Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ráðnir til upplýsingagjafar vegna eldgossins í Grímsvötnum Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita fjármagni til þess að ráða níu sumarstarfsmenn til þess að sinna upplýsingamiðlun til innlendra og erlendra ferðamanna í kjölfar eldgossins í Grímsvötnum. 7.6.2011 16:05
Fiskvinnslufólk í Eyjafirði sendir þingmönnum bréf „Við undirrituð, starfsmenn í fiskvinnslu í Eyjafirði, mótmælum þeim ásetningi stjórnvalda að flytja störfin okkar til einhverra annarra með tilflutningi aflaheimilda frá einum stað til annars. Þannig er vegið að fjárhagslegri afkomu hundruða fjölskyldna á Eyjafjarðarsvæðinu," segir í bréfi sem sent hefur verið öllum þingmönnum norðaustur-kjördæmis. Meðfylgjandi eru undirskriftir 241 starfsmanna í fiskvinnslu í Eyjafirði og Fjallabyggð. „Í þeim lagafrumvörpum um stjórn fiskveiða sem nú eru til umfjöllunar er fjallað ítarlega um fiskveiðar og hvernig þeim skuli háttað. Í engu er tekið tillit til þeirra sem starfa við fiskvinnslu í landi, enda kemur orðið fiskvinnsla aldrei fyrir í þessum lagatextum. Með því er áratuga reynslu okkar og þekkingu í fiskvinnslu enginn sómi sýndur. Fiskvinnslan verður færð aftur um áratugi með tilheyrandi verðmætatapi fyrir þjóðarbúið allt," segir í bréfinu. 7.6.2011 15:34
Nóg af bílastæðum í nágrenni Hörpu Formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkur segir fjöldan allan af bílastæðum í nágrenni Hörpu. Mörg þeirra eru ekki í nema 200-300 metra fjarlægð. "Það er ekki langur labbitúr,“ segir formaðurinn. 7.6.2011 15:26
Leigjendur íbúðarhúsnæðis njóta liðsinnis Neytendasamtakanna Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra undirritaði í dag þjónustusamning við Neytendasamtökin um leiðbeiningarþjónustu við leigjendur. Frá því að Leigjendasamtökin hættu starfsemi sinni hafa Neytendasamtökin í vaxandi mæli sinnt aðstoð við leigjendur og svarað fyrirspurnum um leigumál eftir bestu getu. Þetta kemur fram í frétt á vef Neytendasamtakanna. Samkvæmt samningnum mun þjónustan felast í því að Neytendasamtökin veiti leigjendum íbúðarhúsnæðis upplýsingar um rétt sinn og skyldur samkvæmt húsaleigulögum. Gert er ráð fyrir að samtökin byggi upp upplýsingavef fyrir leigjendur á heimasíðu sinni auk þess sem þau muni veita leigjendum viðtal í gegnum síma eða á skrifstofu sinni. Jafnframt muni leigjendur eiga kost á lögfræðilegri ráðgjöf að því er varðar rétt leigjenda og skyldur. Þá er í samningnum mælt fyrir um að Neytendasamtökin taki að sér milligöngu við úrlausn ágreinings milli leigjenda og leigusala ásamt því að aðstoða leigjendur við að leggja ágreining fyrir kærunefnd húsamála ef þörf krefur. Með samkomulagi velferðarráðuneytisins og Neytendasamtakanna mun þjónusta við leigjendur eflast til muna. Þjónustusamningurinn sem er liður í stefnumótun ráðuneytisins um að efla leigumarkað verður til mikilla hagsbóta fyrir leigjendur auk þess sem samstarf við Neytendasamtökin mun auðvelda ráðuneytinu að liðsinna leigjendum og styrkja stöðu þeirra. Á vegum velferðarráðuneytisins er nú unnið að endurskoðun húsaleigulaga. Leigjendur geta hringt í síma 5451200 og fengið leiðbeiningar og aðstoð á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum kl. 12:30 - 14:00. Einnig geta þeir sent fyrirspurn í tölvupósti á netfangið ns@ns.is. Þá er skrifstofa samtakanna opin kl. 9:00-15:00 alla virka daga að Hverfisgötu 105, Reykjavík. 7.6.2011 15:13
Geir segir málsmeðferðina vera hneisu "Ég er auðvitað afskaplega ánægður með það að málið skuli vera komið af stað. Ég er búinn að bíða eftir því síðan í október,“ sagði Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, við blaðamenn eftir að þingfestingu í máli Alþingis gegn honum lauk í dag. 7.6.2011 15:04
Selja notaðar bækur á 1000 kr/kg Gamla bókabúðin á Flateyri hefur nú opnað dyrnar sínar fyrir sumrinu en þar eru notaðar bækur nú vigtaðar á gömlu búðarvigtinni og seldar fyrir 1000 krónur kílóið. 7.6.2011 14:58
Leikskólakennarar greiða atkvæði um verkfall Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun félagsmanna í Félagi leikskólakennara hefst á morgun þegar greidd verða atkvæði um hvort boða eiga til verkfalls. Formaður félagsins segir leikskólakennara hafa dregist aftur úr viðmiðunarstéttum og brýnt sé að jafna launakjör þeirra. Samþykki leikskólakennarar verkfallsboðunina hefst verkfall mánudaginn 22. ágúst. 7.6.2011 14:22
Geir: Ég er saklaus "Virðulegu dómarar háttvirtur saksóknari, mín afstaða til sakarefnis er skýr. Ég lýsi mig saklausan af ákæruefnunum,“ sagði Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, þegar Ingibjörg Benediktsdóttir, forseti landsdóms, bauð honum að lýsa yfir afstöðu til sakarefnisins fyrir Landsdómi í dag. Ákæra gegn Geir var þingfest í landsdómi, sem staðsettur er í Þjóðmenningarhúsinu, klukkan hálf tvö í dag. 7.6.2011 13:43
Samstaða um að lækka skatta á olíuvinnslu Efnahags- og skattanefnd Alþingis er einróma sammála um að skattaálögur á olíuvinnslu í íslenskri lögsögu verði lækkaðar. Lagabreyting þessa efnis er talin forsenda næsta olíuleitarútboðs á Drekasvæðinu, sem á að hefjast þann 1. ágúst næstkomandi. 7.6.2011 12:45
Teknar með tvö kíló af marijúana og ungabarn í bílnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á 2 kg af marijúana og nokkrar kannabisplöntur við leit í bifreið sem stöðvuð var á Suðurlandsvegi á dögunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 7.6.2011 12:42
Aldrei hefði átt að ákæra Geir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að málaferlin gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hafi tekið allt of langan tíma. Hún hefði viljað að aldrei hefði komið til þess að Geir yrði ákærður. 7.6.2011 12:22
Vilja ekki samþykkja fiskveiðifrumvarpið Stjórnarandstaðan leggst gegn því, að minna fiskveiðifrumvarp sjávarútvegsráðherra verði afgreitt á yfirstandandi þingi og segir enga sem komið hafa á fundi sjávarútvegsnefndar hafa mælt með því að frumvarpið verði að lögum. 7.6.2011 12:04
Árni Páll fékk tæpar fjörutíu milljónir frá Íbúðalánasjóði Félag í eigu Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, fékk tæplega fjörutíu milljónir króna í greiðslur fyrir ráðgjöf frá Íbúðalánasjóði árin 2004-2008. Árni Páll hélt áfram að fá greiðslur eftir að hann settist á þing. 7.6.2011 12:00
Stuðningsmenn Geirs borga salinn í Hörpu - fá engan afslátt Pétur J. Eiríksson, einn þriggja ábyrgðarmanna fjársöfnunar fyrir málsvörn Geirs H. Haarde, er stjórnarformaður Portusar sem rekur tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu. Fundur Geirs með stuðningsmönnum hans síðar í dag verður haldinn í Hörpu, nánar tiltekið í Norðurljósasalnum. "Vegna veru minnar hér munum við ekki óska eftir neinum afslætti," segir Pétur og því verði greitt listaverð, ríflega 270 þúsund krónur, fyrir salinn. Pétur segir ennfremur að það séu stuðningsmenn Geirs sem borgi leiguna. "Við vorum búin að panta á Hótel Loftleiðum," segir Pétur. Þar stóð til að Geir hitti stuðningsmenn sína etir að ákæra á hendur honum verður þingfest fyrir landsdómi síðdegis. Pétur segir að þar hafi verið búið að panta 110 manna sal. Fjársöfnun fyrir Geir fer fram á síðunni Malsvorn.is , en megintilgangurinn "er að safna fé til að standa straum af kostnaði við málsvörnina og tryggja að hann standi sem næst jafnfætis ríkisvaldinu í málsvörn sinni," eins og það er orðað á síðunni. Síðan var stofnuð um helgina og í gær, mánudag, tók undirskriftasöfnunin stóran kipp og um miðjan dag höfðu yfir þúsund manns skráð sig sem stuðningsmenn Geirs. Pétur segir að í gær hafi forsvarsmenn stuðningsmannahópsins því metið stöðuna þannig að salurinn á Hótel Loftleiðum væru of lítill. "Ég fékk Önnu Kristínu Traustadóttur til að annast pöntunina hér," segir Pétur, og á þar við salinn í Hörpu. Norðurljósasalurinn rúmar 400 manns. Þegar þessar línur eru skrifaðar hafa tæplega 3000 manns skráð sig á stuðningsmannasíðu Geirs. 7.6.2011 11:46
Þjóðin greiði atkvæði um ESB 1. desember Vigdís Haukdsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hyggst leggja fram þingsályktunartillögu á Alþingi um þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort halda eigi áfram aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins. Þetta er þriðja sinn sem hún leggur slíka tillögu fram. 7.6.2011 11:37
Ísland verði stórveldi innan ESB í sjávarútvegsmálum Baldur Þórhallsson, varaþingmaður Samfylkingarinnar, segir Ísland geta orðið stórveldi á sviði sjávarútvegsmála innan Evrópusambandsins. Hann kallaði eftir afstöðu formanns Sjálfstæðisflokksins í Evrópumálum við upphaf þingfundar í dag. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins gaf lítið fyrir yfirlýsingar Baldurs og sagði lagasetningu Evrópusambandsins stórhættulega. 7.6.2011 11:12
MS hættir að forverðmerkja osta Mjólkursamsalan hefur frá 1. júní hætt forverðmerkingu osta og byrjar í dag að dreifa þeim óforverðmerktum til verslana. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að þetta sé í samræmi við nýjar reglur Neytendastofu og tilmæli Samkeppniseftirlitsins um að vörur sem áður voru forverðmerktar á markaðnum skulu nú verða óforverðmerktar. MS á ennþá til birgðir af ostum sem eru forverðmerktar og munu þær klárast í júnímánuði. 7.6.2011 11:00
Ákæran á hendur Geir þingfest eftir hádegi Ákæra Sigríðar Friðjónsdóttur, saksóknara Alþingis, á hendur Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins, verður þingfest í landsdómi eftir hádegi í dag. Á blaðamannafundi í gær gagnrýndi Geir málsmeðferðina harðlega og boðaði frávísunarkröfu vegna galla á henni. Ítrekað hefði verið brotið á sér. 7.6.2011 10:11
Þétt dagskrá á Alþingi Á fjórða tug mála eru á dagskrá Alþings í dag. Greidd verða atkvæði um fjölmörg mál, þar á meðal breytingar á barnaverndarlögum, lögum um almannatryggingar og almenningsbókasöfn. Auk þess munu þingmenn ræða um mál á borð við losun gróðurhúsalofttegunda, ráðstafanir í ríkisfjármálum, rannsókn á aðdraganda og orsökum erfiðleika og falls sparisjóðanna, skeldýrarækt, framkvæmdasjóð ferðamannastaða og austurrísku leiðin svokölluðu. Þingfundur hefst klukkan 10:30 þegar þingmenn ræða störf þingsins. 7.6.2011 09:36
Börn neita að taka Rítalín vegna umræðunnar Foreldrar ungmenna með ADHD segja þau nú neita að taka lyfin vegna umræðunnar sem hefur átt sér stað í kringum misnotkun á metýlfenídat lyfjum og skyldum lyfjum s.s. Rítalíni og þann ömurlega veruleika sem á sér stað í undirheimum Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu sem stjórn ADHD samtakanna sendi frá sér en fjöldi félaga eru ósáttir við það hvernig Rítalíni og skyldum lyfjum hefur nánast eingöngu verið lýst sem dópi í fjölmiðlum. 7.6.2011 09:33
Sjúklingum með skorpulifur fjölgar verulega Mikil fjölgun sjúklinga með skorpulifur hér á landi hefur leitt til þess að Íslendingar eru ekki lengur með lægstu tíðni þessa sjúkdóms á Vesturlöndum, eins og verið hefur áratugum saman. 7.6.2011 07:46
Strandveiðibátar og fiskiskip streyma á miðin Strandveiðibátar og önnur fiskiskip streyma á miðin og tilkynntu 300 bátar og skip brottför á aðeins þremur klukkustundum í nótt. 7.6.2011 07:45
Búast við éljum norðan- og austantil á landinu Búast má við stöku éljum norðan- og austantil á landinu í dag, samkvæmt spá Veðurstofunnar og verður vindátt áfram norðlæg. 7.6.2011 07:43
Borgin vill starfsfólk Hörpunnar í strætó "Mér finnst dálítið mikið að ætlast til þess að Harpa ein standi fyrir því að kollvarpa ferðavenjum Reykvíkinga,“ segir Stefán Hermannsson, framkvæmdastjóri Austurhafnar sem á og rekur tónlistarhúsið Hörpu. 7.6.2011 07:30
Björgunarsveit aðstoðaði þrjá ferðamenn Björgunarsveit var kölluð út seint í gærkvöldi til að aðstoða þrjá erlenda ferðamenn, sem sátu fastir í snjóskafli í jepplingi sínum á Dómadalsleið, skammt frá Landmannalaugum. 7.6.2011 07:22
Aflífa þurfti reiðhest eftir umferðaróhapp Aflífa þurfti stórslasaðan reiðhest en annar slapp lítið meiddur eftir að kerra með hestunum losnaði aftan úr bíl á Suðurlandsvegi á milli Selfoss og Hveragerðis í nótt. 7.6.2011 07:13
Skipt um efstu stjórnarmenn Aðalsteinn Leifsson, lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, hefur tekið við sem formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins (FME) og Ingibjörg Þorsteinsdóttir, dósent við lagadeild Háskólans á Bifröst, tekið við sem varaformaður. 7.6.2011 07:00
Útvegaði burðardýr til fíkniefnasmygls Brynjar Mettinisson, sem situr í gæsluvarðhaldi í Bangkok í Taílandi, útvegaði arabískum manni sem hann hafði verið í samskiptum við á netinu burðardýr sem flytja átti einn lítra af metamfetamíni í vökvaformi til Japans. 7.6.2011 06:30
Jói Fel innkallar súkkulaði Hjá Jói Fel hefur í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur ákveðið að innkalla belgískt súkkulaði merkt Jóa Fel. 6.6.2011 22:29
Sigmundur Ernir um landsdómsmálið: Óþverralegt einelti Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að landsdómsmálið sé pólitísk aðför að Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Hann segir málið vera kattahreinsun. 6.6.2011 20:57
Blaðamannafundurinn í heild sinni Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, boðaði til blaðamannfundar í dag í tilefni af því að á morgun verður mál Alþingis gegn honum þingfest fyrir Landsdómi. 6.6.2011 20:23
Atli Gíslason: Virði skoðanir Geirs en er ósammála honum Atli Gíslason, þingmaður utan þingflokks á Alþingi, segist virða skoðanir Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra en sé ósammála honum. Þingfesting í máli Alþingis gegn honum fer fram á morgun fyrir Landsdómi. 6.6.2011 20:03
Tilnefningar til Grímunnar - Lér konungur með 10 tilnefningar Tilnefningar til Grímuverðlauna 2011 í alls 16 flokkum sviðslista voru kunngjörðar í Borgarleikhúsinu í dag að viðstöddum fjölda sviðslistafólks, en alls komu 80 leiklistarverkefni til álita til Grímunnar í ár. Við verkin störfuðu yfir eitt þúsund listamenn, tæknifólk og starfsfólk leikhúsanna. 6.6.2011 19:21
Boðar nýja stóriðjusamninga á komandi mánuðum Iðnaðarráðherra sagði á Alþingi í dag alveg ljóst að samningar um stóriðju í Þingeyjarsýslum yrðu gerðir á komandi mánuðum. Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir þetta enn eitt loforðið sem ríkisstjórnin geti ekki staðið við. 6.6.2011 18:55
Hugsanlegt að tíu þúsund króna seðill verði framleiddur Það kostar þrjár krónur að búa til eina krónumynt, en krónan hefur rýrnað mikið síðustu áratugi. Seðlabankastjóri segir að skoða þurfi hvort mynteiningar séu orðnar of litlar, og segir hugsanlegt að tíu þúsund króna seðill verði framleiddur. 6.6.2011 18:55
Allir sem greinst hafa með HIV notuðu rítalín frá læknum Allir þeir sprautufíklar sem greinst hafa HIV jákvæðir á þessu ári sprautuðu sig með rítalíni í æð sem ávísað var af læknum. Yfirlæknir smitsjúkdóma segir að hemja verði dreifingu rítalíns frá læknum í samfélagið strax. 6.6.2011 18:30
Khat-málið: Íri áfram í gæsluvarðhaldi Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag að írskur ríkisborgari skuli sæta áfram gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að innflutningi á tæpum sextíu kílóum af fíkniefinu Khat hingað til lands. 6.6.2011 18:05
Eldur kom upp í raðhúsi við Miklubraut Eldur kom upp í raðhúsi á gatnamótum Miklubrautar og Stakkahlíðar um klukkan hálf sex í dag. Mikinn reyk lagði frá húsinu en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var eldur laus í íbúð og tókst að slökkva hann fljótt og örugglega. Eldsupptök eru ókunn. Allar stöðvar voru sendar á vettvang en eldurinn virðist hafa verið minni en talið var í upphafi. 6.6.2011 17:32
Geir fékk send blóm frá stuðningsmönnum Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fékk send blóm á tröppurnar heima hjá sér í gær. Þetta sagði hann á blaðamannafundi sem hann hélt á Grand hótel í dag vegna ákærunnar gegn sér, sem þingfest verður fyrir Landsdómi á morgun. 6.6.2011 17:22
Vörnin hefur þegar kostað Geir 9 milljónir Kostnaðurinn strax kominn í níu milljónir, sagði Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, á blaðamannafundi í dag. Stuðningsmannafélag hefur verið stofnað fyrir Geir til þess að standa straum af kostnaði við málið. Geir og Andri Árnason verjandi hans eru með fjölda manna á sínum snærum til að vinna að vörnum við málið. 6.6.2011 16:45
Tilmæli um bönd í blöðrum Neytendastofa beinir þeim tilmælum til söluaðila og foreldra að huga að böndum á blöðrum nú þegar styttist í 17. júní. Fram kemur í tilkynningu að börn geti viljandi eða óviljandi vafið slíkum böndum um háls sér með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Lengri bönd geti auk þess skapað hættu á kyrkingu. 6.6.2011 16:40
100 reiðhjól verða boðin upp Um 100 reiðhjól verða boðin upp hjá óskilamunadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu næstkomandi laugardag, 11. júní, klukkan 11. Um er að ræða reiðhjól sem hafa fundist í óskilum víða í umdæminu og enginn hefur hirt um að sækja. 6.6.2011 16:33
Geir segist eiga við ofurefli að etja "Ég vísa öllum ákæruatriðum á bug. Þau eru fráleit, sérstaklega í ljósi þess að ákvarðanir minnar ríkisstjórnar í aðdraganda bankahrunsins reyndust réttar. Ákæruskjalið er þannig samið að nausynlegt er að láta á það reyna hvort það standist réttarfarslegar reglur," segir Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, á blaðamannafundi, sem nú fer fram. Hann segist ætla að krefjast frávísunar í málinu við fyrsta tækifæri og að um pólitíska atlögu sé að ræða. 6.6.2011 16:16
Slasaðist á torfæruhjóli Maður slasaðist á torfæruhjóli er hann var að æfa sig á æfingasvæði við Hrísmýri á Selfossi um miðjan dag í gær. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysasdeild Landspítala. Talið var að hann hafi rifbeinsbrotnað og ef til vill hlotið innvortis blæðingar. Samkvæmt upplýsingum frá slysadeild Landspítalans er maðurinn kominn aftur heim. 6.6.2011 15:49
Háskólinn á Akureyri aldrei vinsælli Umsóknir um skólavist við Háskólann á Akureyri hafa aldrei verið fleiri en umsóknarfrestur rann út í gær. Alls sóttu 1030 manns um skólavist og er þetta í fyrsta sinn sem umsóknir eru fleiri en þúsund. Flestir vilja komast að í hjúkrunarfræði, viðskiptafræði og sálfræði. 6.6.2011 15:45