Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Blindrafélagið kærir Kópavogsbæ Lögmaður Blindrafélagsins hefur sent Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála hjá Velferðarráðuneytinu stjórnsýslukæru vegna meintra brota Kópavogsbæjar á rétti blinds 17 ára drengs til lögbundinnar ferðaþjónustu. Blindrafélagið segir að þetta sé fyrsta mál sinnar tegundar eftir að sveitarfélögin tóku við málefnum fatlaðra. Það hafi ritari nefndarinnar staðfest. 10.1.2011 16:33
Lýst eftir Matthíasi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Matthíasi Þórarinssyni. Ekkert hefur spurst til hans í nokkurn tíma. Matthías er um 180 sentimetrar á hæð ljósskolhærður. Talið er líklegt að hann haldi til einhversstaðar á Suðurlandi. Matthías hefur til umráða gamlan rússajeppa og hefur ferðast á honum um landið. Bíllinn hefur verið útbúinn sem húsbíll. Þeir sem hafa upplýsingar um ferðir Matthíasar eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444 1000 10.1.2011 16:13
New York Times sýnir Mömmu Gógó áhuga Kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Mamma Gógó, er ein af 65 erlendum kvikmyndum sem mögulega gætu verið tilnefndar til óskarsverðlauna í Hollywood. New York Times ákvað af þessari ástæðu að ræða við Friðrik Þór þar sem hann hefur áður verið tilnefndur til Óskarsverðlauna, þá fyrir Börn náttúrunnar. 10.1.2011 16:12
Snjóþungt á Akureyri Það er snjóþungt á Akureyri en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni eru flestir vegir í bænum færir. Snjónum kyngir niður að sögn varðstjóra lögreglunnar en það er logn og því líkir hann veðrinu við jólasnjóinn. 10.1.2011 15:26
Boða til alþjóðlegrar mótmælaviku vegna níumenninganna Forsvarsmenn heimasíðu samtakanna Saving Iceland hafa boðað til alþjóðlegrar samstöðuviku vegna aðalmeðferðar í máli níumenningana í Héraðsdómi Reykjavíkur, sem fer fram 18., 19. og 20. janúar næstkomandi. 10.1.2011 14:52
Símaþjófurinn fundinn: Baðst afsökunar Rekstrarstjóri Bæjarbakarís í Hafnarfirði hefur fjarlægt af YouTube myndband þar sem fullorðinn karlmaður og tveir drengir sjást á upptöku úr eftirlitsmyndavél stela síma. Upplýst hefur verið um hvaða mann er að ræða. Hann hafði sjálfur samband við bakaríið, baðst afsökunar á gjörðum sonar síns og ætlar að koma símanum aftur í réttar hendur. 10.1.2011 14:23
Símaþjófnaður í bakaríi: Upptökur úr eftirlitsmyndavél „GSM síma er stolið af starfsmanni í bakaríi í Hafnarfirði. Fullorðinn karlmaður ásamt tveimur ungum drengjum, koma að versla í bakaríinu. Á borðinu næst myndavélinni var starfsmaður með símann sinn en skyldi hann eftir þegar viðkomandi þurfti að afgreiða viðskiptavin. Notar þá annar drengurinn tækifærið og stelur símanum. 10.1.2011 13:24
Leynilögga og Íslandsvinur skemmir málsókn í Bretlandi Leynilögreglumaðurinn Mark Kennedy hefur orðið til þess að málssókn gegn sex aðgerðasinnum í Bretlandi hefur verið látið niður falla. Breskir fjölmiðlar hafa fjallað mikið um málið auk þess sem RÚV greindi frá því í hádeginu að Mark hefði mótmælt meðal annars á Kárahnjúkum ásamt Saving Iceland hópnum. 10.1.2011 13:06
Sinueldur á Smiðjuvegi Sinueldur kviknaði við Smiðjuveg fyrir stundu og hefur slökkviliðið verið kallað á staðinn. Ekki er vitað um neitt tjón af völdum eldsins en hann er farinn að nálgast bíla sem hann gæti mögulega læst sig í. 10.1.2011 12:53
Strákarnir okkar árita plaköt í Kringlunni Íslenska handboltalandsliðið er í óðaönn að undirbúa sig fyrir Heimsmeistaramótið í Svíþjóð sem hefst á fimmtudag. Strákarnir í liðinu ætla samt að gefa sér tíma til að árita plaköt fyrir aðdáendur sína í Kringlunni milli klukkan 15.30 og 16.30 í dag. 10.1.2011 12:46
Þrettándagleði frestað í Reykjanesbæ Þrettándagleði í Reykjanesbæ, sem fyrirhuguð var í dag, fellur niður vegna óhagstæðrar veðurspár. Samkvæmt fréttatilkynningu frá bæjarskrifstofum Reykjanesbæjar mun flugeldasýning Björgunarsveitarinnar Suðurnes fara fram þegar betur viðrar. 10.1.2011 11:53
Arreaga gerð grein fyrir þinghelgi Birgittu Utanríkisráðuneytið kallaði sendiherra Bandaríkjanna, Luis E. Arreaga, á fund í ráðuneytinu í morgun vegna úrskurðar að kröfu bandarískra yfirvalda um að samskiptasíðan Twitter afhendi persónuleg gögn Birgittu Jónsdóttur alþingismanns. Ráðuneytisstjóri og þjóðréttarfræðingur sátu fundinn fyrir hönd utanríkisráðuneytisins. Þeir kölluðu eftir frekari upplýsingum um málið og lýstu yfir alvarlegum áhyggjum af því að sakamálarannsókn beindist að íslenskum þingmanni með þessum hætti. Ljóst væri að þingmaðurinn nyti þinghelgi hér á landi og að ekki yrði ekki skilið á milli þingmannsins og Alþingis. Lögðu þeir áherslu á að ekki yrði frekari röskun á störfum þingmannsins, þar með talið ferðafrelsi og möguleikum á því að taka þátt í pólitískri umræðu á alþjóðavettvangi. 10.1.2011 10:52
Magnús Orri gleymdi líka hagsmunaskráningunni „Takk fyrir ábendinguna. Ég er að kveikja á tölvunni í þessum töluðu orðum til að senda póst á skrifstofu Alþingis og láta uppfæra þetta," segir Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, sem gleymdi að láta skrá setu sína sem formaður Samtaka um heilsuferðaþjónustu á vef Alþingis þar sem haldið er utan um hagsmunaskráningu þingmanna. Stutt er síðan fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá því að Ásmundur Daði Einarsson, þingmaður Vinstri grænna, hefði gleymt að skrá að hann ætti fjórðungshlut í búvöruversluninni Daðason og Biering ehf. sem rekur vefverslunina Ísbú. Ásmundur Daði hefur nú uppfært skráningu sína. Skrifstofa Alþings heldur utan um hagsmunaskráningu þingmanna og birtir á vef Alþingis en skráin er byggð á upplýsingum sem alþingismaður sjálfur lætur skrifstofunn í té. Spurður hvort ástæða sé til að auka aðhald með því að þingmenn standi sig í hagsmunaskráningunni játar Magnús Orri því. „Jú, ég er alveg sammála því. Ég allavega gleymdi mér. Ég vísa ekki ábyrgðinni á neinn annan," segir hann. 10.1.2011 10:04
Þarf að sniðganga Bandaríkin til þess að fara til Kanada Þingkona Hreyfingarinna, Birgitta Jónsdóttir, er á leiðinni til Kanada, sem hún heldur ræðu á ráðstefnu stofnunnar sem heita Samara. Þar mun hún kynna IMMI verkefnið (Icelandic Modern Media Initiative). 10.1.2011 09:34
Jarðskjálfti í Chile Jarðskjálfti sem mældist 5.9 á Richter kvarðanum reið yfir Chile um klukkan fimm að íslenskum tíma í nótt. Engar fregnir hafa enn borist af tjóni eða mannfalli af völdum skjálftans en upptök hans eru um 80 kílómetra undan ströndum landsins og í um 350 kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni Santiago. 10.1.2011 07:57
Ekið á hross í Grafningi Ekið var á hross á móts vi bæinn Torfastaði í Grafningi í gærkvöldi. Hesturinn meiddist svo alvarlega að ákveðið var að aflífa hann á staðnum. 10.1.2011 07:10
Enn snjóar fyrir norðan Enn tók að snjóa á Akureyri í gærkvöldi og er talið að snjólagið sem féll í nótt, sé tíu til fimmtán sentímetra djúpt. Þæfingsfærð er því sumstaðar á götum, eftir þrotlausan snjómoksktur í bænum alla helgina. 10.1.2011 07:05
Fangelsi: Útboðsgögnin verða aðeins birt á íslensku Útboðsgögn vegna framkvæmda við fangelsið á Hólmsheiði verða að öllum líkindum tilbúin innan mánaðar. Verkið verður boðið út innan EES en öll gögn verða einungis birt á íslensku. 10.1.2011 04:00
Grunur um lungnapest í fé Margt bendir til þess að kindur undir Eyjafjöllum og í Mýrdal hafi veikst af lungnapest. Ekki hefur verið staðfest að um venjulega lungnapest sé um að ræða, samkvæmt upplýsingum Matvælastofnunar (Mast). 10.1.2011 03:00
Hið augljósa var vel falið Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra ætlar að láta gera óháða rannsókn á Funamálinu. Hér er saga málsins, sem nú má kalla mengunarhneyksli, rakin. 10.1.2011 00:00
Þrettándabrenna á Ásvöllum á morgun Ákveðið hefur verið að hafa Þrettándagleðina á Ásvöllum á morgun mánudag. Hátíðin hefst kl. 18.00 með gleði, söng og dansi undir stjórn Magga Kjartans og Helgu Möller. 9.1.2011 16:45
Kom til hafnar eftir að hafa rekist á ísjaka Gat kom á olíutank á togaranum Eldborgin RE 13 á Grænlandsmiðum í dag eftir að hann rakst á ísjaka. Viðbragðskerfi Umhverfisstofnunar vegna bráðamengunar var ræst eftir að Landhelgisgæslan tilkynnti um slysið. 9.1.2011 16:05
Össur búinn að boða sendiherrann á fund Luis E. Arreaga, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, hefur verið boðaður á fund hjá Össurri Skarphéðinssyni, utanríkisráðherra, til að útskýra hvers vegna bandarísk yfirvöld vilji fá upplýsingar um Birgittu Jónsdóttur, þingmann. 9.1.2011 15:43
Ljúka fjórðu endurskoðun á mánudag Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn mun ljúka fjórðu endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands á mánudaginn kemur. Þetta kemur fram á Bloomberg fréttaveitunni og er haft eftir Franek Roszvadovski sendifulltrúi sjóðsins hér á landi. 9.1.2011 13:30
Fjölskyldan þakkar hlýhug Líðan Péturs Kristjáns Guðmundssonar, sem slasaðist þegar hann féll fram af bjargi í Austurríki á nýársnótt og skaddaðist alvarlega á mænu, er stöðug og er hann á batavegi, samkvæmt upplýsingum frá fjölskyldu hans. Vonir standa til að Pétur geti komist heim til Íslands sem fyrst. 9.1.2011 13:26
„Viljum fá sem flesta á listann okkar“ Rúmlega fjörtíu og þrjú þúsund manns hafa nú skrifað undir áskorun til stjórnvalda um að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um eignarhald á orkuauðlindum Íslands og nýtingu þeirra en karaókímaraþoni til stuðnings málefninu lauk á miðnætti. 9.1.2011 12:13
Betur fór en á horfðist í upphafi Líðan barnsins sem fékk sjóðandi vatn yfir sig í gær er eftir atvikum, samkvæmt upplýsingum frá sérfræðingi á Landsspítalanum. Fjórtán mánaða gömul stúlka fékk sjóðandi vatn yfir sig í Þorlákshöfn í gær þegar foreldrarnir litu í örstutta stund frá potti sem var verið að sjóða í vatn. 9.1.2011 12:00
Lýsa vanþóknun á aðför bandarískra stjórnvalda Hreyfingin lýsir vanþóknun á aðför bandarískra stjórnvalda á tjáningar- og persónufrelsi þeirra sem hafa komið að birtingu upplýsinga sem sýna stríðsglæpi bandaríska hersins í Írak. 9.1.2011 11:09
Reyndu að stinga öryggisvörðinn af Par undir tvítugu braust inn í Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði rétt fyrir klukkan eitt í nótt. Þau klifruðu yfir girðingu og skelltu sér í heitu pottana þar sem þau dvöldu í dágóða stund áður en þjófavarnarkerfi laugarinnar fór í gang. 9.1.2011 10:50
Sleginn með glerflösku í höfuðið Fangageymslur á Lögreglustöðinni við Hverfisgötu fullar eftir nóttina. Er það vegna ýmissa mála, líkamsárása, ölvunaraksturs, þjófnaða og svo aðstoð við borgarana vegna ölvunar. Nokkuð var um minniháttar pústra og slagsmál í miðbænum, hávaðaútköll og ágreininga. 9.1.2011 09:59
Rafmagnslaust vegna skammhlaups Eldur kom upp í spennustöð í við gamla barnaskólann við Ljósafossvirkjun í nótt. Að sögn lögreglu á Selfossi varð skammhlaup í stöðinni og var kallað á slökkvilið. Eldurinn var ekki mikill en skemmdir eru einhverjar. Unnið er að viðgerð. 9.1.2011 09:40
Yfir 40 þúsund vilja þjóðaratkvæðagreiðslu Rúmlega fjörtíu og tvö þúsund manns hafa nú skrifað undir áskorun til stjórnvalda um að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um eignarhald á orkuauðlindum Íslands og nýtingu þeirra. 9.1.2011 09:39
Tvær bílveltur með skömmu millibili Tveir bílar ultu með skömmu millibili á hádegi í dag við Skíðaskálann í Hveradölum. Mikil hálka var á svæðinu en enginn slasaðist. 8.1.2011 22:00
Stefna á ferðatengda læknisþjónustu Hópur íslenskra lækna hefur stofnað fyrirtæki sem hyggst selja íslenska heilbrigðisþjónustu til erlendra ferðamanna og bjóða uppá skurðaðgerðir hér á landi gegn greiðslu. Framkvæmdastjórinn segir ferðatengda læknisþjónustu vera ört stækkandi geira út í heimi og bjóða upp á mörg sóknarfæri. 8.1.2011 20:05
Enginn með allar tölurnar réttar Enginn var með allar tölur í lottóinu réttar. Tveir voru þó með fjórar tölur réttar plús bónustölu. Þeir fá rúmlega 100 þúsund krónur á mann. Þá voru tveir með fjórar tölur réttar í röð og fá þeir sömu upphæð. 8.1.2011 19:31
Fjórtán mánaða gamalt barn fékk brennandi vatn yfir sig Fjórtán mánaða gamalt barn var flutt með sjúkrabíl til Reykjavíkur frá Selfossi um fjögurleytið í dag. Foreldrar barnsins voru að sjóða vatn á hellu og litu frá því í örstutta stund en á þeim tíma teygði barnið sig í pottinn og fékk sjóðandi heitt vatnið yfir sig. 8.1.2011 17:42
Líkamsárásarkæra í Vestmannaeyjum Stelpa kærði líkamsárás í Vestmannaeyjum í dag eftir að hún var slegin hnefahöggi í nótt, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Vestmannaeyjum. Atvikið átti sér stað fyrir utan heimahús bænum en ágreiningur var á milli aðila og stelpan reyndi að skakka leikinn. Þá var hún slegin hnefahöggi af karlmanni. 8.1.2011 18:10
Björk: Til hamingju Ísland "Til hamingju Ísland: klukkan er ekki þrjú og það eru komnar 35073 undirskriftir," skrifar Björk Guðmundsdóttir á Twitter-síðu sína. Björk stóð fyrir undirskriftarsöfnun þar sem einstaklingar skora á Alþingi að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um eignarhald á orkuauðlindum Íslands og nýtingu þeirra. 8.1.2011 15:32
Nokkrar Þrettándabrennur haldnar í dag Síðbúnar Þrettándabrennur verða á höfuðborgarsvæðinu í dag. Sú fyrri við Ægisíðu klukkan fimm en þar verður jafnframt flugeldasýning sem hefst korter fyrir sex. Í Leirdal í Grafarholti hefst svo brenna klukkan hálf sex. 8.1.2011 14:50
Tekur langan tíma að vinna upp það sem tapast Efldar rannsóknir, doktorsnám og fleira starfsfólk við Háskóla Íslands eru lykilatriði til að hann geti komist í röð hundrað bestu háskóla í heimi. Þetta er mat Kristínar Ingólfsdóttur rektor skólans sem segir vísindaárangur vera helstu forsendu fyrir góðu gengi háskóla. 8.1.2011 13:27
Fjórir á slysadeild eftir árekstur við Bústaðaveg Harður árekstur varð á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar nú fyrir stuttu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru fjórir fluttir á slysadeild, en enginn mun vera alvarlega slasaður. 8.1.2011 13:10
Tveir á slysadeild eftir þriggja bíla árekstur Tveir slösuðust og voru fluttir á slysadeild eftir þriggja bíla árekstur í Hafnarfirði laust fyrir hádegið í dag. Slysið varð á gatnamótum Reykjavíkurvegar og Hjallabrautar. Tildrög slyssins liggja eru óljós. 8.1.2011 12:59
Ólíðandi að vera sett undir hatt glæpamanns Birgitta Jónsdóttir þingmaður Hreyfingarinnar býst við að bandarísk stjórnvöld hafi óskað eftir gögnum um hana af fleiri vefsíðum en Twitter, en þeirri síðu hefur verið stefnt til að afhenda öll gögn um hana. 8.1.2011 12:07
Styttist í takmarkið - vantar tvö þúsund undirskriftir Um 33 þúsund undirskriftir hafa safnast á orkuaudlindir.is en þar er skorað á Alþingi að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um eignarhald á orkuauðlindum Íslands og nýtingu þeirra. 8.1.2011 11:30
Þyrlan kölluð út vegna fyrirburafæðingar Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í gærkvöldi til Vestmannaeyja vegna fyrirburafæðingar á sjúkrahúsi þar í bæ. Sjúkrahúslæknir í Vestmannaeyjum óskaði eftir aðstoð þyrlunnar. Þá var óskað eftir hitakassa og fæðingarlækni frá Landspítalanum. 8.1.2011 10:31