Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stútur ók of hratt Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann fyrir of hraðann akstur rétt eftir klukkan átta í morgun á Suðurlandsvegi við Kögunarhól, en hann mældist á 118 km. hraða. Þegar betur var að gáð kom í ljós að hann reyndist einnig ölvaður. Hann var sviptur ökuleyfi í framhaldinu. Um er að ræða karlmann á tvítugsaldri. 13.6.2011 09:33
Handteknir á Reykjanesbraut eftir að hafa kveikt í bíl Tveir karlmenn voru handteknir á Reykjanesbraut á sjötta tímanum í morgun grunaðir um hafa skömmu áður kveikt í bifreið að gerðinni Honda Civic í iðnaðarhverfi í Reykjanesbæ. Engann sakaði í eldsvoðanum en bifreiðin er gjörónýt. Mennirnir gista nú fangageymslur en þeir voru handteknir eftir ábendingar vitna. 13.6.2011 09:26
Fæðubótarefni eru illa merkt Fæðubótarefni eru oft illa merk og innra eftirliti þeirra fyrirtækja sem þau selja er oft ábótavant. Þetta var niðurstaða könnunar sem Matvælastofnun og Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna stóðu að síðastliðinn vetur. 13.6.2011 06:00
Þingmaður Framsóknar vill endurskoðun á lögunum Þingmenn fengu ekki réttar upplýsingar við samþykkt á lögum um útreikninga lána í desember síðastliðnum segir Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknar. Hún telur réttast að lögin verði tekin aftur upp á Alþingi. 12.6.2011 13:45
Þingmaður Sjálfstæðisflokks gagnrýnir breytingar á kvótakerfinu Minna kvótafrumvarp sjávarútvegsráðherra varð að lögum í gær eftir nokkur átök í þingsal. Þingmaður Sjálfstæðisflokks gagnrýnir breytingar á kvótakerfinu fyrir skort á heildarsýn, en þingmaður Vinstri grænna segist stoltur af áfanganum. 12.6.2011 13:27
Prjónað á almannafæri Prjónað verður á almannafæri á Austurvelli þann 16. júní næstkomandi, en viðburðurinn er hluti af "alþjóðlega almenningsprjónadeginum" eða "World Wide knit in public day". Verður þetta í fyrsta skiptið sem dagurinn er haldinn hátíðlegur á Íslandi. 12.6.2011 12:20
Gæti unnið alþjóðlegan meistaratitil. Hinn ungi og efnilegi skákmaður Hjörvar Steinn Grétarsson náði sínum fyrsta áfanga að alþjóðlegum meistaratitli í gær. 12.6.2011 10:30
Kjarasamningur Kjalar samþykktur Atkvæðagreiðslu um kjarasamning Kjalar, stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu, og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs er lokið. Samningurinn var samþykktur með miklum meirihluta, eða áttatíu og níu prósentum. 12.6.2011 10:14
Erilsöm nótt á Selfossi Nóttin var erilsöm og erfið hjá lögreglunni á Selfossi, en þar fór fram dansleikur á vegum útihátíðarinnar Kótelettunnar og var verulega fjölmennt. Mikið var um ölvun og slagsmál en lögregla býst ekki við að fá margar kærur inn á borð til sín eftir nóttina þar sem enginn slasaðist. Tveir gistu fangageymslur lögreglunnar þar í bæ fyrir ölvun og óspektir. 12.6.2011 09:44
Sektuð fyrir veiðiþjófnað Hjón úr Mosfellsbæ sem renndu fyrir lax fyrir eigin landi við Tungufljót í Árnessýslu hafa verið dæmd til að greiða tuttugu þúsund króna sekt hvort fyrir veiðiþjófnað. Hjónin voru við stangveiðarnar í júlí í fyrra þegar lögregla kom að eftir ítrekaðar ábendingar. 12.6.2011 08:30
Ekki má leggja við inngang Hörpu „Menn geta ekki lagt beint fyrir framan inngang bygginga. Það ættu þeir að vita sem hafa ekið bifreið,“ segir Höskuldur Ásgeirsson, framkvæmdastjóri tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu. 12.6.2011 07:00
Mæðgin útskrifuðust saman Sextíu og fimm ára kona, sem var kúabóndi í Dalasýslu, flutti til höfuðborgarinnar á gamals aldri og skellti sér í áttunda bekk Grunnskóla. Hún útskrifaðist með meistaragráðu frá Háskóla Íslands í dag ásamt syni sínum sem einnig fékk sína meistaragráðu í hendur. 11.6.2011 20:23
Upptaka skattsins ekki mistök Tíu stórfyrirtæki hafa hætt starfsemi hér á landi vegna skattlagningar á vaxtagreiðslur, en þrátt fyrir það segir fjármálaráðherra að ekki hafi verið gerð mistök við upptöku skattsins. Nú stendur til að afleggja hann. 11.6.2011 20:13
Fyrrverandi ritstjóri sagði nauðsynlegt að ákæra Geir Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, sagði við Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, að hann ætti engan annan kost en að taka þátt í að ákæra Geir H. Haarde, ella fyki traust á flokknum út í veður og vind um langa framtíð. 11.6.2011 19:58
Minna kvótafrumvarp samþykkt Minna kvótafrumvarp sjávarútvegsráðherra varð að lögum í kvöld en hart hefur verið tekist á um málið síðustu daga. Hafa þá alls 25 frumvörp orðið að lögum síðan á fimmtudag. 19 þingmenn greiddu atkvæði á móti frumvarpinu en 30 greiddu atkvæði með því. 11.6.2011 19:33
Vanræktu að skrá bréf um kynferðisbrot Bréf Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur um kynferðisbrot föður hennar var ekki skráð í skjalaskrá Biskupsstofu Íslands fyrir en einu og hálfu eftir að hún sendi bréfið. Karl Sigurbjörnsson biskup sagði við rannsóknarnefnd Kirkjuþings að í bréfinu væru alvarlegar ásakanir gagnvart látnum manni. 11.6.2011 19:23
Eignirnar nema yfir einum milljarði króna Eignir nokkurra Íslendinga og félaga í eigu þeirra, sem hafa verið frystar að beiðni sérstaks saksóknara í tengslum við rannsókn á Kaupþingi, nema yfir einum milljarði króna. Ekki hefur verið gefið upp hverjir eiga þar í hlut þar sem rannsóknin er á viðkvæmu stigi. 11.6.2011 19:18
Rannsókn á láti Sigrúnar Mjallar ábótavant Jón Þór Ólason, lektor í refsirétti, telur rannsókn lögreglu á láti Sigrúnar Mjallar Jóhannesdóttur ábótavant. Fullt tilefni hafi verið til að rannsaka hvaðan læknadópið kom sem dró hana til dauða. Þrjár manneskjur sitja nú á sakamannabekk í Noregi vegna meintrar aðildar að láti fimmtán ára stúlku sem lést af banvænum eiturlyfjaskammti í fyrra. 11.6.2011 19:05
Þarf að hætta þessari lánsveða-vitleysu Viðskiptaráðherra segir lífeyrissjóðina standa í vegi fyrir því að undið sé ofan af skuldavanda fólks með lánsveð, og hafi til þess stjórnarskrárvarinn rétt. Hann segir að í framtíðinni þurfi að hætta þessari lánsveða-vitleysu, eins og hann kallar það. 11.6.2011 18:59
426 brautskráðir frá Háskólanum á Akureyri Brautskráning Háskólans á Akureyri fór fram við hátíðlega athöfn í dag þegar 426 kandídatar voru útskrifaðir með háskólapróf, en með því hefur háskólinn útskrifað nærri fjögur þúsund nemendur á sínum 24 starfsárum. 11.6.2011 16:54
Uppvakningaganga í Reykjavík Miðbær Reykjavíkur iðaði af lífi í dag þegar fjöldi manns streymdi út á göturnar í svokallaðri uppvakningagöngu, en slíkar göngur hafa áður vakið athygli víðsvegar um heiminn. Ekki er vissa um það hvort hér sé um að ræða fyrstu uppvakningagönguna sem gengin er á Íslandi, en víst þykir að hún sé sú fjölmennasta. 11.6.2011 16:25
Löggan sektar háskólanema og fjölskyldur Lögreglumenn eru í óðaönn við að sekta bíla fyrir utan Laugardalshöllina, en þar stendur nú yfir seinni hluti brautskráningar frá Háskóla Íslands. 11.6.2011 15:23
Dyrhólaey opnuð í leyfisleysi Hlið, lokanir og upplýsingaskilti voru tekin niður við inngang að friðlandinu á Dyrhólaey aðfararnótt föstudagsins 10. júní, en opnun svæðisins er háð leyfi frá Umhverfisstofnun. Þetta segir Þorsteinn Gunnarsson, ábúandi á Vatnsskarðshólum, en hann telur umhverfisstofnun hafa veitt skemmdarvörgum hjálparhönd með því að bregðast ekki við tilkynningu um málið fyrr en á föstudagskvöldið. Allan daginn hafi Dyrhólaey því verið opin og umferð streymt um svæðið, en þar sé æðarvarp nú á afar viðkvæmu stigi. 11.6.2011 14:57
Ræddu misnotkun Rítalíns á Bessastöðum Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, bauð íslenskum og erlendum fyrirlesurum ráðstefnu, sem haldin var á vegum SÁÁ, til Bessastaða í gær og ræddi þar meðal annars um vímuefnavarnir og -meðferð auk þeirra neikvæðu áhrifa sem hafa hlotist af af sívaxandi misnotkun Rítalíns hér á landi. 11.6.2011 14:04
Gerir ráð fyrir mótframboði í formannskjöri Bjarni Benediktsson segist gera ráð fyrir mótframboði í formannskjöri á Landsfundi Sjálfstæðisflokksin í haust í viðtali við Morgunblaðið í dag. Hann segist jafnframt líta svo á að það hafi verið rétt að fylgja sannfæringu sinni í Icesavemálinu. 11.6.2011 13:49
Kröfu Geirs hafnað Landsdómur hafnaði í gær þeirri kröfu Geirs H. Haarde að dómendur og varamenn, sem Alþingi kaus til sex ára setu í landsdómi árið 2005, víki sæti í máli sínu. 11.6.2011 13:35
Frekari niðurskurður upphafið að endalokunum Framkvæmdarstjóri Heilsustofnunarinnar í Hveragerði segir að frekari niðurskurður hjá stofnuninni sé upphafið að endalokunum en niðurskurðurinn hefur verið 100 milljónir á síðustu þremur árum. 11.6.2011 12:27
Sólbaðsstemning á höfuðborgarsvæðinu á morgun? Margir íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa eflaust verið vonsviknir þegar þeir litu út um gluggann í morgun, en spár um sumarkomu virðast ekki hafa gengið eftir eins og vonir margra stóðu til. 11.6.2011 12:17
Einstaklingar geti boðið sig fram til þings Hægt verður að bjóða sig fram til þings einsamall og mögulegt verður að kjósa frambjóðendur þvert á flokka og kjördæmi, verði tillögur C-nefndar stjórnlagaráðs samþykktar. 11.6.2011 10:32
Lögreglan í Lúxemborg frystir eignir Íslendinga Lögreglan í Lúxemborg hefur fyrst eignir nokkurra Íslendinga og félaga í þeirra eigu á bankareikningum þar í landi, en málið tengist rannsóknum á málefnum gamla Kaupþings. Morgunblaðið greinir frá þessu í dag og vitnar í Ólaf Þór Hauksson, sérstakan saksóknara, sem segir fjárhæðirnar umtalsverðar. 11.6.2011 10:26
Boðar endurfundi lýðveldisbarnanna Fjöldinn allur af börnum fylgdi foreldum sínum á Þingvöll við stofnun íslenska lýðveldisins 17. júní árið 1944. Nú hefur Þór Jakobsson veðurfræðingur boðað til endurfunda hinna svokölluðu lýðveldisbarna í tilefni tímamótanna á lýðveldisdaginn næstkomandi föstudag. 11.6.2011 10:00
Harkalega tekist á í þingsal Þingmenn tókust harkalega á um minna kvótafrumvarp landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra við aðra umræðu um málið í gærkvöld. Umræðurnar stóðu frá um hálf ellefu til tuttugu mínútur í eitt í nótt, en þegar leið á tóku að heyrast framíköll og jafnvel hlátrasköll á tíðum. 11.6.2011 09:59
Erill á Akureyri en rólegt á höfuðborgarsvæðinu Töluverður erill var hjá lögreglunni á Akureyri í nótt en alls voru sex handteknir, þar af fjórir fyrir vörslu fíkniefna. 11.6.2011 09:51
Metfjöldi brautskráður á aldarafmæli Háskóla Íslands Metfjöldi nemenda verður brautskráður frá Háskóla Íslands í dag en þá verður þess jafnframt minnst að hundrað ár eru liðin frá stofnun skólans. Brautskráningin fer fram í Laugardalshöll en alls verða 1.816 prófskírteini afhent; 1.138 í grunnnámi og 678 í framhaldsnámi. 11.6.2011 09:41
Maður féll af mótorhjóli Slys varð í Gnúpverjahreppi um fjögurleytið í nótt þegar maður féll af mótorhjóli. Hann var fluttur til Reykjavíkur í skoðun en er ekki talinn alvarlega slasaður. 11.6.2011 09:34
Fréttaskýring: Íslendingum ber að borga Eftirlitsstofnun EFTA hefur gefið út rökstutt álit um að Íslendingum beri að borga lágmarkstryggingar til eigenda innstæðureikninga Icesave. Málið fer fyrir dómstóla verði ekki greitt innan þriggja mánaða. 11.6.2011 09:30
Stjórnlagaráð leggur til að kosningakerfinu verði bylt Kjósendur munu geta valið frambjóðendur þvert á flokka og kjördæmi í alþingiskosningum verði róttækar tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á kosningakerfinu að veruleika. Þar er lagt til að atkvæðavægi skuli vera jafnt alls staðar á landinu. 11.6.2011 08:30
Ingvi Hrafn og frú eiga ekki fyrir áfrýjun málsins „Við erum dæmd fyrir skattalagabrot sem aldrei voru framin af ásetningi heldur vegna vanrækslu og afglapa löggilts endurskoðanda sem við treystum,“ segir Ingvi Hrafn Jónsson, sjónvarpsstjóri ÍNN. 11.6.2011 07:30
Sambland af fræðslu og fróðleik í Búrfellsstöð Ný sýning verður opnuð almenningi í Búrfellsstöð á morgun en þar eru endurnýjanlegir orkugjafar kynntir á gagnvirkan hátt. 11.6.2011 07:00
Forseti ESA: Nú verðið þið að borga "Við höfum verið mjög þolinmóð og gefið lengri frest en aðrir fá. En nú verðið þið að borga,“ segir Per Sanderud, forseti Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA. ESA sendi stjórnvöldum áminningarbréf í maí í fyrra þar sem lýst var þeirri skoðun að Íslendingar hefðu ekki farið eftir tilskipun samnings Evrópska efnahagssvæðisins (EES) um innstæðutryggingar. Stjórnvöld svöruðu bréfinu í maí síðastliðnum og mótmæltu. 11.6.2011 06:00
SGS hefur slitið kjaraviðræðum Starfsgreinasamband Íslands (SGS) og Flóafélögin hafa slitið samningaviðræðum við samninganefnd sveitarfélaga. Í tilkynningu frá SGS segir að deilt sé um kjör fjölmennasta hóps SGS-fólks hjá sveitarfélögunum, starfsfólks leik- og grunnskóla. Sá hópur muni aðeins fá rúmlega 20 þúsund króna hækkun fram til 31. janúar 2014 en launafólk á almennum markaði fái 34 þúsund á sama tíma. 11.6.2011 05:30
Vélhjólamenn með haglabyssur Tveir karlmenn á þrítugsaldri, sem lögreglan telur að séu meðlimir Íslandsdeildar Hells Angels, voru handteknir fyrr í vikunni við iðnaðarhúsnæði í austurborginni. 11.6.2011 05:00
Flugmenn kjósa um aðgerðir Flugmenn Icelandair hafa hafið atkvæðagreiðslu um að boða til verkfallsaðgerða. Í tilkynningu frá Félagi íslenskra atvinnuflugmanna segir að viðræður hafi verið árangurslausar. Verði aðgerðirnar samþykktar mun yfirvinnubann hefjast 24. júní. Icelandair á einnig í kjaradeilum við flugvirkja, sem lögðu niður vinnu hluta úr degi síðustu þrjá daga. Fundað var á ný í gær, en ef þær viðræður skila ekki árangri munu flugvirkjar aftur grípa til aðgerða 20. júní. - þj 11.6.2011 05:00
Vægir dómar fyrir khat-smygl Meintur höfuðpaur mannanna sem smygluðu hingað 58 kílóum af fíkniefninu khat í síðasta mánuði hlaut fjögurra mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Hinir þrír sakborningarnir voru dæmdir í tveggja mánaða fangelsi. 11.6.2011 04:45
Hlaupagarpar komnir í Mývatnssveit Fjórmenningarnir sem hlaupa nú um landið til að safna fé til styrktar krabbameinssjúkum börnum eru komnir í Mývatnssveit. Í gær var hlaupið frá Egilsstöðum og um Möðrudalsöræfi en þá lenti hópurinn í snjókomu, slyddu og slabbi. Einn úr hópnum átti afmæli og hafði á orði að hann hefði aldrei á sínum 42 árum fagnað afmæli í snjókomu. 10.6.2011 18:30