Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fimmtungur leikskóla án opinberrar uppeldisstefnu Um fimmtungur leikskóla hefur ekki opinbera uppeldisstefnu og annars eins hópur hefur ekki mótað eigin skólanámskrá samkvæmt könnun sem menntamálaráðnuneytið gerði í fyrra. Fram kemur í vefriti menntamálaráðuneytisins að auk þess hafi um sjö prósent leikskóla hvorki opinbera uppeldisstefnu né eigin skólanámskrá. 25.1.2007 14:44
Netperri áreitir unglingsstúlkur á Vestfjörðum Lögreglan á Ísafirði rannsakar nú mál þar sem ókunnur aðili eða aðilar hafa beðið um leyfi til þess að eiga samtal við unglingsstúlkur í gegnum Netið og hafa síðan jafnvel berað sig í vefmyndavél sem birtist óvænt á tölvuskjá viðkomandi stúlkna. Bendir lögregla á að slíkt geti geti varðað við kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga. 25.1.2007 14:32
Stöðvaði umferð á gatnamótum vegna símtals Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti í gær að hafa afskipti af ökumanni sem tafði umferð á gatnamótum. Maðurinn hélt kyrru fyrir eftir að græna ljósið kom á umferðarljósin en svo vildi til að lögreglubíll var meðal þeirra sem biðu fyrir aftan bílinn. 25.1.2007 14:24
Saka bæjarstjóra um að taka þátt í kosningabaráttu Alcan Samtökin Sól í Straumi, sem berjast gegn stækkun álvers Alcan í Straumsvík, saka Lúðvík Geirsson, bæjarstjóra í Hafnarfirði, um að vera í grímulausri kosningabaráttu með Alcan fyrir stækkun álversins og sömuleiðis um að fara með ósannindi í umræðunni. 25.1.2007 13:49
Byggja þjónustuhús fyrir fiskimenn á Srí Lanka Framkvæmdir eru hafnar á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands við ellefu byggingar á sex löndunarstöðum á vestur- og suðurströnd Srí Lanka. Fram kemur í tilkynningu frá stofnuninni að um sé að ræða fiskmarkaðshús, fjarskiptahús og salerni fyrir sjómenn og fiskverkendur sem nýta löndunarstaðina. 25.1.2007 13:29
HÍ og KHÍ sameinist á næsta ári Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mælti fyrir frumvarpi um sameinginu Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands á Alþingi nú fyrir hádegi. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að þeir sameinist undir nafni Háskóla Íslands og að sameiningin verði að veruleika 1. júlí á næsta ári. 25.1.2007 12:45
Ráðherrar sakaðir um að lítilsvirða þingið Þingmenn stjórnarandstöðunnar mótmæltu því harðlega í morgun að stefnumótun ríkisstjórnarinnar í innflytjendamálum yrði ekki tekin til meðferðar í þinginu. Þingmaður Samfylkingarinnar sagði þetta lítilsvirðingu við þingið og þingflokksformaður Vinstri - grænna sagði óþolandi að ráðherrar ríkisstjórnarinnar breyttu ráðuneytum sínum í kosningaskrifstofur þegar alþingiskosningar væru í nánd. 25.1.2007 12:17
Verð á fiski hækkar Gengislækkun krónunnar og aukin eftirspurn eftir ferskum íslenskum fiski í útlöndum veldur því að fiskur hefur hækkað um tíu til tuttugu prósent í fiskbúðum og fiskborðum stórverslana á höfuðborgarsvæðinu, á einu ári. 25.1.2007 12:03
Núllið úrelt Verið er að skoða fyrirkomulag almenningssalerna í miðborg Reykjavíkur. Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar skoðar sérstaklega breytingar á Núllinu, almenningssalerni, sem er neðanjarðar við Bankastræti. 25.1.2007 11:30
Vilja hafa eitthvað um Vatnajökulsþjóðgarð að segja Samtök útivistarfélaga gera alvarlegar athugasemdir við frumvarp sem liggur fyrir Alþingi um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Samtökin fagna hugmyndum um stofnun þjóðgarðsins en telja útfærslu á þeim ábótavant. 25.1.2007 11:04
Mikil hækkun á fiskverði milli ára Verð á fersku fiskmeti hefur hækkað mikið frá því í janúar í fyrra, að því er fram kemur í nýrri verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ, sem gerð var í verslunum á höfuðborgarsvæðinu í dag miðvikudaginn 24. janúar. Meðalverð flestra tegunda sem skoðaðar voru hefur hækkað um 10-20%, frá því í könnun verðlagseftirlitsins í janúar 2006, en dæmi eru um ríflega 30% verðhækkun milli ára. 24.1.2007 23:30
Brotist inn í sumarbústað Lögreglan í Borgarnesi handtók um hádegisbil í dag fjóra einstaklinga um tvítugt sem höfðu brotist inn í sumarbústað í Svínadal í fyrrinótt. Fjórmenningarnir höfðu neytt fíkniefna en lögregla fann á þeim 10 grömm af hassi og eitthvað af alsælu. Fólkið braut rúður til þess að komast inn í sumarbústaðinn og héldu síðan upp á það með partýstandi fram eftir nóttu. 24.1.2007 22:15
VG segja samstöðu ekki náð um stækkun álbræðslu Vinstri grænir í Hafnarfirði hafna því að það sé þverpólitísk samstaða í bæjarstjórn Hafnarfjarðar um stækkun álbræðslunnar í Straumsvík. Þeir mótmæla því harðlega yfirlýsingu bæjarstjóra Hafnarfjarðar þar að lútandi en þetta kemur fram í tilkynningu frá bæjarstjórnarflokki og stjórn Vinstri grænna. 24.1.2007 21:45
Harður árekstur á Álftanesvegi Harður árekstur varð klukkan hálf sjö í kvöld á Álftanesvegi. Um tvo bíla var að ræða og skemmdust báðir töluvert. Engin alvarleg slys urðu þó á fólki. 24.1.2007 21:15
Vegagerð næstu ára ákveðin Ákvarðanir um vegaframkvæmdir í landinu fram til ársins 2020 eru að mótast þessa dagana. Verið er að ákveða hvaða jarðgöng eigi að grafa, hvaða vegi eigi að tvöfalda og hvaða firði eigi að brúa. 24.1.2007 18:59
Kópavogsbær gerir betri landakaup en Reykjavíkurborg Bæjarstjórn Kópavogs hefur náð samkomulagi við eigendur Vatnsendalands um eignarnám á landi fyrir 2.500 íbúðir. Verðið sem bærinn greiðir er mun hagstæðara en það sem Reykjavíkurborg greiddi fyrir land í eigu Kjartans Gunnarssonar í Norðlingaholti seint á síðasta ári. 24.1.2007 18:58
Gæslan fær sína fjórðu þyrlu Ný þyrla Landhelgisgæslunnar, sem fengið hefur einkennisstafina TF-EIR, kom til landsins í dag. Þetta er fjórða þyrla Gæslunnar en þessi er sömu gerðar og TF-SIF. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra tók á móti áhöfn þyrlunnar á Reykjavíkurflugvelli síðdegis. 24.1.2007 18:57
Eldri borgarar og öryrkjar bjóða fram Baráttusamtök eldri borgara og öryrkja hafa ákveðið að bjóða fram í öllum kjördæmum í komandi alþingiskosningum. Þau kynntu áherslumál sín á fundi á Grand Hóteli í dag, Arndís Björnsdóttir fyrrverandi menntaskólakennari og formaður samtakanna segir að megin baráttumál nýja flokksins verði að berjast gegn tekjutengingum og vaxandi ójöfnuði í þjóðfélaginu. 24.1.2007 18:57
Ríkisútvarpið má kaupa nuddstofu og mjólkurbú Aukin ríkisvæðing með kaupum ríkisfyrirtækis á prentsmiðju og með galopnum heimildum til Ríkisútvarpsins til samkeppnisrekstrar var gagnrýnd á Alþingi í dag. Jóhann Ársælsson sagði að Ríkisútvarpinu hefði nú verið heimilað að kaupa allskonar starfsemi. 24.1.2007 18:45
Hótar að leita til dómstóla ef gögn fást ekki frá Kompási Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hótar að leita til dómstóla ef forsvarsmenn fréttaskýringaþáttarins Kompáss láta henni ekki í té upplýsingar sem snúa að tveimur þáttum þar sem tálbeita var notuð til að sýna fram á aðgengi barnaníðinga að ungum fórnarlömbum. Ritstjórn Kompáss skoðar nú beiðni lögreglunnar. 24.1.2007 18:45
Hertar mengunarkröfur í nýju deiliskipulagi um álversstækkun Meirihluti íbúa Hafnarfjarðar er á móti stækkun álversins í Straumsvík samkvæmt nýrri könnun. Línur í þessu máli eru farnar að skýrast. Fulltrúar allra stjórnmálaflokka í Hafnarfirði standa að nýju deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir stækkun álversins í Straumsvík. Almenn atkvæðagreiðsla íbúa bæjarins um deiliskipulagið fer fram þann 31. mars og leggur meirihluti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn til að einfaldur meirihluti þeirra sem taka þátt í atkvæðagreiðslunni ráði úrslitum. 24.1.2007 18:42
Túnisbúa vísað úr húsi fyrir að sparka í Íslending Túnisar virtust vera heldur sárir og svekktir með úrslitin gegn Íslendingum, en þeir gerðu miklar væntingar til sinna manna í dag. Einum áhangenda Túnisa varð svo heitt í hamsi að hann sparkaði í stuðningsmann Íslendinga. 24.1.2007 18:40
Íslendingar sneru við blaðinu í síðari hálfleik Íslendingar sigruðu Túnisa 36-30 í fyrsta leik sínum í milliriðli heimsmeistaramótinu í Þýskalandi. Algjör viðsnúningur var á frammistöðu liðsins frá því fyrri hálfleik en í leikhléi höfðu Túnisar þriggja marka forskot, 19-16. 24.1.2007 17:54
Ný þyrla Gæslunnar kemur til Reykjavíkur Nýr þyrla Landhelgisgæslunnar, sem fengið hefur einkennisstafinu TF-EIR, lenti á Reykjavíkurflugvelli upp úr klukkan fjögur í dag. Þetta er fjórða þyrla Gæslunnar og er samskonar og TF-SIF, minni þyrla Gæslunnar. 24.1.2007 16:52
Ætla að leita réttar síns ef skipið verður ekki fjarlægt Bæjaryfirvöld í Sandgerði hyggjast leita réttar síns fyrir dómstólum ef eigendur Wilsons Muuga hefja ekki vinnu við að fjarlægja skipið innan skamms. 24.1.2007 16:52
Kynnti heildstæða stefnu í málefnum innflytjenda Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt stefnu um aðlögun innflytjenda að íslensku samfélagi sem innflytjendaráð hefur unnið á undanförnum misserum. Stefnan var kynnt á blaðamannafundi í félagsmálaráðuneytinu í dag. 24.1.2007 16:36
Fundur um rýmingaráætlun vegna hugsanlegs stíflurofs Almannavarnanefnd Fljótsdalshéraðs og Borgarfjarðar eystri ásamt Almannavarnadeild ríkislögreglustjórans halda á morgun borgarafund að Brúarási á Jökuldal þar sem kynnt verður fyrir íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á svæðinu stöðu rýmingaráætlunar vegna hugsanlegs stíflurofs við Hálslón. 24.1.2007 15:35
Stríðsmálaðir áhangendur Túnis mættir í höllina í Dortmund Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari hefur tekið Arnór Atlason aftur inn í íslenska landsliðshópinn sem mætir Túnis klukkan 16:30 í dag. Arnór kemur inn í stað Ragnars Óskarssonar og þá verður Roland Eradze í markinu í stað Hreiðars Guðmundssonar. Logi Geirsson er í hópnum þrátt fyrir að hafa meiðst á ökkla í leiknum við Frakka. 24.1.2007 15:12
Meirihluti á móti stækkun álversins í Straumsvík Samkvæmt áreiðanlegum heimildum fréttastofu Stöðvar 2 eru heldur fleiri Hafnfirðingar á móti stækkun álversins í Straumsvík en fylgjandi. Mjög mjótt mun þó vera á munum milli fylkinganna. Þetta kemur fram í könnun sem nýlega var gerð af Capacent-Gallup fyrir Alcan og forsvarsmenn Alcan hafa ekki enn kynnt fyrir almenning. 24.1.2007 15:08
Greiða atkvæði um deiliskipulag vegna álvers 31. mars Hafnfirðingar greiða atkvæði um það hvort álverið í Straumsvík verði stækkað þann 31. mars næstkomandi nái tillaga meirihluta Samfylkingarinnar á bæjarstjórnarfundi á þriðjudag fram að ganga. Þetta kom fram á blaðamannafundi Hafnarfjarðarbæjar vegna nýs deiliskipulags í tengslum við fyrirhugaða stækkun álversins í dag. 24.1.2007 14:55
Tæplega áttræður drukkinn undir stýri Tæplega áttræður ökumaður var tekinn fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í nótt en hann var annar tveggja sem lögreglan stöðvaði vegna ölvunarakstur í nótt. Próflaus ökumaður ók bíl sínum í gegnum grindverk við Hafnafjarðarveg, bíll hans skemmdist nokkuð og er hann óökufær. 24.1.2007 14:41
Tvö þúsund miðar seldust á Karíus og Baktus á klukkustund Yfir tvö þúsund miðar seldust á fyrsta klukkutíma miðasölu á leikritið Karíus og Baktus sem Leikfélag Akureyrar sýnir í Borgarleikhúsinu í febrúar og mars. Mikið álag var á bæði símkerfi og heimasíðu leikhússins að sögn Magnúsar Geirs Þórðarssonar, leikhússtjóra Leikfélags Akureyrar, en verið er styrkja það. 24.1.2007 14:39
Heimasíða í minningu Jóns Páls Vefsíða sem tileinkuð og heiðruð er minningu Jón Páls Sigmarssonar kraftlyftingarmanns og þjóðarhetju! hefur verið opnuð á léninu www.jonpall.is. Á vefsíðunni verður hægt að nálgast nánari upplýsingar um sögu Jón Páls heitins, myndir, tengla, gestabók og margt fleira. 24.1.2007 14:34
Lögregla kölluð til vegna rafmagnsrakvélar Lögreglumenn voru kallaðir að íbúð í Reykjavík í nótt eftir að húsráðandi varð var við undarleg hljóð sem bárust frá baðherberginu. Þegar betur var að gáð reyndust hljóðin koma frá rafmagnsrakvél sem var í gangi inni í skáp. Lögreglumenn brugðust skjótt við og slökktu á vélinni. 24.1.2007 14:30
Grunaður um nokkur innbrot Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær karlmann sem grunaður er um nokkur innbrot á höfuðborgarsvæðinu. Hann er meðal annars grunaður um að hafa stolið tækjabúnaði úr vöruhúsi og bíl aðfaranótt þriðjudags. 24.1.2007 13:56
Kynnti tillögur vegna stækkunar álvers Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, kynnti á blaðamannafundi í dag nýja deiliskipulagstillögu að fyrirhugaðri stækkun álversins í Straumsvík og tillögur um fyrirkomulag og tímasetningu á íbúakosningu. 24.1.2007 13:42
Ólafur fundaði með Kalam og Soniu Gandhi Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson átt í dag og í gær fundi með forseta Indlands dr. A.P.J. Kalam og Soniu Gandhi leiðtoga Congressflokksins. Á fundunum kom fram ríkur vilji til að efla tengsl milli landanna og að efnt yrði til samvinnu við Íslendinga á ýmsum sviðum, sem sem í orkumálum, vísindum, tækni og viðskiptum.´ 24.1.2007 13:34
Gripið hafi verið til fullnægjandi aðgera vegna máls barnaníðings Dómsmálaráðuneytið telur að gripið hafi verið til fullnægjandi aðgerða vegna máls dæmds barnaníðings sem greint var frá í fréttaskýringarþætttinum Kompási á sunnudaginn var. Maðurinn reyndi að komast í samband við 13 ára stúlku í kynferðislegum tilgangi þegar hann dvaldi á áfangaheimilinu Vernd en stúlkan var tálbeita Kompáss. 24.1.2007 13:00
110 skilja ekki íslensku á öldrunarstofnunum 110 manns sem starfa á öldrunarstofnunum á landinu skilja ekki íslensku eða geta ekki tjáð sig á íslensku. Þetta kom fram í svari Sivjar Friðleifsdóttur heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Önnu Kristínar Gunnarsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar. 24.1.2007 12:32
Öryggismyndavélar veita ekki alltaf öryggi Öryggismyndavélar eru víða um borgina og telja sjálfsagt flestir að vélarnar veiti þeim öryggi. Það er þó ekki alltaf svo. 24.1.2007 12:30
Ísland sagt til fyrirmyndar í skattamálum hótela og veitingastaða Samtök hótel- og veitingasamtaka innan Evrópusambandsríkjanna HOTREC héldu ráðstefnu á föstudaginn í Búdapest um virðisaukaskatt. Samtökin hafa síðastliðin 15 ár barist fyrir tilslökun af hálfu Evrópuráðsins þess efnis að gisting og veitingaþjónusta í aðildarlöndunum verði í lægra þrepi virðisaukaskatts. 24.1.2007 12:24
TF-EIR, ný þyrla Landhelgisgæslunnar, á leið til landsins Landhelgisgæslan fær nýja þyrlu í dag og hefur hún hlotið einkennisstafina TF-EIR. Þetta verður fjórða þyrla Gæslunnar og er samskonar og TF-SIF, minni þyrlan. Hún er leigð frá Noregi og fljúga flugmenn Landhelgisgæslunnar henni til Íslands. 24.1.2007 12:16
Kópavogur kaupir mun ódýrara en Reykjavík Lóðarverð á hverja íbúð sem Kópavogsbær greiðir landeiganda Elliðavatns samkvæmt eignarnámssamkomulagi við hann er vel innan við tvær milljónir á íbúð, að sögn Gunnars Birgissonar bæjarstjóra. 24.1.2007 12:15
Ríkisfyrirtæki gagnrýnt á Alþingi fyrir að kaupa prentsmiðju Ríkið var sakað á Alþingi í morgun um að gera strandhögg á prentmarkaði með kaupum Íslandspósts á fyrirtækinu Samskiptum. Samgönguráðherra varði kaupin en þingmaður Framsóknarflokks sem og Samfylkingarþingmenn gagnrýndu þau harðlega. 24.1.2007 12:00
Þjónustusamningur Verndar endurskoðaður Þjónustusamningur Verndar og Fangelsismálastofnunar verður endurskoðaður sérstaklega vegna barnaníðings, sem þar dvaldi og braut skilorð. 24.1.2007 11:58