Opna gestastofu á gosafmæli 16. mars 2011 20:30 Guðný og Ólafur. Fréttablaðið/Valli
Gestastofa með minjum, kvikmynd og ljósmyndum tengdum gosinu í Eyjafjallajökli verður opnuð neðan við Þjóðveg 1, andspænis Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum, 14. apríl. Þann dag er eitt ár liðið frá því gosið hófst. „Ákveðið var um síðustu áramót að fara í þetta verkefni. Við viljum gjarnan kynna fyrir fólki hvernig eldgosið hagaði sér, hvernig við lifðum með því og hver framvindan hefur verið. Það er allt að því skylda okkar, þetta var heimsatburður," segir Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri, sem stendur að gestastofunni ásamt fjölskyldu sinni. „Já, þó svo að um litlar hamfarir væri að ræða í samanburði við það sem nú hefur gerst í Japan sköpuðust þær aðstæður í fluginu að gosið hafði áhrif úti um allan heim," bætir kona hans, Guðný A. Valberg, við.Daglega stoppar fjöldi hópferðabíla við vegamótin á Þorvaldseyri og marga ferðamenn þyrstir í fræðslu. Mynd/Ólafur EggertssonHúsið sem gestastofan er í hýsti áður vélaverkstæði. Inni hefur það verið málað í svörtum, gráum og rauðum litum í stíl við gosið. Á gólfinu er aska blönduð sementi og þar ofan á Kötlusteinteppi sem framleitt er í Vík. „Við fengum til liðs við okkur Björn G. Björnsson sýningarhönnuð, Ara Trausta Guðmundsson jarðeðlisfræðing, smiði, pípara, rafvirkja og dúklagningamann," lýsir Ólafur og segir verkefnið afar skemmtilegt. Helsta fræðsluefni stofunnar verður heimildarmynd eftir Svein M. Sveinsson í Plúsfilm sem sýnir alla helstu þætti gossins og lífið á Þorvaldseyri bæði fyrir það og eftir. Auk þess verða þar jarðfræðilegar útskýringar og ýmislegt til minja og Guðný segir tvær dætur þeirra hjóna munu taka þátt í að miðla upplýsingum. „Húsið er hitað upp með vatni úr eldfjallinu, við framleiðum rafmagn til að lýsa það upp og fólk getur bergt á vatni úr fjallinu," segir Ólafur og bætir við: „Svo fer fólk út á hlað og þar er veröldin." gun@frettabladid.isGestastofan er við Þjóðveg 1, rétt vestan við Þorvaldseyri. Mynd/Ólafur Eggertsson.
Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Hafði komið sér í fyrir á háalofti hótels Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Veður Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Fleiri fréttir Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér í fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sjá meira