Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vilja fjölga aðstoðarmönnum ráðherra Aðstoðarmönnum ráðherra verður fjölgað og hlutverk þeirra gert skýrara verði tillögur nefndar sem forsætisráðherra skipaði um endurskoðun á stjórnarráðinu færðar í lög. Tillögur nefndarinnar, sem Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði veitti formennsku, voru kynntar í Þjóðmenningarhúsinu í dag. 13.12.2010 14:16
Lítið hægt að gera ef til uppsagna kemur Dæmi eru um að starfsfólk sé þegar farið að missa vinnuna í skólum, segir Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands. Hann segir þá að í slíkum tilfellum hafi yfirleitt verið um að ræða tónlistarskóla eða grunnskóla. Hann segir að um sé að ræða einstaka uppsagnir. Ekki hafi komið til neinna hópuppsagna í stéttinni. 13.12.2010 13:26
Simmi og Jói seldu þúsund hamborgara á dag „Einn eftirmiðdaginn hringdi ég í Jóa og sagði honum að við værum að fara að opna hamborgarastað. Í fyrstu fannst honum það ekki ráðlegt, enda er hann jarðbundinn maður að eðlisfari. Ég held að ég hafi selt honum þetta samt á 40 mínútum þar sem ég lagði mig fram við að sýna honum kosti þess að segja upp trausti starfi og leggja út í óvissuna með mér. Vel að merkja, konurnar okkar voru báðar ófrískar á þessum tíma,“ segir Sigmar Vilhjálmsson um hvernig hann fékk Jóhannes Ásbjörnsson til að opna með sér Hamborgarafabrikkuna. 13.12.2010 13:15
Jón Gnarr: Vonin er eins og folald bak við skítinn Jón Gnarr borgarstjóri er þrettándi vonarberinn í jóladagatali Þjóðkirkjunnar. „Að vænta vonar" er yfirskrift dagatalsins þar sem einn vonarberi mætir til leiks á hverjum degi fram að jólum. Jón segir vonina vera hluta af því að vera manneskja. Hann grípur til heldur frumlegrar líkingar í myndbandi sem unnið var fyrir Þjóðkirkjuna um vonina. „Fyrir mér er hún sérstaklega dýrmæt í erfiðleikum og þá upplifi ég að maður sé kannski bara endalaust að moka hrossaskít." Þegar vonin er annars vegar er hægt að búast við að finna lítið foland eftir allan moksturinn, segir Jón þegar hann útskýrir vonina á sinn einstaka hátt. 13.12.2010 12:28
Atvinnuleysi 7,7% og eykst lítillega Skráð atvinnuleysi í nóvember 2010 var 7,7% og voru 12.363 manns atvinnulausir í nóvember að meðaltali. Þetta þýðir að atvinnuleysi hefur aukist lítillega, um 0,2 prósentustig frá október, eða um 301 manns að meðaltali. 13.12.2010 12:28
Vegtollar auka útgjöld bíleigenda um 80% Fyrirhugaður vegtollur á akstur um vegi út frá höfuðborginni mun auka útgjöld bíleigenda til ríkisins við hvern ekinn kílómetra um rúm áttatíu prósent. Þá er stefnt að hækkun á þremur bensínsköttum um áramót. 13.12.2010 12:07
Geta sagt Icesave samningnum upp eftir áramót Bretar og Hollendingar geta einhliða sagt sig frá nýjum Icesave samningi ef Alþingi verður ekki búið að samþykkja Icesave lögin og forsetinn undirrita þau fyrir áramót. Þetta kemur fram í Icesave samningunum sem fréttastofa hefur undir höndum. 13.12.2010 11:58
Allir vegir færir Flestar heiðar á þjóðvegum landsins eru opnar öllum bílum, sem þykir óvenjulegt þegar komið fram í miðjan desembermánuð. Þannig eru hæstu heiðar Vestfjarða, Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði, báðar færar. Þar er þó hálka, samkvæmt upplýsingum Vegagerðar en einnig er hálka á Holtavörðuheiði, og víðar á Norðurlandi sem og norðaustanlands. 13.12.2010 11:11
Óveður hindrar viðræður um öryggi Íslands Árlegum viðræðum íslenskra og bandarískra stjórnvalda um öryggismál, sem hefjast áttu í Reykjavík í dag, hefur verið frestað vegna óveðurs í Bandaríkjunum. Bandaríska sendinefndin átti að koma til Íslands í morgun en samkvæmt upplýsingum úr utanríkisráðuneytinu komst hún ekki frá Washington til New York vegna veðurs og missti því af fluginu til Íslands. 13.12.2010 11:02
Þórður Hjaltested tekur við af Eiríki Þórður Á. Hjaltested verður næsti formaður Kennarasambands Íslands. Þórður hafði betur gegn Elnu Katrínu Jónsdóttur og vann með 80 atkvæða mun. Hann tekur við formennsku Kennarasambandsins á þingi þess þann 8. apríl næstkomandi. 13.12.2010 11:00
Einelti gegn kennurum tilkynnt til barnaverndar „Einelti er meðal alvarlegustu samskiptavandamála sem upp koma á vinnustöðum og innlendar sem erlendar rannsóknir benda til þess að allt að 8 til 10% starfsmanna verði fyrir einelti í vinnu." Þetta kemur fram í bréfi sem vinnuumhverfisnefnd Kennarasambands Íslands sendi skólastjörnendum og trúnaðarmönnum KÍ í vor. 13.12.2010 10:37
Fræðslustjóri útilokar ekki uppsagnir Það stefnir í 400 milljóna króna halla á rekstri Menntasviðs Reykjavíkurborgar á þessu ári. Níu mánaða uppgjör var kynnt í menntaráði á fundi í síðustu viku. Ragnar Þorsteinsson segir að hallinn sé tilkominn vegna launaliðar annars vegar og hins vegar vegna annars kostnaðar sem erfitt hafi reynst að skera niður undanfarin tvö ár. 13.12.2010 10:18
Dæmd í 2ja ára fangelsi fyrir fjárdrátt frá sendiráðinu í Vín Tuttugu og níu ára gömul kona var í morgun dæmd í 2ja ára fangelsi fyrir að draga sér fé frá íslenska sendiráðinu í Vínarborg. 22 mánuðir dómsins eru skilorðsbundnir. Konan starfaði sem bókari hjá sendiráðinu og játaði að hafa dregið sér og notað heimildarlaust í eigin þágu 335 þúsund evrur, eða um 51 milljón íslenskra króna. 13.12.2010 09:25
Sluppu ómeidd úr logandi bíl Fjögur ungmenni sluppu ómeidd, þegar bíll sem þau voru í, fór út af veginum skammt frá Höfðabóli í Vestmannaeyjum í nótt. Mikið högg kom á bílinn og kviknaði í honum. Fólkið, sem allt var í bílbeltum, slapp út í tæka tíð og náði lögregla að slökkva eldinn áður en slökkviliðið kom á vettvang. Bíllinn er mikið skemmdur, en ekki liggur fyrir af hverju hann hafnaði utan vegar. 13.12.2010 09:00
Tekst á við eftirhermu Umdeild regnhlíf hönnuðarins Sruli Recht hefur dúkkað upp í sölu sem hönnun annars manns. Sruli segir að verið sé að stela hönnun hans. 13.12.2010 09:00
Eldur í jólaskreytingu í Breiðholti Eldur kviknaði í jólaskreytingu á heimili ií Breiðholti í Reykjavík í morgun. 13.12.2010 07:54
Hafísröndin er 20 sjómílur norður af Horni Nokkur skip tilkynntu um hafísrönd um 20 sjómílur norður af Horni nyrst á Vestfjarðakjálkanum í nótt, þegar þau áttu leið þar um. 13.12.2010 07:23
Dómari tók sér frest til að úrskurða um gæsluvarðhald Dómari tók sér í gærkvöldi frest til að úrskurða um kröfu lögreglunnar í Árnessýslu um gæsluvarðhaldsúrskurð yfir þremur mönnum, sem réðust með ofbeldi inn í heimahús á Selfossi í fyrrakvöld og rændu þar ýmsum verðmætum. 13.12.2010 06:56
Lögreglan í borginni sinnti 400 útköllum um helgina Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu átti í miklu annríki um helgina og sinnti um 400 útköllum frá klukkan tíu á föstudagskvöldið og þar til snemma í morgun. 13.12.2010 06:53
Tvöfalt fleiri greinast með lystarstol Fjöldi þeirra sem leggjast inn á geðdeildir vegna lystarstols hefur tvöfaldast hér á landi á 26 árum. Eru það niðurstöður nýrrar rannsóknar: Lystarstol 1983-2008: innlagnir, sjúkdómsmynd og lifun, sem birt er í nýjasta tölublaði Læknablaðsins. 13.12.2010 06:15
Greiða jafnan lægri gjöld en nágrannarnir Þrátt fyrir fyrirhugaðar hækkanir á gjaldskrá Reykjavíkurborgar segja fulltrúar meirihlutans að borgarbúar greiði jafnan mun lægri skatta og gjöld en gengur og gerist í nágrannasveitarfélögunum. 13.12.2010 06:00
Með íslenskan búfénað á bandarísku bóndabýli „Viðskiptavinum okkar finnst mjög skemmtilegt að heimsækja bóndabýlið og fylgjast með hvernig dýrin eru ræktuð,“ segir bóndakonan Lisa Richards. 13.12.2010 06:00
Lausnin tímabundin eftir árs undirbúning Ráðstöfun verkefna Varnarmálastofnunar liggur fyrir til bráðabirgða. Óvissu rúmlega fimmtíu starfsmanna er eytt með niðurstöðunni, segir formaður verkefnastjórnar. Stjórnsýslan við framkvæmd þess að leggja stofnunina niður er hins vegar harðlega gagnrýnd. 13.12.2010 05:45
Stjórnlagaþingmenn hittust í Neskirkju: Óánægja með fundarstaðinn Stjórnlagaþingmenn hittust til skrafs og ráðagerða í kjallara Neskirkju seinni partinn í gær. 13.12.2010 05:30
Félag múslima mun eitt fá moskulóðina Páll Hjaltason, formaður skipulagsráðs Reykjavíkur, segir að Félag múslima muni fá lóð undir mosku frá borginni en ekki Menningarsetur múslima sem einnig sækir um lóð. 13.12.2010 05:30
Eftirlitið framvegis hjá ríkinu Matvælastofnun, MAST, mun ekki fela faggildum aðilum framkvæmd eftirlits með sjávarútvegsfyrirtækjum frá og með 1. mars 2011. Eftirlitið verður eftir þann tíma ríkisrekið. Þetta gengur þvert á vilja Landssambands íslenskra útvegsmanna, Samtaka fiskvinnslufyrirtækja og Samtaka atvinnulífsins og gegn tilmælum sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis. 13.12.2010 05:00
Andvígir kvótasölu ríkisins Farmanna- og fiskimannasambandið, Sjómannasambandið og Félag vélstjóra og málmtæknimanna hafa tekið höndum saman við Landssamband íslenskra útvegsmanna og mótmæla hugmyndum um sölu ríkisins á aflaheimildum. 13.12.2010 02:00
Lánveiting í Búðarháls yrði jólagjöfin Vonir eru bundnar við að Fjárfestingarbanki Evrópu muni í vikunni samþykkja að afgreiða lán til Landsvirkjunar vegna Búðarhálsvirkjunar í ljósi nýrrar stöðu í Icesave-málinu. Verkstjóri Ístaks á virkjunarsvæðinu segir að það yrði jólagjöfin í ár. 12.12.2010 21:21
Slökkviliðið kallað að fjölbýlishúsi við Kleppsveg Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að fjölbýlishúsi á Kleppsvegi í dag vegna mikils reyks. 12.12.2010 16:30
Kristinn Hrafnsson: Geri ráð fyrir því að það sé fylgst með mér „Það er búið að vera ansi stormasamt undanfarnar vikur,“ sagði Kristinn Hrafnsson, einn af talsmönnum Wikileaks, í viðtali við Egil Helgason, í Silfri Egils í hádeginu. 12.12.2010 13:25
Kveikt í tveimur bílum með hálftíma millibili Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hafði nóg að gera í nótt en það var kallað út rétt fyrir klukkan sex í morgun til þess að slökkva í logandi bifreið í Heiðmörk. 12.12.2010 10:03
Tveir tölvuþrjótar handteknir vegna Wikileaks-árásanna Tveir menn hafa verið handteknir í Hollandi grunaðir um að hafa tekið þátt í árás hakkara á heimasíður Visa, Mastercard og fleiri fyrirtækja sem slitu viðskiptum við Wikileaks. 12.12.2010 09:42
Þrír handteknir fyrir vopnað rán Þrír menn á milli tvítugs og þrítugs réðust inn í heimahús á Selfossi um sex leytið í gær vopnaðir hnífum. 12.12.2010 09:35
Sextán ára ökufantur stöðvaður Sextán ára ökuþór var stöðvaður í Héðisfjarðargöngunum snemma í morgun af lögreglunni á Akureyri. Pilturinn ók á ofsahraða eða 183 kilómetra hraða. Löglegur hámarkshraði var 70 kílómetra hraði. 12.12.2010 09:31
Bjarni Ben undir feldi Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er að fara yfir öll gögn sem tengjast nýjum Icesave-samningum. Hann mun ekki tjá sig fyrr en hann hefur kynnt sér málið til hlítar, segir Friðjón R. Friðjónsson, aðstoðarmaður hans. 12.12.2010 09:52
Hugnast ekki hægribeygjufrumvarp Hægri beygjur á móti rauðu ljósi valda mikilli hættu fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur, segir framkvæmdastjóri Umferðarráðs. Hann segir hægribeygjufrumvarp sem nú liggur fyrir Alþingi flutningsmönnum þess ekki til framdráttar. 11.12.2010 19:15
Starfsmenn Varnarmálastofnunnar til Landhelgisgæslunnar Samkomulag hefur náðst um skiptingu á verkefnum Varnarmálastofnunnar sem lögð verður niður samkvæmt lögum næstu áramót. 11.12.2010 18:08
Kólumbískir flóttamenn til Íslands Í gær, föstudaginn 10. desember, komu til landsins sex kólumbískir flóttamenn í boði íslenskra stjórnvalda. Þetta eru tvær fjölskyldur, kona á fimmtugsaldri og ungur sonur hennar, og önnur um þrítugt með þrjú börn, þar af dóttir nokkurra mánaða, samkvæmt tilkynningu frá flóttamannanefnd Alþingis. 11.12.2010 16:01
Eyjafjallajökull er tískuorð ársins og Jónsi á eitt besta lagið Orðið Eyjafjallajökull kemst á topp tíu lista bandaríska Time tímaritsins yfir tískuorð ársins árið 2010. Þá kemst tónlistarmaðurinn Jónsi, oftast kenndur við Sigur Rós, einnig á blað með eitt af tíu bestu lögum ársins að mati Times. 11.12.2010 14:49
Niðurlagning Varnarmálastofnunnar í uppnámi Þingmenn Framsóknarflokksins hafa farið fram á fund með utanríkismálanefnd klukkan þrjú í dag vegna málefna Varnarmálastofnunnar. Hana á að leggja niður um áramótin en sérstök verkefnastjórn vinnur að því að leysa hana upp. Meðal annars færa verkefni stofnunarinnar annað og ákveða örlög þeirra fimmtíu starfsmanna sem þar starfa. 11.12.2010 13:49
Segir Varnarmálastofnun lagða niður í verðlaunaskyni fyrir ESB Í skjölum Wikileaks, sem voru birt í Fréttablaðinu í dag, kemur fram að sendiherra Bandaríkjanna hér á landi, Carol Van Woorst, fullyrðir að Ellisif Tinna Víðisdóttir, sem var forstjóri Varnamálastofnunnar, hafi sagt í samtali við sendiráðið, að hún teldi að stofnunin væri lögð niður til þess að verðlauna Vinstri græna vegna stuðnings við ESB umsóknina. 11.12.2010 11:57
Framlög til þróunarríkja vegna loftlagsbreytinga stóraukin Samkomulag náðist í dag á loftslagsráðstefnunni í Cancún í Mexíkó um efldar alþjóðlegar aðgerðir og fjármögnun í loftslagsmálum. Eitt stærsta skrefið í samkomulaginu eru vilyrði um stóraukin framlög til þróunarríkja til að takast á við afleiðingar loftslagsbreytinga og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. 11.12.2010 10:09
Ætla ekki að endurnýja samstarfið við Hraðbraut Samstarfssamningur ríkisins við menntaskólann Hraðbaut verður ekki framlengdur en skólinn hefur sætt gagnrýni fyrir sérkennilega meðferð opinbers fjár sem rann til skólans. Þannig gerði ríkisendurskoðun úttekt á skólanum en niðurstaða hennar var áfellisdómur fyrir stjórnendur skólans. 11.12.2010 09:51
Vill láta stöðva myndir af sér á síðunni Flick My Life „Þetta er orðið óþægilega mikið áreiti," viðurkennir sjónvarpsmaðurinn Ásgeir Kolbeinsson, sem hefur verið áberandi á síðunni Flick My Life síðan hún fór í loftið á síðasta ári. Myndir af honum við hin ýmsu tækifæri, gamlar sem nýjar, hafa verið sendar þangað inn og þær síðan birtar undir nafninu Kolb in the Wild eða Kolb in the Child. 11.12.2010 00:01
Erill hjá lögreglunni í nótt Lögreglan í Reykjavík hafði í nógu að snúast í nótt, en einkum var um útköll vegna hávaða og drykkjuláta að ræða. 11.12.2010 12:06