Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Attac taka þátt í menningarnótt Samtökin Attac á Íslandi sem barist hafa fyrir því að bönd verði sett á fjármálastarfsemi taka þátt í dagskrá menningarnætur. Samtökin hafa tekið höndum saman við aðstandendur undirskriftasöfnunarinnar orkuaudlindir.is. Meðal listamanna sem koma fram á vegum samtakanna eru KK og Ómar Ragnarsson. 21.8.2010 06:00
Formaður fjárlaganefndar ánægður með rekstrarafgang Landspítlans Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, er ánægður með rekstrarafgang Landspítlans sem var jákvæður um tæpar 36 milljónir króna á fyrri hluta þessa árs. Hann segir afar mikilvægt að stofnanir haldi sig innan fjárheimilda. Þá segir Guðbjartur starfsfólks Landspítlans eiga hrós skilið. 20.8.2010 21:59
Fagnar rannsókn á starfsemi lífeyrissjóðanna Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, fagnar rannsókn á starfsemi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins. Hann segir lífeyrissjóðina sýna mikilvægt frumkvæði en það hafi stjórnvöld ekki gert. 20.8.2010 21:03
Missti hendur og fætur en hleypur hálft maraþon á morgun Jamie Andrew missti bæði hendur og fætur eftir hræðilegt slys fyrir ellefu árum en ætlar að hlaupa hálft maraþon á morgun. Hann hleypur á fótum frá Össuri en reiknar ekki með að vera meðal fyrstu manna. 20.8.2010 20:07
Slökkvilið kallað út vegna reyks á Flókagötu Slökkvilið höfuðborgarsvæðsins var kallað út á tíunda tímanum í kvöld þegar tilkynnt var reyk og skynjara í gangi í íbúð við Flókagötu í Reykjavík. Þegar slökkviliðsmenn komu á staðinn kom í ljós að reykurinn stafaði frá potti á eldavél. Óverulegar skemmdir urðu á íbúðinni, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá slökkviliði. 20.8.2010 21:39
Rannsóknin teygir anga sína til Litháens Rannsókn lögreglu á andláti Hannesar Þórs Helgasonar teygir anga sína til Litháens, en hann átti í viðskiptum þar í landi undanfarið. Hannes kom heim frá Litháen á föstudag, rúmum sólarhring áður en hann fannst látinn. 20.8.2010 19:19
Biskup: Æðri dómstólar fara yfir mál séra Ólafs Karl Sigurbjörnsson biskup segir að á Íslandi séu menn saklausir uns sekt þeirra sé sönnuð, kirkjan geti því lítið aðhafst í tengslum við ásakanir á hendur forvera sínum, Ólafi Skúlasyni. Aðrir og æðri dómstólar fari yfir hans mál. 20.8.2010 19:11
Á annað hundrað milljarðar sparast með evruaðild Utanríkisráðherra segir ávinninginn af því að komast á evrusvæðið spari þjóðinni á annað hundrað milljarða á ári. Hann er sannfærður um að Íslendingar nái það góðum samningi við Evrópusambandið að aðild verði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu. 20.8.2010 18:45
Stangast á við ákvæði EES-samningsins Ein stærsta lögmannsstofa landsins telur að bann við gengistryggingu lána í íslenskri mynt sé í andstöðu við ákvæði EES-samningsins, að því er fram kemur í minnisblaði sem stofan vann fyrir fjármögnunarfyrirtæki. 20.8.2010 19:03
Kyrrsetning eigna rýmkuð Skattrannsóknarstjóri er að skoða hvort krafist verði kyrrsetningar eigna í um þrjú hundruð málum. Ríkisstjórnin hyggst rýmka heimildir embættisins til að krefjast kyrrsetningar eigna. 20.8.2010 18:48
Rekstur Landspítalans jákvæður Rekstrarafgangur Landspítala á fyrstu sex mánuðum ársins 2010 nam rúmum 35 milljónum króna, samkvæmt hálfsársuppgjöri sem Ríkisendurskoðun hefur staðfest. Í byrjun ársins var spítalanum gert að lækka rekstrarkostnaðinn um rúm 9% eða 3400 milljónir króna. Með umfangsmiklum hagræðingaraðgerðum sem gripið var til á öllum sviðum spítalans um áramót hefur tekist að ná þessu markmiði, að því er fram kemur í tilkynningu frá spítlanum. 20.8.2010 18:28
Ræðir við borgarbúa í sundskýlunni Jón Gnarr, borgarstjóri, mun fara vítt og breitt um borgina á Menningarnótt á morgun. Í hádeginu ræsir hann til að mynda skemmtiskokkið í Lækjargötu og klukkan þrjú hyggst hann afhjúpa menningarskilti með upplýsingum um bæinn Klambra á Klambratúni. Klukkustund síðar verður hann í Sundhöll Reykjavíkur þar sem hann mun eiga „pottaspjall" við gesti sundlaugarinnar. 20.8.2010 17:56
Mun viðra vel til maraþonhlaupa Það mun viðra ágætlega á hlaupara þegar Reykjavíkurmaraþon hefst í fyrramálið, segir Soffía Sveinsdóttir veðurfréttamaður hjá 365 miðlum. Hún býst við 8 - 9 gráðu hita og bjartviðri með köflum. Hún býst ekki við neinni úrkomu. Vindurinn verði fimm til átta metrar á sekúndu. „Þetta er svona í það svalasta fyrir hlaupara og það gæti orðið mótvindur á Eiðsgranda og Sæbraut, en veðrið verður samt allt í lagi,“ segir Soffía. Þetta þýði samt líka að hálfmaraþonhlauparar fái meðvind á lokasprettinum. 20.8.2010 17:34
Slökkviliðsmanna að meta gæði samningsins Sverrir Björn Björnsson, formaður samninganefndar Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, segir að það sé félagsmanna að meta hvort samkomulagið sem landssambandið og Launanefnd sveitarfélaga undirrituðu í dag sé gott. Í samtali við fréttastofu vildi hann ekki greina frá hvað felst í samkomulaginu. „Innihald samningsins er ekki gefið upp að svo komnu máli. Við kynnum það fyrst fyrir okkar félagsmönnum." 20.8.2010 17:15
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn búnir að semja Kjarasamningur hefur tekist á milli samninganefnda Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Launanefndar sveitarfélaga. Verið er að fagna honum í húsnæði Ríkissáttasemjara þessa stundina. Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn hafa verið samningslausir í heilt ár. 20.8.2010 16:50
Skrifað undir samning um breikkun Suðurlandsvegar Skrifað var í dag 20. ágúst undir samning við verktakafyrirtækið Ingileif Jónsson ehf. um framkvæmdir við áfanga við breikkun Suðurlandsvegar. Áfanginn sem um ræðir er frá Lögbergsbrekku að Litlu kaffistofunni. 20.8.2010 16:34
Samningaviðræður vel á veg komnar Samningafundur milli Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hefur staðið yfir frá því um eittleytið í dag. Viðræður hafa gengið vel í dag samkvæmt upplýsingum Vísis. 20.8.2010 16:02
Vísir sýnir beint frá flugeldasýningunni Vísir og Vodafone verða með beina útsendingu frá flugeldasýningunni á menningarnótt. Umræða um flugeldasýninguna komst í hámæli í ágúst eftir að Jón Gnarr borgarstjóri reifaði þá hugmynd á fésbókardagbók sinni að sleppa flugeldasýningunni þetta skiptið. 20.8.2010 15:29
Hannes reyndi að verjast árásinni Hannes Þór Helgason var með áverka á höndum sem benda til þess að hann hafi reynt að verjast árás morðingja síns. Þetta kom fram á blaðamannafundi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fyrir stundu. 20.8.2010 14:05
Útgjöld drógust saman um 27% Útgjöld til löggæslu, réttargæslu og öryggismála drógust saman um tæp 27% á fyrstu sex mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra, samkvæmt greiðsluuppgjöri ríkissjóðs sem birt var fyrr í vikunni. Fóru úr um það bil 12,3 milljörðum í um það bil 9 milljarða. 20.8.2010 14:00
Nýr skóli fyrir starfsmenn stjórnarráðsins Forsætisráðuneytið ætlar að setja á fót sérstakan Stjórnsýsluskóla Stjórnarráðsins. Með því á að efla endurmenntun og þjálfun starfsmanna ráðuneytanna. Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis sem út kom fyrr á árinu var lögð á það áherslu að fjölga þyrfti í þeim hópi starfsmanna Stjórnarráðsins sem eru vel menntaðir og þjálfaðir og hafa getu til að takast á við mjög flókin og krefjandi verkefni. 20.8.2010 13:44
Sigurður Einarsson óttast ekki að verða ákærður Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, óttast ekki að fá á sig ákæru vegna starfa sinna fyrir Kaupþing. Hann mætti til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara núna klukkan eitt eftir að hafa tekið sér hádegishlé. Hann mætti til yfirheyrslu klukkan níu í morgun en hafði verið í yfirheyrslum í sjö klukkustundir í gær. 20.8.2010 13:03
Boðað til blaðamannafundar vegna morðrannsóknar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur boðað til fréttamannafundar klukkan tvö í dag. Þar verður farið almennt yfir stöðu rannsóknarinnar á andláti Hannesar Þórs Helgasonar, sem ráðinn var bani síðastliðinn sunnudag. 20.8.2010 11:51
Rannsókn á banaslysinu á Grundartanga lokið Stjórnendur Elkem á Íslandi, sem rekur járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga, hafa í kjölfar banaslyss sem varð þegar sprenging varð í verksmiðjunni þann 29. júní síðastliðinn og rannsóknar á því tekið ákvörðun um margþættar aðgerðir til þess að auka enn frekar öryggi starfsemi sinnar. 20.8.2010 11:44
Kvenmannslaust Counter Strike-maraþon Af hundrað og fjörutíu keppendum á tölvuleikjamóti í Counter Strike var engin kvenmaður á meðal þáttakenda. Mótshaldarar segjast hafa orðið fyrir örlitlum vonbrigðum með kynjahlutfallið. 20.8.2010 11:28
Kertafleyting til minningar um Hannes Kertafleyting verður á Læknum í Hafnarfirði á mánudaginn næstkomandi til minningar um Hannes Helgason sem fannst myrtur á heimili sínu um helgina. 20.8.2010 11:04
Háspennulínur í mannsmynd Bandaríska arkitektastofan Choi+Shine fékk nýverið ársverðlaun Arkitektasamtakanna í Boston (The 2010 Boston Society of Architects Award) fyrir hugmynd að burðarvirkjum fyrir háspennulínur sem unnin var fyrir Landsnet árið 2008. Hönnunin kallast „Land of Giants“ og var innlegg stofunnar í samkeppni sem Landsnet blés til það ár. 20.8.2010 10:30
Reykvíkingar niðurgreiða skólavist fyrir börn úr nágrenninu Reykvíkingar niðurgreiða nám fyrir nemendur í Ísaksskóla úr öðrum sveitarfélögum, segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs. 20.8.2010 10:12
Sigurður yfirheyrður af þremur starfsmönnum í einu „Ég geri nú ráð fyrir því að hann hafi gert það,“ segir Ólafur Þór Hauksson Sérstakur saksóknari aðspurður hvort að Sigurður Einarsson, fyrrum stjórnarformaður Kaupþings, hafi mætt til yfirheyrslu klukkan níu í morgun. 20.8.2010 08:35
Vilja að heimkomu verði ekki fagnað Stjórnvöld í Bretlandi hafa biðlað til stjórnvalda í Líbýu að tryggja að það verði ekki fagnað á opinberlegum vettvangi að eitt ár sé liðið frá því Abdelbaset Ali Mohmed al-Megrahi, sem var dæmdur fyrir Lockerbie tilræðið, var látinn laus úr haldi í Skotlandi. 20.8.2010 08:32
Sigurður Einarsson yfirheyrður í sjö klukkutíma Yfirheyrslum yfir Sigurður Einarssyni, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings, verður fram haldið í dag. Sigurður mætti til yfirheyrslu klukkan níu í gærmorgun til Sérstaks saksóknara og ræddi hann við menn þar á bæ í sjö klukkutíma. 20.8.2010 07:00
Fimm útlendingar keyrðu of hratt í Hörgárdal Lögreglan á Akureyri hafði afskipti af fimm ökumönnum á stuttu millibili í Hörgárdalnum í gærkvöldi sem óku langt yfir hámarkshraða. 20.8.2010 06:59
Börðust við eld í Straumsvík í tvo tíma Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu barðist í tvo tíma við eld í álverinu í Straumsvík í gærkvöldi. Eldurinn kom upp á tíunda tímanum í kjallara steypuskála álversins og er talið hugsanlegt að bráðið ál hafi lekið í kjallarann og kveikt þar í rafmagnsköplum. 20.8.2010 06:57
Erlendir ferðamenn rændir í Laugardal Þýski ferðabókahöfundurinn Ulf Hoffmann frá Berlín varð fyrir þeirri leiðinlegu upplifun að óprúttnir einstaklingar hentu, að því er hann taldi, tveggja kílóa grjóthnullungi í tjald hans með þeim afleiðingum að það skemmdist, á tjaldsvæðinu í Laugardal í sumar. 20.8.2010 06:00
Skil einfaldlega ekki hver getur gert svona „Ég skil einfaldlega ekki hver getur gert svona. Ég bara sit og bíð eftir því að þessi manneskja finnist,“ segir unnusta Hannesar Þórs Helgasonar í samtali við Fréttablaðið. Hún vildi ekki koma fram undir nafni. 20.8.2010 06:00
Slitastjórn vill gögn um Iceland Express Pálmi Haraldsson, aðaleigandi Iceland Express, sakar slitastjórn Glitnis um að reyna að afla samkeppnisupplýsinga um starfsemi Iceland Express í Bandaríkjunum í dómsmáli sem höfðað hefur verið fyrir dómstóli í New York. 20.8.2010 06:00
Stjórnin handbendi heilbrigðisráðherra - fréttaskýring Er eitthvað athugavert við að heilbrigðisráðherra hafi skipt stjórn Sjúkratrygginga Íslands út á einu bretti? 20.8.2010 06:00
Misréttið bein afurð ósjálfbærra stjórnmála „Misréttið í heiminum er bein afurð ósjálfbærrar stjórnmálastefnu sem fyrst og fremst snýst um arðrán á auðlindum,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra og varaformaður VG, í ræðu á Hólahátíð síðastliðinn sunnudag. 20.8.2010 06:00
Hundrað hæstu fá svipuð laun og 2004 Eitt hundrað tekjuhæstu einstaklingar í landinu höfðu að meðaltali fimm milljónir króna í launatekjur á mánuði árið 2009. Tekjur þeirra eru nú svipaðar og á árunum 2004 og 2005 en innan við helmingur þess sem þær voru árið 2007 þegar þær voru 11,2 milljónir króna á mánuði að meðaltali. 20.8.2010 05:45
Gylfa skorti tíma til að kynna sér málið Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segist ekki hafa haft nægan tíma að kynna sér feril minnisblaðamálsins þegar hann sagði í Kastljósþætti RÚV, 10. ágúst, að þann 1. júlí hefði hann ekki vitað af vinnu Seðlabankans um lögmæti gengistryggingar. 20.8.2010 05:45
Gegn ofbeldi og misnotkun kirkjur á Íslandi munu á næstunni lýsa því sameiginlega yfir að þær taki afstöðu gegn misnotkun og ofbeldi í hvaða mynd sem er. 20.8.2010 05:30
Engin paradísarheimt undir Helgafelli Gert var ráð fyrir stórri íbúðabyggð í frjósömu landbúnaðarlandi ofan við Álafosskvosina fyrir fjórum árum. Nú er þar búið í þremur nýjum húsum og einni blokk. Köngulóarvefir hanga í nokkrum auðum húsum. Slysahætta fyrir börn, segja íbúar sem aka fram hjá grunnum húsa á hverjum degi. Fyrirtækið sem sá um skipulag og sölu lóða á svæðinu á nú í viðræðum við lánardrottin. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson fór með Gunnari V. Andréssyni ljósmyndara um hverfið. 20.8.2010 05:00
Hagnast um 1,3 milljarða króna Eimskip hagnaðist um 7,5 milljónir evra, jafnvirði 1,3 milljarða króna, á fyrri helmingi ársins. Þar af nam hagnaðurinn á öðrum ársfjórðungi 12,2 milljónum evra. Þetta er umfram væntingar. 20.8.2010 04:45
Gefið nafn á menningarnótt Jón Gnarr borgarstjóri gefur Klambratúni nafn sitt að nýju á menningarnótt. Á menningarnótt kl. 15 mun Jón Gnarr borgarstjóri afhjúpa nýtt fræðsluskilti eða menningarmerkingu á íslensku og ensku um sögu Klambratúns um leið og hann gefur því sitt gamla nafn að nýju í stað Miklatúns eins og það var látið heita árið 1964. 20.8.2010 04:30
Friðlandið mun verða stækkað Umhverfisráðherra hefur tilkynnt að stækka eigi friðlandið í Þjórsárverum og fagnar Landvernd ákvörðuninni. 20.8.2010 04:30