Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tryggingastofnun greiðir á ný fyrir túlkun heyrnarlausra Tryggingastofnun Ríkisins hefur ákveðið að hefja aftur greiðslur fyrir túlkun heyrnarlausra einstaklinga sem eiga viðskipti við stofnunina. Félag heyrnarlausra fagnar þessum tímamótum en til stóð að félagið myndi kæra Tryggingastofnun fyrir brot á réttingum fatlaðra. 19.11.2010 13:45
Kostnaður við landsdóm 113 milljónir Reiknað er með að kostnaður við fyrirhugaðan landsdóm nemi rúmum 113 milljónum króna. Þetta kemur fram í minnisblaði sem Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra lagði fram á ríkisstjórnarfundi í morgun. Hæstiréttur og dómsmálaráðuneytið lögðu í sameiningu mat á útgjöldin vegna málsins. Nokkur óvissa er þó um heildarkostnaðinn og segir í minisblaðinu að langmesta óvissa liggi í lengd málsmeðferðarinnar. Því er miðað við fjögurra mánaða málsmeðferð, en ef hún reynist sex mánuðir svo dæmi sé tekið aukast útgjöldin um 43 milljónir. Að sama skapi gætu útgjöldin lækkað ef málsmeðferðin tekur skemmri tíma. 19.11.2010 13:35
Herjólfur til Þorlákshafnar á morgun Herjólfur siglir frá til og frá Þorlákshöfn á morgun. Fyrsta ferð á morgun verður í Þorlákshöfn klukkan 07:30 og til Vestmannaeyja klukkan 11:15. Í tilkynningu frá Eimskip, rekstraraðila ferjunnar segir að tekin verði ákvörðun í fyrramálið um framhaldið, en spáð er batnandi veðri síðdegis á morgun og næstu daga. 19.11.2010 13:02
Tekist á um Evrópusambandið hjá vinstri grænum Búast má við að hart verði tekist á um Evrópusambandsmálin á flokksráðsfundi Vinstri grænna sem hefst í dag. Formaður flokksins reiknar með hreinskiptum skoðanaskiptum, en segir engan vafa á því hver stefna flokksins sé í evrópumálum. 19.11.2010 12:28
Nígeríumenn vilja að íslenska lögreglan stöðvi breskan svindlara Breskur svikahrappur, sem staddur er hér á landi, notar viðskipti með íslenska skreið til að féfletta kaupendur í Nígeríu. Sendiherra Nígeríu á Íslandi varar við svikaranum, fyrir hönd þeirra landsmanna sinna, sem hafa verið blekktir. 19.11.2010 12:16
Yfirheyrslur haldið áfram hjá sérstökum saksóknara Yfirheyrslur hafa haldið áfram í morgun vegna rannsóknar sérstaks saksóknara á lánveitingum Glitnis fyrir hrun. Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóri, var yfirheyrður í 11 klukkustundir í gær. 19.11.2010 11:56
Dæmdur lögreglumaður enn við störf Garðar Helgi Magnússon, lögreglumaður, sem fundinn var sekur um að hafa farið offfari við handtöku er enn við störf hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort honum verður vikið úr starfi. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir það í höndum ríkislögreglustjóra hvort Garðar Helgi starfar áfram sem lögreglumaður. 19.11.2010 11:38
Líkamsárásir og kynferðisbrot oftast framin að nóttu til Stærstur hluti líkamsárása á sér stað á nóttunni ef marka má afbrotatölfræði ríkislögreglustjóra fyrir októbermánuð. 54,5 prósent líkamsárása eru framdar frá miðnætti og fram til klukkan sex á morgnana. 41,8 prósent kynferðisbrota eru framin á sama tímabili en innbrot og þjófnaðir eru hinsvegar algengari frá hádegi til klukkan sex síðdegis. 19.11.2010 10:50
Marinó G. Njálsson: „Já, mér finnst óeðlilegt að spyrja“ „Það hefur engin ákvörðun verið tekin um það,“ svarar Marinó G. Njálsson hvort hann ætli að endurskoða afstöðu sína eftir að frétt Fréttatímans um skuldastöðu hans birtist í dag. Marinó tilkynnti á bloggi sínu í gær að hann hefði sagt sig úr stjórn Hagsmunasamtak Heimilanna. Á bloggi sínu skrifar Marinó: 19.11.2010 09:48
Hægt að skila Jónínu í Office 1 Ævisaga Jónínu Benediktsdóttur sem hingað til hefur aðeins fengist hjá N1 fæst nú einnig í verslunum Office 1. Nokkra athygli hefur vakið að ekki er hægt að skipta bókinni hjá N1. Það er hins vegar hægt hjá Office 1. 19.11.2010 09:22
Gunnar Rúnar fyrir rétt í dag Mál Gunnars Rúnars Sigurþórssonar, sem hefur játað að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana um miðjan ágúst, verður þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. 19.11.2010 09:06
Bensínlítrinn dýrastur hjá Skeljungi Orkan er með ódýrasta bensínið þennan daginn, samkvæmt athugun Vísis. Þar kostar lítrinn nú 196,70 krónur. Dýrast er bensínið hjá Skeljungi í dag þar sem lítrinn af 95 oktana bensíni kostar 199,90 krónur. 19.11.2010 08:49
Loðna gæti gefið 17 milljarða Talið er að útflutningsverðmæti þeirra 200 þúsund tonna af loðnu, sem Hafrannsóknastofnun leggur til að leyft verði að veiða í vetur, geti numið allt að 17 milljörðum króna. Það veltur á því hvort hægt verði að stýra veiðunum þannig að sem mest náist af hrognum og loðnu til frystingar til manneldis. 19.11.2010 07:34
Nígeríumenn kvarta undan svindlara á Íslandi Er þetta Nígeríubréf með öfugum forsendum? Íslandsstofa sem áður var Útflutningsráð Íslands, varar við viðskiptum við ónafngreindan Breta, sem á að vera staddur hér á landi í þeim tilgangi að stunda vafasöm skreiðarviðskipti. Hann er sagður ætla að svindla á kaupsýslumönnum í Nígeríu. 19.11.2010 07:21
Össur og Störe ræða málefni tengd íslam Íslensk og norsk stjórnvöld hafa verið í sambandi varðandi málefni sem tengjast fyrirhugaðri mosku í Tromsö, en félagsskapurinn sem keypti Ýmishúsið við Skógarhlíð vann að því verkefni. Sami hópur vinnur einnig að fleiri svipuðum verkefnum annars staðar á Norðurlöndunum. 19.11.2010 06:15
Getur hindrað garnaflækju Hjálpartæki þeirra sem ánægju hafa af því að prjóna bar sigur úr býtum í Snilldarlausnum Marel, hugmyndasamkeppni framhaldsskólanna, sem lauk í gær. Þátttakendur í keppninni áttu að auka notagildi pappakassa. 19.11.2010 06:00
Segir yfirheyrslur slitastjórnar vera í lagi Dómstjórinn í Reykjavík gerir engar athugasemdir við yfirheyrsluaðferðir slitastjórnar Glitnis. Þetta kemur fram í bréfi sem Helgi I. Jónsson dómstjóri hefur sent lögmanni Bjarna Jóhannessonar, fyrrverandi viðskiptastjóra Glitnis. 19.11.2010 06:00
Rauðvínið reyndist vera amfetamínbasi Þrjátíu og sjö ára karlmaður, Daniel Danielewicz, kvaðst fyrir Héraðsdómi Reykjaness í gær hafa talið sig vera að færa samlanda sínum hér á landi rauðvín, skinku, bjúgu og lyf, þegar hann kom til landsins í ágúst síðastliðnum. Í „rauðvínsflöskunni“ reyndist vera rúmlega einn lítri af amfetamínvökva. Úr honum hefði mátt vinna rúmlega átta kíló af amfetamíni, sem hægt hefði verið að selja fyrir 25 milljónir króna, að því er fram kom hjá saksóknara í málinu, Júlíusi Kristni Magnússyni. 19.11.2010 06:00
Segja annað gilda um starfið á Íslandi Sömu aðilar standa á bak við sjálfseignarstofnunina Islamic Endowment Center in Iceland, sem festi nýlega kaup á Ýmishúsinu við Skógarhlíð, og verkefni um að byggja mosku í Tromsö í Noregi. 19.11.2010 06:00
Þarf 100 nýja bíla á næsta ári Gert er ráð fyrir að stofnanir og fyrirtæki ríkisins þurfi að kaupa eða leigja allt að hundrað nýja bíla á næsta ári. Ríkiskaup hafa efnt til útboðs vegna þess. Verða viðskiptin gerð á rekstrarleigukjörum næsta árs. Í auglýsingu frá Ríkiskaupum segir að um kaup eða leigu á bifreiðum af ýmsum stærðum og gerðum sé að ræða. Veigamikill þáttur í mati á tilboðum verði koltvísýringslosun. - bþs 19.11.2010 05:30
Gert án samþykkis borgaryfirvalda „Það hefur ekki verið full sátt á milli aðila um hvernig skuli staðið að þessu,“ segir Jónas Snæbjörnsson, svæðisstjóri hjá Vegagerðinni. „Borgin vildi kanna betur hvort það væri hægt að finna aðrar aðgerðir til að draga úr raunhraða.“ 19.11.2010 05:30
Styttist í síðasta sendingardag Síðasti öruggi skiladagur til að póstleggja jólapakka til landa utan Evrópu er mánudagurinn 6. desember og föstudagurinn 10. desember fyrir jólakort til landa utan Evrópu. 19.11.2010 05:15
Tæplega 50% treysta prestum Tæplega helmingur landsmanna ber mikið traust til sinnar sóknarkirkju og prestanna í sinni sókn. Tæp tuttugu prósent bera lítið traust til þeirra. Kemur þetta fram í niðurstöðum nýlegrar könnunar Capacent sem unnin var fyrir Biskupsstofu. 19.11.2010 05:15
Heilbrigðisráðuneytið bruðlar Áform heilbrigðisráðuneytisins um að staðsetja sameinaða stofnun Landlæknisembættisins og Lýðheilsustöðvar í Heilsuverndarstöðinni á Barónsstíg vöktu hörð viðbrögð á þingi í fyrradag. Frumvarp um sameiningu stofnananna var til umræðu. 19.11.2010 05:15
Þáðu netaveiðistyrk frá Evrópusambandinu Færeyingar eru ævareiðir Skotum en fyrirtæki þar í landi hefur þegið styrk Evrópusambandsins upp á hundrað þúsund pund, jafnvirði átján milljóna króna. Fyrirtækið veiðir lax í net. 19.11.2010 05:00
Upplýsingagjöf helsta hagsmunamálið Álframleiðendur á Íslandi, Rio Tinto Alcan, Alcoa Fjarðaál og Norðurál, hafa tekið höndum saman til að vinna að sameiginlegum hagsmunum atvinnugreinarinnar og stofnað Samtök álframleiðenda, eða Samál. Að sögn Rannveigar Rist, stjórnarformanns Samáls, er helsta hagsmunamál áliðnaðarins á Íslandi í dag upplýsingagjöf. 19.11.2010 05:00
Læknar semja ekki um stórfellda lækkun „Ég tel mér skylt að standa vörð um þessa þjónustu hér á landi. Ef semja á niður verð um allt að tuttugu prósent er sjálfhætt og læknarnir fara annað,“ segir Kristján Guðmundsson, formaður samninganefndar sérfræðilækna. Sérfræðilæknar munu ekki semja um átján prósent lækkun á taxta til að mæta sparnaðarkröfu fjárlaga, að hans sögn. 19.11.2010 05:00
Vindmælingar hér á landi enn á algjöru byrjunarstigi Þær vindmælingar sem nauðsynlegar eru til viðmiða fyrir vindmyllur eru á algöru byrjunarstigi hér á landi. Starfshópur innan Landsvirkjunar, ásamt Veðurstofu Íslands og Umhverfisstofnun, hefur nú hafist handa við slíkar mælingar og segir Úlfar Linnet, sérfræðingur í orkuathugunum hjá Landsvirkjun, enn langt í land. 19.11.2010 04:45
Kennarar vara við niðurskurði Kennarafélag Fjölbrautaskólans í Breiðholti mótmælir niðurskurði á fjárveitingum til framhaldsskóla og varar við áhrifum hans. Telur félagið að ekki verði gengið lengra í sparnaði án þess að námsframboð verði skert. „Húsnæði tekur víða ekki við fjölmennari bekkjardeildum og hagrætt hefur verið til hins ítrasta gagnvart kennurum,“ segir í ályktun. 19.11.2010 04:00
Rænd tvisvar á einni viku á götum Kaupmannahafnar „Núna langar mig að líma allt dótið mitt á mig svo það verði ekki tekið af mér,“ segir Athena Ragna, fyrirsæta og nemi í tískumarkaðssetningu í Kaupmannahöfn. 19.11.2010 00:01
Bók Jónínu seld á hálfvirði Bókaverslunin Office 1 keypti í vikunni 300 eintök af ævisögu athafnakonunnar Jónínu Benediktsdóttur á bensínstöðvum N1 og hyggst selja þær á hálfvirði frá og með morgundeginum. Frá þessu er greint í Fréttatímanum sem kemur út á morgun. 18.11.2010 23:31
Ruddist inn og lamdi fyrrverandi sambýliskonu Tveir karlmenn, annar 27 ára gamall og hinn 28 ára, hafa verið ákærðir fyrir líkamsárás og húsbrot. 18.11.2010 21:00
Bækur Arnaldar og Njála voru góður undirbúningur Fyrsta glæpasagan af mörgum um lögreglumanninn Magnús Jónsson er nýkomin út. Höfundur er enski rithöfundurinn Michael Ridpath, sem er heillaður af Íslandi. 18.11.2010 21:30
KK stýrir uppboði til styrktar Bjarkarási Tónlistarmaðurinn KK stýrir uppboði sem haldið verður í Góða hirðinum á morgun klukkan hálf fimm síðdegis. Allur ágóði af uppboðinu rennur óskiptur til Bjarkaráss sem er ein af stofnunum Áss styrktarfélags og veitir fötluðu fólki dagþjónustu, hæfingu og vinnu. 18.11.2010 20:15
Skýrslutökum yfir Lárusi lokið Yfirheyrslum yfir Lárusi Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, er lokið. Yfirheyrslurnar hófust í morgun en þeim lauk skömmu fyrir klukann átta í kvöld. Lárus svaraði ekki spurningum fjölmiðlamanna þegar hann kom út frá skrifstofum sérstaks saksóknara ásamt lögmanni sínum. 18.11.2010 19:51
Kínverjar funda um álver á Bakka Fulltrúar kínverska álfyrirtækisins Bosai eru komnir til landsins til viðræðna við stjórnvöld og Landsvirkjun um álver við Húsavík. Sveitarstjóri Norðurþings segir komið að þeim tímapunkti að ná samningum og hefjast handa. 18.11.2010 19:32
Ætluðu að breyta sjóðnum í heildsölubanka Fyrrverandi stjórnendur og starfsmenn Íbúðalánasjóðs virðast hafa tekið fram fyrir hendurnar á Alþingi Íslendinga og ætlað að breyta sjóðnum í heildsölubanka, segir Vilhjálmur Bjarnason, lektor í viðskiptafræði. Hann sakar þá um að hafa samið af sér við bankana, verið firrta skynsemi við áhættustýringu og því sé Íbúðalánasjóður nú tæknilega gjaldþrota. 18.11.2010 19:05
Lárus Welding yfirheyrður Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóri Glitnis banka, var kallaður til yfirheyrslu hjá embætti sérstaks saksóknara í morgun. Þar hefur hann setið í allan dag og yfirheyrslur standa enn. 18.11.2010 18:39
Héraðsdómurum verði fjölgað um 10 Dómstólaráð telur að fjölga verði tímabundið enn frekar í hópi dómara og nauðsynlegt geti verið að auka fjölda þeirra um allt að 10 til viðbótar við þá 43 sem nú eru skipaðir. Þetta kemur fram í greinargerð með frumvarpi sem Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra lagði fram á Alþingi í dag. Ástæðan er að fyrirsjáanlegt er að dómsmálum muni fjölga gríðarlega á næstunni vegna bankahrunsins. 18.11.2010 18:31
Geir vill Andra sem verjanda Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, telur að óhæfilegur dráttur hafi orðið á því að sér sé skipaður verjandi í samræmi við þá ákvörðun Alþingis að höfða mál gegn honum. Hann hafi verulega hagsmuni af því að lögmaður sinn fái formlega stöðu verjanda og því vill Geir að Andri Árnason, hæstaréttarlögmaður, verði skipaður verjandi sinn. 18.11.2010 18:16
Samfylkingin í Kópavogi biðst afsökunar Félagsmönnum í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi var í dag sendur ítrekunarbréf frá Arion banka vegna greiðslu félagsgjalda fyrir árið 2010-2011. „Þegar kreppir að og hagræða þarf í heimilisbókhaldi þá kemur glaðningur inn um bréfalúgu þar sem hótað er lögheimtuaðgerðum vegna vangoldinna félagsgjalda,“ sagði ósáttur félagi í Samfylkingunni í tölvubréfi til fréttastofu fyrr í dag. 18.11.2010 18:05
Mikilvægur dómur fyrir þróun samkeppnismála „Þessi dómur Hæstaréttar skiptir miklu fyrir þróun samkeppnismála hér á landi. Með honum er komið mikilvægt fordæmi sem fyrirtækjum á samkeppnismörkuðum ber að horfa til,“ segir Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins. 18.11.2010 17:45
Mál verði höfðað gegn Bretum Fjórtán þingmenn þriggja flokka hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um málshöfðun á hendur breska ríkinu fyrir alþjóðlegum dómstól fyrir að beita hryðjuverkalögum gegn íslenska ríkinu og íslenskum fyrirtækjum í október 2008. Þingmennirnir vilja að gerð verði krafa um skaðabætur. 18.11.2010 17:24
Þrjár konur skipaðar ráðuneytisstjórar Ragnhildur Hjaltadóttir verður ráðuneytisstjóri nýs innanríkisráðuneytis sem tekur formlega til starfa um næstu áramót við sameiningu dómsmála- og mannréttindaráðuneytis og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis. 18.11.2010 16:41
Hættir í stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna Marínó G. Njálsson, stjórnarmaður i Hagsmunasamtökum heimilanna, hefur látið af því embætti. Hann segir í tilkynningu til fjölmiðla að ástæðan sé endurtekin hnýsni fjölmiðla í sín mál. Málið á rætur að rekja til umfjöllunar Fréttatímans um skuldamál Marínós, eftir því sem fram kemur á bloggvef hans. 18.11.2010 16:32