Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ingibjörg um Icesave: Sært stolt og Þórðargleði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra, segir að Icesave hafi í hennar huga alltaf snúist um ískalt hagsmuna- og áhættumat en einhverra hluta vegna hafi tilfinningar tekið völdin. Henni finnst umræðan nú helst snúast um þjóðarstolt þar sem siðferðiskennd er sett fram andspænis staðfestu. „Nú hefur sært stolt og Þórðargleði bæst ofan á allt hitt. Er ekki kominn tími til að lægja tilfinningaöldurnar í stað þess að kynda undir þeim?," spyr Ingibjörg Sólrún á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi. Fjöldi fólks lýsir yfir ánægju sinni með þessi orð Ingibjargar Sólrúnar. Sigþór Ari Sigþórsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Klæðningar, er fyrstur til að gera athugasemd. „Allir verða að fá að vinna sína sigra. Kannski var þessi nauðsynlegur fyrir meirihluta þjóðarinnar til að geta byrjað upp á nýtt," segir hann. Ingibjörg Sólrún kemur því áréttingu á framfæri: „Sigþór. Ég er ekki að vísa til meirihluta þjóðarinnar sem ég held að sé ekki í neinu sérstöku tilfinningarúsi. Þetta á við um hina talandi stétt - Þessa sem stjórnar umræðunni í fjölmiðlunum.“ 13.4.2011 11:53
Vorrallið sýnir sterka stöðu þorskstofnsins Niðurstöður úr vorralli Hafrannsóknarstofnunnar sýna að staða þorskstofnsins er sterk. Stofnvísitala þorsks hækkaði fjórða árið í röð, var nú svipuð og árin 1998 og 2004. 13.4.2011 11:40
Þýsk þyrla verður á bakvakt fyrir Landhelgisgæsluna Sea King þyrla þýska herskipsins Berlin verður bakvakt fyrir þyrlu Landhelgisgæslunnar dagana 14.-18. apríl eða þá daga sem skipið er í kurteisisheimsókn í Reykjavík, ásamt þýsku freigátunum Brandenburg og Rheinland-Pfalz. 13.4.2011 11:36
Hættur fylgja heita vatninu Upplýsingafulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur vekur athygli á því að veruleg hætta stafar af því þegar heitavatnsleiðslur bila og heitt vatn flæðir um götur eins og gerðist í Rofabæ í gærkvöldi. "Vatnið er meira en 80 gráðu heitt og djúpur 2. stigs bruni getur myndast á einnar sekúndu snertingu við vatnið. Þar sem hugsanlegt er að þrýstihöggið í gær hafi veikt kerfið í Árbæ er mikilvægt að fólk hafi í huga hættuna sem getur stafað af heitavatnsbilunum,“ segir í tilkynningu. Til nánari upplýsinga er bent á vefinn www.stillumhitann.is http://www.stillumhitann.is sem unnin var í samvinnu OR, Landspítala-Háskólasjúkrahúss og Sjóvá-Forvarnarhúss. 13.4.2011 11:02
Sjaldgæfan höfrung rak á land Sjaldgæfa höfrungategund rak á land í Víkurfjöru aðfararnótt 2. apríl. Á heimasíðu Hafrannsóknarstofnunar segir Gísli Víkingsson hvalasérfræðingur að um sé að ræða stökkul (Tursiops truncatus). "Hann telst til sjaldgæfra flækingstegunda við Ísland en er algengur sunnar í N-Atlantshafi og í öllum hitabeltis- og tempruðu hafsvæðunum.“ 13.4.2011 11:02
Byrjað að hleypa heitu vatni á Árbæinn Nú klukkan tíu var farið að hleypa heitu vatni á í þeim hluta Árbæjarins, sem verið hefur heitavatnslaus frá því í gærkvöldi. Byrjað var á að hleypa vatni á þann hluta hverfisins sem er vestan Bæjarbrautar og hefur það gengið áfallalaust til þessa. Reikna má með að það taki um eina og hálfa klukkustund að ná upp fullum þrýstingi. Telji fólk sig hafa orðið fyrir bótaskyldu tjóni af hálfu OR vegna bilunarinnar er því bent á að hafa samband við VÍS, sem OR er tryggt hjá. 13.4.2011 10:27
Vantraust rætt í dag klukkan 16 Umræða um tillögu þingflokks Sjálfstæðisflokksins um vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar hefst klukkan fjögur í dag og stendur fram á kvöld. Umræðunni eru ætlaðar fimm klukkustundir og verður atkvæðagreiðsla að henni lokinni. 13.4.2011 10:03
Ráðherra mælir fyrir brottvísum ofbeldismanns af heimili Innanríkisráðherra mælti á Alþingi í gær fyrir frumvarpi til laga um nálgunarbann og brottvísun af heimili en brottvísun af heimili er úrræði sem fram til þessa hefur einungis verið að finna í barnaverndarlögum. Þetta er hliðstætt því sem gerist í nágrannalöndum og hefur verið nefnt austurríska leiðin. Helstu efnisatriði frumvarpsins eru þau að lagt er til að bráðabirgðaákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili verði í höndum lögreglustjóra eða löglærðs fulltrúa hans. Lögreglustjóra er gert skylt, hvort sem um er að ræða ákvörðun um nálgunarbann eða brottvísun, að bera hana undir héraðsdóm innan þriggja sólarhringa frá birtingu ákvörðunarinnar en dómaranum er þannig falið að taka endanlega ákvörðun um það hvort nálgunarbanni og/eða brottvísun verði beitt. Er lagt til að heimilt verði að beita nálgunarbanni ef rökstudd ástæða er til að ætla að sakborningur hafi framið refsivert brot eða raskað á annan hátt friði brotaþola, eða hætta er á að viðkomandi muni koma til með að gera slíkt. Þá verði heimilt að beita brottvísun af heimili ef rökstudd ástæða er til að ætla að sakborningur hafi framið eða hætta er á að hann fremji refsivert brot gegn tilteknum ákvæðum almennra hegningarlaga (til dæmis ákvæðum laganna um kynferðisbrot, líkamsmeiðingar, brot gegn frjálsræði manna, hótanir, eignaspjöll og fleira), enda hafi verknaðurinn beinst að einhverjum sem er honum nákominn og að tengsl þeirra þykja hafa aukið á grófleika verknaðarins. Ennfremur er það gert að skilyrði fyrir brottvísun af heimili að brotið varði fangelsi allt að sex mánuðum. Nýmæli um samskipti lögreglu og sveitarfélaga Af öðrum efnisatriðum frumvarpsins má nefna að nálgunarbanni verður ekki afmarkaður lengri tími en eitt ár í senn, líkt og nú gildir samkvæmt lögum um nálgunarbann, en ekki verður heimilt að beita brottvísun lengur en fjórar vikur í senn. Í frumvarpinu er jafnframt að finna sérreglur sem gilda skulu við meðferð mála hjá lögreglu og fyrir dómi. Loks er í frumvarpinu að finna sérstakan kafla sem fjallar um samskipti lögreglu og sveitarfélaga í málum sem varða nálgunarbann og brottvísun af heimili og er þar um nýmæli að ræða. Frumvarpið var samið af starfshópi sem skipaður var af innanríkisráðherra til þess að gera tillögur að lagaákvæðum til innleiðingar á hinni svokölluðu austurrísku leið og er gerð frumvarpsins þannig í samræmi við samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs. Var það mat starfshópsins að vel færi á því að ákvæði um nálgunarbann og brottvísun af heimili væri að finna í einum og sama lagabálki enda búa sambærileg sjónarmið að baki beitingu þeirra, sömu málsmeðferðarreglur geta þar átt við og er það jafnframt í samræmi við norræna löggjöf á þessu sviði. Að auki er fyrirséð að úrræðum þessum verði beitt samhliða í nokkrum fjölda tilvika. Við gerð frumvarpsins átti starfshópurinn fundi með fulltrúum Samtaka um kvennaathvarf, Stígamóta, Jafnréttisstofu, Samtaka kvenna af erlendum uppruna, Dómarafélags Íslands og ríkislögreglustjóra. Sjá frumvarpið í heild sinni á vef Alþingis. http://www.althingi.is/dba-bin/ferill.pl?ltg=139&mnr=706 13.4.2011 09:34
Braust inn í söluturn Brotist var inn í söluturninn Hjartarbúð við Suðurlandsbraut í nótt og hafði þjófurinn peningakassann, eða sjóðsvélina , í heilu lagi á brott með sér. 13.4.2011 09:22
Heitt vatn flæddi yfir Rofabæinn - íbúi náði myndum "Ég átti í fullu fangi við að bægja frá börnum sem þarna voru að hjóla. Þau voru frekar ráðvillt í þokunni," segir Ólöf Anna Ólafsdóttir, íbúi í Árbæ í Reykjavík, sem var rétt fyrir utan heimili sitt við gatnamót Rofabæjar og Bæjarbrautar þegar um 70 gráðu heitt vatn fór þar að flæða upp úr brunni á götunni. Mikil gufumyndun varð vegna þessa og skyggni slæmt. Eins og greint hefur verið frá varð tjón á mörgum heimilum í vestanverðum Árbænum í gærkvöldi þegar heitt vatn fór að leka þar úr lögnum. Ólöf Anna slapp við vatnsskemmdir á sínu heimili. Hún ætlar þó að sjá til þess að einhverj verði heima hjá henni hún klukkan tíu, eins og Orkuveita Reykjavíkur hefur mælst til, þegar kveikt verður aftur á vatni sem skrúfað var fyrir í gær. Hún var að koma heim um klukkan sjö í gærkvöldi þegar hún varð vatnslekans á götunni vör. Nokkur umferð var á svæðinu en Ólöf Anna einbeitti sér að því að halda ungmennum frá heita vatninu, svo og að taka myndir. Það var síðan um klukkustund síðar sem starfsmenn Orkuveitunnar mættu á staðinn. 13.4.2011 08:56
Fundu kannabisræktun í fjölbýlishúsi Kallað var á lögreglu í gærkvöldi til að fjarlægja óboðinn gest, sem hafði hreiðrað um sig í geymslu í kjallara fjölbýlishúss og neitaði að fara þaðan. 13.4.2011 08:14
Mikið vatnstjón í Árbæjarhverfinu Tjón varð í mörgum íbúðum í vestanverðu Árbæjarhverfinu í Reykjavík í gærkvöldi, þegar heitt vatn fór að leka úr lögnum. 13.4.2011 07:03
Tæplega 14.000 atvinnulausir Atvinnuleysi í mars mældist 8,6 prósent en að meðaltali voru 13.757 manns atvinnulausir í mánuðinum. 13.4.2011 07:00
Kona sektuð um 25 þúsund Franska lögreglan hefur í fyrsta skiptið sektað konu fyrir að hylja andlit sitt með búrku. Konan sem var stöðvuð inni í verslunarmiðstöð í París í fyrradag fékk tæplega 25 þúsund króna sekt. 13.4.2011 07:00
Mun svara skýrslu Alþingis Björgólfur Thor Björgólfsson segist ætla að svara rangfærslum um sig í Rannsóknarskýrslu Alþingis á næstunni. Frá þessu greinir hann í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. 13.4.2011 07:00
Hjólaði í veg fyrir bíl Ung kona meiddist, en þó ekki alvarlega, þegar hún hjólaði í veg fyrir bíl á Nauthólsvegi í Vatnsmýrinni í Reykjavík á ellefta tímanum í gærkvöldi. 13.4.2011 06:59
Eldur í fatahreinsun í nótt Töluvert tjón varð þegar eldur kviknaði í fatahreinsun við Vitastíg í Reykjavík upp úr miðnætti. 13.4.2011 06:56
Bensínið kostar nú 240 krónur Verð á eldsneyti hækkaði um þrjár krónur á lítrann í gær. Lítrinn kostar nú 239,80 krónur hjá Skeljungi, þar sem það er dýrast. Ódýrast er bensínið hjá Orkunni, þar sem lítrinn kostar 235,10 krónur. 13.4.2011 06:00
Vilja frjálsar strandveiðar Stjórn Frjálslynda flokksins lýsir yfir miklum vonbrigðum með nýja reglugerð Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra um strandveiðar á komandi sumri. 13.4.2011 04:00
Tryggði Haukum Íslandsmeistaratitilinn með ótrúlegri flautukörfu Haukamaðurinn Kári Jónsson, leikmaður í 9. flokki karla, skoraði hreint út sagt ótrúelga flautukörfu og tryggði Haukum Íslandsmeistaratitilinn í 9. flokki karla árið 2011 um síðustu helgi. 12.4.2011 23:38
Yngsta móðir Íslands - Varð ólétt 12 ára Alda Jóhanna Hafnadóttir er yngsta kona sem átt hefur barn á Íslandi í seinni tíð, en hún var aðeins 12 ára þegar hún varð ófrísk. Alda er tvítug í dag og segist hafa farnast vel í móðurhlutverkinu. Nýlega kom svo í ljós að systir Öldu á von á barni í sumar, en hún er 15 ára. 12.4.2011 22:00
Heitavatnslaust í Árbæ Heitavatnslaust er í hluta Árbæjarhverfis eftir að aðalæð við Rofabæ bilaði í kvöld. Vatnsleysið nær til þess hluta hverfisins sem er vestan Fylkisvegar, sem liggur frá Rofabæ að Árbæjarlaug. 12.4.2011 21:51
Framsókn styður vantrauststillöguna - Hreyfingin óákveðin Atkvæðagreiðsla um vantrauststillögu Sjálfstæðisflokksins á ríkisstjórnina fer fram annað kvöld. Formenn þingflokkana funduðu í kvöld með Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, þar sem fyrirkomulag umræðunnar var rædd. 12.4.2011 21:06
Hættið að rífast innbyrðis, horfið fram á veginn og verið glöð Forstöðumaður greiningardeildar Danske bank sem varð þekktur fyrir að spá fjárhagslegri kreppu hér á landi árið 2006 segir efnahagslífið nú vera í miklum bata og hvetur Íslendinga til að dvelja ekki í fortíðinni og horfa fram á veginn. 12.4.2011 19:35
Leita samstarfs við Íslendinga vegna siglinga um Norðurskautið Kínverjar sem og ráðamenn fleiri þjóða hafa rætt þann möguleika við íslensk stjórnvöld að á Íslandi verði þjónusta vegna siglinga yfir Norðurskautið. 12.4.2011 19:14
Síðasti naglinn í líkkistu jarðhitanýtingar á Íslandi Ríkisstjórnin fer nærri því að reka síðasta naglann í líkkistu jarðhitanýtingar á Íslandi, með áformum sínum um að takmarka leigutíma jarðhitaauðlinda við þrjátíu ár. Þetta sagði forstjóri HS Orku á fundi Jarðhitafélags Íslands í dag. 12.4.2011 18:55
Bjarni Ben: Kosningar munu tryggja traust á milli þings og þjóðar Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins lagði á Alþingi í dag fram tillögu um vantraust á ríkisstjórnina. Í tillögunni er þess krafist að þing verði rofið 11.maí og boðað til kosninga. Forsætisráðherra fagnaði tillögunni og þakkaði Bjarna fyrir að leggja hana fram. 12.4.2011 18:45
Meðferð barnaníðinga í íslenskum fangelsum er ábótavant Meðferð barnaníðinga sem afplána í íslenskum fangelsum er ábótavant. Þetta segir sálfræðingur hjá Fangelsismálastofnun en barnaníðingur sem lauk nýverið afplánun er nú grunaður um að hafa brotið af sér á meðan hann var á reynslulausn. 12.4.2011 18:42
Íhuga að beita Íslendinga efnahagslegum þvingunum Hollensk stjórnvöld íhuga að beita Íslendinga efnahagslegum þvingunum til að knýja fram efndir í Icesave málinu. Þá ætla Hollendingar einnig beita sér fyrir því að sparifjáreigendur þar í landi fái allt sitt til baka - ekki einungis lágmarkstryggingu. 12.4.2011 18:31
Reyndu að sviðsetja innbrot í Borgarnesi Tveir piltar, 17 og 19 ára, reyndu að sviðsetja innbrot í Shellstöðina við Brúartorg í Borgarnes aðfaranótt mánudags. 12.4.2011 18:06
Úrslit MORFÍS í beinni á netinu í kvöld Úrslit MORFÍS fara fram klukkan 20 í Háskólabíói í kvöld. Í ár eru það Menntaskólinn við Sund og Menntaskólinn í Reykjavík sem munu etja kappi en MS hefur titil að verja eftir að skólinn vann Verzlunarskóla Íslands í úrslitunum í fyrra. 12.4.2011 17:40
Fyrrum einbýlishús Jóhannesar í Bónus til sölu Skilanefnd Landsbanka Íslands hefur sett fyrrum einbýlishús Jóhannesar Jónssonar, kenndur við Bónus, á sölu. Húsið er 427 fermetrar á stærð og er á rúmlega sextán þúsund fermetra lóð á stað sem nefndur er Hrafnabjörg. Útsýni er yfir Eyjafjörðinn og á Akureyri. Það er fasteignasalan Eignamiðlun sem sér um söluna á húsinu en ekki er verð á húsinu gefið upp heldur er óskað eftir tilboðum í húsið. 12.4.2011 17:05
Óvíst hvort framsóknarmenn styðji vantrauststillögu Bjarna Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokksins fagnaði í dag á þingi framlagningu vantrauststillögu Bjarna Benediktssonar en benti um leið á að hún væri á veikum grunni í ljósi þess að þingmenn Sjálfstæðisflokksins hefðu flestir sagt já í Icesave málinu. Hann telur alls óvíst hvort framsóknarmenn styðji tillöguna. 12.4.2011 16:17
Ekki sjálfgefið hvort Atli styðji tillögu um vantraust "Það er ekki sjálfgefið að ég muni styðja þessa tillögu, segir Atli Gíslason, fyrrverandi þingmaður VG sem nú er utan þingflokka. Hann segist ekki hafa kynnt sér vantrauststillögu Bjarna Benediktssonar sem hann hyggst leggja fram í dag. 12.4.2011 15:44
Vara við aukinni útfjólublárri geislun á Íslandi Undanfarnar vikur hefur mælst óvenju mikil eyðing ósonlagsins yfir norðurhveli jarðar sem rekja má til óvenjulegra kaldra háloftavinda sem hafa komið í veg fyrir að lofthjúpurinn yfir norðurheimskautinu blandaðist við loft frá suðlægari breiddargráðum. Upplýsingar frá Alþjóðaveðurfræðistofnuninni benda til að um 40% þynningu á ósonlaginu sé að ræða og hefur hún aldrei áður verið svo mikil á norðurhveli jarðar. Búast má við að áhrifa þessara eyðingar ósonlagsins muni gæta hér á landi í vor og í sumar með aukinni útfjólublárri geislun á heiðskírum dögum. Umhverfisstofnun hefur sent frá sér tilkynnigu vegna þessa þar sem því esr sérstaklega beint til útivistarfólks að nota sólvörn og sólgleraugu. Ósonlagið er það svæði í lofthjúp jarðar þar sem þéttleiki ósons er mestur, í 15-35 km hæð yfir jörðu, og verndar lífríki jarðar gegn hættulegum útfjólubláum geislum sólar. Þessi hættulega geislun getur skaðað lífið í sjónum, valdið húðkrabbameini, augnsjúkdómum og bælt ónæmiskerfi líkamans. Losun ósoneyðandi efna var bönnuð með alþjóðlegum samningi, Montrealbókuninni frá 1987, sem verður 25 ára á næsta ári. Hér á landi hefur notkun ósoneyðandi efna minnkað um 98% frá því hún var mest árið 1987. 12.4.2011 15:43
Jóhanna vill flýtimeðferð á vantrauststillögu Jóhanna Sigurðardóttir ætlar að óska eftir því við forseta Alþingis að vantrauststillaga Bjarna Benediktssonar fái flýtimeðferð í þinginu. Óvíst er hvenær tillagan verður tekin fyrir en heimildir fréttastofu herma að það gæti orðið á fimmtudaginn kemur. 12.4.2011 15:28
Jóhanna segir að Icesave muni leysast á endanum Jóhanna Sigurðardóttir segir að Svíar og Norðmenn hafi lofað áframhaldandi lánveitingum til handa Íslendingum þrátt fyrir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave. Hún flutti munnlega skýrslu um málið í dag þar sem þetta kom fram meðal annars. Jóhanna sagði að ríkisstjórnin hafi verið í stöðugu sambandi við alla aðila málsins frá því niðurstaðan varð ljós og sagði hún róið öllum árum að því að skýra málstað Íslendinga. Sagði hún að viðbrögð við þeim skýringum hafi yfirleitt verið yfirveguð og fremur jákvæð. 12.4.2011 14:42
Steingrímur: Glöggt er gests augað „Ísland er ekki í neinum greiðsluvandræðum og verður ekki næstu árin,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. Hann gaf lítið fyrir orð Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, sem stuttu áður boðaði úr pontu Alþingis að hann myndi leggja fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina. Steingrímur benti á að sitjandi ríkisstjórn væri að vinna samkvæmt samningum sem síðasta ríkisstjórn átti hluta að, og þar með samningum sem Sjálfstæðisflokkurinn hefði sjálfur unnið að. Steingrímur benti á að Lars Christiansen, forstöðumaður greiningardeildar Danske Banke, segir nú að hagvöxtur sé hafinn á Íslandi á ný og horfur til framtíðar ágætar. Christiansen spáði árið 2006 fyrir um hrun íslenska efnahagsundursins. „Vonandi hefur hann rétt fyrir sér aftur að þessu sinni,“ segir Steingrímur og vitnaði í orðatiltækið: „Glöggt er gests augað.“ 12.4.2011 14:34
Bjarni leggur fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokki ætlar að leggja fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina. Þetta kom fram í máli hans þegar hann svaraði munnlegri skýrslu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um niðurstöður Icesave málsins. 12.4.2011 14:21
Hollendingar segja ESB aðild háða Icesave - ætla að beita sér innan AGS Fjármálaráðherra Hollands, Jan Kees de Jager, sagði í ræðu á hollenska þinginu í dag að aðild Íslendinga að Evrópusambandinu sé háð því að lausn finnist á Icesave-málinu. 12.4.2011 13:51
Jóhanna flytur skýrslu um niðurstöður Icesave og framhald málsins Jóhanna Sigurðardóttir mun í dag flytja munnlega skýrslu um niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar og framhald Icesave-málsins. Ræða Jóhönnu er fyrsta mál á dagskrá þingfundar sem hefst klukkan tvö. 12.4.2011 13:24
Bensínið hækkar enn - lítrinn kominn í 240 krónur Olíufélögin hækkuðu verð á bensíni enn einu sinni í morgun og er lítrinn kominn í tæpar tvö hundruð og fjörutíu krónur. Hæst er verðið hjá Skeljungi eða 239,8 krónur lítrinn. Þá er dísel lítrinn kominn yfir 242 krónur hjá stóru olíufélögunum þremur. Vart þarf að taka fram að eldsneytisverð hefur aldrei verið eins hátt hér á landi. Þess má þó geta að lægsta verðið á bensíni er nú hjá Orkunni eða rétt rúmar 235 krónur lítrinn. Tíðar bensínhækkanir undanfarnar vikur má rekja til heimsmarkaðsverðs á olíu sem náði hæstu hæðum á tveggja ára tímabili á mörkuðum í New York í síðustu viku. Hins vegar lækkaði verð á tunnu lítillega í gær og endaði undir 110 dollurum tunnan. Þá er þó umtalsvert hærra en verðið hefur verið síðastliðið ár. Hátt olíuverð orsakast aðallega af óeirðunum í Líbíu sem staðið hafa nú í um 6 vikur og hafa neikvæð áhrif á framboð olíu. Alþjóða orkumálastofnunin segir í nýjustu mánaðarskýrslu sinni að hátt olíuverð sé farið að hafa áhrif á eftirspurn eftir olíu og haldist verðið yfir 100 dollurum tunnan gæti það hægt á efnahagsbata í heiminum. 12.4.2011 12:00
Ágúst neitar sök - meint fórnarlamb er 19 ára Ungi maðurinn sem Ágúst Magnússon er grunaður um að hafa misnotað er 19 ára. Ágúst neitar sök en lögregla rannsakar nú tölvugögn hans. 12.4.2011 12:00
Fiskifingur innkallaðir Aðföng hafa ákveðið að innkalla Euro Shopper fiskifingur (en: fish fingers) í 900 gramma pappaöskjum. Ákvörðun um þetta var tekin í kjölfar tilkynningar frá ICA í Svíþjóð um að staðfest hafi verið að varan innihaldi afurð úr eggjum sem ekki er tilgreind í innihaldslýsingu. Varan var í dreifingu í verslunum Bónus og 10-11, en hefur verið tekin úr sölu á meðan merkingar eru endurbættar. Þar sem egg og afurðir úr þeim eru meðal þekktra ofnæmis- og óþolsvalda eru vörurnar varasamar fyrir ákveðna neytendahópa. Vörurnar eru öruggar og heilnæmar fyrir neytendur sem ekki hafa ofnæmi eða óþol fyrir eggjum og eggjaafurðum eða fiski og hveiti (glúten) sem eru tilgreind í innihaldslýsingu vörunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Aðföngum. Aðföng hvetja neytendur sem kunna að eiga vöruna til og hafa ofnæmi fyrir eggjum eða eggjaafurðum að henda henni eða skila við fyrsta tækifæri til næstu verslunar Bónus eða 10-11 gegn fullri endurgreiðslu. Einnig má hafa samband beint við Aðföng í síma 530-5645 eða í gegnum netfangið gaedastjori@adfong.is. 12.4.2011 11:41
Öll börn fædd 2009 fá leikskólapláss Foreldrar um 1.300 barna, sem fædd eru á árinu 2009 eða fyrr, hafa fengið boð um leikskólavistun eftir sumarleyfi í ágúst. Innritun barna í leikskóla Reykjavíkur stendur nú sem hæst, en eftir er að innrita á bilinu 200 og 300 börn. Stefnt er að því að öll börn fædd 2009 fái boð um leikskólapláss á árinu. Meðal annars er verið að skoða kosti þess að nýta betur húsnæði í eigu borgarinnar svo unnt verði að taka sem best á móti stærsta fæðingarárgangi sögunnar. Nýr leikskóli í Norðlingaholti mun taka til starfa í ársbyrjun 2012 og nokkrir sjálfstætt starfandi leikskólar hafa óskað eftir því að fjölga börnum. Áætlað er að innritun í borgarrekna leikskóla verði lokið í maí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Leikskólasvið hefur tekið í notkun nýtt innritunar- og innheimtukerfi, en með því skapast betri yfirsýn yfir barnfjölda, útskriftir úr leikskóla og inntökumöguleika í hverju hverfi og í hverjum skóla. Í þessu kerfi innrita leikskólastjórar sjálfir. Kerfið auðveldar þeim að hafa með sér samráð í hverju borgarhverfi, fara sameiginlega yfir umsóknir um leikskólapláss og uppfylla óskir foreldra, svo sem um að systkini dvelji í sama leikskóla. 6.865 börn dvöldu í leikskólum Reykjavíkur í byrjun ársins en gert er ráð fyrir að 7.118 leikskólarými verði í borginni í árslok. Inn í þeirri tölu eru einnig leikskólapláss í sjálfstætt starfandi leikskólum 12.4.2011 10:53