Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Töluvert tjón í eldsvoða í Hveragerði Töluvert tjón varð þegar eldur kviknaði í þúsund fermetra iðnaðarhúsnæði í Hveragerði um eitt leitið í nótt. Öryggisvörður, sem átti leið hjá, fann reykjarlykt frá húsinu og kallaði á slökkvilið og var húsið fullt af reyk þegar það kom á vettvang og mikill hiti var orðinn þar innandyra. 3.3.2010 07:12
Ráðist á leigubílstjóra Ráðist var á leigubílstjóra í austurborginni undir morgun og gerð tilraun til að ræna hann. Bílstjórinn slapp nær ómeiddur og gat gefið greinagóða lýsingu á árásarmanninum, sem leiddi til þess að hann var handtekinn skömmu síðar. Hann á afbrotaferil að baki. 3.3.2010 07:07
Þrjár úðamyndir í undirgöng Tæplega þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að úða með úðabrúsum á vegg í undirgöngum undir Miklubraut við Lönguhlíð í Reykjavík. 3.3.2010 06:00
Reynt að funda um nýjan samning í dag Bretar og Hollendingar fóru í gær yfir tilboð Íslendinga um nýja lausn á Icesave. Tveir fundir voru með íslensku sendinefndinni sem er ytra. Hún er þar enn og er reiknað með frekari samtölum í dag. Óvíst er hvort um formlega fundi verður að ræða. Ákvörðun um heimför nefndarinnar bíður viðbragðanna. 3.3.2010 06:00
Segir KFC vera kærkomna viðbót í bæinn Skipulagsnefnd Akureyrar frestaði afgreiðslu erindis þar sem farið var fram á lóð til handa skyndibitastaðnum KFC í bænum vegna þess að ónógar upplýsingar fylgdu erindinu. Í yfirlýsingu sem Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri Akureyrar, sendi Fréttablaðinu kemur jafnframt fram að skipulagsstjóra bæjarins hafi verið falið að afla frekari upplýsinga. 3.3.2010 06:00
Óttast erfðasjúkdóm og fer í skimun í dag Heilu fjölskyldurnar í Færeyjum þjást af arfgenga sjúkdómnum CTD. Dæmi eru um að systkini deyja með stuttu millibili. 3.3.2010 06:00
Kallar skilanefndir fyrir Efnahags- og skattanefnd Alþingis hyggst kalla skilanefndir bankanna til fundar við sig á föstudag og ræða samskipti þeirra við skattrannsóknarstjóra. 3.3.2010 06:00
Vill setja skuldsett félög í þrot „Við tryggjum ekki atvinnu og velferð í landinu nema við hættum að tipla á tánum í kringum kröfuhafa og útrásarvíkinga," sagði Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG, í umræðum á Alþingi í gær. 3.3.2010 06:00
Allt fullt af síld í Grundarfirði Allt er nú fullt af síld í Grundarfirði, að sögn vestlenska fréttablaðsins Skessuhorns. Telja heimildarmenn blaðsins að allt að hálf milljón tonn af síld sé þar að finna. 3.3.2010 06:00
Ölvaður á hesti hrækti á löggu Ríkissaksóknari hefur ákært rúmlega tvítugan mann fyrir að vera drukkinn á hesti og hrækja síðan á lögregluvarðstjóra. 3.3.2010 06:00
Tveir tókust á við útidyr konu Ein líkamsárás var nýverið kærð til lögreglunnar í Vestmannaeyjum. Hún átti sér stað fyrir utan heimahús. 3.3.2010 05:45
Áhrif á íslenska heilbrigðiskerfið metin Meta þarf hvort og þá hvaða áhrif starfsemi einkarekins spítala á Ásbrú (gamla varnarsvæðið á Keflavíkurflugvelli) hefur á íslenska heilbrigðiskerfið. Þetta segir Geir Gunnlaugsson landlæknir. 3.3.2010 05:00
Leita botnfisks á 600 stöðum Vorrall Hafrannsóknastofnunar, eins og stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum er jafnan kölluð, hófst síðustu helgina í febrúar og stendur yfir næstu þrjár vikurnar. Fimm skip taka þátt í verkefninu: þrjú togskip auk rannsóknaskipa Hafró. Alls verður togað á um 600 stöðvum vítt og breitt á landgrunninu á 20 til 500 metra dýpi. 3.3.2010 04:30
Starfsmönnum deildarinnar ekki fjölgað Aðeins var brugðist við einni af fjórum ábendingum sem Ríkisendurskoðun gerði vegna starfsemi efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra (RLS) í stjórnsýsluúttekt árið 2006, samkvæmt eftirfylgni stofnunarinnar sem upplýst var um í gær. 3.3.2010 04:30
Sjálfstraust atvinnulausra byggt upp Virkir og óvirkir atvinnuleitendur eru leiddir saman í nýju verkefni Rauða krossins sem ber heitið Félagsvinir atvinnuleitenda. Markmið verkefnisins er að virkja þá sem hafa verið atvinnulausir lengi. 3.3.2010 04:30
Þarf ekki að skerða þjónustu Strætó bs. hagnaðist um 296 milljónir króna á síðasta ári eftir fjármagnsliði. Verulegur viðsnúningur hefur orðið á neikvæðri stöðu eigin fjár, samkvæmt tilkynningu á vef fyrirtækisins. 3.3.2010 04:15
Domus og hótel áfram óafgreitt Afgreiðslu leyfa fyrir tvær umdeildar framkvæmdir á Heilsuverndarreitnum við Barónsstíg og Egilsgötu var frestað á síðasta fundi skipulagsráðs Reykjavíkur. 3.3.2010 04:00
Fékk fjórar milljónir í framlög vegna prófkjörs Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fékk alls fjórar milljónir og 250 þúsund krónur í framlög vegna prófkjörs fyrir alþingiskosningarnar 2007, þar af hálfa milljón króna frá Baugi Group ehf. Önnur framlög lögaðila námu 2.750.000 krónum, undir hálfri milljón hvert og eitt. Ein milljón kom frá einstaklingum. Ragnheiður reiddi svo fram tæpar 2,5 milljónir úr eigin vasa. 3.3.2010 04:00
Kosið um breytingu á lögum Í fyrsta skipti á lýðveldistímanum gefst þjóðinni færi á að kjósa um tiltekið mál í beinni þjóðaratkvæðagreiðslu. Málið sem liggur fyrir er hvort lög um breytingar á lögum um ríkisábyrgð vegna Icesave taki gildi. 3.3.2010 03:45
Umfjöllun erlendis skilar ferðamönnum Alls komu 3.600 gestir í Upplýsingamiðstöð ferðamanna vikuna 14. til 20. febrúar síðastliðinn. Þetta er um 25 prósent fjölgun miðað við venjulega febrúarviku samkvæmt upplýsingum frá Höfuðborgarstofu. 3.3.2010 03:15
Ísland sett í öndvegi í Mílanó Ljósmyndir frá Íslandi prýða nú eina fjölförnustu göngugötu Mílanóborgar, Corso Vittorio Emanuele. Ljósmyndasýningin var opnuð á Íslandsdegi í Mílanó síðastliðinn föstudag, af þeim Kristjáni L. Möller samgönguráðherra og Massimiliano Orsatti, yfirmanni markaðs- og ferðamála borgarinnar. 3.3.2010 03:15
Eftirlitsnefnd sveitarfélaga fær upplýsingar Frumvarp sem veitir eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga skýra heimild til að kalla eftir ársfjórðungslegum reikningsskilum frá sveitarfélögum var samþykkt í ríkisstjórn í gær. 3.3.2010 03:00
Icesave varðar við lög og rétt „Icesave-deilan varðar lög og rétt,“ segir í tilkynningu nýrra samtaka sem nefnast Þjóðarheiður – samtök gegn Icesave. 3.3.2010 02:15
Ekki þvælast fyrir framkvæmdum Þingmenn stjórnarandstöðunnar hentu á lofti yfirlýsingu stjórnarþingmannsins Sigmundar Ernis Rúnarssonar, Samfylkingu, um að atvinnuleysið í landinu væri „áfellisdómur yfir stjórnvöldum þessa lands“. 3.3.2010 02:00
Of langt liðið frá skjálftanum Alþjóðabjörgunarsveit Slysavarnafélagsins Landsbjargar verður ekki send á skjálftasvæðið í Chile. Ástæðan er sú að of langt er liðið frá skjálftanum og fjarlægðir miklar, samkvæmt tilkynningu á heimasíðu Landsbjargar. 3.3.2010 01:45
52.000 króna útgjöld á ári Venjuleg fjölskylda þarf 100.000 króna heildartekjur til að standa undir hækkunum á bensínverði undanfarið ár. Þetta staðhæfði Ásbjörn Óttarsson, Sjálfstæðisflokki, á Alþingi í gær. 3.3.2010 01:00
Stjórnarandstaðan kom í veg fyrir nýtt Icesave-tilboð í kvöld Tilboðið sem átti að leggja fyrir hollensku og bresku samninganefndirnar í kvöld var ekki lagt fram vegna þess að stjórnarandstaðan lagðist gegn því. Þeim þótti tilboðið bæði lélegt og vanhugsað. 2.3.2010 22:08
Fengu fótboltalúxus að láni Björgólfur Guðmundsson skilur eftir sig 30 milljóna króna skuld hjá knattspyrnufélaginu West Ham vegna lúxusmeðferðar Landsbankamanna á heimaleikjum félagsins. 2.3.2010 19:30
Catalína ákærð fyrir mansal, hótanir og líkamsárásir Héraðsdómur Reykjaness tók í dag fyrir mál ákæruvaldsins gegn Catalínu M. Ncogo. Dómari ákvað að þinghaldið yrði lokað. 2.3.2010 19:15
Kvíða sumrinu á Landspítalanum Mun fleiri deildum á Landspítalanum verður lokað í sumar en áður hefur tíðkast. Þórir Steingrímsson, formaður félags fólks sem hefur fengið heilablóðfall, segist mjög uggandi. Forstjóri spítalans segir þetta óumflýjanlegt og við blasir enn frekari niðurskurður á næsta ári. 2.3.2010 19:00
Gæti dregið til úrslita á næsta sólarhring Það ræðst á næsta sólarhring eða svo, hvort nýr Icesavesamningur liggur fyrir áður en þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave lögin fer fram á laugardag. Forsætis- og fjármálaráðherra sjá ekki tilgang með þjóðaratkvæðagreiðslunni hafi nýr samningur náðst. 2.3.2010 18:50
Óvíst með kröfu um hærri framfærslutekjur innflytjenda Forsvarsmenn Útlendingastofnunnar virðist enn ekki hafa gert upp við sig hvort áfram eigi að krefjast hærri framfærslutryggingar af útlendingum en Íslendingum. 2.3.2010 18:47
Símafundur með Icesave-nefndinni í kvöld Formenn stjórnarflokkanna funduðu með annars vegar formanni Sjálfstæðisflokksins og hins vegar formanni Framsóknarflokksins og þingflokksformanni Hreyfingarinnar í dag. 2.3.2010 18:45
Boltinn hjá Bretum og Hollendingum Fundi Icesave-samninganefndarinnar með Bretum og Hollendingum lauk síðdegis í dag. Að sögn aðstoðarmanns fjármálaráðherra, Elíasar Jóns Guðjónssonar kynnti Íslenska sendinefndin ákveðna hluti fyrir bresku og hollensku nefndunum. Elías útskýrði ekki frekar hvaða atriði voru kynnt fyrir samninganefndunum. 2.3.2010 17:52
Sjötug kona handtekin vegna ofbeldisfullrar hegðunar Kona á sjötugsaldri var handtekin um helgina en hún sló til gesta og starfsfólks á öldurhúsi í Reykjavík. Lögreglan var því kölluð á vettvang og þurfti að handtaka konuna sem lét öllum illum látum. 2.3.2010 17:26
Einar Karl í iðnaðarráðuneytið tímabundið Einar Karl Haraldsson hefur tekið við starfi aðstoðarmanns Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra tímabundið. Áður starfaði Einar sem upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins. 2.3.2010 17:03
Sóley Tómasdóttir: Rýr áætlun meirihlutans Frumvarp að þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál Reykjavíkurborgar á árunum 2011-2013 er afskaplega rýr og endurspeglar hvorki forgangsröðun né pólítíska sýn meirihluta borgarstjórnar að mati Sóleyjar Tómasdóttur. 2.3.2010 16:51
Saksóknari ber af sér leka Sérstakur saksóknari hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna lekinna rannsóknargagna. Yfirlýsingin fer hér á eftir: 2.3.2010 16:48
Björguðu konu úr sprungu - myndir Björgunarsveitarmenn björguðu konu í dag sem fallið hafði ofan í 4-5 metra djúpa sprungu mitt á milli Valabóls og Húsfells við Hafnarfjörð. Konan hafði verði í göngu á svæðinu, með annarri konu, þegar hún steig á snjó sem huldi sprunguna og féll niður. Björgunarsveitamenn sigu niður í sprunguna og náðu konunni upp heillri á húfi. 2.3.2010 15:35
Flugumferðarstjórar boða til verkfalls Félag íslenskra flugumferðarstjóra hefur boða til vinnustöðvunar félagsmanna sinna dagana 10. mars til 19. mars 2010, alls fimm sinnum í fjórar klukkustundir samfellt í hvert skipti. „Félagið leggur þannig áherslu á kröfur sínar í viðræðum við Samtök atvinnulífsins um nýjan kjarasamning, þar sem hvorki gengur né rekur,“ segir í tilkynningu frá félaginu. 2.3.2010 16:40
Þriggja ára fangelsi fyrir hnífstungu Fimmtugur karlmaður, Hans Alfreð Kristjánsson, var í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en hann stakk annan mann með hnífi ofarlega á brjóstkassann með þeim afleiðingum að hann hlaut þriggja sentimetra langan skurð. Árásin átti sér stað á Akureyri í júní í fyrra. Auk fangelsisdómsins þarf maðurinn að greiða fórnarlambinu 400 þúsund krónur í miskabætur. 2.3.2010 16:10
Hópuppsagnir í febrúar: 39 sagt upp Vinnumálastofnun bárust 3 hópuppsagnir í febrúarmánuði þar sem sagt var upp 39 manns. Um er að ræða fyrirtæki í mannvirkjagerð, iðnaði og upplýsingaog útgáfustarfsemi. Í frétt á heimasíðu stofnunarinnar segir að ástæður uppsagnanna séu verkefnaskortur, endurskipulagning og rekstrarerfiðleikar. Þessar hópuppsagnir koma til framkvæmda á tímabilinu apríl til júní 2010. 2.3.2010 15:07
Þriggja ára áætlun í Reykjavík - engar skattahækkanir fyrirhugaðar Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, mælir í dag fyrir frumvarpi að þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál Reykjavíkurborgar fyrir árin 2011-2013. Í tilkynningu frá borginni segir að áætlunin byggi á grunni fjárhagsáætlunar ársins 2010 og fylgi þeirri stefnumörkun sem þar var sett um að áfram verði staðinn vörður um grunnþjónustu við borgarbúa og forgangsraðað í þágu þjónustu við börn og ungmenni og velferðarþjónustu. 2.3.2010 14:23
Kallaði eftir lægri álögum á bensín Skattahækkanir hafa hækkað bensínlítrann um 26 krónur á lítrann á undanförnu ári, sagði Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í dag. Hann sagði að þetta þýddi að bensínkostnaður fyrir meðalfjölskyldu hækki um rúmar 50 þúsund krónur á ári. Ásbjörn spurði Magnús Orra Schram hvort - hækkar bensínkostnaðinn um rúmar 50 þúsund krónur á ári. 2.3.2010 14:00
Áfram opið í Bláfjöllum Opið verður í Bláfjöllum í dag, annan daginn í röð en í gær opnaði í fyrsta sinn í vetur. Opið verður frá 14-21 í fjallinu og er þar hæglætisveður, en snjóar annað slagið, frost er um 1,5 gráður. 2.3.2010 13:49