haldinn hátíðlegur á sunnudag á fjórtán stöðum vítt og breitt um landið. 15.6.2011 13:00
Braust inn til fyrrverandi sambýliskonu sinnar og tók húsbúnað Karlmaður var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Austurlands í gær fyrir að brjótast tvívegis inn til fyrrverandi sambýliskonu sinnar og tekið þaðan ýmsan húsbúnað sem hann taldi sig eiga. 15.6.2011 12:59
Tillaga um prófessorsstöðu í nafni Jóns samþykkt Alþingi samþykkti í morgun þingsályktunartillögu um prófessorsstöðu tengda nafni Jóns Sigurðssonar forseta. Það var forsætisnefnd Alþingis sem lagði tillöguna fram í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli Jóns 17. júní næstkomandi. 15.6.2011 11:53
Launadeila starfsmanna Isavia til ríkissáttasemjara Kjarasamningaviðræðum Félags flugmálastarfsmanna ríkisins (FFR) og Isavia annarsvegar og SFR stéttarfélags í almannaþjónustu og Isavia vegna félagsmanna sem starfa hjá Isavia, hinsvegar, hefur verið vísað til ríkissáttasemjara. 15.6.2011 11:47
Hundar bannaðir á hátíðarsamkomum Um leið og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur óskar borgarbúum gleðilegrar hátíðar á 17. júní vill það minna hundaeigendur á að óheimilt er að vera með hunda á hátíðarsamkomum, skipulögðum fyrir almenning, meðal annars vegna tillitssemi við aðra gesti. Þá er einnig óheimilt að vera með hunda í nokkrum götum í miðborginni: Ingólfstorgi, Aðalstræti, Austurstræti, Lækjartorgi, Bankastræti og Laugavegi að Rauðarárstíg. Hundaeftirlit Reykjavíkur minnir á að hundar skulu án undantekninga vera í taumi á borgarlandinu svo sem á stígum og í görðum Reykjavíkurborgar. Heimilt er aftur á móti að sleppa hundum lausum á Geirsnefi, Geldingarnesi og auðum svæðum fjarri íbúðabyggð og innan hundaheldra girðinga. Reykjavíkurborg og borgarbúar hafa undanfarin ár unnið saman að því að fegra borgina og snyrta og eitt af því sem hundaeigendur eiga að gera er að þrífa skítinn upp eftir hunda sína. 15.6.2011 11:25
Hvetur nemendur til þess að kæra hausaveiðar norska hersins "Það er náttúrulega alveg rakið að einhverjir ungir, róttækir og röskir nemendur taki sig til og leggi fram kæru,“ segir Stefán Pálsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga, um útsendara norska hersins sem hefur komið hingað til lands og kynnt starfsemi hersins í þremur menntaskólum. Þar af gamla skólanum hans Stefáns, Menntaskólanum í Reykjavík. Auk MR hafa kynningarnar, eða nýliðunin, farið fram í Verslunarskólanum og Menntaskólanum Hraðbraut. 15.6.2011 11:15
Lögbrot að ráða menn til erlendrar herþjónustu Sigurður Líndal prófessor emeritus við lagadeild Háskóla Íslands, segir að sér sýnist sem norski herinn sé að brjóta lög með því að bjóða íslendingum vist í hernum en eins og greint hefur verið frá hefur útsendari norska hersins heimsótt framhaldsskóla og kynnt herinn fyrir íslenskum ungmennum. Í 114. grein almennra hegningarlaga segir að hver sem sem ræður menn innan íslenska ríkisins til erlendrar herþjónustu, skuli sæta fangelsi allt að tveimur árum. 15.6.2011 11:09
Fórnarlamb biskups: Ekki hrædd lengur Dagbjört Guðmundsdóttir, eitt fórnarlamba Ólafs Skúlasonar, var stödd á kirkjuþingi í gær. Hún er í alla staði ánægð með skýrsluna og telur hana afar vel unna. Dagbjört segir kirkjuna í heild hafa brugðist henni, Guðrúnu Ebbu og Sigrúnu Pálínu á sínum tíma, ekki einungis Karl Sigurbjörnsson biskup. Hún telur ekki nauðsynlegt að Karl víki úr embætti. Dagbjört krefur hins vegar kirkjuna sem heild um aðgerðir. 15.6.2011 11:00
Brasilíufangi: Ég vil enga vorkunn "Ég ætla bara byrja líf mitt upp á nýtt og stefni ótrauður á nám. Nú er þessi tími að baki og ég ætla bara að horfa fram á veginn,“ segir Karl Magnús Grönvold. Þrjár vikur eru liðnar síðan Karl Magnús sneri aftur heim til Íslands eftir erfið fjögur ár í Brasilíu. 15.6.2011 10:30
Jón forseti á frímerki Jón Sigurðsson forseti verður á nýjum frímerkjum í tilefni af því að 200 ár eru liðin frá fæðingu Jóns. Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar fór þess á leit við Íslandspóst að minnast afmælisins með frímerkjaútgáfu. 15.6.2011 09:17
Brynjar svaf á köldu gólfi í fangelsi í Taílandi "Brynjar hefur ekkert játað. En við vitum að hann getur fengið tíu til fimmtán ára dóm,“ segir Eva Davíðsdóttir, systir Brynjars Mettinissonar sem situr í gæsluvarðhaldi í Taílandi vegna gruns um aðild að fíkniefnasmygli. 15.6.2011 09:00
Átak gegn svartri vinnu Alþýðusamband Íslands, Ríkisskattstjóri og Samtök atvinnulífsins kynntu í gær átak til eflingar góðra atvinnuhátta sem sérstaklega er beint gegn svartri atvinnustarfsemi. Kveðið var á um slíkt átak í nýgerðum kjarasamningum. 15.6.2011 09:00
Minningarfundur á Alþingi vegna Jóns forseta Alþingi kemur saman í dag og er aðeins eitt mál á dagskrá, tillaga um prófessorsstöðu tengda nafni Jóns Sigurðssonar forseta. Um er að ræða minningarfund í tilefni af 200 ára fæðingarafmælis Jóns næstkomandi föstudag. Tillagan er lögð fram af forsætisnefnd Alþingis. 15.6.2011 08:48
Tölvukerfi CCP opnað á ný eftir árásir Tölvukerfi fyrirtækisins CCP sem rekur veftölvuleikinn EVE Online var opnað aftur laust fyrir miðnætti eftir að alþjóðlegur hópur tölvuskæruliða gerðu árás á síðu fyrirtækisins síðdegis í gær. Viðbrögð fyrirtækisins voru að að taka allt úr sambandi til að koma í veg fyrir skaða. 15.6.2011 08:21
Megn bensínlykt í Eyjum Megn bensínlykt gaus óvænt upp úr ræsum við Vestmannabraut í Vetmannaeyjum í gærkvöldi og kallaði lögregla slökkvilið á vettvang af ótta við eldhættu. Lyktina lagði inn í íbúðarhús víða við götuna. 15.6.2011 08:17
Festist í færibandi Starfsmaður í fiskvinnsluhúsi í Vestmannaeyjum handleggsbrotnaði í gærkvöldi þegar hendi hans festist í færibandi sem var í gangi. Snarráður samstarfsmaður hans náði að slökkva á bandinu áður en verr færi, en maðurinn var fluttur á sjúkrahúsið í Eyjum þar sem gert var að brotinu. 15.6.2011 08:06
Tveir bifhjólamenn slösuðust Tveir bifhjólamenn slösuðust í umferðinni í gærkvöldi en hvorugur lífshættulega. Annar í Baugshlíð í Mosfellsbæ, en hann mun hafa lent í árkestri við bíl. Ekki er nánar vitað um tildrög slyssins. 15.6.2011 07:54
Erlendi ferðamaðurinn enn á spítala Erlendur ferðamaður sem brenndist alvarlega á fæti þegar hann steig ofan í hver í Reykjadal ofan við Hveragerði í gærkvöldi er enn á Landspítalanum í Reykjavík. 15.6.2011 07:52
Norski herinn á hausaveiðum hér Norski herinn hefur í allnokkur skipti reynt að fá nýliða frá Íslandi og nú gegna tíu íslenskir ríkisborgarar herþjónustu í Noregi. Roger Johnsen, skólastjóri verkfræðiskóla hersins, staðfesti í viðtali við norska ríkisútvarpið að reynt hefði verið að fá nýliða héðan með kynningum í íslenskum framhaldsskólum og að umsóknir hefðu borist á hverju ári. 15.6.2011 07:00
Rjúpum fækkar um 26 prósent Rjúpum fækkaði um nær allt land á milli áranna 2010 og 2011 og nemur meðalfækkun rjúpna á öllum talningarsvæðum um 26 prósentum. Mat á veiðiþoli stofnsins mun liggja fyrir í ágúst í kjölfar mælinga á varpárangri, afföllum 2010 og 2011 og veiði 2010. 15.6.2011 07:00
Landsdómur hafnar kröfu Geirs Landsdómur hafnaði fyrir síðustu helgi kröfu Geirs H. Haarde þess efnis að átta þingkjörnir fulltrúar í dómnum vikju sæti við meðferð máls Alþingis á hendur honum. 15.6.2011 05:45
Boða verkfall á leikskólum Leikskólakennarar hafa samþykkt að boða til verkfalls hinn 22. ágúst ef ekki tekst að ljúka kjarasamningum við sveitarfélögin fyrir þann tíma. Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, segir að mikill samhugur sé í stéttinni, sem sjáist vel í eindreginni niðurstöðu atkvæðagreiðslu félagsmanna. 15.6.2011 05:00
Stofnfjárhafar gagnrýna ferlið „Mér sárnar að það sem kom okkur á hausinn skuli enn viðgangast,“ segir Guðjón Jónsson, stjórnarmaður í Samtökum stofnfjáreigenda í Byr sparisjóði. 15.6.2011 05:00