Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vegurinn opnaður á milli Þjórsár og Víkur - umferð takmörkuð undir jökli Opnað hefur verið fyrir umferð á milli Þjórsár og Víkur að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Umferðin er þó takmörkuð enn sem komið er og er fólk vinsamlegast beðið um að vera ekki að stoppa á leiðinni. 21.3.2010 12:54
Innanlandsflug liggur niðri til kvölds Allt innanlandsflug liggur niðri þangað til klukkan 18.15 í kvöld vegna eldgossins. Fólk er hvatt til að kynna sér tímasetningar á flugi á textavarpinu. 21.3.2010 12:20
Alvarlegt ef gosið hefur áhrif á flugsamgöngur „Fyrstu áhyggjurnar þegar ég heyrði af þessu tengdust fluginu,“ segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. 21.3.2010 12:09
Formaður norska Framfaraflokksins heillaður af gosinu Siv Jensen, formaður norska Framfaraflokksins, segir að hún sé heilluð af miklum kröftum íslenskrar náttúru. Siv er stödd hér á landi ásamt 120 flokksfélögum sínum segir norska blaðið Verdens Gang. 21.3.2010 11:41
Lögreglan lokaði veitingastað á Laugavegi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði veitingastað á Laugavegi á fjórða tímanum í nótt vegna þess að eigendur höfðu ekki tilskilin leyfi til þess að starfrækja veitingastaðinn. 21.3.2010 10:18
Þykkan mökk lagði frá gosstöðvunum í morgun - myndir Gosóróinn í Eyjafjallajökli virðist hafa náð hámarki um 7-8 í morgun en aðeins hefur dregið úr honum síðan, samkvæmt upplýsingum frá jarðskjálftasérfræðingi á Veðurstofunni. 21.3.2010 09:45
Um 500 manns bíða í Boston eftir flugi til Íslands Um 500 manns bíða í Boston í Bandaríkjunum eftir því að ná flugi til Íslands. Eldgosið á Fimmvörðuhálsi og lokun flugvalla hefur valdið mikilli truflun á flugi Icelandair. 21.3.2010 09:20
Gossprungan 0,5 - 1 kílómetri á lengd Gossprungan á Fimmvörðuhálsi er 0,5-1 km á lengd. Á tímabilinu frá klukkan 04 til 07 var kvikustrókavirkni mjög jöfn. 21.3.2010 08:45
Fóru í leyfisleysi á Fimmvörðuháls og festu sig Tveir vísindamenn sem fóru í leyfisleysi upp á Fimmvörðuháls til að virða fyrir sér gosið festust þar á bíl sínum í nótt. Tveir menn frá björgunarsveitinni Víkverja í Vík gerðu sér far upp á Fimmvörðuháls til þess að hjálpa þeim og samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli eru þeir á leið niður. Lögreglan segir það mjög ámælisvert af mönnunum að fara þessa leið við þær aðstæður sem nú eru uppi. 21.3.2010 08:26
Ein umfangsmesta rýmingaraðgerð á Íslandi - myndskeið Talið er að um sex hundruð manns hafi yfirgefið heimili sín vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. 21.3.2010 07:28
Eyjafjallajökull uaktywnil sie i nastapila erupcja Eyjafjallajökull uaktywnil sie i nastapila erupcja. Zdecydowano ewakulowac zgodnie z planem. Z nastepujacych miejscowosci zostali ewakulowani ludzie. 21.3.2010 06:23
Þrír flugvellir lokaðir vegna gossins Keflavíkurflugvelli, Reykjavíkurflugvelli og Akureyrarflugvelli hefur verið lokað þar til ítarlegri upplýsingar um gosið í Eyjafjallajökli liggja fyrir. Þetta er gert samkvæmt viðbúnaðaráætlun Flugstoða. 21.3.2010 06:15
Bændum heimilt að fara inn á lokuð svæði í birtingu Bændum heimilt að fara inn á lokuð svæði undir Eyjafjallajökli í birtingu til þess að sinna búpeningi í birtingu. Bændur óttuðust mjög í nótt um að búfé stafaði ógn af öskufalli frá gosinu. 21.3.2010 06:05
Aukafréttatími á Stöð 2 í hádeginu á morgun Stöð 2 verður með aukafréttatíma í hádeginu á morgun. Þar verða sýndar myndir af gosinu, myndir sem teknar voru í Hvolsskóla í nótt, myndir úr samhæfingarmiðstöðinni í Skógarhlíð og ítarlega verður gert grein fyrir stöðu mála. 21.3.2010 05:55
Gosið ekki í ís Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur segir að bjarminn sem kemur frá gosinu bendi til þess að þarna komi glóandi kvika. Gosið komi ekki upp í ís því þá væri gjóskufjallið meira. 21.3.2010 05:41
Sprungan norðarlega í Fimmvörðuhálsi - myndskeið Gossprungan er norðarlega í Fimmvörðuhálsi, á milli Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls, segir Landhelgisgæslan eftir að þyrla á hennar vegum hefur flogið yfir. 21.3.2010 04:30
Fólk rólegt í fjöldahjálparstöðinni í Hvolsskóla - myndskeið „Þetta gengur vel. Það er allt í rólegheitum hjá okkur,“ segir Hrafnhildur Björnsdóttir, vettvangsstjóri hjá Rauða krossinum, sem stödd var í fjöldahjálparstöðinni í Hvolsskóla á Hvolsvelli þegar Vísir náði tali af henni. 21.3.2010 03:54
Gríðarlegan gosmökk leggur frá gosstöðvunum Gríðanlegan gosmökk leggur frá gösstöðvunum í Eyjafjallajökli, segir Kristján Már Unnarsson fréttamaður sem staddur er i grunnskólanum á Hvolsvelli og fylgist með því sem þar fer fram. Hann segir að ekki sjáist til gosstöðvanna frá Hvolsvelli vegna gosmakkarins. Hvasst er á Hvolsvelli og virðist áttin vera þannig að mökkinn leggi að Hvolsvelli. Þyrla flaug yfir svæðið fyrir fáeinum mínútum en gat heldur ekki séð neitt til gosstöðvanna vegna gosmakkarins. 21.3.2010 03:28
Flugbann yfir eldstöðvunum Þremur flugvélum Icelandair sem voru á leið frá Seatle, Orlando og New York í Bandaríkjunum, var snúið frá því að koma til íslands vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Flugvélunum frá Seattle og og Orlando var snúið til Boston en flugvélinni frá New York var snúið til Glasgow í Skotlandi. 21.3.2010 03:11
Gos hafið í Eyjafjallajökli Gos er hafið í Eyjafjallajökli. Þetta staðfesti lögreglan á Selfossi við Vísi. Lögreglan segir að menn hafi orðið varir við öskufall í jöklinum um korter yfir tólf. 21.3.2010 03:00
Saka Íslendinga um ólögleg viðskipti með hvalkjöt Hvalaverndunarsamtökin WDCS segja að Íslendingar hafi brotið alþjóðasamþykktir með því að selja hvalkjöt til Danmerkur og Lettlands. Samtökin hafa gefið út skýrslu um hvalveiðar Íslendinga á árunum í ár og í fyrra. Þau segjast hafa aðgang að íslenskum leyniskjölum um málið. 20.3.2010 23:23
Karlmaður stunginn á Mánagötu Karlmaður um fertugt var stunginn með eggvopni í hálsinn við Mánagötu í Reykjavík snemma í morgun. Hann hlaut alvarlega áverka og var fluttur á Landspítalann við Hringbraut. 20.3.2010 20:59
Tvöfaldur næst í lottóinu Fyrsti vinningur í lottóinu gekk ekki út í kvöld og verður potturinn því tvöfaldur næst. Tveir voru með fjórar tölur réttar auk bónustölunnar og fær hver um sig tæpar 369 þúsund krónur. 20.3.2010 19:57
Grunur um að ríkissjóður hafi verið svikinn um skatt Ríkisskattstjóri hyggst skoða hvort hlutabréfakaup, sala fyrirtækja og eignarhaldsfélaga hafi verið talin fram. Grunur leikur á að ríkissjóður hafi oft verið svikinn um skatt af hagnaði af þessum viðskiptum. Til stendur að skoða fjögurra ára tímabil líkt og gert var við framtöl einstaklinga. Í vikunni kom fram hjá Greiningardeild Ríkisskattstjóra að einstaklingar hafi 20.3.2010 19:38
Natalía er fundin Natalía Rós Jósepsdóttir, sem lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir í gær er fundin. 20.3.2010 19:10
Íslenskur þjóðfundur veitir metsöluhöfundi innblástur Kanadíski metsöluhöfundurinn Carl Honoré, höfundur bóka sem þýddar hafa verið á yfir þrjátíu tungumálum, ætlar að gera íslensku hugmyndinni um þjóðfund góð skil í nýjustu bók sinni. Honoré mætti að eigin frumkvæði á síðasta þjóðfund sóknaráætlunar fyrir Ísland, sem fjallaði um tækifæri fyrir Reykjavík og haldinn var í Rimaskóla í dag. 20.3.2010 19:00
Sex ára drengur fékk grjót á sig Sex ára gamall drengur slasaðist þegar grjót féll á hann um klukkan fjögur í dag. Drengurinn var ásamt vini sínum við leik við Grjótá þegar grjót hrundi úr árbakkanum. Drengurinn féll í ána en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni dreif að fólk úr nágrenninu sem gat komið honum til aðstoðar. Drengurinn var fluttur til aðhlynningar á sjúkrahúsið á Neskaupsstað. Ekki hafa fengist nánari upplýsingar um líðan hans. 20.3.2010 17:47
Rólegra undir Eyjafjallajökli í dag Rólegra hefur verið undir Eyjafjallajökli í dag en undanfarna daga. Skjálftarnir mældust allt upp í 1400 á sólarhring fyrr í vikunni á mælum hjá 20.3.2010 17:13
1000 börn skráð í sumarbúðir KFUM og -K í dag Opnað var fyrir skráningu í sumarbúðirnar Vatnaskóg, Vindáshlíð, Ölver, Kaldársel og Hólavatn í dag. 20.3.2010 16:18
Annríki vegna sjúkraflutninga Sjúkraflutningamenn á vegum Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu hafa farið í 40 sjúkraflutninga það sem af er degi. Engin stórslys hafa orðið á fólki, en um hefur útköll vegna smáslysa og veikinda hefur verið að ræða að sögn sjúkraflutningamanna. Þá hafa nokkur útköll verið farin vegna flutninga á milli spítala. 20.3.2010 16:06
Sigurjón nýr formaður Frjálslynda flokksins Sigurjón Þórðarson, fyrrverandi alþingismaður, var kjörinn formaður Frjálslynda flokksins í dag. Í frétt á vef Frjálslynda flokksins segir að Sigurjón hafi þakkað traustið og farið lofsamlegum orðum um fráfarandi formann, Guðjón Arnar Kristjánsson. 20.3.2010 15:55
Bjarni: Möguleikar Íslendinga betri en annarra þjóða Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að Íslendingar eigi betri möguleika á því að vinna sig út úr kreppunni en önnur lönd. Þetta kom fram í máli Bjarni þegar að hann hélt opnunarávarp á fundi sem rúmlega eitthundrað flokksmenn norska Fremskrittspartiet héldu í Reykjavík í morgun. 20.3.2010 13:27
VG á móti því að einkaflugher fái aðstöðu á Íslandi Stjórn Vinstri grænna tekur undir ályktanir Ungra Vinstri grænna og Vinstri grænna í Reykjavík þar sem því er hafnað að einkaflugher fái aðstöðu á Íslandi. Í ályktun frá stjórninni sem samþykkt var í gær segir að það sé óásættanlegt með öllu að hér fari fram hernaðarstarfsemi undir yfirvarpi atvinnusköpunar og skorar stjórnin á ríkisstjórn VG og Samfylkingar að hafna slíku fortakslaust nú þegar. 20.3.2010 13:05
Dönsuðu tangó fram á morgun Tangóunnendur og tangódansarar skemmtu sér í Iðnó og Ráðhúsi Reykjavíkur í nótt og dönsuðu fram á morgun. Tilefnið var upphaf þriggja daga tangómaraþons sem ætlað er að styrkja og vekja athygli á átakinu Karlmenn og krabbamein. 20.3.2010 12:04
Enn óvissustig vegna Eyjafjallajökuls Almannavarnir vinna enn effir áætlunum um óvissustig á svæðinu við Eyjafjallajökul vegna mögulegs eldgoss og hefur það nú verið í gildi í tæpar þrjár vikur. Í vikunni mældust þúsundir skjálfta við jökulinn. 20.3.2010 10:05
Fimm fluttir á slysadeild eftir bílveltu við Sandskeið Fimm voru fluttir á slysadeild til skoðunar þegar að bíll valt á Suðurlandsvegi við Sandskeið um áttaleytið í morgun. 20.3.2010 09:19
Brotist inn í ljósmyndavöruverslun Brotist var inn í ljósmyndavöruverslun í Brautarholti á fjórða tímanum í nótt. Þrír voru handteknir á staðnum og segir lögreglan að þeir hafi verið undir áhrifum fíkniefna. Þeir gistu fangageymslur lögreglunnar og munu þurfa að gera grein fyrir athæfi sínu þegar líður á daginn. 20.3.2010 09:15
Hálfrænulaus eftir dáleiðslu hjá Sailesh Stúlka á átjánda ári lenti í hremmingum eftir að dávaldurinn Sailesh hafði dáleitt hana í hádegisskemmtun í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ (FG). Hún losnaði ekki úr dáleiðslunni og kalla þurfti til sjúkralið sem ekkert gat gert. 20.3.2010 06:00
Meirihluti vill kjósa um framtíð kvótakerfisins Meirihluti þeirra sem afstöðu tóku í skoðanakönnun Fréttablaðsins vill að þjóðin fái að greiða atkvæði um framtíðarskipulag íslenska fiskveiðistjórnunarkerfisins. 20.3.2010 06:00
Stjórnarfylgið minna en fyrst eftir hrunið Stuðningurinn við ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur er 38,9 prósent, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins á fimmtudag. 20.3.2010 05:15
Dæmi Íslands má ekki endurtaka „Öll erum við sammála um að bankakreppa á við kreppuna á Íslandi megi ekki koma upp aftur,“ sagði Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS), í ræðu sinni á ráðstefnu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB), í gær. Ráðstefnan fjallaði um hvernig koma mætti á regluverki áfallastjórnunar á sameiginlegum fjármálamarkaði sambandsins. 20.3.2010 05:00
Tóku 38 fíkniefnasmyglara Lögreglan á Suðurnesjum og tollgæslan á Keflavíkurflugvelli hafa tekið þrjátíu og átta manns með fíkniefni nú frá áramótum og fram að miðjum mars. Samtals hefur verið tekið á fimmta kíló af fíkniefnum á sama tíma. 20.3.2010 04:45
OR vill aprílopnun Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti í gær fyrir sitt leyti tillögu Þorleifs Gunnlaugssonar borgarfulltrúa um að veiðitími hefjist framvegis 1. apríl í Elliðavatni í staðinn fyrir 1. maí. Orkuveitan á um tvo þriðju veiðiréttar á Elliðavatni. Þar eiga einnig veiðirétt Reykjavíkurborg, Kópavogur og Mosfellsbær auk einstaklinga sem eiga tæpan fimmtung. 20.3.2010 04:00
Fá enn fjarnám þótt ráðuneyti vilji skera Bæði Fjölbrautaskólinn í Ármúla og Verzlunarskóli Íslands halda áfram að kenna grunnskólanemum í fjarnámi þrátt fyrir ákvörðun menntamálaráðuneytisins um að afnema fjárveitingar til þessa liðar frá síðustu áramótum. 20.3.2010 04:00
Formanni vikið vegna framboðs Formanni umhverfisnefndar Flóahrepps var fyrirvaralaust vikið frá störfum á fundi sveitarstjórnar hreppsins á miðvikudag. Hann segir ákvörðun sveitarstjórnarinnar sýna þá heift og óbilgirni sem virkjanamál í hreppnum hafi kallað fram. 20.3.2010 03:00