Fleiri fréttir

Sex á palli

Ökumaður dráttarbíls hefur verið kærður fyrir að hafa á bíl sínum flutt jeppa fullan af fólki.

Guðrún Katrín fékk enga sérmeðferð

„Þetta er á einhverjum miskilngi byggt hjá Matthíasi,“ segir Páll Torfi Önundarson læknir, sem annaðist Guðrúnu Katrínu Þorbergsdóttur forsetafrú í veikindum hennar á sínum tíma. Matthías Johannessen segir frá því í dagbókarfærslum sínum að reikningur vegna meðferðar Guðrúnar Katrínar sem hún gekkst undir í Bandaríkjunum hafi valdið uppnámi á stjórnarheimilinu. Það hefur Matthías eftir Davíð Oddsyni sem er sagður hafa haft miklar áhyggjur af því hver ætti að borga reikninginn. Páll Torfi segir í samtali við Vísi að Guðrún Katrín hafi ekki notið neinnar sérmeðferðar heldur hafi mál hennar farið sína leið hjá Tryggingastofnun eins og önnur mál af þessu tagi.

Óskar segist mæta vel mannaður til leiks

Sjálfstæðismenn og Framsókn í borgarstjórn vinna nú að því að klára málefnasamning sín á milli og þar næst verður skipað í ráð og nefndir. Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, segist mæta mjög vel mannaður til leiks á næsta borgarstjórnarfundi þótt hann sé sá eini sem geti gegnt formennsku ráða.

Hlaut opið beinbrot í borunarvinnu

Starfsmaður Jarðborana hlaut opið beinbrot þegar rör féll á fót hans þar sem hann var að störfum við borun í landi Klausturhóla í Grímsnesi.

Engin leið að nýta orku við Bitru án borana

Það er engin leið að nýta orkuna við Bitru á Hellisheiði nema bora þar í jörðu, segir Einar Gunnlaugsson, deildarstjóri rannsókna hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Gerlegt væri að nýta orkuna án þess að reisa Bitruvirkjun en það yrði dýrt og hefði meiri áhrif á umhverfið.

ASÍ hafnar ásökunum Haga

Dómkvaddir matsmenn hafa staðfest að virðisaukaskattslækkun á matvælum skilaði sér að fullu til viðskiptavina verslana 10-11 - öndvert við það sem fram kom í verðkönnunum Alþýðusambandsins.

Tiltekt nauðsynleg til að auka skilvirkni

Stefán Eiríksson lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu segir það mikilvægt að embættið festist ekki í gömlum kærumálum þar sem á litlu er að byggja. Nauðsynlegt sé að auka skilvirkni í meðferð kærumála.

Lögreglan lét 700 mál niður falla á einu bretti

Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu lét um 700 kærumál niður falla á einu bretti í byrjun þessa árs. Þetta var gert til þess að hreinsa til í málaskrá hin nýstofnaða embættis sem varð til með sameiningu lögreglunnar í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði.

Jón Baldvin man eftir reikningnum

Jón Baldvin Hannibalsson var sendiherra í Washington þegar Guðrún Katrín Þorbergsdóttir leitaði sér lækninga í Seattle í Bandaríkjunum. Hann segist muna eftir því að sendiráðinu hafi borist reikningur vegna læknismeðferðar Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur forsetafrúar. Matthías Johannessen, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, vitnar í dagbókarfærslu sinni frá árinu 1998 í samtal sem hann átti við Davíð Oddson, þáverandi forsætisráðherra. Davíð segir Matthíasi frá því að sendiráðinu í Washington hafi borist reikningur að upphæð fimmtán milljónir króna vegna læknismeðferðar Guðrúna Katrínar.

Umferðartafir á Suðurlandsvegi

Umferðartafir verða á Suðurlandsvegi í dag, á kaflanum frá Hólmsá að Lögbergsbrekku, eftir því sem segir í tilkynningu Vegagerðarinnar.

Móðir lýsir eftir dóttur sinni - vill að lögreglan finni hana

Helen Halldórsdóttir hefur ekki séð fimmtán ára dóttur sína síðan á föstudaginn. Hún segir lögregluna alltaf vísa á barnaverndarnefnd. Dóttir hennar, sem heitir Sara Dögg er fimmtán ára, ljóshærð, um 155 sm á hæð og var klædd í gráa hettupeysu, ljósar gallabuxur og ljósbrún loðstígvél.

Sjómenn á kokteilveiðum

Sjómenn á síldveiðiflotanum, sem nú er um hundrað mílur austur af landinu, segjast vera á einskonar kokteil veiðum. Eins og fram hefur komið veiðist mikið af markíl með síldinni og stundum reyndar meira af honum en af síldinni. Í nótt meldaði svo færeyskt skip, sem er á sömu slóðum, kolmunna til viðbótar og auk þess nokkur tonn af hrognkelsum.-

Álagning á dísilolíu hækkað um 23%

Íslensku olíufélögin hafa hækkað álagningu sína á dísilolíu um 23 prósent á síðustu tólf mánunuðum, samkvæmt athugun Landssambands kúabænda.

Stuðningur við Hönnu Birnu eykst

Um það bil 33 prósent borgarbúa vilja að Hanna Birna Kristjánsdóttir verði borgarstjóri en tæp 44 prósent vilja að Dagur B. Eggertsson verði það, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins.

Heimsþing alþjóðlega eldfjallafræðisambandsins haldið á Íslandi

Stærsta vísindaráðstefna á sviði raunvísinda, sem haldin hefur verið hér á landi, hefst í Reykjavík í dag og stendur í fimm daga. Þetta er heimsþing alþjóðlega eldfjallafræðisambandsins, sem haldið er á fjögurra ára fresti. Það hefur ekki verið haldið hér á landi áður. Um níu hundruð manns frá 50 þjóðlöndum taka þátt í henni, flutt verða sjö hundruð erindi og sýnd sex hundruð veggspjöld.-

Flúði af vettvangi eftir að hafa ekið á ljósastaur

Ökumaður bíls hljóp af vettvangi eftir að hafa ekið á ljósastaur í Ártúnsbrekku í nótt. Bíllinn og staurinn eru stór skemmdir en ökumaðurinn, sem er ófundinn, er líklega ómeiddur. Grunur leikur á að hann hafi verið ölvaður eða undir áhrifum fíkniefna. Einn slíkur var tekinn úr umferð í nótt áður en hann ylli vandræðum eða slysi.-

Dagbók Matthíasar: Forsetinn notaði kreditkort Alþýðubandalagsins

Matthías Johannessen, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, birti um helgina enn eitt brotið úr dagbókum sínum sem hann hélt á meðan hann var ritstjóri. Þar kemur fram í samtali við Svavar Gestsson að Ólafur Ragnar Grímsson, núverandi forseti og fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins, hafi verið með kreditkort frá flokknum og notað það óspart.

Bjartsýn á framhaldið

„Ég tel að þessu tíðu meirihlutaskipti í borginni séu borgarfulltrúum ekki til framdráttar," segir Erla Ósk Ásgeirsdóttir, stjórnmálafræðingur og formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, um nýjan borgarstjórnarmeirihluta og fylgiskönnun Fréttablaðsins.

Bifreið valt á Vatnsleysustrandarvegi

Um klukkan sjö í morgun var tilkynnt um að bifreið hefði oltið á Vatnleysustrandarvegi skammt frá Vogum. Ökumaður og einn farþegi voru í bifreiðinni og voru þeir fluttir Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.

Ók á ljósastaur

Ökumaður Toyota bifreiðar var fluttur á slysadeild eftir að hafa ekið bifreið sinni á ljósastaur þegar hann ók meðfram Reykjanesbrautinni um fimmleytið í dag.

Fimmtán ára stúlka á spítala eftir e-töflu neyslu

Fimmtán ára stúlka var flutt alvarlega veik á sjúkrahús eftir að hafa tekið inn e-töflur á Dönskum dögum í Stykkishólmi um helgina. Að sögn Ólafs Guðmundssonar, yfirlögregluþjóni á Snæfellsnesi, fluttu lögreglumenn stúlkuna á spítala um leið og ljóst var hvað hafði gerst.

Vill lausn á málefnum utangarðsmanna

„Ég held að það væri mjög góð lausn ef það væri hægt að beina þeim eitthvað annað," segir Svava Johansen, kaupmaður í NTC tískuvörufyrirtækinu, um þá hugmynd að finna sér stað fyrir utangarðsmenn sem safnast saman í miðborginni.

Á fjórða þúsund manns á Dönskum dögum í Stykkishólmi

Fangageymslur í Stykkishólmi fylltust á miðnætti og eru enn fullar að sögn lögreglumanna. Danskir dagar eru haldnir hátíðlegir í Stykkishólmi þessa helgina og segir lögreglan að á bilinu þrjú til fjögur þúsund manns séu í bænum.

Átta gistu fangageymslur í Reykjavík

Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og í morgun. Mikil ölvun var í Reykjavík og margt um manninn í miðbænum. Átta gistu fangageymslur vegna ölvunar.

Vann rúmar 65 milljónir i íslenska Lottóinu

Það var einn heppinn Lottóspilari sem fékk 5 rétta þegar dregið var í kvöld og hlýtur sá rúmar 65 milljón krónur. Potturinn var sjöfaldur að þessu sinni. Lukkumiðinn var keyptur í Söluturninum Iðufelli. Það voru 12 sem skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hver um sig 81.290 krónur. Auk þess voru fjöldi smærri vinninga.

Síbrotamaður í tveggja ára fangelsi

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 45 ára gamlan karlmann, Sigurð Hólm Sigurðsson, í tveggja ára fangelsi fyrir fjölda afbrota sem hann framdi frá því í nóvember 2006 þar til í maí á þessu ári. Á meðal þeirra brota sem Sigurður er dæmdur fyrir eru nytjastuldur, þjófnaðir, fjársvik og varsla fíkniefna. Afbrotaferill Sigurðar er langur og nær allt til ársins 1979.

Holskefla gjaldþrota framundan

Gjaldþrotaúrskurðum hjá Héraðsdómi Norðurlands eystra hefur fjölgað um tæpan helming frá fyrra ári. Holskefla gjaldþrota virðist fram undan, eftir því sem fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Bílvelta við Hraunhellu

Vörubíll velti á hringtorgi við Hraunhellu í Hafnarfirði um fjögurleytið í dag. Að sögn lögreglu var einn maður í bílnum en hann slasaðist ekki.

Sjá næstu 50 fréttir