Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vann tæpar 26 milljónir Einn heppinn spilari var með allar tölur réttar í lottói kvöldsins og fær hann 25,6 milljónir í sinn hlut. Vinningsmiðinn var seldur verslun N1 við Borgartún. Sex voru með fjórar tölur réttar auk bónustölunnar og fengu viðkomandi spilarar rúmar 60 þúsund krónur hver. 28.8.2010 19:33
Borgarbúa súpa seyðið af fjárfestingarstefnu Orkuveitunnar Verðtryggð lán heimilanna hækka um á fimmta milljarð króna alls vegna verðbólguáhrifa af hækkun gjaldskrár Orkuveitu Reykjavíkur. Hagfræðingur segir Reykvíkinga súpa seyðið af fjárfestingarstefnu fyrirtækisins. 28.8.2010 19:15
Tilkynnt um eld í Trönuhjalla Slökkviliði höfuðborgarsvæðsins barst tilkynning um eld í íbúðarhúsi við Trönuhjalla í Kópavogi á sjöunda tímanum í kvöld. Dælu- og sjúkrabílar fóru á vettvang. Ekki fengust frekari upplýsingar um málið hjá varðstjóra. 28.8.2010 18:48
Gunnar Rúnar hafður í einangrun Gunnar Rúnar Sigurþórsson sem í gær var úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um morðið á Hannesi Helgasyni verður að öllum líkindum ekki yfirheyrður um helgina. Hann er hafður í einangrun á Litla-Hrauni og verður það áfram eins lengi og lögreglan telur nauðsynlegt vegna rannsóknahagsmuna. Hann var úrskurðaður í fjörgurra vikna gæsluvarðhald í en sá úrskurður hefur verið kærður til Hæstaréttar. Gunnar neitar sök. 28.8.2010 18:36
Ekki ágreiningur um fækkun ráðuneyta Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG og varaformaður allsherjarnefndar, segir engann ágreining vera innan stjórnarflokkanna um fækkun ráðuneyta. Málið þurfi einfaldlega meiri undirbýnings. 28.8.2010 18:22
Dregur úr spítalasýkingum Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir að innlagnarsjúklingum hafi fækkað allmikið að meðaltali hjá spítalnum og verulegur árangur hafi náðst í baráttu við að koma í veg fyrir spítalasýkingar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í pistli Björns á heimasíðu Landspítalans þar sem hann fjallar um svokallað skorkort fyrir spítalann í heild sinni með rekstrartölum fyrir fyrstu sex mánuði ársins. 28.8.2010 17:41
Lokadagur Íslandsmótsins í dag Lokdadagur Íslandsmóts í hestaíþróttum á Sörlavelli í Hafnarfirði fór fram í dag. Töltkeppni í A-úrslitum var æsispennandi en þar náði Viðar Ingólfsson að verja titil sinn á Tuma frá Stóra-Hofi og sigraði með einkunnina 8,43 en Jakob Svavar Sigurðsson og Sigurbjörn Bárðarson voru jafnir í 2.-3 sæti með einkunnina 8,42. 28.8.2010 17:12
Ætla að efla samskiptin Til stendur að efla samskipti Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna mun frekar en nú er. Þetta er á meðal þess sem ákveðið var á fundi utanríkisráðherra ríkjanna í Riga í Lettlandi í gær. Unnið verður að þessu í samræmi við tillögur sem Sören Gade fyrrverandi varnarmálaráðherra Dana og Valdis Birkavs fyrrverandi forsætis- og utanríkisráðherra Letta unnu. 28.8.2010 16:58
Hækkunin gríðarlega erfið fyrir garðyrkjubændur Hækkun á gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur er gríðarlega erfið fyrir garðyrkjubændur, segir Bjarni Jónsson, framkvæmdastjóri Sambands garðyrkjubænda. Hann segir að kostnaður fyrir garðyrkjubændur vegna hækkunarinnar geti numið milljónum á ársgrundvelli fyrir hvern garðyrkjubónda. Bjarni ætlar að óska eftir fundi með forsvarsmönnum Orkuveitu Reykjavíkur í næstu viku. 28.8.2010 15:01
„Orð Sigurðar dæma sig sjálf“ Ólafur Þ. Hauksson sérstakur saksóknari sér enga ástæðu til að bregðast við ummælum Sigurðar Einarssonar í Fréttablaðinu í dag. 28.8.2010 13:36
Almennir notendur bera gjaldskrárhækkun OR einir Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna gagnrýnir að almennir notendur beri gjaldskrárhækkun Orkuveitu Reykjavíkur einir, erfiðleikar Orkuveitunnar stafi ekki af þjónustu við þá. Orkuveitan hækkaði gjaldskrá sína um allt að 40% í gær. 28.8.2010 11:58
Björguðu manni úr sjónum Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn fóru að Faxagarði um tvöleytið í nótt þar sem maður hafði fallið í sjóinn og þurfti aðstoð til að komast aftur á þurrt. Ekki liggur fyrir hvernig maðurinn komst í sjóinn. 28.8.2010 09:51
Á fjórða tug milljóna söfnuðust Yfir 32 milljónir söfnuðust í átakinu „Á allra vörum" sem endaði með sjónvarspútsendingu á Skjá einum í gærkvöld. Gróa Ásgeirsdóttir, ein af forsvarskonum átaksins, segir að til viðbótar þessu komi afrakstur sölu á glossum. Heildarupphæðin kunni því að ná yfir 40 milljónir króna. 28.8.2010 09:42
Handtekinn fyrir líkamsárás í Austurstræti Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í Austurstræti í nótt eftir að hann hafði ráðist á tvo menn á þrítugsaldri og nefbrotið annan þeirra. Árásarmaðurinn var í annarlegu ástandi og var látinn gista fangageymslur yfir nótt. 28.8.2010 09:40
Björgunarsveitarmenn leituðu sofandi manns Björgunarsveitamenn frá Akranesi voru ræstir út um hálfþrjúleytið í nótt til leitar að manni sem hafði verið saknað síðan upp úr miðnætti. Maðurinn fannst rétt fyrir klukkan níu í morgun nálægt sumarbústað sem hann hafði dvalið í. Í ljós kom að hann hafði sofnað undir berum himni án þess að samferðarfólk hans vissi af. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi hafði verið óskað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar og var hún rétt ófarin í loftið þegar að maðurinn fannst. 28.8.2010 09:35
Vill skaðabætur vegna sumarmarkaðar í Hafnarfirði „Ég mun leita réttar míns fyrir dómstólum," segir Jón Hlíðar Runólfsson sem telur Hafnarfjarðarbæ hafa farið á bak við sig og svikið samninga þegar bærinn kom á fót sumarmarkaði á Thorsplaninu nú í sumar. Jón Hlíðar hafi sjálfur farið þess á leit við bæinn að halda utan um sumarmarkað í sömu götur og fengið jákvæðar viðtökur. 27.8.2010 21:39
Sóley kallar á viðræður við Norðurál Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG, leggur til að leitað verði eftir viðræðum við Norðurál um raforkusölusamninga með það að markmiði að auka tekjur Orkuveitu Reykjavíkur. Hún segir að tillögur Orkuveitunnar um gjaldskrárhækkanir hefðu þurft aukna „pólitíska rýningu" af hálfu stjórnar. 27.8.2010 21:20
Situr uppi með ónýta afmælisgjöf Barbara Þóra Kjartansdóttir keypti tölvuleik handa syni sínum í afmælisgjöf. Þegar litli drengurinn ætlaði að spila leikinn virkaði hann ekki og Barbara fór með diskinn aftur í búðina en henni til mikillar undrunar og ama - fær hún ekki að skila leiknum. 27.8.2010 00:01
Útilokar ekki frekari hækkanir Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður OR, útilokar ekki að til frekari gjaldskrárhækkana komi að ári. Í samtali við Heimi Má Pétursson í kvöldfréttum Stöðvar 2 sagði hann ekki víst að þessi hækkun dyggði til að rétta kútinn hjá Orkuveitunni, stjórnendum fyrirtækisins hefði verið gefin heimild til að taka frekari ákvarðanir um gjaldskrárhækkanir tvisvar á ári með hliðsjón af hækkun neysluvísitölu. 27.8.2010 20:01
Ástarsaga í Herjólfi - skipstjórinn gaf þýskt par saman Þýskt par var gefið saman um borð í Herjólfi í vikunni. Það var skipstjórinn sjálfur sem sá um hjónavígsluna en hann segir að athöfnin hafi verið ákaflega rómantísk 27.8.2010 19:35
Blásandi borhola gæti ráðið úrslitum Virkjana- og rannsóknaleyfi á Reykjanesskaga, sem HS Orka sótti um fyrir þremur árum, hafa ekki enn fengist, meðal annars vegna ágreinings vísindamanna um hve mikil orka leynist í iðrum jarðar. Þetta er ein af ástæðum þess að HS Orka telur forsendur orkusamning vegna álvers í Helguvík brostnar. 27.8.2010 19:07
Nýja Lyngdalsheiðin opnuð í september Byrjað er að malbika nýja veginn yfir Lyngdalsheiði, milli Þingvalla og Laugarvatns, en stefnt er að því að hann verði opnaður fyrir umferð eftir rúmar þrjár vikur. 27.8.2010 18:50
Stórhækkun á orkuverði Orkuverð frá Orkuveitu Reykjavíkur mun hækka um 28,5% þann 1. október. Þetta var ákveðið á eigendafundi Orkuveitunnar sem lauk klukkan hálf sjö í dag. Gert er ráð fyrir gjaldskrárhækkunin skili Orkuveitunni fjórum milljörðum króna og að hagræðingaraðferðir skili tveimur milljörðum aukalega í kassann. 27.8.2010 18:47
Fær ekki að flytja með fjölskyldu sína heim Íslenskur maður hefur í tæpt ár reynt að flytjast með konu sína og dóttur til Íslands frá Dóminíska lýðveldinu, en Útlendingastofnun hefur ekki fallist á gögn sem sýna fram á forsjá barnsins. 27.8.2010 18:30
Aðstandendur Hannesar viðstaddir í Héraðsdómi Þáttaskil urðu í rannsókninni á morðinu á Hannesi Helgasyni í dag þegar karlmaður á þrítugsaldri var úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rökstudds gruns um að hann eigi aðild að andláti Hannesar. Aðstandendur Hannesar voru viðstaddir í Héraðsdómi Reykjaness þegar úrskurðurinn var kveðinn upp. 27.8.2010 18:24
Harður árekstur á Miklubraut Engin slys urðu á fólki þegar fólksbíll keyrði aftan á jeppa á Miklubrautinn um klukkan hálf sex í dag. Fólksbíllinn var mikið skemmdur og var fjarlægður af vettvangi af kranabíl. Lögreglan á staðnum sagði alla ómeidda, þetta væri bara vesen, en þung umferð var um Miklubrautina þegar áreksturinn varð. 27.8.2010 17:55
Gunnar Rúnar neitar sök Gunnar Rúnar Sigurþórsson neitar að hafa átt þátt í andláti Hannesar Þórs Helgason en Gunnar var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald siðdegis í Héraðsdómi Reykjaness. Hann hefur áfrýjað úrskurðinum til Hæstaréttar. 27.8.2010 16:26
Gunnar Rúnar leiddur fyrir dómara - myndband Gunnar Rúnar Sigurþórsson var leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness klukkan þrjú í dag. Þar var hann úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald sem rennur út 24. september næstkomandi. 27.8.2010 16:21
55 kaupsamningar þinglýstir Alls voru 55 kaupsamningar þinglýstir á höfuðborgarsvæðinu í vikunni. Þar af voru 45 samningar um eignir í fjölbýli, 8 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.262 milljónir króna og meðalupphæð á samning 22,9 milljónir króna. 27.8.2010 15:52
Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Gunnar Rúnar Sigurþórsson hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðahald í fjórar vikur vegna gruns um að hafa átt aðild að andláti Hannesar Þórs Helgasonar, sem var myrtur á heimili sínu 15. ágúst síðastliðinn. 27.8.2010 14:59
Lögðu hald á 150 lítra af landa á Akureyri Lögreglan á Akureyri lagði hald á 150 lítra af landa eftir húsleit í íðnaðarhúsnæði í gækvöldi. 27.8.2010 14:47
Morðrannsókn: Farið fram á gæsluvarðhald yfir grunuðum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir manni á þrítugsaldri sem er grunaður um morðið á Hannesi Þór Helgasyni sem var ráðinn bani 15 ágúst. 27.8.2010 13:58
Starfsmenn Íbúðarlánasjóðs lýsa yfir stuðningi við umsókn Ástu Starfsmenn Íbúðalánasjóðs lýsa yfir fullum stuðningi við umsókn Ástu H. Bragadóttur um starf framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs og harma þá ákvörðun hennar að draga umsókn sína til baka samkvæmt tilkynningu sem þeir sendu á fjölmiðla upp úr hádegi. Þá sagði einnig í tilkynningunni að starfsmenn hefðu þær upplýsingar að Ásta hefði notið stuðnings meirihluta stjórnar Íbúðalánasjóðs. 27.8.2010 13:23
Ríkisendurskoðun: Það þarf að efla allt eftirlit með þjónustu við fatlaða Samþykkja þarf heildarstefnu um þjónustu við fatlaða og tryggja samræmi hennar milli stofnana og landshluta. Þá þarf að efla allt eftirlit með starfseminni samkvæmt úttekt Ríkisendurskoðunar. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar segir að samkvæmt fjárlögum munu framlög til þjónustu við fatlaða nema samtals 11,2 ma.kr. á þessu ári. 27.8.2010 13:14
Hanna Birna hafnar ásökunum um töffaragang Borgarstjóri Reykjavíkur segist efast um að geta átt samvinnu við Sjálfstæðisflokkinn og sakar hann um töffaragang. Oddviti Sjálfstæðisflokksins segir engan töffaragang í flokknum, og menn megi ekki taka ágreiningi persónulega. 27.8.2010 12:59
Engar eðlisbreytingar á umsóknarferlinu Formaður utanríkisnefndar segir engar eðlisbreytingar hafa átt sér stað á umsóknarferli Íslands að Evrópusambandinu. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir ótækt að sambandið ætli að styrkja umsóknina um fjóra milljarða króna. 27.8.2010 12:40
Árni Páll harmar ákvörðun Ástu Félagsmálaráðherra vonar að nýr forstjóri verði ráðinn til Íbúðalánasjóðs innan fárra vikna. Hann harmar að Ásta H. Bragadóttir starfandi forstjóri skuli hafa dregið umsókn sína til baka. Hann segir að ríkissjóður muni styrkja fjárhagslega stöðu sjóðsins. 27.8.2010 12:24
Plastic Ono Band endurreist á Íslandi í haust Yoko Ono ætlar að kalla saman hljómsveitina Plastic Ono Band í Reykjavík til að minnast 70 ára afmælis John Lennon hinn 9. október næst komandi. Alice Walker, höfundur bókarinnar the Color Purple er ein þeirra sem fær Lennon friðarverðlaunin í ár. 27.8.2010 12:16
Forstjóri Magma stoltur af því að geta kallað Össur „félaga“ Ásgeir Margeirsson, forstjóri Magma á Íslandi, segir að hann og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hafi þekkst lengi og samskipti þeirra hafi verið á þeim nótum. Hann segir stjórnvöld aðeins hafa verið að vinna eftir gildandi lögum og ekkert óeðlilegt sé við tölvupóstssamskipti sín við ráðherra og embættismenn vegna fjárfestingar Magma í HS Orku. 27.8.2010 12:14
Böðvar Jónsson: Setjist niður og semjið svo fólkið fái atvinnu Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar segir Suðurnesin búa við mesta atvinnuleysi á landinu og krefst þess að ráðamenn setjist niður og tryggi að framkvæmdir komist í gang. 27.8.2010 12:09
Segja aðlögunarferli fólgið í ESB-aðildarviðræðum Samtökin Ísafold, Félags Ungs Fólks gegn ESB-aðild, segja aðlögun fólgna í aðildarviðræðum við ESB. 27.8.2010 12:06
Morð í Hafnarfirði: Karlmaður að nýju í haldi lögreglu Karlmaður á þrítugsaldri er í haldi lögreglu vegna rannsóknarinnar á morðinu á Hannesi Helgasyni. 27.8.2010 12:02
ASÍ gagnrýnir landbúnaðarráðherra Hörð gagnrýni kom fram á Jón Bjarnason, landbúnaðarráðherra, á miðstjórnarfundi ASÍ í gær. Fundarmönnum hugnaðist ekki sú ákvörðun Jóns að gera breytingar á tolli á innfluttum landbúnaðarafurðum, að því er fram kemur á vef ASÍ. Þar segir að Jón hafi tekið ákvörðunina einhliða og að hún gangi gegn hagsmunum neytenda þar sem hún verð komi til með að hækka gríðarlega á innfluttum landbúnaðarafurðum. 27.8.2010 11:32
Samið um frumhönnun nýs Landspítala Gengið hefur verið frá samningi um frumhönnun og gerð útboðsgagna milli SPITAL hópsins, sem bar sigur úr bítum í sumar í hönnunarsamkeppni um nýjan Landspítala, og hlutafélagsins Nýr Landspítali ohf., sem stofnað var í vor til að standa að undirbúningi og útboði á byggingu nýs háskólasjúkrahúss við Hringbraut. Útboðsgögn vegna fyrstu framkvæmda eiga að liggja fyrir síðsumars 2011. Samkomulagið var undirritað í dag að viðstöddum heilbrigðisráðherra, rektor Háskóla Íslands og forstjóra Landspítalans. 27.8.2010 11:15
Ungir sjálfstæðismenn verðlauna Brynjar Níelsson og InDefence Samband ungra sjálfstæðismanna hefur ákveðið að veita Brynjari Níelssyni, hæstaréttarlögmanni og formanni Lögmannafélagsins, og InDefence hópnum svonefnd Frelsisverðlaun sambandins í ár. Verðlaunin fær Brynjar fyrir að vera ötull baráttumaður gegn pólitískum rétttrúnaði, líkt og það er orðað í tilkynningu SUS. Um InDefence segir að samtökin eigi hvað mestan heiður skilið fyrir að hindra að gengið yrði að kröfum Breta og Hollendinga Icesave málinu. 27.8.2010 10:55