Fleiri fréttir

Landsþing Frjálslynda flokksins sett

Landsþing Frjálslynda flokksins hófst nú síðdegis. Mikil spenna ríkir vegna varaformannsslags Magnúsar Þórs Hafsteinssonar og Margrétar Sverrisdóttur en kosið verður á milli þeirra síðdegis á morgun.

Útilokar sakfellingu í helmingi ákæruliða Baugsmáls hins síðara

Settur saksóknari í Baugsmálinu og Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, eru á öndverðum meiði um túlkun á sýknudómi Hæstaréttar í gær. Gestur segir dóminn útiloka sakfellingu í átta af þeim átján liðum sem teknir verða fyrir í Héraðsdómi í febrúar.

Birta myndir af mönnum bera sig

Á netsíðu eru birtar myndir af íslenskum mönnum að bera sig fyrir framan vefmyndavél en áhorfendurna telja þeir vera þrettán og fjórtán ára stúlkur að sögn aðstandenda síðunnar.

Vilja að olíumálinu verði vísað frá

Tekist var á um það, í Héraðsdómi Reykjavíkur í allan dag, hvort vísa beri ákæru á hendur núverandi og fyrrverandi forstjórum stóru olíufélaganna frá dómi.

Stóraukin umsvif í Afganistan

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra ætlar að gera Afganistan að þungamiðju friðargæslu- og þróunarverkefna Íslendinga í Asíu og í því skyni á að fjölga friðargæsluliðum þar um helming. Þetta tilkynnti hún á utanríkisráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins í dag.

Nýja hús Actavis tekið í notkun

Actavis hefur tekið formlega í notkun nýja rannsóknar- og þróunarbyggingu í Hafnarfirði. Í nýbyggingunni er öll þróunarvinna félagsins á Íslandi nú sameinuð undir einu þaki og jafnframt er þar hluti af starfsemi gæðasviðs félagsins. Nýja húsið er 3.200 fermetrar og starfsmenn verða um 100 talsins.

Ekki í lífshættu eftir bílveltu á Mýrum

Karlmaður var fluttur með þyrlu á slysadeild Landspítalans eftir bílveltu skammt frá Hítará á Mýrum upp úr hádegi í dag. Maðurinn var einn í bílnum. Hann var lagður inn til frekari rannsókna en er ekki í lífshættu og ekki í öndunarvél að svo stöddu.

Tíu manns teknir í sex fíkniefnamálum

Tíu manns komu við sögu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í sex fíkniefnamálum í gær og nótt eftir því sem segir á vef hennar. Síðdegis voru tveir karlmenn, annar á fertugsaldri en hinn rúmlega tvítugur, handteknir í miðborginni en í bíl þeirra fundust ætluð fíkniefni. Um svipað leyti var farið á heimili karlmanns á miðjum aldri í Hafnarfirði en þar fundust sömuleiðis ætluð fíkniefni.

Hafís nánast kominn upp að landi Vestfjörðum

Hafís er kominn nánast upp að landi við Kóp, Sléttanes og Barða við Arnarfjörð á Vestfjörðum og segir veðurstofan að siglingaleiðir undan Vestfjörðum geti verið varasamar af þeim sökum, sérstaklega í mykri.

Kompás afhendir lögreglu umbeðin gögn

Fréttastofa Stöðvar tvö afhendir lögreglu í dag gögn, sem lögregla telur sig þurfa, til að bera kennsl á fimm einstaklinga sem myndaðir voru í tengslum við umfjöllun Kompáss um karlmenn sem leita eftir samneyti við börn í gegnum Netið. Fréttastofan afhendir almennt ekki vinnugögn sín en undantekning er gerð vegna alvarleika málsins og ríkra almannahagsmuna.

Lögreglan fær bíla og mótorhjól

Ríkislögreglustjóri afhenti lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins fyrr í dag þrjá nýja og vel útbúna lögreglubíla og eitt mótorhjól. Þetta eru fyrstu bílarnir af þeim tíu sem höfuðborgarlögreglan hefur óskað eftir á þessu ári.

Hátt í 300 myndaðir við hraðakstur á viku

Nærri þrjú hundruð ökumenn voru myndaðir í myndavélabílum lögreglunnar við Stekkjarbakka í Reykjavík og í Hvalfjarðargöngum í þessari viku þar sem þeir óku of hratt. Frá þessu er greint á vef lögreglunnar.

Náhval relur á land í Lónafirði

Sjaldgæfa sjón bar fyrir augu í botni Lónafjarðar í Þistilfirði á dögunum þegar náhval rak þar á land. Slíkan hval hefur ekki rekið á land hér frá árinu 1976, eða í rúm þrjátíu ár, eftir því sem segir á vef Hafrannsóknarstofnunarinnar, en þá rak eitt eða tvö dýr rak á land í Geldinganesi í Reykjavík.

Samþykkja aukinn stuðning við Afganistan

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra sat í dag utanríkisráðherrafund Atlantshafsbandalagsins sem haldinn var í Brussel. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu var meginumræðuefni fundarins aðgerðir bandalagsins í Afganistan og staða mála í Kósóvó.

Heildarsamtök aldraðra og fatlaðra koma ekki að framboði

Heildarsamtök aldraðra og fatlaðra koma á engan hátt að undirbúningi framboða til Alþingis sem kynnt hafa verið sem framboð öryrkja og aldraðra. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá formönnum Landssambands eldri borgara, Sjálfsbjargar - landssambands fatlaðra og Öryrkjabandalags Íslands.

Landsbankinn vex hraðar erlendis en innalands

Landsbanki Íslands kynnti uppgjör á besta ári í sögu bankans í London í morgun. Hagnaður eftir skatta var 40,2 milljarðar króna sem er 61 prósent meiri hagnaður en í fyrra. Ríflega helmingur af tekjum bankans, eða fimmtíu og tvö prósent, kemur af erlendri starfsemi. Þetta hlutfall var bara 17 prósent fyrir ári. Halldór J Kristjánsson bankastjóri, segir að velgengni bankans í Bretlandi eigi stóran hlut að máli í velgengninni.

Ekki farið ískönnunarflug í dag

Landhelgisgæslan mun ekki fara ískönnunarflug til Vestfjarða í dag þar sem það er orðið of áliðið til að fara af stað. Rafall í Fokker-vél Gæslunnar bilaði í gær og var ekki lokið við að gera við hann fyrr en nú. Birta fer nú þverrandi og því telja Gæslumenn að þeir eigi ekkert erindi á Vestfjarðamið.

Eggert ekki endurkjörinn í framkvæmdastjórn UEFA

Eggert Magnússon, formaður KSÍ, var ekki endurkjörinn í framkvæmdastjórn Knattspyrnusambands Evrópu en kosið var í dag. Eftir því sem fram kemur á vef KSÍ hafnaði Eggert áttunda sæti af þrettán frambjóðendum með 23 atkvæði en sex efstu náðu kjöri.

Vilja fá að skjóta refi í friðlandi á Hornströndum

Stjórn Skotveiðifélags Íslands vill að umhverfisráðherra beiti sér fyrir því að refaveiðar verði heimilaðar í friðlandinu á Hornströndum þar sem þeir telja að hann haldi niðri rjúpnastofninum á svæðinu.

Rúnar í stað Haraldar í skattrannsókn tengdri Baugi

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur í dag sett Rúnar Guðjónsson, sýslumann í Reykjavík, til þess að vera ríkislögreglustjóri við rannsókn á meintum skattalagabrotum fimm manna tengdum Baugi.

Fá 175 þúsund krónur í ríkisstyrk á mánuði

Nýr búvörusamningur tryggir hverjum sauðfjárbónda að jafnaði um 175 þúsund krónur í ríkisstyrk á mánuði. Bóndinn fær auk þess til viðbótar allar tekjur af afurðum búsins.

Vinstri - grænir stærri en Samfylkingin skv. könnun Frjálsrar verslunar

Vinstri - grænir mælast stærri en Samfylkingin samkvæmt skoðanakönnun sem Frjáls verslun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 17. til 22. janúar. Samkvæmt könnuninni nýtur Sjálfstæðisflokkurinn fylgis tæplega 39 prósenta landsmanna, Vinstri grænir koma næstir með 20,5 prósent og þar á eftir kemur Samfylkingin með tveimur prósentum minna fylgi en Vinstri grænir.

Bændur í Eyjafjarðarsveit vilja fá bætur vegna flóða

Um tuttugu og fimm aðilar vilja fá bætur vegna tjóns sem hlaust af flóðum í Eyjafjarðarsveit fyrir jólin. Óvíst er hversu mikið fæst bætt. Norðlenski fréttavefurinn Vikudagur hefur eftir Bjarna Kristjánssyni, sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit, að Bjargráðasjóður taki öll málin til skoðunar en sennilega fái ekki allir sem óska eftir bætur.

Ekki verði farið í gegnum Teigskóg

Helstu náttúrverndarsamtök landsins hafa sent frá sér árskorun til Alþingis þar sem þingið er hvatt til þess að sjá til þess að Vestfjarðarvegi verði valin ný veglína með göngum undir Hjallaháls og Gufudalsháls í stað þess að fara í gegnum Teigskóg eins og umhverfisráðherra hafi heimilað.

Landsþing frjálslyndra í dag og á morgun

Landsþing Frjálslynda flokksins hefst í dag á Hótel Loftleiðum klukkan fjögur en það stendur fram á morgundag. Klukkan fimm í dag flytur formaður flokksins, Guðjón Arnar Kristjánsson, ræðu sína og þá verða drög að stjórnmálaályktun einnig lögð fram í dag.

Sena tekur við kvikmyndahúsarekstri í Háskólabíói

Sena tekur við kvikmyndahúsarekstri í HáskólabíóI á allra næstu mánuðum af Sambíóunum. Þetta var tilkynnt á starfsmannafundi 365 hf. í morgun en Sena er í eigu 365. Sena leigir húsnæðið af Sáttmálasjóði Háskóla Íslands.

Landssamtök Landeigenda á Íslandi stofnuð

Stofnfundur Landssamtaka Landeigenda á Íslandi var haldin í Sunnusal Hótels Sögu í dag. Salurinn var fullur út úr dyrum og aðstandendur fundarins telja að skráðir stofnfélagar séu hátt í 300 talsins. Guðný Sverrisdóttir, sveitastjóri Grýtubakkahrepps, var kjörin formaður samtakanna.

„Vörnin ekki nógu góð“ segir Alfreð

Alfreð Gíslason segir dómgæsluna í leiknum við Pólverja hafa verið mjög sérstaka á köflum en vill þó ekki kenna dómurunum alfarið um tapið. „Við vorum bara ekki að spila vel í vörninni", segir Alfreð sem einnig hefur nokkrar áhyggjur af meiðslum íslensku leikmannana enda sé breiddin ekki mikil.

Drekkum vatn og verndum tennurnar

Lýðheilsustöð stendur fyrir árlegri tannverndarviku í næstu viku, 29. janúar til 2. febrúar. Slagorð vikunnar verða „Drekkum vatn“ og á það að minna fólk á að vatn er betri svaladrykkur en gosdrykkur. Samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar á tannheilsu íslenskra ungmenna á aldrinum sex, tólf og fimmtán ára er tannheilsa töluvert vandamál hjá þessum hópi.

Heimamenn eignast Hraðfrystistöð Þórshafnar

Fræ ehf., eignarhaldsfélag í eigu Langanesbyggðar, hefur keypt 30% eignarhlut FSP hf. í Hraðfrystistöð Þórshafnar hf. og fer nú með 60% eignarhlut í félaginu en 30% eru í eigu Þórskaupa og 10% í eigu Þórshafnar fjárfestingar.

Tap fyrir Pólverjum

Íslenska landsliðið tapaði í kvöld 35-33 fyrir Þjóðverjum í milliriðli 1 á HM. Íslenska liðið hafði yfir í hálfleik 14-12, en Pólverjar sigu framúr í lokin og tryggðu sér mikilvægan sigur. Lukkan var einfaldlega ekki á bandi íslenska liðsins í kvöld, spænsku dómararnir áttu ekki góðan dag og þá urðu þeir Logi Geirsson og Guðjón Valur fyrir meiðslum eftir fólskuleg brot Pólverja.

Deilt um stækkun

Andstæðingar stækkunar álversins í Straumsvík saka bæjarstjórann í Hafnarfirði um blekkingar og telja víst að meirihluti Hafnfirðinga muni hafna stækkuninni í íbúakosningu. Bæjarstjórinn segist hlynntur fyrirliggjandi áformum en setur þó nokkra fyrirvara.

Baugsmenn sýknaðir

Það urðu tímamót í Baugsmálinu í dag þegar Hæstiréttur sýknaði sakborningana í Baugsmálinu, þau Jón Ásgeir Jóhannesson - systur hans Kristínu og endurskoðendurna Stefán Hilmarsson og Önnu Þórðardóttur. Hinu upprunalega Baugsmáli er því í raun lokið en málið er búið að fara allt í tvo hringi í íslenska dómskerfinu, en málið hófst með húsleit í ágúst 2002.

Samgöngubætur hækka fasteignaverð og lækka vöruverð

Samgöngubætur hækka fasteignaverð, fjölga störfum, lækka vöruverð og auka vöruúrval og framboð þjónustu. Þetta sýna rannsóknir sem gerðar hafa verið hérlendis og kynntar voru á ráðstefnu um samgöngumál í dag.

Málaferli í uppsiglingu um eignarhald á Vatnsenda

Samningur Kópavogsbæjar um lóðir í Vatnsendalandi gæti fært eiganda jarðarinnar tólf milljarða króna tekjur, að mati oddvita Samfylkingarinnar í bæjarstjórn. Málaferli eru hins vegar í uppsiglingu um hver eigi jörðina en þau snúast um ákvæði sjötíu ára gamallar erfðaskrár.

Fá ríflegan skattafslátt en njóta allra réttinda

Eitt hundrað og fimm hjón sem höfðu lifibrauð sitt einungis af fjármagnstekjum, samkvæmt skattframtali höfðu tæpar níu milljónir á ári að meðaltali í árstekjur, en mikill munur er á þeim tekjulægstu og tekjuhæstu í hópnum. Fjármagnseigendur greiða minna en þriðjung þeirra skatta sem venjulegir launþegar þurfa að borga. Þeir njóta hins vegar sambærilegra réttinda til að fá barnabætur og vaxtabætur.

Utanríkisráðherra fundar í Lichtenstein

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra átti í dag fund með Ritu Kieber–Beck utanríkisráðherra Liechtenstein. Á fundinum voru sameiginleg hagsmunamál landanna rædd, meðal annars stækkun evrópska efnahagsvæðisins og málefni EFTA og Heimsviðskiptastofnunarinnar. Þá ræddu ráðherrarnir um þróunarmál og möguleika á auknum samskiptum á sviði menningarmála.

„Settur saksóknari situr í forinni“

„Þetta er mjög ánægjuleg niðurstaða og í samræmi við það sem ég vissi í hjarta mínu að myndi gerast,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, í yfirlýsingu eftir að Hæstiréttur sýknaði í dag hann og þrjá aðra tengda Baugi af sex ákæruliðum sem eftir voru af upprunalega Baugsmálinu.

Einn grunaður um íkveikju í húsi í Þorlákshöfn

Bráðabirgðarannsókn lögreglunnar á Selfossi á brunanum í Þorlákshöfn um síðustu helgi hefur leitt í ljós að notaður hafi verið eldfimur vökvi til þess að kveikja í húsinu. Ein maður er grunaður um íkveikjuna og situr hann enn í gæsluvarðhaldi vegna málsins en það rennur út þann 5. febrúar.

Eins og hálfs árs fangelsi fyrir veskisþjófnað

Hæstiréttur staðfesti í dag eins og hálfs árs fangelsisdóm hérðasdóms yfir karlmanni sem sakfelldur var fyrir að hafa stolið veski úr verslun sem hann vann hjá og tekið út tíu þúsund krónur af debetkorti í veskinu. Með þessu rauf hann skilorð dóms þar sem hann hafði hlotið 18 mánaða fangelsi.

Tvítugur maður dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir manndrápstilraun

Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag fimm ára fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Daníel Þór Gunnarssyni fyrir tilraun til manndráps. Daníel réðst karlmann á veitingastað í miðborg Reykjavíkur í mars á síðasta ári og stakk hann með hnífi.

Sjá næstu 50 fréttir