Fleiri fréttir

Engin sátt um ferjuhöfn á Bakkafjöru

Það er fáránlegt og ekki boðlegt að ráðast í gerð ferjuhafnar á Bakkafjöru án þess að jarðgangakostur til Vestmannaeyja hafi verið rannsakaður. Þetta segir Árni Johnsen, sem telur jarðgöng mun hagkvæmari lausn.

Matvörur í fóstur

Talsmaður neytenda leggur til að hver og einn einasti neytandi taki eina vöru eða þjónustu í fóstur. Þannig geti þeir fylgst með af alvöru hvort birgjar og kaupmenn standi sig í að lækka vöru og þjónustu eftir fyrsta mars næstkomandi. Hann segir þetta þó ekki losa stjórnvöld frá eftirlitsskyldu sinni.

Jóhanna hundskammar bankana fyrir okur, græðgi og samráð

Jóhanna Sigurðardóttir, alþingismaður, sakaði bankana um yfirgengilegt okur og græðgi, samráð og samkeppnishindranir í þingræðu í dag. Hún sagði þá hunsa tilmæli samkeppniseftirlits og hvatti viðskiptaráðherra til að brjóta upp samstarf þeirra með lögum.

Útlent nautakjöt selt sem íslenskt

Á sjötta hundrað tonn af nautakjöti voru flutt til Íslands á síðasta ári. Þó virðist heyra til undantekninga að íslenskir neytendur séu upplýstir um upprunaland vörunnar. Hluti kjötsins kemur frá löndum þar sem gin- og klaufaveikifaraldur hefur komið upp á síðustu árum, eins og Hollandi og Frakklandi.

Sýknaði ríkið af skaðabótakröfu Karls K. Karlssonar

Hæstiréttur sýknaði í dag íslenska ríkið af skaðabótakröfu Karls K. Karlssonar. Hann taldi sig hafa beðið skaða vegna þess að íslenska ríkið hélt einkarétti til innflutnings og heildsöludreifingar á áfengi eftir gildistöku EES-samningsins 1. janúar 1994.

Kalt bað

Íbúar, í nágrenni nýju íþróttamiðstöðvarinnar í Mosfellsbæ, lentu í vandræðum með heita vatnið á heimilum sínum þegar vatni var hleypt á útisundlaug, og munu hafa velt fyrir sér hvort heitar sturtur heima við heyrðu nú sögunni til. Byggingafulltrúi bæjarins segir það af og frá. Hins vegar eigi eftir að ganga frá tengingum og frágangi á vatnslögnum við laugina.

Tólf mánuðir fyrir kynferðisbrot

Hæstiréttur staðfesti í dag 12 mánaða fangelsisdóm úr Héraðsdómi Reykjavíkur yfir karlmanni fyrir kynferðisbrot gegn tíu ára gamalli systurdóttur hans. Framburður stúlkunnar var lagður til grundvallar dómnum ásamt vottorðum lækna og framburði móður stúlkunnar.

"Blaut tuska," segir Dagur um samgönguáætlun

Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi segir að samgönguáætlun sé eins og "blaut tuska framan í borgarstjóra." Hann segir á heimasíðu sinni í dag að enn þurfi að búa við óviðunandi óvissu um fjármögnun Sundabrautar því einkafjármögnun fyrir á annan tug milljarða sé óútfærð og ávísað á framtíðina.

Fær ekki að klára yfirheyrslur yfir Jóni

Sigurður Tómas Magnússon settur saksóknari í Baugsmálinu kvartaði yfir því að fá ekki að klára yfirheyrslur yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni í dag. Dómari ákvað að að yfirheyrslum hans yfir Jóni yrði hætt um sinn klukkan 16.15 í dag. Arngrímur Ísberg dómari í byrsti sig við saksóknara og sagði að saksóknari gæti sjálfum sér um kennt að fá ekki lengri tíma til að yfirheyra Jón Ásgeir.

Hnetusmjör innkallað vegna gruns um salmonellusýkingu

Peter Pan hnetusmjör hefur verið innkallað vegna gruns um salmonellusýkingu. Allir sem eiga Peter Pan krukkur með framleiðslunúmeri sem hefst á tölunum 2111 ættu að farga þeim eða skila til verslunarinnar þar sem þær voru keyptar.

Horfnir vélsleðar fundust við bóndabæ

Lögregla hefur fundið tvo vélsleða af Yamaha gerð sem hurfu frá Frostagötu á Akureyri seint í janúar. Þeir fundust við bóndabæ í Húnavatnssýslu. Tveir menn hafa játað að hafa tekið sleðana og farið með þá vestur í Húnavatnssýslu.

Skákakademía Reykjavíkur sett á laggirnar

Borgarráð samþykkti í morgun að sett yrði á laggirnar sjálfseignarstofnunin Skákakademía Reykjavíkur. Markmið hennar er að vinna að eflingu skáklistarinnar í borginni. Þá er stefnt að því að Reykjavík verði orðin Skákhöfuðborg heimsins árið 2010. Verkefnisstjóri verður ráðinn til sex mánaða til að undirbúa stofnunina.

Hvað gerir fyrirtæki samkeppnishæf?

Viðskiptafræðingar ætla að leita svara við spurningum um samkeppnishæfni fyrirtækja á ráðstefnu á Nordica hóteli á morgun, föstudag. Meðal spurninga sem settar verða fram eru vað ráði mestu um samkeppnishæfnina, hvaða máli skipti að fyrirtæki séu íslensk, hvað þurfi að gera til að efla samkeppnishæfni Íslands og hverjir eigi að taka þátt í því verkefni.

Tveir handteknir vegna handrukkunar

Maður var numinn á brott um hádegisbil í dag eftir meintar líkamsmeiðingar tveggja handrukkara. Honum var hótað frekari barsmíðum ef hann útvegaði ekki peninga til að greiða skuld. Atvikið átti sér stað við útibú SPRON í Skeifunni. Maður og kona á þrítugsaldri eru í haldi lögreglu grunuð um verknaðinn.

Keyrt á vegfaranda í Lönguhlíð

Keyrt var á vegfaranda í Lönguhlíð nú rétt í þessu. Lögreglan er enn á vettvangi. Nánari upplýsingar hafa enn ekki verið gefnar um ástand vegfarandans eða aðstæður á slysstað.

Lystisnekkja eða skemmtibátur?

Fimmtán verslunarstjóarar Bónuss fóru í skemmtiferð með Viking snekkjunni í Florida sem nú er til umfjöllunar í Héraðsdómi Reykjavíkur. Tekist var á um hvort bátarnir þrír væru skemmtibátar eða lystisnekkjur eins og saksóknari vildi kalla þá. Jón Ásgeir Jóhannesson sagði um skemmtibáta að ræða.

Samstarf um aðstoð við fátæka í Afríku

Hjálparstarf kirkjunnar og Þróunarsamvinnustofnun Íslands gerðu í dag fimmtíu milljóna króna samstarfssamninga um verkefni í Úganda og Malaví. Sighvatur Björgvinsson framkvæmdastjóri ÞSSÍ og Jónas Þórisson framkvæmdastjóri Hjálparstarfsins skrifuðu undir samningana.

Mistök komin á teikniborðið

Arkitekt hjúkrunarheimilisins Eirar er langt kominn með frumteikningar og hönnun menningarmiðstöðvar í Spöng í Grafarvogi. Um mistök var að ræða þegar menningarmiðstöðin var sett inn í viljayfirlýsingu borgarinnar um byggingu þjónustuíbúða fyrir hjúkrunarheimilið Eir. Þetta segir Steinunn Valdís Óskarsstjóri oddviti Samfylkingar í borgarstjórn.

Steinunn Valdís tekur við af Degi

Steinunn Valdís Óskarsdóttir tók við störfum oddvita Samfylkingarinnar á borgarráðsfundi í dag. Hún tekur við af Degi B. Eggertssyni sem fer í fæðingarorlof til 1. apríl. Þá tók Björk Vilhelmsdóttir sæti Dags í borgarráði. Borgarstjórnarflokkur Samfylkingar er því einungis skipaður konum. Það er í fyrsta sinn síðan á dögum kvennaframboðs.

Íslenskar ljósmyndir 2006

Næstkomandi laugardag hefst árleg ljósmyndasýning Blaðaljósmyndarafélags íslands í Gerðarsafni í Kópavogi. Veitt verða verðlaun í 10 flokkum m.a. fyrir mynd ársins og fréttamynd. Vegleg peningaverðlaun verða veitt fyrir alla flokka, að mynd ársins undanskyldri. Glitnir leggur til verðlaunin.

Óraunhæf hugmynd

Það er óraunhæf hugmynd að leggja alla áherslu á mannfjölgun á Austurlandi í tengslum við framkvæmdir álvers Alcoa í Reyðafirði. Þetta segir lektor við Háskólann á Akureyri vegna nýrrar skýrslu Hagstofunnar sem sýnir að fólki fækkar á Austurlandi.

Börn hjálpa börnum

Söfnunin Börn hjálpa börnum hófst formlega í morgun þegar borgarráð tók hlé á fundahöldum sínum til að taka á móti tuttugu börnum úr Melaskóla. Þrjú þúsund börn munu ganga í hús og safna framlögum í bauka til að vinna stórvirki gegnum ABC barnahjálp. ABC er alfarið íslenskt framtak og allt fé til verkefna sent héðan. Á síðasta ári voru sendar um 135 milljónir króna til hjálpar bágstöddum börnum víðs vegar um heiminn og er starfið nú með um 7.000 börn á framfæri, þar af um 3þ000 börn í fullri framfærslu á heimavistum eða barnaheimilum. Fólk er hvatt til að taka vel á móti þeim börnum sem munu banka upp á og óska eftir framlagi fyrir starf ABC.

Olíufélög virðast taka meira til sín

Olíufélögin virðast græða allt að sex krónum meira fyrir hvern seldan bensínlítra nú en þau gerðu að meðaltali í júlí í fyrra þegar olíuverð á heimsmarkaði var í hámarki. Olíuverð á heimsmarkaði náði sögulegu hámarki síðastliðið sumar en hefur lækkað síðan, eins hefur staða krónu styrkst gagnvart dollara síðan.

Íslenskir hönnuðir í Kaupmannahöfn

Fjórir íslenskir hönnuðir tóku þátt í sýningunni CPH Vision sem haldin var dagana 8.-11. febrúar í Öksnehallen í Kaupmannahöfn. Íslensku hönnuðirnir sýndu haust- og vetrarlínu sína fyrir 2008 og voru ánægðir með móttökurnar. CPH vision er ein stærsta sölusýning sinnar tegundar í Skandinavíu og kemur fjöldi alþjóðlegra kaupenda á hana.

Útþrá fyrir ungt fólk í útlöndum

Hitt húsið verður á morgun með kynningu á Útþrá 2007. Kynningin miðar að námi, starfi og leik í útlöndum fyrir ungt fólk á aldrinum 15-25 ára. Sextán aðilar og fyrirtæki kynna starfsemi sína sem snýr einnig að ferðum og sjálfboðasatörfum. Allir eru velkomnir í húsnæði Hins hússins að Pósthússtræti 3-5. Kynningin hefst klukkan 16. Enginn aðgangseyrir er að fundinum og boðið verður upp á veitingar.

Heimilislausir kjósendur undirrita sáttmála

Nýtt afl krefst þess nú með undirritun sáttmála á netinu að Samfylkingin setji fram markvissa stefnu í ýmsum málum sem núverandi ríkisstjórn hefur ekki tekið nægilega ábyrgð á. Hópurinn hefur fylgst með stjórnmálum af hliðarlínunni og telur sig hafa verið heimilislausa í stjórnmálum. Óánægja hans snýr aðallega að hagstefnu stjórnvalda, hávöxtum, stórvirkjanaframkvæmdum og vegna “Evrópumets í okri á neytendum.”

Gegn veggjakroti og tyggjóklessum

Reykjavíkurborg tók í vikunni í notkun nýja háþrýstidælu til að hreinsa veggjakrot af eignum borgarinnar. Dælunni fylgir einnig búnaður til að hreinsa burt tyggjóklessur. Um er að ræða öfluga dælu sem hitar vatn upp í 120 gráður og dælir því með allt að 210 bara þrýstingi. Nóg er af verkefnum fyrir nýju dæluna, en tveir menn munu vera í verkefnum með dæluna næstu vikur.

Heimdallur 80 ára

Félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík er 80 ára í dag og fagnar afmælinu í Valhöll. Heiðursgestur verður Kjartan Gunnarsson fyrrverandi framkvæmdastjóri sjálfstæðisflokksins. Gullmerki Heimdallar verður veitt tveimur einstaklingum, en núverandi formaður Erla Ósk Ásgeirsdóttir mun flytja ávarp. Þá verður opnuð ný vefsíða Heimdallar, frelsi.is.

Bænum ber að stöðva framkvæmdir í Álafosskvos

Mosfellsbæ ber að stöðva framkvæmdir sem hafnar eru við lagningu Helgafellsbrautar. Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála kvað í gær upp bráðabirgðaúrskurð þessa efnis og hefur nefndin nú frest til loka aprílmánaðar til að úrskurða um lögmæti framkvæmdanna.

Grunnskólahátíð í Hafnarfirði

Í dag er Grunnaskólahátíðin í Hafnarfirði haldin af nemendum á unglingastigi. Sýnt verður örleikrit og atriði úr söngleikjum í íþróttahúsi Víðistaðaskóla kl. 13 og 15. Í kvöld verður síðan dansleikur fyrir unglinga í grunnskóladeildum skólanna í íþróttahúsinu við Víðistaðaskóla.

Skrípaleikur með marggefin loforð

Í gær var tekin skóflustunga að 110 rúma hjúkrunarheimili í Reykjavík. Heimilið átti að vera komið í gagnið í byrjun þessa árs en búið er að lofa byggingu þess nokkrum sinnum, m.a. fyrir alþingiskosningarnar 2003. Þetta segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir þingmaður Samfylkingar. Hún deilir á loforðagleði ríkisstjórnarinnar í aðdraganda kosninga.

Skemmdarverkin í Hafnarfirði upplýst

Þrír piltar, 15 til 17 ára, voru handteknir fyrr í dag en þeir voru grunaðir um fjölda skemmdarverka í og við Hafnarfjörð síðastliðna nótt. Ljóst er að tjónið hleypur á milljónum. Piltarnir viðurkenndu brot sín við yfirheyrslur í kvöld og telst málið nú upplýst að fullu. Þeir eru nú frjálsir ferða sinna.

Framboðslistar VG í Suðvesturkjördæmi og Reykjavík-norður samþykktir

Framboðslistar Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir komandi alþingiskosningar voru samþykktir á félagsfundi fyrir stundu. Ögmundur Jónasson skipar efsta sætið á lista Vinstri grænna í Suðvesturkjördæmi en Katrín Jakobsdóttir leiðir í Reykjavíkurkjördæmi-norður. Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi, er þar í öðru sæti.

Fólki fækkar á Austurlandi og Norðurlandi

Hagstofa Íslands hefur nú sent frá sér nýtt Hagtíðindahefti í ritröðinni Mannfjöldi um Búferlaflutninga 1986-2006. Þar kemur fram að flutningsjöfnuður var neikvæður á öllum svæðum landsins fyrir utan höfuðborgarsvæðið, Suðurnes og Suðurland.

Nýr formaður KSÍ hefur ekki enn svarað Mannréttindanefnd

Knattspyrnusamband Íslands hefur enn ekki svarað erindi Mannréttindanefndar Reykjavíkurborgar um stöðu kynjanna innan sambandsins. Erindið var upphaflega sent í nóvember og aftur nú í byrjun febrúar. Nýkjörinn formaður segir fráfarandi formann ekki hafa komist í málið vegna dvalar sinnar erlendis og segist ekki vilja tjá sig um málið nú.

Veitti saksóknara ítrekaðar ákúrur

Dómari í Baugsmálinu veitti í dag Sigurði Tómasi Magnússyni, settum saksóknara, ítrekað ákúrur fyrir að spyrja ekki hnitmiðaðra spurninga í yfirheyrslum yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs. Þriðja daginn í röð sat forstjóri Baugs fyrir svörum, nú varðandi meint bókhaldsbrot tengd Baugi.

Mokveiði úti fyrir Vestmannaeyjum

Mikil loðna er nú rétt úti fyrir Vestamannaeyjum en afar óvenjulegt er að loðna veiðist þar á þessum árstíma en loðnan sækir á þessar slóðir um mánaðamót febrúar og mars.

Kjaramál kennara ekki mál ríkisstjórnar

Stjórnarandstaðan reyndi árangurslaust á Alþingi í dag að knýja fram svör frá ríkisstjórn um hvað hún hygðist gera í kjaramálum grunnskólakennara. Forsætisráðherra svaraði einfaldlega að launamál kennara væru verkefni sveitarfélaganna.

Ferjuhöfn á Bakka og ný Vestmannaeyjaferja á næstu 3 árum

Ríkið hyggst verja fimm milljörðum króna á næstu þremur árum til ferjuhafnar í Bakkafjöru og til smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju, samkvæmt stefnumörkun samgönguáætlunar. Hafnargerðin á að hefjast á næsta ári og ljúka árið 2010. Guðjón Hjörleifsson alþingismaður spáir því að þessar framkvæmdir leiði til sameiningar Rangárþings og Eyja.

Hönnun Þjórsárvirkjana boðin út

Landsvirkjun hefur hafið útboðsferli fyrir þrjár umdeildar virkjanir í neðri Þjórsá. Í gær kom í ljós að þrjú tilboð bárust í hönnun virkjananna. Hönnun fyrir útboð á að ljúka í marsmánuði á næsta ári.

Ekkert opinbert tungumál á Íslandi

Ekkert opinbert tungumál er til á Íslandi og menn mættu þessvegna tala sanskrít á Alþingi. Athygli var vakin á þessu í fyrirspurnartíma í þinginu í dag og hvöttu bæði þingmenn og ráðherra til þess að ákvæði yrði sett í stjórnarskrá um að íslenska væri ríkistungumál Íslands.

Forneskjulegar og niðurlægjandi skoðanir

Samtökin 78 hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna skoðana sem birst hafa í fjölmiðlum undanfarið um að hægt sé að breyta kynhneigð fólks. Samtökin segja skoðanirnar forneskjulegar og niðurlægjandi og þær lýsi vanþekkingu á lífi samkynhneigðra.

Þrír handteknir í Hafnarfirði

Þrír piltar á unglingsaldri voru handteknir í húsi í Hafnarfirði í dag vegna skemmdarverka sem unnin voru á tugum bifreiða í Hafnarfirði í nótt. Piltarnir eru 16-17 ára og hafa allir komið ítrekað við sögu lögreglu. Tilkynningar tóku að berast lögreglu í morgun um skemmdir á bílum. Aðallega er um að ræða bifreiðar og vinnuvélar af hesthúsasvæðinu í Almannadal og af iðnaðarsvæðinu austan við Álverið í Straumsvík.

Þreyttur á fjölda spurninga saksóknara

Dómari í Baugsmálinu veitti í dag Sigurði Tómasi Magnússyni, settum saksóknara, ítrekað ákúrur fyrir að spyrja ekki hnitmiðaðra spurninga og fjalla um það sem ekki væri ákært fyrir í Héraðsdómi í dag.

Sjá næstu 50 fréttir