Fleiri fréttir

Nafn mannsins sem lést í sjósundi

Maðurinn sem drukknaði í sjósundi á laugardagskvöldið í Stykkishólmi hét Marís Þór Jochumsson en hann var 39 ára gamall, fæddur 28. október 1970. Hann var til heimilis að Vindási 4 í Reykjavík. Hann lætur eftir sig unnustu og börn úr fyrra sambandi.

Lagfæringar á veginum inn í Þórsmörk að hefjast

Lagfæringar á veginum inn í Þórsmörk hefjast í vikunni og reiknað er með að fært verði inn í Mörk um næstu helgi. Það er eigi að síður í valdi Almannavarna hvort umferð verði leyfð á svæðinu samkvæmt upplýsingum sem finna má á vefsíðu Vegagerðarinnar.

Kaupþing og Landsbankinn styrktu Gísla Martein um milljón

Kaupþing og Landsbankinn styrktu Gísla Martein Baldursson, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, um eina milljón króna fyrir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna árið 2006. Þetta segir Gísli Marteinn í samtali við Vísi. Eins og DV hafði áður greint frá styrktu Baugur og FL Group Gísla Martein jafnframt um milljón hvor.

Fámenn mótmæli fyrir utan stjórnarráðið

Um fimmtíu mótmælendur mótmæltu fyrir utan stjórnarráðið á meðan ríkisstjórnarfundur fór fram þar innandyra í morgun. Mótmælin eru á vegum Heimavarnarliðsins sem eru samtök sem mótmæla uppboðum á heimilum.

Ljóshærður stubbur kýldi mann

Ungur lágvaxinn, ljóshærður maður sló annan hnefahöggi í andlitið þar sem hann var á dansgólfinu á 800 bar á Selfossi í fyrrinótt. Sá sem varð fyrir högginu mun hafa nefbrotnað. Árásarmaðurinn var farinn af staðnum þegar lögreglan kom þar. Maðurinn hafði, ásamt öðrum, verið til leiðinda á staðnum og reynt að stofna til óláta. Lögreglan á Selfossi biður þá sem voru vitni að árásinni að hafa samband í síma 480 1010.

Útilokar ekki bensínlækkun

Ekki er útilokað að eldsneytisverð verði lækkað í dag, segir Hermann Guðmundsson, forstjóri N1. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað umtalsvert liðna daga og fór tunnan á Norðursjávarolíu undir 70 dollara.

Nokkur skip á síldarveiðum austur af landinu

Nokkur skip eru byrjuð veiðar úr norsk- íslenska síldarstofninum austur af landinu. Skipin veiða með flottrollum sem dregin eru í nokkrar klukkustundir í senn. Að sögn stýrimanns á einu skipanna í morgun, hafa skipin aðeins fengið slatta í hverju holi og er ekki mikla síld að sjá á miðunum, enn sem komið er. Í ráði er að frysta sem allra mest af aflanum á vertíðinni, bæði um borð í vinnsluskipum og í landi, til að auka verðmæti aflans.

Sinubrunar í Hafnarfirði og Breiðholti

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var tvívegis kallað út vegna sinubruna í gærkvöldi, annarsvegar í Hafnarfirði og hinsvegar í Breiðholti. Í báðum tilvikum var um minniháttar bruna að ræða og var hann slökktur á skammri stundu. Minna hefur verið um sinubruna á höfuðborgarsvæðinu í vor en undanfarin ár.-

Engin eldsumbrot í Eyjafjallajökli

Allt virðist hafa verið með kyrrum kjörum í Eyjafjallajökli í nótt eftir að nokkrir smáskjálftar mældust í jöklinum, suðvestur af Básum í Þórsmörk í gærkvöldi. Síðan hefur allt verði rólegt í jöklinum, en kraftur er að færast í hreinsunarstarf.

Fyrsta ferðahelgin lofar góðu

Töluvert mikil umferð var til höfuðborgarsvæðisins síðdegis í gær og fram á kvöld. Um tíma voru samfelldar bílaraðir bæði á Suðurlands- og Vesturlandsvegum, en engin óhöpp eða slys urðu. Að sögn lögreglu bar líka óvenju lítið á hraðakstri eða framúrakstri, þannig að ökumenn sýndu þolinmæði. Þessi fyrsta umferðarhelgi sumarsins þykir því lofa góðu.-

Europol aðstoðar við rannsókn kókaínmálsins

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann átta milljónir króna í tveimur aðskildum bankahólfum í tengslum við rannsókn sína á kókaínmáli, þar sem reynt var að smygla þremur kílóum af mjög hreinu kókaíni í ferðatöskum til landsins frá Spáni í síðasta mánuði.

Hefur ekki gefið sér tíma enn

„Ég geri það á morgun eða hinn,“ sagði Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi í gær, spurður hvenær hann hyggst gefa upp nöfn þeirra fyrirtækja sem gáfu honum styrki fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2006.

Allt féð verði notað í viðhald á vegum

Sveitarstjórnarmenn og forsvarsmaður Vegagerðarinnar telja að viðhald og þjónusta eigi að vera í forgangi næstu árin á kostnað nýframkvæmda. Þeir segja gott dæmi um niðurskurð til vegamála að aðeins tólf milljónir króna eru eyrnamerktar vegamálum á Norðurlandi vestra á gildistíma samgönguáætlunar til ársins 2012. Svipaða sögu er að segja um allt land.

Skýrsla um Álftanes eftir kosningar

Ríkisendurskoðun segir að niðurstöður athugunar á fjárhagsstöðu sveitarfélagsins Álftanes muni ekki verða kynntar fyrr en um miðjan júní.

Nýjum þunglyndislyfjum gæti seinkað

Breytingar á greiðsluþátttöku heilbrigðisyfirvalda á þunglyndislyfjum gætu þýtt að ný lyf komi seinna á markað hér á landi, en ættu ekki að hafa neikvæð áhrif á meðferð þunglyndissjúklinga, segir Þórður Sigmundsson, yfirlæknir á bráðamóttökudeild geðsviðs Landspítalans.

Mælingar segja ekkert strax

„Ennþá er ekki alveg ljóst hvort kvikuaðstreymið hafi núna haldið áfram að neðan, og fjallið þá þanist út, og það er það sem skiptir sköpum í því hvort framhald verður á þessari sögu eða ekki. Slíkt kemur ekki í ljós fyrr en næstu daga, og það gætið tekið viku og upp í tíu daga að afskrifa þessa atburðarás,“ segir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur.

Formaður telur stöðuna óbreytta

Unnur G. Kristjánsdóttir, formaður þingkjörinnar nefndar um erlenda fjárfestingu, segist ekki telja, í fljótu bragði, að nefndin þurfi að fjalla á ný um viðskipti Magma Energy og Geysi Green Energy með hlutabréf í HS Orku en Magma hefur eignast 98,53 prósent í GGE.

Kýrnar ánægðar að komast út í sumarið

„Hér ríkir náttúrulega mikil gleði og menn urðu strax bjartsýnir þegar ljóst var að gosið væri hugsanlega að stöðvast. Við settum kýrnar út í fyrsta skipti í dag og þær voru að vonum ánægðar,“ segir Heiða Björg Scheving frá bænum Hvassafelli, sem er einn af Steinabæjum undir Eyjafjöllum.

Þung umferð frá Selfossi til Reykjavíkur

Það er bíll við bíl frá hringtorginu á Selfossi langleiðina til Reykjavíkur að sögn varðstjóra lögreglunnar á Selfossi. Ferðamennirnir eru farnir að halda heim á leið en gríðarlega fjöldi manns fóru úr bænum um Hvítasunnuhelgina.

Lilja Mósesdóttir: Margir sagt sig úr VG vegna Magma

„Ég hef fengið mjög harðorða gagnrýni frá mínum stuðningsmönnum og margir hafa sagt sig úr flokknum vegna málsins,“ segir Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs um óánægju með kaup kanadíska orkufyrirtækisis Magma á hlut Geysis Green Energy á HS Orku.

Vinnufundi vegna gossins frestað

Vegna hugsanlegra gosloka er vinnufundi vegna eldgossins í Eyjafjallafjallajökli sem vera átti á morgun, þriðjudaginn 25. maí á Hvolsvelli, frestað um óákveðinn tíma samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum.

Lúðvík Geirsson: „Það er allt í járnum“

„Ég er sannfærður um að stuðningur íbúanna muni skila sér í kjörkassann á laugardaginn,“ segir Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, en hann nær ekki kosningu inn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar samkvæmt nýjustu skoðanakönnuninni sem félagsvísindastofnun framkvæmdi fyrir viku síðan.

Líklegra að Jón Gnarr verði borgarstjóri en Sóley Tómasdóttir

Veðmálafyrirtækið Betsson ætlar ekki að láta komandi sveitstjórnarkosningar á Íslandi framhjá sér fara. Meðal annars er hægt að veðja á hver verði næsti borgarstjóri í Reykjavík. Líklegast er að Dagur eða Hanna Birna hljóti nafnbótina samkvæmt veðmálasíðunni.

Suður-Kórea setur viðskiptabann á Norður-Kóreu

Suður Kórea hefur hætt öllum viðskiptum við Norður Kóreu og krafist afsökunarbeiðni, eftir að rannsókn leiddi í ljós að Norður Kóreumenn hafi sökkt herskipi sunnanmanna sem kostaði 46 manns lífið. Norður Kóreumenn segja rannsóknina óþolandi og alvarlega ögrun.

Annar flugritinn fundinn

Annar flugriti indversku flugvélarinnar sem fórst í Mangalore á laugardag er fundinn en hann inniheldur upptökur á samræðum flugmanna í flugstjórnarklefanum fyrir slysið.

Segir Framsókn eiga hugmyndina um uppboðsmarkað á gjaldeyri

Eygló Harðardóttir þingmaður Framsóknarflokksins segir áhugavert að stjórnarliðar hafi loksins séð ljósið varðandi uppboðsmarkað á gjaldeyri, eins og Framsóknarflokkurinn hafi áður lagt til. Flokkurinn hyggst leggja þetta til á ný og vonist til að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hætti að standa í vegi fyrir að þessi leið verði farin.

Ísland er barn-fjandsamlegt samfélag

„Aðaldánarorsök barna á Íslandi eru slys,“ segir Herdís Storgaard, forstöðumaður Forvarnarhússins, en alþjóðleg rannsókn var kynnt á dögunum þar sem í ljós kom að Ísland er með lægstu dánartíðni barna undir fimm ára í hinum vestræna heimi. Bretar eru hinsvegar á botninum.

Flugraskanir þrátt fyrir gosleysi

Þótt gosinu í Eyjafjallajökli sé lokið halda raskanir á flugi áfram í Bretlandi því á miðnætti lögðu flugliðar British Airways niður vinnu.

Leigusamningum fækkar verulega

Rúmlega tuttugu prósent færri leigusamningar íbúðahúsnæða voru gerðir í apríl miðað við marsmánuð.

Samfylkingin sækir á í Hafnarfirði

Samfylkingin virðist vera að sækja á í Hafnarfirði ef marka má niðurstöður skoðanakönnunar sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Samfylkinguna og Vísir hefur undir höndum. Könnunin var gerð rúmri viku síðar en könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 frá því í byrjun mánaðarins. Í þeirri könnun fékk Samfylkingin aðeins fjóra menn kjörna og var nokkuð langt frá kjörfylgi sínu fyrir fjórum árum þegar flokkurinn fékk sjö bæjarfulltrúa. Könnun Félagsvísindastofnunar bendir hins vegar til þess að Samfylkingin eigi möguleika á að halda hreinum meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.

Aðalatvinnugreinarnar í uppnámi

Ferðaþjónusta og landbúnaður tvær aðalatvinnugreinarnar á Suðurlandi eru í uppnámi, vegna eldgossins undanfarnar fimm vikur. Sumstaðar hafa bókanir ferðamanna í sumar hrunið.

Segja frumvarp um hjúskaparlög andkristið

Umsagnaraðilar nýs frumvarps um hjúskaparlög óttast sumir að það muni leiða bölvun yfir land og þjóð og segja frumvarpið andkristið. Þá brjóti það gegn eðli hjónabandsins sem stofnunar.

Gosinu lokið í bili

„Það er engin kvika að koma upp og gosið er dottið niður. Tíminn verður að leiða í ljós hvort þetta sé endir gossins eða hlé. Við vitum það ekki,“ segir Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands. Hann og Ómar Ragnarsson flugu yfir Eyjafjallajökul á fjórða tímanum í dag.

Sinubruni í Tálknafirði

Slökkviliðsmenn á sunnanverðum Vestfjörðum börðust við sinubruna í Tálknafirði ásamt heimamönnum fram á kvöld. Tilkynning um brunann skömmu eftir klukkan fjögur í dag. Slökkvistarf stóð enn yfir á áttunda tímanum, að sögn íbúa í Tálknafirði. Bruninn kom upp í sinu rétt fyrir utan bæjarfélagið.

Sækir ekki gull í greipar Kópavogsbúa

Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar, segir að fyrrverandi landeigendur lands á Vatnsenda muni ekki sækja gull í greipar Kópavogsbúa. Í fréttum Ríkissjónvarpsins kom fram í gær að Kópavogsbær ætti yfir höfði sér 14 milljarða kröfu vegna lands á Vatnsenda sem tekið var eignarnámi fyrir þremur árum. Lögmaður landeiganda sagði bæjaryfirvöld í Kópavogi ekki hafa staðið við gerða samninga. Hann sagði ennfremur að málið væri á leið fyrir dómstóla.

Sjá næstu 50 fréttir