Innlent

Séra Karl Sigurbjörnsson tjáir sig ekki

Karl Sigurbjörnsson ætlar að tjá sig um málið á þriðjudag
Karl Sigurbjörnsson ætlar að tjá sig um málið á þriðjudag
Biskup Íslands, séra Karl Sigurbjörnsson, ætlar ekki að tjá sig um skýrslu rannsóknarnefndar kirkjuþings fyrr en eftir fjóra daga.

Fréttastofa óskaði eftir viðtali við Karl í ljósi þess að í skýrslunni kemur fram að hann hafi brugðist á margan hátt og gert mistök þegar biskupsmálið svokallaða kom upp árið 1996 þegar séra Ólafur Skúlason, þáverandi biskup, var sakaður um kynferðisbrot.

Þá kemst nefndin að þeirri niðurstöðu að viðbrögð presta og annarra starfsmanna kirkjunnar þegar málið kom upp hafi einkennst af ráðaleysi og skorti á faglegum og vönduðum vinnubrögðum.

Kirkjuþing verður haldið á þriðjudag og munu kirkjunnar menn ekki tjá sig um skýrsluna fyrr en þá. Uppgefin rök eru þau að skýrslan hafi fyrst verið birt í morgun og að menn þurfi tíma til að fara yfir hana.


Tengdar fréttir

Karl gerði mistök í máli Guðrúnar Ebbu

Rannsóknarnefnd Kirkjuþings kemst meðal annars að þeirri niðurstöðu að Karl Sigurbjörnsson biskup hafi orðið á mistök sem forseti kirkjuráðs varðandi úrlausn mála Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur varðandi erindi sem hún sendi í mars 2009 vegna meintra kynferðisbrota föður síns, Ólafs Skúlasonar.

Ólafur með ráðandi persónuleika - dró kirkjunnar menn í dilka

Persónuleiki Ólafs Skúlasonar, þáverandi biskups, hafði mikil áhrif á viðbrögð kirkjunnar manna þegar Ólafur var sakaður um kynferðisbrot árið 1996. Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar kirkjuþings sem birt var í morgun. "Þá verður ráðið af framburði þeirra sem fyrir nefndina komu að áhrif Ólafs Skúlasonar á samstarfsmenn sína og aðra starfsmenn kirkjunnar voru verulega mikil. Biskupinn hafi verið með mikinn og ráðandi persónuleika, hann hafi farið sínu fram og óhikað látið í ljósi afstöðu sína um stöðu málsins. Menn hafi verið dregnir í dilka sem annaðhvort "með honum eða á móti". Hafi hann þannig með framgöngu sinni haft mótandi áhrif á aðgerðir einstaklinga sem að málinu komu, hvort sem er á vettvangi kirkjuráðs, Prófastafélags Íslands eða stjórnar Prestafélags Íslands," segir í skýrslunni.

Skýrsla um biskupsmálið: Ráðaleysi og skortur á vönduðum vinnubrögðum

Rannsóknarnefnd kirkjuþings hefur lokið við gerð skýrslu um viðbrögð og starfshætti þjóðkirkjunnar vegna ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi um kynferðisbrot. Skýrslan er rúmlega 300 síður að lengd en nefndinni var falið að leggja mat á viðbrögð kirkjunnar eftir að ásakanirnar komu fram á sínum tíma. Nefndinni var hinsvegar ekki ætlað að "fjalla um sannleiksgildi ásakana um kynferðisbrot sem fram hafa komið á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi."



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×