Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þrír skipta fyrsta vinningi með sér Þrír voru með allar tölur réttar í lottó í kvöld og fær hver um sig rétt rúmar 12,9 milljónir í vinning. Miðarnir voru seldir i Brúarveitingum í Borgarnesi, í Búðinni í Grímsey og í áskrift. 20.11.2010 19:47
Segir flokkinn sterkan þrátt fyrir gagnrýni Gagnrýni kom fram á flokksráðsfundi Vinstri grænna á forystu flokksins, og sagði einn fundarmanna flokkinn skiptast í tvennt. Steingrímur J. Sigfússon segir flokkinn koma sterkan og samstilltan út úr fundinum. 20.11.2010 19:14
Vill gjaldtöku á farseðla til að vernda náttúruperlur Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir eðlilegast að leggja hóflegt gjald á flugfarseðla til að fjármagna eftirlit og viðhald með helstu náttúruperlum Íslands, en átroðningur á þær er svo mikill að þær liggja undir skemmdum. 20.11.2010 19:07
Margir mánuðir í að Illugi snúi aftur á þing Illugi Gunnarsson alþingismaður segist ekki vilja hefja stjórnmálaþátttöku að nýju fyrr en það leiki ekki neinn vafi á hans störfum í þágu almennings. Margir mánuðir gætu verið í það því rannsókn sérstaks saksóknara á sjóðum Glitnis er á algjöru frumstigi. 20.11.2010 18:48
Vinstri grænir ósammála um niðurstöðu flokksráðsfundar Þingmenn Vinstri grænna eru ekki sammála um hvað felst í niðurstöðu flokksráðsins um Evrópusambandsmálin. Ásmundur Einar Daðason segir hana sýna skýran vilja flokksmanna til að stöðva algjörlega það aðlögunarferli sem sé í gangi. 20.11.2010 18:30
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar framyfir helgi Allar ferðir á laugardag, sunnudag og mánudag verða farnar í Þorlákshöfn vegna ófullnægjandi hafnarskilyrða í Landeyjahöfn. 20.11.2010 18:12
Ísland gæti verið kjörlendi fjárfestinga Kostnaðurinn við vinstristjórn Samfylkingarinnar og VG nemur þegar hundruðum milljarða króna, sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, á ræðu sem hann hélt á miðstjórnarfundi flokksins á Húsavík í dag. 20.11.2010 16:46
Vilja að kynferðisbrotadeild verði starfi sínu vaxin Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs, haldinn í Reykjavík 19.-20. nóvember 2010, lýsir þungum áhyggjum vegna meðferðar kynferðisbrotamála innan lögreglunnar, í ljósi þess að aðeins 3-6% af þeim málum sem upp koma enda með sakfellingu. Þetta kemur fram í ályktun flokksráðsfundar í lið undir yfirskriftinni „Kynferðisbrotadeild verði starfi sínu vaxin“ 20.11.2010 15:36
Steingrímur: Flokkurinn kemur sterkur út úr fundinum Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður VG, segir að í heildina litið komi flokkurinn sterkur og samstilltur út úr flokksráðsfundinum sem lauk í hádeginu í dag. 20.11.2010 15:21
Alþjóðlega handtökuskipun á stofnanda Wikileaks Sænska lögreglan hefur gefið út alþjóðlega handtökuskipun á hendur Julian Assange, stofnanda Wikileaks síðunnar. Assange sakaður um nauðgun í Enköping og kynferðisbrot í þremur tilvikum í Stokkhólmi. 20.11.2010 14:48
Velti fjórhjólinu við Skjaldbreið Ökumaður fjórhjóls var fluttur í sjúkrabíl til Reykjavíkur eftir að hann velti fjórhjóli sínu við Skjaldbreið klukkan hálf eitt í dag. 20.11.2010 14:43
Sólin blindaði ökumenn Tveir árekstrar urðu með stuttu millibili á Gullinbrú við gatnamót Stórhöfða og Höfðabakka um hálf tvö leytið í dag. 20.11.2010 14:01
Töluvert fleiri nota nagladekk í ár en í fyrra Töluvert fleiri nota nagladekk nú í nóvember en þegar notkun nagladekkja var könnuð fyrir ári síðan. Um 32% ökutækja reyndist vera á negldum dekkjum þegar talning var gerð þann 17. nóvember síðastliðinn og 68% á öðrum tegundum dekkja. Fyrir ári síðan reyndist hlutfall þeirra ökutækja á negldum dekkjum 24%. Fyrir tveimur árum var hlutfallið hins vegar 35%. 20.11.2010 13:00
Koffínneysla hefur skaðleg áhrif á fóstur Ýmsar rannsóknir benda til þess að koffínneysla móður á meðgöngu geti haft skaðleg áhrif á fóstur. Þá getur koffín einnig truflað virkni ýmissa lyfja. Þetta segir Jack James, gestaprófessor við Háskólann í Reykjavík, í samtali við Fréttablaðið í dag. James hefur helgað feril sinn rannsóknum á koffíni og er ritstjóri nýs fræðirits um efnið. 20.11.2010 11:36
Felldu tillögu um að hætta ESB aðildarviðræðum Tillaga um að hætta aðildarviðræðum við Evrópusambandið var felld á fundi flokksráðs Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs í Hagaskóla í morgun. Sautján atkvæðabærir flokksráðsmenn lögðu til á flokksráðsfundinum sem hófst síðdegis í gær, að aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið verði slitið nú þegar. 20.11.2010 11:02
Ekki tilefni til áframhaldandi lögreglurannsóknar Ríkislögreglustjóri telur ekki tilefni til að halda áfram rannsókn á málefnum Gildis lífeyrissjóðs, samkvæmt bréfi sem Alda Hrönn Jóhannsdóttir, settur saksóknari efnahagsbrota, hefur sent embættinu. 20.11.2010 10:26
Atkvæði greidd um ESB í dag Flokksráðsfundur Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs hefst að nýju í dag með því að greidd verða atkvæði um ályktanir sem liggja fyrir fundinum. Þar ber hæst að nefna ályktanir um Evrópusambandsmál, en sautján atkvæðabærir flokksráðsmenn lögðu til á flokksráðsfundi sem hófst síðdegis í gær, 20.11.2010 09:41
Telja að Markarfljót hafi snúið Herjólfi Skipstjóri og rekstrarstjóri Herjólfs telja straum frá Markarfljóti líklega orsök þess að ferjan snerist á hlið fyrir utan hafnargarðinn í Landeyjahöfn á miðvikudag. 20.11.2010 09:15
Vonir bundnar við framkvæmdasjóð Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra mun leggja fram frumvarp um stofnun framkvæmdasjóðs ferðaþjónustunnar í vetur. Hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu og þeir sem koma að umhverfisvernd líta á svarta skýrslu Umhverfisstofnunar (UST) um ástand friðlýstra svæða sem lokaviðvörun til stjórnvalda um verndun helstu náttúrugersema þjóðarinnar. 20.11.2010 08:45
Finna ekki munka sem vilja til Íslands Kaþólska kirkjan á Íslandi er í sambandi við erlend klaustur um að fá senda hingað munka til að manna klaustur í nágrenni höfuðborgarinnar. Í því yrðu stundaðar fyrirbænir, helgiathafnir og mögulega barna- og unglingastarf. 20.11.2010 08:00
Keldusvín kom með togara til Eyja Börn í leikskólanum Sóla í Vestmannaeyjum fengu óvæntan gest í heimsókn þegar Kristinn Valgeirsson, vélstjóri á frystitogaranum Vestmannaey VE-444, kom með keldusvín til þeirra í gærmorgun. 20.11.2010 07:00
Víkja sæti vegna landsdóms Kjararáði ber að ákveða þóknun dómenda og dómritara landsdóms, samkvæmt frumvarpi dómsmála- og mannréttindaráðherra. Í gildandi lögum segir að landsdómur sjálfur ákveði þóknunina. Telur ráðherrann eðlilegt að kjararáð annist ákvörðunina. 20.11.2010 06:30
Gunnar Rúnar er metinn ósakhæfur Niðurstaða geðrannsóknar sem Gunnar Rúnar Sigurþórsson hefur gengist undir er sú að hann sé ekki sakhæfur. Hann játaði fyrir héraðsdómi í gær að hafa banað Hannesi Þór Helgasyni í ágúst. Gæsluvarðhaldið var framlengt í gær. 20.11.2010 06:30
Skyttur teknar á þyrlu LHG Lögreglan í Borgarnesi stóð nokkrar rjúpnaskyttur að meintum ólöglegum veiðum í umdæmi sínu í gær. Lögregla naut liðsinnis þyrlu Landhelgisgæslunnar við eftirlitið. 20.11.2010 05:00
Fólk getur í raun hannað hvað sem er Nú stendur til að opna Fablab, stafræna smiðju þar sem fólk getur komið og hannað nær allt sem því dettur í hug, á Sauðárkróki. Þorsteinn Broddason, verkefnastjóri hjá Impru á Nýsköpunarmiðstöð á Sauðárkróki, segir verkefnið hafa gengið vonum framar. Fablab hefur verið með opið hús síðustu tvo daga í tilefni af Alþjóðlegri athafnaviku. 20.11.2010 04:00
Borðar 6500 kalóríur á dag Vöðvatröllið Jay Cutler borðar 2,5 kíló af kjöti á dag, tekur tvö flugsæti og getur ekki klórað sér sjálfur. „Það kostar mig jafnmikið að láta breyta gallabuxum og að kaupa þær,“ segir Cutler sem er margfaldur heimsmeistari í vaxtarrækt. Rætt var við hann og Egill Einarsson, eða Gillz eins og hann er oftast nefndur, í þættinum Ísland í dag að loknum fréttum Stöðvar 2 í kvöld. 19.11.2010 21:22
Almenningur hvattur til að láta ljós sitt skína Í tengslum við söfnunarátak UNICEF, Dag rauða nefsins, er almenningur hvattur til að láta ljós sitt skína. Hver sem er getur keypt sér nef, tekið upp fyndið myndband og skemmt sér og öðrum. 19.11.2010 21:32
Segir baneitraða arma kolkrabbans leynast víða „Baneitraðir armar kolkrabbans eru enn víða í samfélaginu. Látum þá ekki eitra meira og ná yfirhöndinni á ný. Við vitum hvaðan þeim er stjórnað," sagði Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna, í umræðum á flokksráðsfundi VG í kvöld. Fram kom í máli margra fundarmanna að brýnt væri að halda Sjálfstæðisflokknum frá völdum. 19.11.2010 21:14
Rangir aðilar dæmdir í Geirfinnsmálinu Í dag eru 36 ár frá hvarfi Geirfinns Einarssonar. Rannsóknarlögreglumaður segir ranga aðila hafa verið dæmda í málinu, og er sannfærður um að einhver sem enn sé á lífi, viti í raun hvað gerðist. 19.11.2010 20:56
Svandís telur brýnt að halda sjálfstæðismönnum frá völdum Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, segir brýnt að halda Sjálfstæðisflokknum frá völdum. Stefna VG í Evrópumálum sé skýr og því megi flokksmenn ekki láta ágreining um form spilla fyrir. 19.11.2010 20:26
Engar ferðir farnar í Landeyjahöfn Herjólfur siglir allar sínar ferðir á morgun til og frá Þorlákshöfn og verða engar ferðir farnar í Landeyjahöfn, að því er fram kemur í tilkynningu. Fyrsta ferð á morgun verður í Þorlákshöfn klukkan 07:30. 19.11.2010 20:07
Tekist á um tvær tillögur Sautján atkvæðabærir flokksráðsmenn Vinstri grænna leggja til á flokksráðsfundi sem hófst síðdegis, að aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið verði slitið nú þegar. Í annarri ályktun sem fleiri atkvæðabærir flokksmenn flytja, er lýst yfir stuðningi við ríkisstjórnina og þar með að viðræðurnar haldi áfram. 19.11.2010 19:30
Þrýstir á hækkun lægstu launa Nærri 6000 heimili þiggja neyðaraðstoð hjá sveitarfélögum landsins. Einhleypir karlar er langstærsti hópurinn sem er á framfæri Reykjavíkurborgar. Meirihluti velferðarráðs samþykkti að hækka framfærsluna í vikunni eftir átakafund, formaður ráðsins telur að hækkunin skapi þrýsting á hækkun lægstu launa. 19.11.2010 19:11
Systir Hannesar: Gunnar vissi nákvæmlega hvað hann var að gera „Hann vissi nákvæmlega hvað hann var að gera og hann á að gjalda fyrir það," segir systir Hannesar Þórs Helgasonar um Gunnar Rúnar Sigurþórsson, sem í dag játaði fyrir dómara að hafa myrt Hannes á hrottafenginn hátt. Andrúmsloftið var vægast sagt rafmagnað við þingfestingu málsins í héraðsdómi. 19.11.2010 18:58
Lárus hafi verið leppur Jóns Ásgeirs Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóri Glitnis, vildi ekki tjá sig við fjölmiðla þegar hann kom til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara í dag. Slitastjórn Glitnis telur að Lárus hafi verið leppur Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og hafi tekið við beinum skipunum frá honum um hvernig ætti að reka bankann. 19.11.2010 18:42
Merkingar á Miklubraut Á morgun laugardaginn verður unnið við merkingar á svonefndri strætórein á Miklubraut til vesturs undir Skeiðarvogsbrúnni en framkvæmdirnar hafa staðið undanfarna daga. Hafist verður handa klukkan 11 og áætlað er að vinnan taki um 4 til 5 klukkustundir. 19.11.2010 18:10
Steingrímur: Nýtur forystan stuðnings? „Þetta snýst um það að koma Íslandi aftur á fæturnar. Við þurfum samstöðu til þess. Það verður erfitt að standa í þessu ef við erum eitthvað hölt því aðstæðurnar eru nú nógu krefjandi án þess. Við þurfum auðvitað að vita - forysta flokksins, þingflokkur og forystusveit - höfum við stuðning og umboð frá flokknum og þessari stofnun til að halda þessari baráttu áfram. Við skulum bara fá það á hreint,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, þegar hann ávarpaði flokksráðs Vinstri grænna í dag. 19.11.2010 17:56
Handrit.is hlýtur Hagnýtingarverðlaun HÍ Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, afhenti í dag Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands en verðlaunin voru nú afhent í tólfta sinn. Að þessu sinni bárust 13 hugmyndir af ýmsum fræðasviðum Háskóla Íslands. 19.11.2010 17:20
Lögreglumenn fagna tillögu um rannsókn Landssamband lögreglumanna fagnar framkominni þingsályktunartillögu sem miðar að því að rannsakaður verði meintur þáttur þingmanna í Búsáhaldabyltingunni. 19.11.2010 17:18
Tveir handteknir eftir húsleitir á Siglufirði Tveir menn voru handteknir eftir húsleitir á Siglufirði í gær. Leitað var í tveimur húsum í bæjarfélaginu þar sem hald var lagt á smáræði af kannabisefnum, hnúajárn, fimm kannabisplöntur auk tækja til ræktunar og kannabisfræ. Mennirnir voru látnir lausir að loknum skýrslutökum. Lögreglumenn frá Akureyri, Ólafsfirði og Siglufirði auk manna frá sérsveit Ríkislögreglustjóra komu að málinu sem telst upplýst. 19.11.2010 17:03
Segja Láru Hönnu hafa birt sömu pistla á RÚV og á Smugunni Umsjónarmenn Morgunútvarpsins og Síðdegisútvarpsins á Rás 2 hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna undirskriftasöfnunar og ásakanna á hendur umsjónarmanna vegna uppsagnar Láru Hönnu Einarsdóttur. Í yfirlýsingunni segir um uppsögnina: 19.11.2010 16:35
Ræða Steingríms á flokksráðsfundi í beinni á Vísi Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs verður Í Hagaskóla í dag og á morgun. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra setur fundinn og að því loknu heldur Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og formaður flokksins ræðu á fundinum þar sem hann fer yfir stjórnmálaástandið í landinu. 19.11.2010 16:29
Dæmdum lögregluþjóni verður ekki vikið úr starfi Lögregluþjóninum Garðari Helga Magnússyni verður ekki vikið frá störfum eftir að hafa verið dæmdur til skilorðsbundinnar refsingar í Hæstarétti Íslands fyrir að fara offari við skyldustörf. 19.11.2010 15:59
Ráðherra fer að ráðum Hafró um loðnukvótann Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag gefið út reglugerðir um loðnuveiðar. Samkvæmt þeim er heimilt að veiða 200 þúsund tonn af loðnu í íslenskri fiskveiðilögsögu á tímabilinu frá 23. nóvember 2010 til og með 30. apríl 2011. 19.11.2010 15:39
Þingkonur hvetja Marinó til að endurskoða afsögn Þingkonurnar Eygló Harðardóttir, Lilja Mósesdóttir og Margrét Tryggvadóttir úr Framsóknarflokki, VG og Hreyfingunni, hvetja Marinó G. Njálsson stjórnarmann úr Hreyfingunni til þess að endurskoða þá ákvörðun sína að segja sig úr stjórn Hagsmunasamtaka Heimilanna. Marinó sagði sig úr stjórninni vegna fyrirhugaðrar umfjöllunar Fréttatímans um skuldamál hans. Í sameiginlegri yfirlýsingu þingkvennanna segir að Marinó hafi verið beittur málsvari félagsmanna í samtökunum sem og annarra skuldsettra heimila. 19.11.2010 15:24