Fleiri fréttir

Milljarða skattsvik norskra útvegsmanna

Norsk sjávarútvegsfyrirtæki hafa verið staðin að stórfelldum efnahagsbrotum sem nema um þremur milljörðum norskra króna á síðasta ári. Sú upphæð jafngildir rúmum sextíu milljörðum íslenskra króna.

Undirbjó Japansferð í tvö ár en kemst hvergi

„Mig langar mjög mikið að fara núna. Ég hef verið að búa mig undir þessa ferð í tæplega tvö ár,“ segir Stefán Þór Þorgeirsson, nemi við Menntaskólann í Reykjavík.

Plast breitt yfir ótímabær hraðaskilti

Skilti um hámarkshraða sem sett voru upp fyrr í vetur við nokkrar götur eru enn hulin með plasti. Að sögn Stefáns Finnssonar, yfirverkfræðings hjá umhverfis- og samgöngusviði, er ástæðan sú að formleg skilyrði fyrir breyttum hámarkshraða hafa ekki verið uppfyllt.

Vilja svör um hagkvæmni Vaðlaheiðarganga

Formaður samgöngunefndar Alþingis, Björn Valur Gíslason úr Vinstri grænum, hefur fallist á beiðni Marðar Árnasonar úr Samfylkingunni um sérstakan fund um fyrirhuguð Vaðlaheiðargöng.

Hundrað bætast við á einum degi

„Þetta er talsvert magn. Það er ekki víst hvort allir fá tölvurnar sem pöntuðu þær því við vitum ekki hvað margar koma til landsins,“ segir Bjarni Ákason, forstjóri Eplis, umboðsaðila Apple hér á landi.

Stuðlað að nýliðun með leigukvótaþingi

Notast verður við blandaða leið aflahlutdeildarkerfis og svokallaðs pottakerfis við stjórn fiskveiða, samkvæmt áformum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Rangt að ESB-reglugerð nýtist í aðildarviðræðum

Sjávarútvegsráðuneytið segir að ákvæði í nýrri reglugerð ESB þar sem einstökum aðildarríkjum er heimilað að ákveða leyfilegt aflahámark fiskistofna feli í sér takmarkaða undanþágu frá meginreglum ESB.

Ekki gengið að breyta launum handhafa

Þó að laun forsetans hafi lækkað í ársbyrjun 2009 hafa laun handhafa forsetavalds haldist óbreytt fram að þessu. Sjaldgæft er að handhafarnir þurfi að sinna því starfi en þeir deila þó með sér forsetalaunum í fjarveru forseta. Þingmenn hafa tvívegis á nokkrum árum reynt að breyta þessu en ekki haft erindi sem erfiði.

Yuriy Kuzubov fékk flest stig

Sex skákmenn voru efstir og jafnir með sjö vinninga úr níu umferðum þegar MP Reykjavíkurskákmótinu lauk í gærkvöldi. Það voru þeir Yuriy Kuzubov, Ilya Nyzhnik og Vladmir Baklan frá Úkraínu, Pólverjinn Kamil Miton, Bosníumaðurinn Ivan Sokolov og Norðmaðurinn Jan Ludvig Hammer.

140 hafa kosið utan kjörfundar

Icesave Síðdegis í gær höfðu 140 manns greitt atkvæði utan kjörfundar um Icesave-málið á sýsluskrifstofum landsins. Af þeim voru 73 í Reykjavík. Utankjörfundur hófst í gærmorgun.

Bónus áfram með lægsta verð

Bónus var oftast með lægsta verðið þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í fjórum lágvöruverðsverslunum og fjórum stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu. Hæsta verðið var oftast að finna í Samkaupum-Úrvali. Könnunin var gerð á mánudaginn síðastliðinn.

Þáði engar utanlandsferðir

„Þessari fyrirspurn er fljótsvarað," segir í svari Gunnars I. Birgissonar. bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks í Kópavogi, við fyrirspurn Guðnýjar Dóru Gestsdóttur, bæjarfulltrúa VG.

Icesave-bækling á hvert heimili

Þingmenn allra flokka vilja að útbúið verði hlutlaust og aðgengilegt kynningarefni um Icesave-samningana fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 9. apríl og það sent öllum heimilum.

Vilja að ríkisstjórnin skuldbindi sig

Forystumenn Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins áttu fund með sjö ráðherrum, þar á meðal forsætis- og fjármálaráðherra, í gærmorgun. Þar var farið yfir atriði sem snúa að stjórnvöldum í kjaraviðræðum.

Opna gestastofu á gosafmæli

Gestastofa með minjum, kvikmynd og ljósmyndum tengdum gosinu í Eyjafjallajökli verður opnuð neðan við Þjóðveg 1, andspænis Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum, 14. apríl. Þann dag er eitt ár liðið frá því gosið hófst.

Grænn Kostur innkallar hummus og döðluvefjur

Grænn Kostur hefur innkallað í varúðarskyni og í samráði við Matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, Hummus og döðluvefju vegna þess að ekki er getið um ofnæmis- og óþolsvald í innihaldslýsingu, það er, sesamfræ. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Grænum Kosti.

Skipuleggja risahöfn og alþjóðaflugvöll á Langanesi

Alþjóðaflugvöllur, sem yrði sá næst stærsti á Íslandi, verður á Langanesi í tengslum við stórskipahöfn, samkvæmt aðalskipulagi, sem sveitarstjórn Langanesbyggðar hyggst afgreiða á morgun. Landeigandi kallar þetta loftkastala.

Íslendingurinn leitaði sér hjálpar vegna ásóknar í barnaklám

230 börnum, sem sættu kynferðislegri misnotkun, var bjargaði í einni stærstu lögregluaðgerð gegn barnaníðingum í heiminum. Aðgerðinni var stjórnað af Europol og teygði anga sína til fjölda landa en meðal annars var Íslendingur handtekinn.

Hæstaréttarlögmenn: Megum ekki leika okkur að framtíð barnanna

Hæstaréttarlögmennirnir Garðar Garðarsson, Gestur Jónsson, Guðrún Björg Birgisdóttir, Gunnar Jónsson, Jakob R. Möller, Lára V. Júlíusdóttir, Ragnar H. Hall og Sigurmar K. Albertsson skrifuðu grein, sem þeir hafa sent fjölmiðlum, þar sem þeir lýsa því yfir að þeir muni segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave. Greinin ber heitið: Dýrkeyptur glannaskapur.

Segja árangur í úrslitakeppni vera öskubuskuævintýri

"Okkur fannst alveg hrikalegt að okkar frábæra bæjarfélag hafi aldrei boðið upp á körfubolta þannig við ákváðum að taka málið í okkar hendur," segir Stefán Hirst Friðriksson, einn stofnenda körfuboltaliðsins Sláturfélag Seltjarnarness.

Bakarí mátti ekki dreifa myndbandi af ungum drengjum

Bæjarbakarí í Hafnarfirði braut gegn persónuverndalögum það birti á vefnum YouTube myndskeið sem talið var sýna ungan dreng taka farsíma ófrjálsri hendi. Þetta er niðurstaða Persónuverndar sem birti úrskurð sinn í dag.

Lýst eftir Ingólfi Snæ

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ingólfi Snær Víðissyni, sem hvarf frá dvalarstað sínum í Reykjavík þann ellefta mars og hefur ekkert til hans spurts síðan. Ingólfur Snær er um 180 cm á hæð, um 90 kg á þyngd, nokkuð þéttvaxinn, með blá augu, með ljósar stuttar strýpur, var klæddur í svarta hettupeysu og svartar Adidas buxur og svartan Adidas bol. Skór sagðir hvítir.

Átta sóttu um stöðu hæstaréttardómara

Átta umsóknir bárust um þrjú embætti dómara við Hæstarétt Íslands, sem auglýst voru laus til umsóknar vegna tímabundinnar fjölgunar í réttinum, sbr. lög nr. 12/2011. Umsóknarfrestur rann út 14. mars síðastliðinn. Umsækjendur eru í stafrófsröð:

Sex mánaða fangelsi fyrir að henda diski í konu

Karlmaður hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að henda postulínsdiski í andlit á sambýliskonu sinnar. Diskurinn brotnaði og konan hlaut opið sár í andliti. Þetta gerðist síðastliðið sumar.

Lögreglan kölluð í útibú Arion banka

Lögreglan var kölluð til í útibú Arion banka í Kringlunni í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu kom upp ágreiningur á milli gjaldkera og viðskiptavinar í morgun. Maðurinn var ósáttur við þá afgreiðslu sem hann fékk en fór heim til sín. Hann hringdi síðan í útibú bankans og hótaði því að hann myndi ná sér niður á starfsfólki bankans og mæta þangað með skotvopn. Lögreglu var gert viðvart og fór heim til mannsins og ræddi við hann. Þá var einnig rætt við starfsfólk útibúsins.

Ung kona fannst alvarlega slösuð og meðvitundarlaus

Ung kona fannst meðvitundarlaus með alvarlega höfuðáverka í bíl við Einholt þann 27. febrúar síðastliðinn. Þetta staðfestir Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn í samtali við Vísi. Konan man ekki atburðarrásina og er talið er að hún þjáist af minnisleysi vegna höfuðáverkanna.

Þriggja ára fangelsi fyrir árás í Laugardal

23 ára gamall maður, Óðinn Freyr Valgeirsson, var í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir árás á 16 ára gamla stúlku í Laugardal þann ellefta október í fyrra. Maðurinn réðst að stúlkunni á göngustíg með ofbeldi og sló hana ítrekað með hörðu áhaldi í höfuð þannig að af hlaust skurður á hnakka. Hann tók hana hálstaki þrengdi að þar til hún missti meðvitund.

Björgunaraðgerð Europol - Íslendingur í barnaklámhring

Íslenskur karlmaður um þrítugt kemur við sögu í alþjóðlegri lögreglurannsókn sem Europol greindi frá í dag. Rannsóknin, sem gengur undir nafninu "Operation Rescue“ og á íslensku má kalla Björgunaraðgerð, teygir sig til fjölmargra landa, sneri að samskiptum aðila á spjallrás á Netinu. Þar voru til umfjöllunar myndir sem á mátti sjá börn misnotuð kynferðislega. Um 230 börnum var bjargað í aðgerðinni. Gefin hefur verið út ákæra á hendur manninum.

Íslenskt efni um helmingur sjónvarpsefnisins

Íslenskt sjónvarpsefni var um helmingur þess efnis sem Sjónvarpið sýndi á síðasta rekstrarári RÚV, samkvæmt svari mennta- og menningarmálaráðherra við svari Sivjar Friðleifsdóttur, þingmanni Framsóknarflokksins. Samkvæmt svarinu var íslenskt sjónvarpsefni með 50,7% hlutdeild, bandarískt efni með um 26,1% hlutdeild og norrænt efni með 7,5% hlutdeild. Siv spurði einnig hver kostnaðurinn við kaup á norrænu og bandarísku efni hefði verið en það fékkst ekki uppgefið af samkeppnisástæðum.

Vatnavinir hljóta alþjóðleg verðlaun í arkitektúr

Vatnavinir hafa hlotið hin virtu alþjóðlegu verðlaun í arkitektúr Global Award for Sustainable Architecture 2011 fyrir verkefnið Heilsulandið Ísland. Locus Foundation standa árlega fyrir þessari verðlaunaveitingu sem er hugsuð sem viðurkenning til handa arkitektum fyrir framþróun á sviði sjálfbærni í arkitektúr. Olga Guðrún Sigfúsdóttir, arkitekt og meðlimur í Vatnavinum, segir hópnum sýndur mikill sómi og heiður með verðlaununum.

Áreitt kynferðislega í EVE Online - kynjamismunum í tölvuleikjum

Konur verða fyrir kynferðislegri áreitni í sýndarveruleika ekki síður en í raunveruleikanum. Kynjamismunun er staðreynd í tölvuleiknum EVE Online. Þetta er megin niðurstaða Önnu Bragadóttur sem rannsakaði samskipti kynjanna í sýndarveruleika, sérstaklega í tölvuleiknum EVE Online. Rannsóknina vann hún fyrir lokaritgerð sína við viðskiptafræðideild Háskólans á Bifröst og spilaði hún leikinn mánuðum saman til að öðlast betri skilning á verkefni sínu.

Vita hvar ágreiningurinn er

Forystumenn Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins funduðu með stjórnvöldum um áherslur í kjarasamningum í dag.

Uppselt á Eagles í forsölu

Allir miðar í forsölu á tónleika Eagles seldust upp á rúmum hálftíma. Opnað var fyrir forsölu N1 í gegn um midi.is klukkan tíu í morgun. Alls voru fimm þúsund miðar í boði, 2500 miðar á hvort svæði. Allir miðar á svæði A seldust upp á um tíu mínútum en miðar á svæði B voru uppseldir um hálftíma síðar. Áætlað er að um 6-8 þúsund manns hafi á einum tímapunkti reynt að kaupa miða samtímis og stóðst sölukerfi Miða.is álagið mjög vel; allt gekk snurðulaust fyrir sig og allar sölur gengu hratt í gegn. Almenn miðasala hefst á morgun kl. 11 á Miði.is og verða þá aðrir 5 þúsund miðar í boði, þeir allra síðustu.

Svanurinn þekktasta umhverfismerkið

Norræna umhverfismerkið Svanurinn er lang þekktasta umhverfismerkið á Íslandi. Þetta er niðurstaða könnunar um umhverfis- og neytendamerki sem Capacent Gallup gerði í desembermánuði. Þegar þátttakendur voru beðnir um nefna eitthvert umhverfismerki sem þeir könnuðust við þá nefndu 45% aðspurðra Svaninn en innan við 6% nefndu þau umhverfismerki sem næst komu í röðinni. Í sambærilegri könnun frá 2009 nefndu 28% Svaninn. Af þessu má sjá að Svanurinn er ekki einungis það merki sem er neytendum efst í huga heldur styrkir hann einnig stöðu sína verulega milli ára. Þegar þátttakendum könnunarinnar var sýnt merki Svansins sögðust 73% þekkja það og þegar spurt var hvaða merki tengir þú við umhverfisvernd nefndu langflestir Svaninn eða 79%. Svanurinn virðist einnig hafa bætt mjög ímynd sína og almenningshylli milli ára því árið 2009 sögðu 8% aðspurðra að þeim líkaði við Svaninn en 2010 er þetta hlutfall komið í 46%. Hlutfallið hækkar því rúmlega fimmfalt á milli ára. En jafnframt því að gera kröfu um minni umhverfisáhrif, er einnig gerð krafa um virkni og gæði vottaðrar vöru eða þjónustu. Á Íslandi bera nú 14 aðilar umhverfisvottun Svansins en það eru prentsmiðjurnar Guðjón Ó, Oddi, Svansprent, Ísafold og Háskólaprent; ræstingarþjónusturnar Sólarræsting, ISS, Hreint, Nostra og AÞ-þrif; iðnaðarhreinsiefni frá Undra, Farfuglaheimilið í Laugardag og á Vesturgötu og kaffihús Kaffitárs. Nánar má lesa um Svaninn á svanurinn.is.

Reynt að lokka stelpur með nammi - sjötta málið á stuttum tíma

Menn á litlum dökkgráum bíl buðu tveimur tíu ára stúlkum sælgæti gegn því að þær kæmu upp í bíl með sér um miðjan dag í gær. Atvikið átti sér stað á Breiðvangi í Hafnarfirði, við Engjadalsskóla. Stúlkurnar hlupu í burtu, sem lögreglan segir hárrétt viðbrögð. Málið var tilkynnt til lögreglu og hafa nú alls sex tilkynningar borist á síðustu tveimur vikum um menn sem bjóða börnum upp í bíl til sín.

Kona fær dvalarleyfi þrátt fyrir synjun Útlendingastofnunar

Héraðsdómur hefur fellt úr gildi úrskurð dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins frá 14. desember 2009 um að synja konu um dvalarleyfi hér á landi á grundvelli þess að hún hafði stofnað til málamyndahjúskapar með íslenskum karlmanni. Með úrskurði sínum hafði ráðuneytið staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar.

Funda með ríkisstjórninni

Fulltrúar aðilar vinnumarkaðarins mættu á fund leiðtoga ríkisstjórnarinnar um klukkan níu í morgun. Á fundinum stendur til að ræða þátt stjórnvalda í gerð kjarasamninga sem standa lausir. Bæði forseti Alþýðusambands Íslands og forystumenn Samtaka atvinnulífsins hafa lagt gríðarlega áherslu á það að ríkisstjórnin taki þátt í því að efla atvinnulífið.

Sjá næstu 50 fréttir