Hestaripperinn ófundinn Erla Hlynsdóttir skrifar 16. maí 2011 14:32 Mynd úr safni Getty
Lögreglunni á Egilsstöðum hafa engar vísbendingar borist í tengslum við rannsókn á meintu dýraníði en í liðinni viku sá hestamaður þar tvo skurði á kynfærum hryssu sem taldir eru hafa verið veittir henni með eggvopni. Málið var kært til lögreglu en enginn liggur undir grun um níðið. Lögreglunni á Egilsstöðum hafa engar aðrar tilkynningar borist um viðlíka áverka á hrossum. Vísir greindi frá því fyrir helgi að hestamenn á svæðinu séu slegnir óhug vegna atviksins og finnist erfitt að ímynda sér að um manna verk hafi verið að ræða. Umráðamaður hryssunnar sagðist hreinlega ekki geta lýst því hversu ógeðslegt þetta mál sé. Hjörtur Magnason, héraðsdýralæknir á Egilsstöðum, kallaði til lögreglu eftir að honum var tilkynnt um áverkana og hefur hann aldrei séð viðlíka áverka á kynfærum dýrs. Hestamaðurinn sem fann áverkana óttast að þarna hafi verið um svokallaðan „hestaripper" að ræða sem ráðist að saklausum dýrum og misþyrmi þeim. Nafnið er dregið af fjöldamorðingjanum Jack the Ripper sem risti konur á hol í London á 19. öld.
Tengdar fréttir Óttast að hér sé "hestaripper" á ferð Hestamaðurinn sem uppgötvaði skurði á kynfærum hryssu um helgina hefur ritað greinargerð um fyrirbærið "hestaripper“ sem hann ætlar að koma til lögreglunnar á Egilsstöðum, lögreglumönnum til upplýsingar. Þá hefur hann einnig mælst til þess að greinargerðin verði hengd upp í hesthúsum þannig að hestaeigendur séu meðvitaðir um hættuna. Höfundur greinargerðarinnar heitir Ólafur Guðgeirsson og er heila- og taugaskurðlæknir. Heitið hestaripper er dregið af nafni breska fjöldamorðingjans Jack the ripper, betur þekktur hér á Íslandi sem Kobbi kviðrista. Eftir að Ólafur komst fann skurðina á hryssunni sökkti hann sér í þýskar fræðibækur, en sjálfur var hann við nám í Þýskalandi. Þar í landi gengu menn sem misþyrmdu hrossum á þennan hátt undir heitinu "pferderipper.“ "Þetta glæpsamlega tortímingaræði flokkast undir (zoosadisma) dýraníðingsskap. Í hópnum eru kvennaraðmorðingjar, en við yfirheyrslur margra þeirra í Þýskalandi er oft fyrri saga um dýraníðingsskap, raðáverka eða raðmorð. Einnig játuðu flestir að vera kvennahatarar,“ segir í greinrgerð Ólafs, en þar kemur fram að hann sækir fróðleik sinn til þýskra sérfræðinga. Ólafur segir að þegar í ljós kom að um áverka af mannavöldum var að ræða á hryssunni, eftir því sem komist er næst, hafi hann munað eftir fjölmiðlaumfjöllun um hestarippera frá námsárunum í Þýskalandi. "Þá var ákveðið að í stað þess að hlífa almenningi við þessum staðreyndum þá var fjallað um þetta opinskátt. Þannig væru meiri líkur á að níðingarnir kæmust í viðeigandi meðferð eða á bak við lás og slá,“ segir hann. Ólafur segir það ekki hafa verið tekið út með sældinni að lesa sér til um jafn viðurstyggilega hluti og dýraníð. "Það var hörmulegt að þurfa að vinna þetta. Ég gerði það með miklum stunum. Mér leið mjög illa meðan ég var að vinna úr þessu,“ segir hann. 12. maí 2011 14:33 Meint dýraníð: "Getur bara ekki lýst því hvað þetta er ógeðslegt" "Menn eru bara dofnir," segir umráðamaður hryssu sem talið er að hafi verið skorin í kynfærin með eggvopni. Honum var virkilega brugðið þegar hann fékk fregnir af því að grunur léki á dýraníðingur hafi ráðist á hryssuna og skorið í skeið hennar. "Maður getur bara ekki lýst því hvað þetta er ógeðslegt," segir hann. Vísir greindi frá því í gær að meint dýraníð hefði verið kært til lögreglunnar á Egilsstöðum eftir að tveir skurðir fundust í skeið hryssunnar, eins og sjö sentimetra langir. Lögreglan hefur engar vísbendingar fengið um hver hefur getað verið þarna að verki og er málið í rannsókn. Hestamenn á svæðinu eru slegnir óhug vegna atviksins og finnst erfitt að ímynda sér að þarna hafi í raun verið um mannanna verk að ræða. Tíðkast hefur víða á Héraði að hesthús séu ólæst en nú er svo komið að vegna ótta um öryggi hrossanna tryggja menn sérstaklega að hesthúsin séu læst. "Við erum farin að læsa hjá okkur," segir umráðamaður hryssunnar og tekur fram að það eigi við um fleiri hestamenn á svæðinu. Hryssan er á batavegi en hún var hin rólegasta við skoðun dýralæknis eftir að tilkynnt var um áverkana á sunnudag. Þá taldi læknir að áverkarnir væru um 8 til 24 tíma gamlir. Hjörtur Magnason, héraðsdýralæknir á Egilsstöðum, sem hlúði að hryssunni eftir að tilkynnt var um áverkana, sagði í samtali við Vísi í gær að hann hefði aldrei séð viðlíka áverka á kynfærum dýrs. 13. maí 2011 14:35 Skurðir á kynfærum hryssu - lögreglan kölluð til Lögð hefur verið fram kæra til lögreglunnar á Egilsstöðum um meint dýraníð eftir að áverkar, sem taldir eru af völdum eggvopns, fundust á innanverðum kynfærum hryssu. Þetta staðfestir Hjörtur Magnason, héraðsdýralæknir á Egilsstöðum. Um er að ræða tvo skurði í skeið hryssunnar, eins og sjö sentimetra langa. Ekki hafa komið fram vísbendingar um hver var þarna að verki. Héraðsdýralæknir var kallaður til á sunnudag eftir að hestamaður varð var við grunsamlega áverka og óeðlilega blæðingu úr skeið hryssu. "Manni bregður nú við að sjá svona," segir Hjörtur. Hestamaðurinn var í útreiðartúr á svæðinu ásamt eiginkonu sinni þegar hann tók eftir blóðblettum aftan á lærum umræddrar hryssu. Eftir komu í hesthús skoðaði hann blettina, lyfti taglinu og uppgötvaði þá blæðingu úr skeiðinni. Við nánari athugun kom í ljós skurður í neðra skeiðaropi og einhvers konar búlga innar í skeið. Hafði viðkomandi þá samband við héraðsdýralækni. "Ég á mjög erfitt með að sjá hvernig þessir áverkar gætu verið af völdum hryssunnar sjálfrar eða annarra dýra," segir Hjörtur og telur því að ekki sé um annað en mannaverk að ræða. Lögregla var kölluð til og tók myndir af áverkum. Hjörtur telur að á þeim tíma hafi áverkarnir verið á bilinu 8 til 24 klukkustunda gamlir. "Ég legg til í skýrslu að þetta verði skráð sem meint dýraníð," segir Hjörtur. Enginn liggur undir grun um verknaðinn. Hjörtur hefur aldrei séð viðlíka áverka á hestum en segist hafa heyrt um það þegar hann var við nám í Svíþjóð að dæmi væri um að fólk misþyrmdi dýrum illilega, og þá jafnvel með eggvopni. 12. maí 2011 13:28 Mest lesið Kári hættur hjá Íslenskri erfðagreiningu Innlent Grunaður um að hafa frelsissvipt ferðamann í nokkrar klukkustundir Innlent Lokunin óásættanleg og muni leiða til verðhækkana fyrir íbúa Innlent Segjast hafa lent í drónaárás á alþjóðlegu hafsvæði Erlent „Við gerum ekki svona við börn“ Innlent Hikar ekki við að lögsækja skyldi Rafmennt nota nafn skólans Innlent Drengnum sleppt en fleiri handteknir Erlent Munaði sex atkvæðum Erlent Kári var harðákveðinn að hætta ekki sem forstjóri Innlent Mótmælt við ríkisstjórnarfund: „Oscar á heima hér“ Innlent Fleiri fréttir Bókhaldstækni og aukin skattheimta skýri afganginn Tæplega tíu milljarða viðsnúningur Kári var harðákveðinn að hætta ekki sem forstjóri Stuðningsmenn Oscars mótmæltu og Kári Stefáns hættur Bein útsending: Kynna ársreikning Reykjavíkurborgar „Við gerum ekki svona við börn“ Mótmælt við ríkisstjórnarfund: „Oscar á heima hér“ Kári hættur hjá Íslenskri erfðagreiningu Lokunin óásættanleg og muni leiða til verðhækkana fyrir íbúa Líkamsárásir og brotist inn í raftækjaverslun Grunaður um að hafa frelsissvipt ferðamann í nokkrar klukkustundir Hikar ekki við að lögsækja skyldi Rafmennt nota nafn skólans Myndaveisla: Lúðrasveit, fánar og gríðarstór stytta á Verkalýðsdaginn Kalla eftir mannúð og miskunnsemi stjórnvalda gagnvart börnum Fulllestað og veikt flutningskerfi raforku Þekkir ofbeldið sem konur í karllægum störfum verða fyrir Vilja móta samfélagið í þágu vinnandi fólks Íslenskum framleiðendum gerðir afarkostir og kröfugöngur verkalýðsins Verkalýðsdagurinn haldinn í skugga sjálftöku forystumanna Breytt veiðigjaldafrumvarp lagt fram Kaffistofa leigubílstjóra orðin „nyrsta moska í heimi“ Kalla saman ráðherranefnd svo rafmagnsleysi endurtaki sig ekki hér Birgir Guðjónsson er látinn Niðurstöðu um styrkjamálið megi vænta með vorinu „Þetta er mikill merkisdagur fyrir okkur“ Handtóku vopnaðan mann og kröfugöngur verkalýðsins „Ég skipaði þá aðila sem ég taldi hæfasta“ Hátíðardagskrá um allt land á verkalýðsdaginn Tilkynnt um mann vopnaðan skotvopni og einn handtekinn Líkamsárás á veitingastað Sjá meira
Óttast að hér sé "hestaripper" á ferð Hestamaðurinn sem uppgötvaði skurði á kynfærum hryssu um helgina hefur ritað greinargerð um fyrirbærið "hestaripper“ sem hann ætlar að koma til lögreglunnar á Egilsstöðum, lögreglumönnum til upplýsingar. Þá hefur hann einnig mælst til þess að greinargerðin verði hengd upp í hesthúsum þannig að hestaeigendur séu meðvitaðir um hættuna. Höfundur greinargerðarinnar heitir Ólafur Guðgeirsson og er heila- og taugaskurðlæknir. Heitið hestaripper er dregið af nafni breska fjöldamorðingjans Jack the ripper, betur þekktur hér á Íslandi sem Kobbi kviðrista. Eftir að Ólafur komst fann skurðina á hryssunni sökkti hann sér í þýskar fræðibækur, en sjálfur var hann við nám í Þýskalandi. Þar í landi gengu menn sem misþyrmdu hrossum á þennan hátt undir heitinu "pferderipper.“ "Þetta glæpsamlega tortímingaræði flokkast undir (zoosadisma) dýraníðingsskap. Í hópnum eru kvennaraðmorðingjar, en við yfirheyrslur margra þeirra í Þýskalandi er oft fyrri saga um dýraníðingsskap, raðáverka eða raðmorð. Einnig játuðu flestir að vera kvennahatarar,“ segir í greinrgerð Ólafs, en þar kemur fram að hann sækir fróðleik sinn til þýskra sérfræðinga. Ólafur segir að þegar í ljós kom að um áverka af mannavöldum var að ræða á hryssunni, eftir því sem komist er næst, hafi hann munað eftir fjölmiðlaumfjöllun um hestarippera frá námsárunum í Þýskalandi. "Þá var ákveðið að í stað þess að hlífa almenningi við þessum staðreyndum þá var fjallað um þetta opinskátt. Þannig væru meiri líkur á að níðingarnir kæmust í viðeigandi meðferð eða á bak við lás og slá,“ segir hann. Ólafur segir það ekki hafa verið tekið út með sældinni að lesa sér til um jafn viðurstyggilega hluti og dýraníð. "Það var hörmulegt að þurfa að vinna þetta. Ég gerði það með miklum stunum. Mér leið mjög illa meðan ég var að vinna úr þessu,“ segir hann. 12. maí 2011 14:33
Meint dýraníð: "Getur bara ekki lýst því hvað þetta er ógeðslegt" "Menn eru bara dofnir," segir umráðamaður hryssu sem talið er að hafi verið skorin í kynfærin með eggvopni. Honum var virkilega brugðið þegar hann fékk fregnir af því að grunur léki á dýraníðingur hafi ráðist á hryssuna og skorið í skeið hennar. "Maður getur bara ekki lýst því hvað þetta er ógeðslegt," segir hann. Vísir greindi frá því í gær að meint dýraníð hefði verið kært til lögreglunnar á Egilsstöðum eftir að tveir skurðir fundust í skeið hryssunnar, eins og sjö sentimetra langir. Lögreglan hefur engar vísbendingar fengið um hver hefur getað verið þarna að verki og er málið í rannsókn. Hestamenn á svæðinu eru slegnir óhug vegna atviksins og finnst erfitt að ímynda sér að þarna hafi í raun verið um mannanna verk að ræða. Tíðkast hefur víða á Héraði að hesthús séu ólæst en nú er svo komið að vegna ótta um öryggi hrossanna tryggja menn sérstaklega að hesthúsin séu læst. "Við erum farin að læsa hjá okkur," segir umráðamaður hryssunnar og tekur fram að það eigi við um fleiri hestamenn á svæðinu. Hryssan er á batavegi en hún var hin rólegasta við skoðun dýralæknis eftir að tilkynnt var um áverkana á sunnudag. Þá taldi læknir að áverkarnir væru um 8 til 24 tíma gamlir. Hjörtur Magnason, héraðsdýralæknir á Egilsstöðum, sem hlúði að hryssunni eftir að tilkynnt var um áverkana, sagði í samtali við Vísi í gær að hann hefði aldrei séð viðlíka áverka á kynfærum dýrs. 13. maí 2011 14:35
Skurðir á kynfærum hryssu - lögreglan kölluð til Lögð hefur verið fram kæra til lögreglunnar á Egilsstöðum um meint dýraníð eftir að áverkar, sem taldir eru af völdum eggvopns, fundust á innanverðum kynfærum hryssu. Þetta staðfestir Hjörtur Magnason, héraðsdýralæknir á Egilsstöðum. Um er að ræða tvo skurði í skeið hryssunnar, eins og sjö sentimetra langa. Ekki hafa komið fram vísbendingar um hver var þarna að verki. Héraðsdýralæknir var kallaður til á sunnudag eftir að hestamaður varð var við grunsamlega áverka og óeðlilega blæðingu úr skeið hryssu. "Manni bregður nú við að sjá svona," segir Hjörtur. Hestamaðurinn var í útreiðartúr á svæðinu ásamt eiginkonu sinni þegar hann tók eftir blóðblettum aftan á lærum umræddrar hryssu. Eftir komu í hesthús skoðaði hann blettina, lyfti taglinu og uppgötvaði þá blæðingu úr skeiðinni. Við nánari athugun kom í ljós skurður í neðra skeiðaropi og einhvers konar búlga innar í skeið. Hafði viðkomandi þá samband við héraðsdýralækni. "Ég á mjög erfitt með að sjá hvernig þessir áverkar gætu verið af völdum hryssunnar sjálfrar eða annarra dýra," segir Hjörtur og telur því að ekki sé um annað en mannaverk að ræða. Lögregla var kölluð til og tók myndir af áverkum. Hjörtur telur að á þeim tíma hafi áverkarnir verið á bilinu 8 til 24 klukkustunda gamlir. "Ég legg til í skýrslu að þetta verði skráð sem meint dýraníð," segir Hjörtur. Enginn liggur undir grun um verknaðinn. Hjörtur hefur aldrei séð viðlíka áverka á hestum en segist hafa heyrt um það þegar hann var við nám í Svíþjóð að dæmi væri um að fólk misþyrmdi dýrum illilega, og þá jafnvel með eggvopni. 12. maí 2011 13:28