Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjölmennasta útskrift í sögu FAS Í dag fór fram fjölmennasta útskrift frá Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu til þessa. Að þessu sinnu voru útskrifaðir 19 stúdentar, fjórir af skrifstofubraut, þrír sjúkraliðar og einn stuðningsfulltrúi. 22.5.2010 17:43
Jón Gnarr hafnar Hönnu Birnu Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins, hafnar Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, oddvita sjálfstæðismanna sem borgarstjóra. Þetta kemur fram í þætti Hrafns Gunnlaugssonar „Reykjavík - Hvað næst?“ á sjónvarpsstöðinni ÍNN sem sýndur verður annað kvöld. 22.5.2010 16:54
Formannsframbjóðendur fordæma aðild Breta að innrásinni í Írak Tveir frambjóðendur í leiðtogakjöri breska Verkamannaflokksins fordæma innrás bandamanna í Írak vorið 2003. Þeir segja að flokkurinn hefði aldrei átt að styðja árásina. 22.5.2010 16:34
Kosningaumfjöllun Stöðvar 2 hefst í kvöld Kosningaumfjöllun Stöðvar 2 hefst í kvöld og stendur allt fram að sveitarstjórnarkosningum laugardaginn 29. maí. Málefnum stærstu kjördæma landsins verða gerð skil og talað við frambjóðendur. 22.5.2010 16:29
Fluttur á slysadeild Karlmaðurinn sem slasaðist illa á hendi í Vífilsfelli fyrir hádegi er kominn á slysadeild. Maðurinn, sem er á sextugsaldri, var á ferð með hópi göngufólks í fellinu þegar hann hlaut opið beinbrot á handlegg. 22.5.2010 15:50
Engar tilkynningar um öskufall Engar tilkynningar hafa borist af öskufalli í dag vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Gosmökkurinn er í um 4 kílómetra hæð samkvæmt athugun könnunarflugs sem farið var eftir hádegi. Hæg austlæg vindátt ber mökkinn til vesturs. Þetta er meðal þess sem kemur fram í stöðuskýrslu Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands. 22.5.2010 15:31
Flytja manninn niður Vífilsfell Björgunarsveitarmenn af höfuðborgarsvæðinu vinna nú að því að koma karlmanni á sextugsaldri sem slasaðist fyrir hádegi niður Vífilsfell. Maðurinn handleggsbrotnaði þar hann varð fyrir grjóthruni á ellefta tímanum og er um að ræða opið beinbrot, að sögn Ólafar Snæhólm upplýsingafulltrúa Landsbjargar. 22.5.2010 14:58
Vísar orðum iðnaðarráðherra á bug - ekki við lífeyrissjóðina að sakast Arnar Sigurmundsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, vísar orðum iðnaðarráðherra um illa gangi að fjármagna stóriðjuframkvæmdir vegna tregðu lífeyrissjóðanna til að fjárfesta í íslenska orkugeiranum á bug. Hann segir að ekki sé við lífeyrissjóðina að sakast. 22.5.2010 14:42
Reyna að koma í veg fyrir verkfall Samningaviðræður hófust á ný í dag á milli yfirmanna British Airways og flugliða fyrirtækisins sem hafa boðað til fimm daga verkfalls frá og með næsta mánudegi. 22.5.2010 13:43
Hallgrímur Helgason: Förum úr einu bullinu í annað „Þetta er hálf sorglegt. Við erum að fara úr einu bullinu í annað. Ég er hræddur um að þjóðin endi upp með ennþá meiri þynnku eftir að hafa kosið þetta yfir sig,“ segir rithöfundurinn Hallgrímur Helgason um gott gengi Besta flokksins í skoðanakönnunum. 22.5.2010 13:24
Allir fá vinnu hjá Vinnuskóla Reykjavíkur Allir sem skráðir eru í Vinnuskóla Reykjavíkur fá vinnu, en 2700 hafa þegar skráð sig. Formlegur umsóknarfrestur um sumarvinnu hjá Vinnuskóla Reykjavíkur er liðinn en enn er þó opið fyrir skráningar nemenda. Vinnuskólinn segir að erfitt geti verið að uppfylla óskir þeirra sem sækja um núna til dæmis hvað varðar val á vikum. Allir sem skrái sig fái þó vinnu. 22.5.2010 12:53
Borgarfulltrúi VG vill að skemmtistaðir loki klukkan þrjú Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstri grænna, hefur sagt sig úr stýrihóp um staðsetningu og opnunartíma áfengisveitingastaða vegna óánægju með hægagang og vinnubrögð hópsins. Hann vill fara að tillögum íbúa miðbæjarins og loka skemmtistöðum klukkan þrjú. 22.5.2010 12:22
Meintir kókaínsmyglarar áfram í varðhaldi Fjórir karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 18. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almannahagsmuna. Mennirnir eru grunaðir um aðild á innflutningi kókaíns hingað til lands frá Spáni í apríl. Um er að ræða rúmlega 3 kíló af mjög hreinu kókaíni. 22.5.2010 11:59
Sækja slasaðan mann á Vífilsfell Björgunarsveitarmenn af höfuðborgarsvæðinu eru nú á leið upp á Vífilsfell til að sækja slasaðan mann. Maðurinn sem er á sextugsalri er ekki talinn vera mikið slasaður en hann er af öllum líkindum handleggsbrotinn og lemstraður. 22.5.2010 11:36
Sigurjón Þórðar: 17. júní er ekki pylsu- og blöðruhátíð barna „Það getur aldrei orðið annað en óhappaverk að afsala Íslandi umráðum yfir fiskveiðiauðlindinni en það er sérstaklega ósmekklegt að hefja slíkt ferli á sjálfan þjóðhátíðardaginn, dýpra verður ekki sokkið,“ segir Sigurjón Þórðarson, formaður Frjálslynda flokksins. 22.5.2010 10:56
Laumuðust inn í skólann og pöntuðu pizzur Þrír 12 ára drengir laumu sér inn í Sunnulækjarskóla á Selfossi í gærkvöldi og komu sér vel fyrir. Á sama tíma voru starfsmenn að störfum við ræstingar og lítur allt út fyrir að drengirnir hafi af þeim sökum komist inn um ólæstar dyr. eir unnu engar skemmdir og gerðu sig ekki líklega til stela innanstokksmunum, að sögn lögreglunnar. Aftur á móti höfðu þeir hringt úr síma í skólanum og pantað allmargar pizzur þegar lögregla kom á vettvang. Forráðamenn sóttu drengina og tókst lögreglu að afpanta pizzurnar. 22.5.2010 10:33
Enn dregur úr gosinu Enn dregur úr gosinu í Eyjafjallajökli að sögn Sigþrúðar Árnadóttur starfsmanns Veðurstofu Íslands. Nokkrir litlir skjálftar mældust í nótt, flestir voru þeir grunnir en verið er að afla frekari upplýsinga um gosóróan á Veðurstofunni. 22.5.2010 10:14
Ók ölvaður á hús á Akranesi Ekið var á hús á Akranesi laust eftir klukkan fjögur í nótt. Ökumaður fólksbílsins er á þrítugsaldri og er talinn hafa verið ölvaður. Hann var einn í bílnum og var handtekinn og færður til sýnatöku. Ekki urðu teljandi skemmdir á raðhúsinu en bifreiðin er gjörónýt. 22.5.2010 10:12
Drengurinn fundinn 15 ára drengur sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir um miðjan dag í gær, er fundinn. fór frá heimili sínu um miðnætti laugardagskvöldið þann 15. maí síðastliðinn og hafði ekki spurst til hans síðan þegar lögregla lýsti eftir honum. Lögregla þakkar fyrir aðstoð við leit að drengnum. 22.5.2010 09:55
Hafnaði utanvegar með gröfu Betur fór en á horfðist þegar umferðaróhapp varð á Biskupstungnabraut skammt frá Selfossi á tólfta tímanum í gærkvöldi. Þar mættust tveir bílar og var öðrum þeirra ekið öfugum vegarhelmingi sem varð til þess að sá sem á móti komi sveigði til hliðar og hafnaði utanvegar. Ökumaðurinn bifreiðarinnar var með kerru í eftirdragi. Á henni var grafa sem þeyttist af og skemmdist talsvert. Engin slys urðu á fólki en mikil þoka var á svæðinu þegar óhappið varð, að sögn lögreglunnar á Selfossi. 22.5.2010 09:53
Borgarbúar refsa hrunflokkunum Besti flokkurinn nýtur stuðnings tæplega 44 prósenta kjósenda og fær átta borgarfulltrúa af fimmtán, og þar með hreinan meirihluta í komandi kosningum. Þetta eru niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var á fimmtudag. 22.5.2010 06:00
Yngstu þjófarnir voru átta ára Yngstu einstaklingarnir sem lögregla hafði afskipti af vegna hnupls á síðustu þremur árum voru átta ára, en hinir elstu 88 ára. Þetta kemur fram í afbrotatölfræði Ríkislögreglustjóra, sem embættið hefur tekið saman fyrir árin 2007 til 2009. 22.5.2010 06:00
Leita réttar síns eftir þriggja daga fangelsi Tvær konur frá Rúmeníu leita nú réttar síns eftir það sem þær vilja meina að hafi verið ólögmæt frelsissvipting þegar þær sóttu hér landið heim í síðasta mánuði. 22.5.2010 05:30
Borgari elti bílþjóf og hélt honum föngnum „Nei, ég var ekkert hræddur. Þessir strákar eru í mesta lagi fimmtíu kíló með skólatösku,“ segir Andri Þór Sigurjónsson, þrítugur tölvumaður, sem í gær handsamaði bílþjóf eftir eftirför frá Smáralind upp í Grafarholt. 22.5.2010 05:30
Fá vinnu við gosstöðvarnar Um fjörutíu störf verða til við aðstoð við búskap í sveitum við Eyjafjallajökul á næstunni. Samkomulag náðist um þetta í gær. 22.5.2010 05:00
Viðskipti, tækni og lög eiga heima í HR „Ef til verkaskiptingar kemur þá held ég að fjárhagslegar og faglegar forsendur mæli frekar með því að við tækjum að okkur þessi kjarnafög sem við erum með, viðskipti, tækni og lög," segir Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík. „Við erum tilbúin til að ræða hugmyndir, svo lengi sem þær eru á faglegum forsendum." 22.5.2010 04:45
Ný hunangsfluga nemur land Ný tegund af hunangsflugu virðist hafa fest rætur hér á landi. Flugan heitir rauðhumla og er ólík þeim hunangsflugum sem fyrir voru á landinu, því hún er rauð en ekki með gulum og svörtum röndum. 22.5.2010 04:30
Fundur hjá sáttasemjara Ríkissáttasemjari hélt fund í deilu kennara og sveitarfélaganna í gær. Deiluaðilar ná ekki saman um hvaða hækkanir kennurum ber samkvæmt stöðugleikasáttmálanum frá júní í fyrra. Þar var gert ráð fyrir að engar hækkanir yrðu greiddar á launataxta yfir 210.000 krónum. Síðan hefur ríkið samið við sína starfsmenn um hækkanir til þeirra sem eru undir 310.000 krónum. 22.5.2010 04:00
Urriðafossvirkjun deiluefnið Íbúi í Flóahreppi hefur kært samning sem sveitarfélagið hefur gert við Árborg og Landsvirkjun til samgönguráðherra. Samkvæmt samningnum mun Landsvirkjun greiða vatnsveitu úr Árborg samþykki Flóahreppur aðalskipulag með Urriðafossvirkjun. 22.5.2010 03:15
Margir ná ekki endum saman Tæplega fjörutíu prósent heimila landsins, eða 39 prósent, áttu erfitt með að láta enda ná saman á síðasta ári. Þetta kemur fram í lífskjararannsókn Hagstofunnar. 22.5.2010 03:00
Tæplega 80% í Þjóðkirkjunni Hlutfall landsmanna átján ára og eldri sem eru skráðir í Þjóðkirkjuna hækkar lítillega milli ára samkvæmt samantekt Hagstofu Íslands. Um 78,8 prósent Íslendinga á kosningaaldri voru skráðir í Þjóðkirkjuna 1. janúar síðastliðinn, en hlutfallið var 78,5 prósent í janúar í fyrra. 22.5.2010 02:30
Ráðuneyti hefur ekki staðfest Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur ekki staðfest umdeilt álit reikningsskila- og upplýsinganefndar sveitarfélaga um að auka megi bókfært eigið fé sveitarfélaga um milljarða með því að verðmeta lönd og leigulóðir í efnahagsreikningi út frá áætluðu söluverði eða framtíðartekjum af lóðaleigu. 22.5.2010 02:00
Svangir landhelgisgæslumenn lentu á þyrlu á Sauðárkróki Svangir landhelgisgæslumenn lentu rétt í þessu við miðbæ Sauðárkróks eða nánar tiltekið á bak við Þreksport samkvæmt vefnum Feykir.is. 21.5.2010 20:54
Stórlega dregið úr gosinu Stórlega hefur dregið úr gosinu og má ætla að kvikuflæðið sé nærri 5 tonn á sekúndu miðað við að það var um 200 tonn þegar mest fyrr í vikunni. 21.5.2010 21:16
ÍTR mótmælir aðildarviðræðum við ESB á þjóðhátíðardeginum Allir fulltrúar Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar, nema Oddný Sturludóttir, samþykktu bókun á fundi ráðsins í dag þar sem því var mótmælt að aðildarviðræður á milli Íslands og Evrópusambandsins yrðu hafnar 17. júní næstkomandi. 21.5.2010 20:46
Enn einn pilturinn stígur fram og segist hafa lent í meintum nauðgara Tvítugur piltur í Hafnarfirði sem segist hafa verið nauðgað af þrítugum karlmanni vonar að hann verði dæmdur í fangelsi. Hann upplifði mikla skömm og niðurlægingu eftir atvikið en hann hefur leitað til Stígamóta og gengið til sálfræðings vegna þess. Annar piltur hefur kært manninn fyrir nauðgun en alls hafa fjórir piltar sakað manninn um að hafa leitað á sig. 21.5.2010 19:15
Vilja póstsamskipti Jóhönnu við Láru vegna launamáls seðlabankastjóra Fulltrúar minnihlutans í efnahags- og skattanefnd Alþingis hafa óskað eftir að sjá tölvupóstsamskipti forsætisráðuneytis og formanns bankaráðs Seðlabankans þar sem launamál Seðlabankastjóra eru rædd. Þingmenn vilja fá úr því skorið hvort forsætisráðherra hafi sagt sannleikann í málinu. 21.5.2010 18:45
Illa gengur að fjármagna stóriðju - Katrín bendir á lífeyrissjóðina Illa gengur að fjármagna stóriðjuframkvæmdir vegna tregðu lífeyrissjóðanna til að fjárfesta í íslenska orkugeiranum. 21.5.2010 18:37
Besti flokkurinn með hreinan meirihluta Besti flokkurinn fær hreinan meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur, 8 kjörna fulltrúa af fimmtán, samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2, en rúm vika er í kosningar. 21.5.2010 18:30
Stefna að því að halda Landsmót hestamanna í sumar Í dag fór fram fundur í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu með öllum hagsmunaaðilum innan hestamennskunnar samkvæmt tilkynningu frá Landssambandi hestmamannafélaga. 21.5.2010 17:50
Björk Guðmundsdóttir gagnrýnir Magma-viðskiptin harðlega „Ég get ekki lengur staðið þögul hjá vegna einkavæðingar á íslenskri náttúru,“ segir Björk Guðmundsdóttir í lesendabréfi sem birtist á heimasíðu tímaritstin Grapevine og er á ensku. 21.5.2010 17:37
Fundu þrjú kíló af kannabis og 90 plöntur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Breiðholti um hádegisbil í gær. 21.5.2010 17:10
Mun færri kaupa sér bíla Nýskráningum ökutækja hefur fækkað um 12,49% á milli ára, samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu. Það sem af er árinu hafa 1.233 ökutæki verið nýskráð en þau voru 1.409 á sama tíma á síðasta ári. 21.5.2010 15:23
Staðfest að gull finnst í jörðu á Austurlandi Ástralskt fyrirtæki, sem óskað hefur eftir að leita að gulli á Austurlandi, gæti fengið leyfið innan tveggja mánaða, ef umsagnir verða jákvæðar. 21.5.2010 18:52
Almannaheill samþykkja siðareglur Á aðalfundi Almannaheilla, samtaka þriðja geirans, voru samþykktar samhljóða siðareglur fyrir samtökin en unnið hefur verið að gerð þeirra í vetur. Á fundinum, sem haldinn var 19. maí síðastliðinn í húsi Krabbameinsfélags Íslands, var því sérstaklega fagnað að samtökin hefðu nú sett sér slíkar reglur og vonandi gætu þær einnig orðið öðrum gott fordæmi. 21.5.2010 16:19