Fleiri fréttir

Fimmtán teknir fyrir ölvunarakstur um helgina

Fimmtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina, þar af fjórtán karlar eftir því fram kemur á vef lögreglunnar. Tíu voru stöðvaðir í Reykjavík, þrír í Kópavogi, einn í Hafnarfirði og einn á Álftanesi

Flugnema dæmdar bætur vegna flugslyss

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag flugkennara og flugskóla til þess að greiða flugnema um 3,8 milljónir króna í skaðabætur vegna flugslyss sem hann lenti í í æfingaflugi árið 2003.

Nemendur sendir heim í mótmælaskyni

Kennarar í barnaskólanum á Eyrarbakka sendu í morgun um áttatíu börn í efstu bekkjum skólans heim til sín um tíuleytið til þess að mótmæla því sem þeir kalla sleifarlag við framkvæmdir á skólalóðinni á Eyrarbakka.

Eiður skorar til stuðnings veikum börnum

Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðisins í knattspyrnu og leikmaður Barcelona, skrifaði í gær undir samstarfssamning við Eimskipafélag Íslands til þriggja ára bæði á sviði kynningar- og góðgerðamála.

Líðan vélsleðamanns fer batnandi

Líðan mannsnis sem lenti í snjóflóði norðan við skíðasvæðið í Hlíðarfjalli fer batnandi. Að sögn læknis á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri er hann þó enn í öndunarvél.

Keflavíkurflugvöllur notaður sem umskipunarhöfn

Keflavíkurflugvöllur var um helgina notaður sem eins konar umskipunarhöfn fyrir flutning frá Texas til Sádi-Arabíu. Það voru Antonov-flutningavélar frá Rússlandi sem önnuðust flutninginn sem var sérhæfður búnaður til borunar eftir olíu.

Dagur Kári hlýtur verðlaun á Sundance

Dagur Kári Pétursson kvikmyndaleikstjóri var einn fjögurra hugsjónamanna í kvikmyndagerð sem hlutu verðlaun á Sundance kvikmyndahátíðinni á laugardag. Verðlaunin nema tæplega 700 þúsund krónum í framleiðslustyrk, auk aðstoðar við dreifingu. Það var handrit Dags Kára “The good heart” sem tryggði honum verðlaunin. Auk peningaverðlaunanna eru myndinni tryggðar sýningar í japönsku sjónvarpi.

Ingibjörg Sólrún hefur enga trú á því að Jón Baldvin bjóði fram

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, hefur enga trú á því að Jón Baldvin Hannibalsson geri alvöru í því að bjóða fram nýjan lista í alþingiskosningum. Hann skilji manna best að menn megi ekki stökkva frá borði þrátt fyrir ágjöf. Það viti þeir best sem sjálfir hafi staðið í brúnni. Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins orðaði möguleikann á slíku framboði í Silfri Egils í gær.

120 vitni kölluð fyrir í aðalmeðferð Baugsmáls

Við fyrirtöku í morgun í Baugsmálinu, sem enn er komið í héraðsdóm, kom fram að vænta má þess að 120 vitni verði kölluð fyrir í aðalmeðferð málsins í næsta mánuði. Á þessu stigi málsins er verið að fjalla um ákæruliði sem áður hafði verið vísað frá héraðsdómi og Hæstarétti.

Þrír hafa gefið sig fram

Þrír menn af þeim fjórum sem gengu í gildru fréttaskýringaþáttarins Kompáss þegar þeir héldu sig vera að fara á fund þrettán ára stúlkubarns hafa gefið sig fram við lögreglu. Enn er óljóst hvernig ákæruvaldið mun taka á málum mannanna.

Stálu bílum í Reykjavík og á Skeiðum

Bíræfnir bílaþjófar voru á ferðinni í Reykjavík og á Skeiðum í síðustu viku eftir því sem segir á vef lögreglunnar á Selfossi. Lögregla fékk tilkynningu um að bíl hefði verið stolið af sveitabæ á Skeiðum aðfaranótt þriðjudags en hann fannst næsta dag við fjölbýlishús í Laugarneshverfi í Reykjavík.

Margrét ákveður næstu skref í dag

Margrét Sverrisdóttir ákveður á fundi í dag klukkan sex hver næstu skref hennar á vettvangi stjórnmálanna verða. Þá fundar hún með sínu nánasta samstarfsfólki úr Frjálslynda flokknum um þá stöðu sem upp er komin eftir að hún laut í lægra haldi fyrir Magnúsi Þór Hafsteinssyni í varaformannskjöri á landsfundi flokksins um helgina.

Vegfarandi varð fyrir bílhurð

Lögregla á Ísafirði rannsakar nú mál sem upp kom í gær en þá varð gangandi vegfarandi fyrir hurð á bifreið sem var ekið fram hjá honum á Skutulsfjarðarbraut. Eftir því sem fram kemur í frétt frá lögreglunni meiddist vegfarandinn ekki alvarlega en bifreiðinni var ekið á brott eftir atvikið.

Vísbendingar um að Samfylkingu hafi mistekist

Allt bendir til að Samfylkingunni hafi mistekist að verða valkostur við Sjálfstæðisflokkinn, segir Jón Baldvin Hannibalsson. Ef stofna þarf nýja hreyfingu til að fókusera á aðalatriðin þá verði menn að gera það. Hann segir ótímabært að svara því hvort hann gengi í slíkan flokk.

Þúfnapólitík réði úrslitum

Þúfnapólitík réði úrslitum hjá framsóknarmönnum á Suðurlandi, að mati Eyglóar Harðardóttur. Hún laut í lægra haldi fyrir skrifstofustjóra þingflokksins sem kjörstjórn vildi stilla upp í þriðja sætið eftir að Hjálmar Árnason gaf það frá sér.

Deilt um friðlandið á Hornströndum

Bæjarstjórinn á Ísafirði vill stækka friðland Hornstranda - en hópur landeigenda vill minnka það. Eina friðunin á Hornströndum hefur verið friðun tófunnar, segir einn landeigenda.

Vill að Margrét leiði lista í Reykjavík

Margrét Sverrisdóttir íhugar að kæra framkvæmd kosninga á landsþingi Frjálslynda flokksins þar sem hún segir hafa ríkt glundroða. Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður flokksins, vill að Margrét skipi fyrsta sæti flokksins í Reykjavík suður í næstu þingkostningum

Læknir á slysadeild varð fyrir árás

Læknir á slysadeild Landsspítalans tognaði á hendi þegar ráðist var á hann í nótt. Fjórir ungir menn voru handteknir fyrir slagsmál og læti á biðstofu slysadeildarinnar.

Dýrafjörður fullur af hafís

Dýrafjörður er enn fullur af hafís og ekki nema fyrir þá alvönustu að fara þar um sjóleiðina ef hún er ekki alveg ófær.

Íslendingar töpuðu

Íslendingar töpuðu síðasta leik sínum í milliriðli HM í handbolta gegn gestgjöfum Þjóðverja, 33-28. Þjóðverjar höfðu talsverða yfirburði í leiknum og leikur íslenska liðsins bar þess keim að liðið væri þegar búið að tryggja sig áfram í 8-liða úrslit. Nokkuð ljóst er að Ísland hafnar í 3. sæti milliriðilsins.

Mikill hafís í Dýrafirði

Hafís fyllir nú Dýrafjörð á Vestfjörðum. Nær hann langt inn fyrir Þingeyri. Slíkt hefur ekki gerst svo lengi sem elstu menn muna. Dýrafjörður er nú lokaður fyrir skipaumferð vegna hafíss. Landhelgisgæslan fór í eftirlitsflug fyrr í dag en enn á eftir að koma úr því.

Umferðaróhapp við Hítará á Mýrum

Jepplingur og fólksbíll rákust saman á einbreiðri brú yfir Hítará á Mýrum. Einhver slys urðu á fólki en ekki alvarleg. Á þessari stundu er ekki vitað hversu margir voru í bílunum tveimur. Báðir bílar skemmdust mikið og þurfti að draga þá á brott.

Ísland sex mörkum undir

Íslendingar eru sex mörkum undir í hálfleik í viðureign sinni gegn Þjóðverjum á HM í Þýskalandi. Staðan er 17-11 en íslenska liðið hefur ekki verið upp á sitt besta, en þess ber að geta að margir lykilmanna liðsins hafa verið hvíldir í fyrri hálfleiknum.

Hreiðar kemur inn fyrir Roland

Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari gerir eina breytingu á leikmannahópi íslenska landsliðsins í handbolta fyrir leikinn gegn Þjóðverjum á HM í dag. Markvörðurinn Hreiðar Guðmundsson kemur inn í hópinn í stað Roland Vals Eradze, sem hvílir að þessu sinni. Búist er við því að Alfreð geri talsverðar breytingar á byrjunarliði sínu.

Margrét ætlar að kæra framkvæmd kosninga

Margrét Sverrisdóttir ætlar sér að kæra framkvæmd varaformannskosninga í Frjálslynda flokknum. Þetta kom fram í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Þar sagði hún enn fremur að það væri ekki spurning um hvort heldur hvar og hvernig hún legði fram kæruna.

Ísland lendir aldrei neðar en í 3. sæti milliriðilsins

Nú þegar aðeins ein umferð er eftir af keppni í milliriðlum HM í handbolta liggur nokkuð ljóst fyrir hvaða lið fara í 8-liða úrslit. Lokastaða riðlanna ræðst hins vegar alfarið af leikjum dagsins. Þó er ljóst að Ísland verður ávallt fyrir ofan Frakkland, sama hvernig leikir dagsins fara, og þar með getur liðið ekki endað neðar en í 3. sæti milliriðilsins.

Ástargarður opnar á Ítalíu

Á Ítalíu, í landi heitra ástríðna, á ungt fólk nú til dags í erfiðleikum með að finna næði til þess að vera innilegt við hvort annað. Einn þessara ungu manna ákvað því að opna ástargarð. Í ástargarðinu má fólk haga sér eins og það vill og þar er beinlínis ætlast til þess að það sé innilegt við hvort annað.

Hitafundur hjá Framsókn á Selfossi

Skrifstofustjóri þingflokks Framsóknarflokksins, Helga Sigrún Harðardóttir, verður í þriðja sæti lista flokksins í Suðurkjördæmi. Það var samþykkt á fjölmennum hitafundi á Hótel Selfossi í dag.

Segir Baugsmálið hneyksli

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir Baugsmálið réttarfarslegt hneyksli og að Sjálfstæðisflokkurinn hafi att ákæruvaldinu á Baug. Hún segir ástæðuna fyrir lélegu fylgi Samfylkingarinnar í könnunum vera að flokkurinn sé of pólitískur.

Íslendingar báru sigurorð af Slóvenum

Íslendingar báru sigurorð af Slóvenum, 32-31, í viðureign liðanna á HM sem var að ljúka rétt í þessu og tryggðu sér þar með öruggt sæti í 8-liða úrslitum keppninnar. Íslenska liðið er nú komið með sex stig í milliriðli 1 og er í efsta sæti riðilsins þegar aðeins einn leikur er eftir.

Framsóknarmenn í Árborg samþykkja framboðslista

Á kjördæmisþingi Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi sem haldið var í dag á Hótel Selfoss var samþykktur framboðslisti Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi vegna alþingiskosninganna nú í vor. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra skipar fyrsta sætið, Bjarni Harðarson er í öðru sæti og Helga S. Harðardóttir í því þriðja.

Tugir þúsunda mótmæla í Bandaríkjunum

Tugir þúsunda mótmæltu í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, í dag. Fólkið var að mótmæla stríðsrekstrinum í Írak og krafðist þess að hersveitirnar yrðu sendar heim á leið. Mótmælendur báru slagorð gegn George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, og friðarorð. Ættingjar og vinir hermanna sem létust í Írak tóku einnig þátt í mótmælunum.

Magnús Þór kosinn varaformaður Frjálslyndra

Magnús Þór Hafsteinsson sigraði í varaformannskjöri Frjálslynda flokksins í dag. Mjótt varð á munum í kosningunni en Margrét Sverrisdóttir sóttist einnig eftir embættinu. Atkvæðin féllu þannig að Magnús fékk 369 atkvæði, eða 54% þeirra, en Margrét fékk 314, eða 46%. Alls kusu 686 manns. Þrír seðlar voru ógildir.

Ísland og Slóvenía eigast við

Ísland og Slóvenía eigast nú við á heimsmeistaramótinu í handbolta. Staðan er 7 - 4 fyrir Íslandi eftir tíu mínútna leik. Lið Íslendinga er óbreytt frá leiknum á móti Slóvenum og því sitja Hreiðar Levý Guðmundsson og Einar Jónsson sem fastast á meðal áhorfenda.

Öngþveiti á landsfundi Frjálslyndra

Töluvert öngþveiti ríkir á landsfundi Frjálslynda flokksins sem nú stendur yfir á Hótel Loftleiðum en um eitt þúsund manns eru á fundinum. Guðjón Arnar Kristjánsson var sjálfkjörinn í embætti formanns þar sem hann var einn í framboði. Enn er verið að kjósa í varaformannsembætti og til ritara.

Samfylkingin mun ekki þegja um Evrópumál

Samfylkingin ætlar sér ekki að taka þátt í hinu ólýðræðislega þagnarbandalagi Sjálfstæðismanna um Evrópumál. Þetta kom fram í ræðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur á aðalfundi Samfylkingarfélagsins í Reykjavík í dag.

Lítið af hafís fyrir utan Galtarvita

„Það er nærri allt autt hérna fyrir utan og ísspangirnar, þrjár eða fjórar, virðast að mestu komnar inn í djúp.“ sagði Jón Pétursson, skipstjóri á Þorláki ÍS í viðtali við fréttastofu Vísis í dag. Jón sagði ísspangirnar ekki hafa haft áhrif á ferðir þeirra. Þorlákur ÍS var staddur norður af Galtarvita.

Tannheilsu Íslendinga hrakar

Tannheilsu Íslendinga hrakar mjög. Tuttugu og tvö þúsund börn fara á mis við tannlæknaþjónustu, segir tannlæknir sem gefur heilbrigðiskerfinu falleinkunn.

Fornleifafræðingar hafna stefnu ríkisins

Bæði fagfélög fornleifafræðinga hafna alfarið stefnumörkun stjórnvalda í fornleifavernd eins og hún birtist í stefnudrögum. Félögin segja að í stefnunni birtist það sjónarmið að fornleifauppgreftir séu eyðilegging og því eigi að fækka þeim til muna.

Baugsmálið kostað sakborninga yfir milljarð

Hreinn kostnaður sakborninga í Baugsmálinu er kominn á annan milljarð króna, að sögn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, forstjóra Baugs. Hann segir engar horfur á sameiningu Skjás eins og 365 en viðræður um það hefðu þó áttu sér stað milli fyrirtækjanna.

Kosið um varaformann í dag

Kosið verður um varaformann Frjálslynda flokksins í dag á landsþingi flokksins. Tveir bjóða sig fram í embætti varaformanns, þau Margrét Sverrisdóttir og Magnús Þór Hafsteinsson.

Flutningavél Icelandair í erfiðleikum

Flutningaflugvél Icelandair varð að lenda á Egilsstaðaflugvelli í morgun vegna gruns um eld í flutningarými vélarinnar. Viðvörunarljós gáfu það til kynna en eftir að vélin lenti kom í ljós að enginn eldur var í henni. Mikill viðbúnaður var á flugvellinum vegna atviksins.

Hafís nálgast Bolungarvík

Hafís er nú farinn að nálgast Bolungarvík. Ísaröndin er næstum komin þvert yfir Ísafjarðardjúp. Hún liggur samsíða Stigahlíð og nánast að Grænuhlíð. Hafísinn virðist vera rúmar tvær sjómílur fyrir utan Bolungarvík.

Sjá næstu 50 fréttir