Innlent

Systir Hannesar: Gunnar vissi nákvæmlega hvað hann var að gera

„Hann vissi nákvæmlega hvað hann var að gera og hann á að gjalda fyrir það," segir systir Hannesar Þórs Helgasonar um Gunnar Rúnar Sigurþórsson, sem í dag játaði fyrir dómara að hafa myrt Hannes á hrottafenginn hátt. Andrúmsloftið var vægast sagt rafmagnað við þingfestingu málsins í héraðsdómi.

Málið hófst formlega fyrir dómstólum þegar það var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Gunnar sem ákærður er í málinu játaði verknaðinn. Gæsluvarðhald yfir honum var einnig framlengt um fjórar vikur.

Andrúmsloftið í héraðsdómi var rafmagnað þegar Gunnar Rúnar gekk í dómssalinn. Systur Hannesar heitins sátu á fremsta bekki og hlustuðu á hann játa verknaðinn, eins og honum er lýst í ákæru. Þar kemur fram að Gunnar hafi banað Hannesi með því að stinga hann ítrekað með hnífi í brjóst, bak, háls, andlit, handleggi og hendur.

Verjandi Gunnars fór fram á að þinghald yrði lokað við aðalmeðferð málsins og vitnað þar í grein laga sem heimilar dómara að loka þinghöldum. Hún segir ljóst að viðkæmvar upplýsingar eigi eftir að koma fram meðal annars hjá geðlæknum. Fyrst og fremst sé verið að hugsa um Gunnar sjálfan og ekki síst fjölskyldu hans.

Gunnar Rúnar hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan 27. ágúst og segist Guðrún Sesselja Arnardóttir, verjandi hans, búast við mjög erfiðum réttarhöldum. „Hann hefur það náttúrulega ekki gott, sem eðlilegt er," segir Guðrún Sesselja.

Saksóknari mótmælti ekki kröfunni um lokað þinghald og það eru systur Hannesar mjög ósáttar með. „Ég vil náttúrulega hafa þinghaldið opið eins og þinghöld eiga að vera. Ég get ekki skilið það að það sé verið að hlífa sakborningi og fjölskyldu hans en ekki minni fjölskyldu. Ég er systir Hannesar og ég þoli alveg að hafa opið réttarhald," segir Kristín Helgadóttir, systir Hannesar.

„Sakborningur valdi sér þetta. Ég valdi þetta ekki, né Hannes bróðir minn þannig að mér finnst mjög skrýtið að saksóknari mótmæli ekki einu sinni lokuðu réttarhaldi."

Aðspurð segir Kristín að sér hafi liðið mjög illa að sjá Gunnar ganga inn í réttarsalinn í dag. „Ég get ekki séð að neitt sé að þessum dreng. Hann vissi nákvæmlega hvað hann var að gera og hann á að gjalda fyrir það. Þess vegna eiga að vera opin réttarhöld. Við búum ennþá á Íslandi."




Tengdar fréttir

Gunnar Rúnar ákærður fyrir manndráp: „Ég játa“

Gunnar Rúnar Sigurþórsson játaði í dómssal að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana. Gunnari Rúnari var birt ákæran fyrir stundi í Héraðsdómi Reykjanesi. Spurður um afstöðu hans til ákæruatriða sagði hann: „Ég játa.“

Hafnaði bótakröfu konunnar sem hann elskaði

Gunnar Rúnar Sigurþórsson hafnaði bótakröfu, sem unnusta Hannesar Þórs Helgasonar heitins lagði fram, en samþykkti athugasemdarlaust bótakröfur foreldra Hannesar. Kröfurnar voru jafn háar, eða tvær og hálf milljón króna hver.

Gunnar Rúnar fyrir rétt í dag

Mál Gunnars Rúnars Sigurþórssonar, sem hefur játað að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana um miðjan ágúst, verður þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×