Fleiri
Myrtir fyrir að fara yfir akur 28.11.2006 16:56 Raforkuverð til almennings hækkar um 2,4 prósent um áramót Raforkuverð til almennings á veitusvæði Orkuveitu Reykjavíkur hækkar um 2,4 prósent frá áramótum. Þetta kom fram á stjórnarfundi Orkuveitunnar í dag. Fram kemur á heimasíðu fyrirtækisins að hækkunina megi rekja til hækkunar á gjaldskrá Landsvirkjunar um tíu prósent frá ársbyrjun 2005, en Orkuveitan kaupir um 60 prósent af rafmagni til almennings af Landsvirkjun. 28.11.2006 16:56 Björn á ráðherrafundi Pompidou-hópsins Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, flutti í dag ræðu á ráðherrafundi Pompidou-hópsins svokallaða í Strassborg, en hópurinn starfar undir handarjaðri Evrópuráðsins og samræmir stefnu og starf þátttökuríkjanna í baráttunni gegn fíkniefnum. 28.11.2006 16:38 Tap HB Granda ríflega milljarður á fyrstu níu mánuðum ársins Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækisins HB Granda nam rúm einum og hálfum milljarði króna á þriðja ársfjórðungi ársins samkvæmt uppgjöri. Er það nærri milljarði meiri hagnaður en á sama tíma í fyrra. Hins vegar er tap fyrirtækisins á fyrstu níu mánuðum ársins rúmlega milljarður en ríflega 900 milljóna króna hagnaður varð af rekstri fyrirtækisins á sama tíma í fyrra. 28.11.2006 16:17 Fréttir Stöðvar 2 fá nýtt útlit og lengjast Í kvöld verða breytingar hjá sjónvarpsfréttastofu 365 miðla. Tekið verður upp upprunalega heitið Fréttastofa Stöðvar 2 og samfara því fær fréttastofan og öll umgjörð fréttaútsendingarinnar - sem og Ísland í dag og Ísland í bítið - nýja og gerbreytta ásýnd. Fréttastef hafa líka verið endurunnin. Fréttatími Stöðvar 2 lengist á þessum tímamótum og hefst frá og með deginum í dag kl. 18.18. 28.11.2006 16:12 Rafmagn fór af í Reykhólasveit í slæmu veðri Rafmagn er nú komið á á flestum stöðum í Reykhólasveit á Vestfjörðum en rafmagn fór þar af fyrr í dag. Að sögn Þorsteins Sigfússonar, svæðisstjóra Orkubús Vestfjarða á Hólmavík, var slæmu veðri líklega um að kenna og er dísilrafstöð nú notuð til rafmagsframleiðslu að Reykhólum. 28.11.2006 16:00 Keyrði ítrekað á annan bíl Lögreglan í Reykjavík fékkst í gær við heldur óvenjulegt mál tengt umferðinni. Þannig ók maður bíl sínum ítrekað og vísvitandi á annan bíl sem var mannlaus og kyrrstæður á bílastæði og hlutust af því nokkrar skemmdir. 28.11.2006 15:46 SVÞ gagnrýnir að verkefni séu færð frá einkafyrirtækjum til sýslumanns Samtök verslunar og þjónustu mótmæla harðlega þeirri ákvörðun utanríkisráðuneytisins að fela sýslumannsembættinu á Keflavíkurflugvelli að taka við vopnaleit og öryggiseftirliti með farþegum á vellinum í stað Securitas og Öryggismiðstöðvar Íslands. 28.11.2006 15:40 Sjá næstu 50 fréttir
Breytingatillögurnar um RÚV breyta litlu Svonefndar breytingatillögur á auglýsingasölu Ríkisútvarpsins, eftir að það verður gert að opinberu hlutafélagi, virðast fela í sér óbreytt ástand frá því sem nú er. 30.11.2006 12:00
RÚV frumvarp afgreitt úr menntamálanefnd Frumvarp um RÚV ohf. var afgreitt úr menntamálanefnd Alþingis eftir fund þar í kvöld. Var frumvarpið samþykkt með atkvæðum meirihlutans gegn atkvæðum minnihlutans. Fáeinar breytingatillögur voru samþykktar og voru þær flestar tæknilegar. Þó var ákveðið að vefsíða RÚV yrði áfram auglýsingalaus og að kostunarþáttur auglýsingatekna myndi halda sama hlutfalli og hann er í núna, eða um tíu prósent. 29.11.2006 21:58
Togari sem strandaði laus Togarinn Skafti SK, sem tók niðri í Hafnarfjarðarhöfn í kvöld, er nú laus. Fór hann út fyrir leiðina sem liggur úr höfninni og festist á svipuðum stað og togararnir tveir sem slitnuðu upp í óveðrinu á höfuðborgarsvæðinu fyrir nokkrum vikum. Skafti SK losaði sig sjálfur þegar flæða tók að og ekki er búist við neinum skemmdum. 29.11.2006 21:19
Aðstoð við Afgana verður aukin Íslensk stjórnvöld hyggjast auka framlög til endurreisnar- og þróunarverkefna í Afganistan, auk þess að taka þátt í flutningum fyrir þau aðildarríki NATO sem hafa liðsafla í sunnanverðu landinu. Þessu lýsti Geir H. Haarde forsætisráðherra yfir á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem lauk í dag. 29.11.2006 19:30
Telja núverandi varnafyrirkomulag ófullnægjandi Góðar líkur eru á að norski flugherinn hefji reglubundið eftirlitsflug um íslenska lofthelgi. Danir, Bretar og Kanadamenn eru einnig áhugasamir um varnarsamstarf við Íslendinga. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar segja að þetta sýni að samkomulag Íslands og Bandaríkjanna tryggi ekki varnir landsins. 29.11.2006 18:56
Ráðstöfunartekjur aukast um allt að 9% á næsta ári Ráðstöfunartekjur fjölskyldu, með meðaltekjur og tvö börn, munu aukast um allt að níu prósent á næsta ári, vegna breytinga á skattkerfinu og samningsbundinna launahækkana. Tekjuskattur mun lækka, persónuafsláttur hækka og barnabætur verða greiddar með börnum allt til 18 ára aldurs. 29.11.2006 18:30
Dómskerfið íhaldssamt í forsjármálum Íslenska dómskerfið er íhaldssamt í forsjármálum, að mati stjórnarmanns í Félagi ábyrgra feðra. Hann segir lögin gölluð og vill að dómarar fái heimild til að dæma sameiginlega forsjá yfir börnum. 29.11.2006 17:57
Líf manns í tvísýnu eftir hjartastopp í lögreglubíl Tvísýnt er með ungan mann sem lenti í hjartastöðvun í lögreglubíl um helgina. Ætla má að máli hans verði vísað til ríkissaksóknara. 29.11.2006 17:49
Atvinnusvæði á Hólmsheiði samþykkt Tillaga að nýju atvinnusvæði á Hólmsheiði við Suðurlandsveg var samþykkt á fundi skipulagsráðs Reykjavíkur í dag. Heildarstærð hins nýja athafnasvæðis er um 110 hektarar og er það á mörkum Suðurlandsvegar og Hafravatnsvegar. Markmiðið með skipulagi þessa svæðis er að tryggja stóraukið framboð atvinnulóða í borginni, en miðað er við að skipuleggja svæðið með hliðsjón af fjölbreyttum atvinnulóðum hvað varðar starfsemi, stærð og umfang. 29.11.2006 17:37
Sjónarhóll fær styrk frá félagsmálaráðuneyti Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Andrés Ragnarsson, stjórnarformaður Sjónarhóls, undirrituðu í dag samning um styrk frá félagsmálaráðuneytinu til ráðgjafarmiðstöðvarinnar sem nemur 15 milljónum króna á ári í þrjú ár. Andrés Ragnarsson segist líta svo á að starfsemin hafi hér með verið fest í sessi. 29.11.2006 17:02
Ríkið leggi sitt af mörkum vegna almenningssamgangna Ársfundur Strætós bs. og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu skora á ríkisvaldið að leggja sitt af mörkum til að bæta rekstrarskilyrði almenningssamgangna og minnka þær álögur sem lagðar eru á starfsemina. 29.11.2006 16:56
Tap Dagsbrúnar 3,2 milljarðar króna Dagsbrún tapaði 3,2 milljörðum króna á þriðja fjórðungi ársins. Þetta er nokkuð verri afkoma en reiknað var með en gert var ráð fyrir 2,8 milljarða króna tapi. Þá tapaði félagið 4.678 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við 554 milljóna króna hagnað á sama tíma í fyrra. Tekjur félagsins þrefölduðust á milli ára. 29.11.2006 16:50
Kona bæjarstjóri í Eyjum í fyrsta sinn Rut Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs Vestmannaeyjabæjar, gegnir þessa dagana starfi bæjarstjóra í fjarveru Elliða Vignissonar, sem er í leyfi til fimmta desember. Þetta kemur fram á fréttavefnum eyjar.net. Rut er fyrsta konan sem gegnir starfi bæjarstjóra í Vestmannaeyjum. 29.11.2006 16:32
Ríkið í mál við olíufélögin Dómsmálaráðuneytið hefur falið Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni lögmanni að höfða skaðabótamál á hendur stóru olíufélögunum vegna ólöglegs verðsamráðs á tíunda áratug síðustu aldar. Vilhjálmur sagði í samtali við fréttastofu að krafan varðaði einkum meint samráð vegna útboða á olíuvörum fyrir Landhelgisgæsluna og lögregluembættin í landinu en sagði kröfugerð ekki hafa verið mótaða 29.11.2006 16:29
Myndir Sigur Rósar frá Svasílandi seldar til styrktar alnæmisverkefnum Hljómsveitin Sigur Rós hyggst selja myndir sem hún tók í ferð sinni til Svasílands á vegum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna hæstbjóðanda með það fyrir augum að safna fé til styrktar alnæmisverkefnum samtakanna í landinu. 29.11.2006 16:02
Vísindamaður spáir hruni mannkyns vegna hlýnunar Jörðin er komin með hitasótt, sem gæti þýtt átta stiga hlýnun loftslags og útrýmt lífi á stórum hluta hennar og milljörðum manna. Þannig hljóðar dómsdagsspá hins umdeilda vísindamanns, James Lovelocks. Samkvæmt spánni mun svona heit Jörð ekki geta framfleytt nema rúmlega 500 milljónum manna, eða tæplega tíunda hluta núverandi mannkyns. 29.11.2006 14:39
Hafði afskipti af manni sem skemmdi eigin bíl Lögreglan í Reykjavík fær oft óvenjuleg mál á sitt borð og í gær kom eitt slíkt upp í höfuðborginni. Þá hafði lögrela afskipit af karlamanni sem var að vinna skemmdir á bíl. Við nánari athugun kom í ljós að maðurinn var sjálfur eigandi bílsins en lögregla segir ekki vitað hvað honum hafi gengið til. 29.11.2006 14:34
Vilja að afgreiðslu RÚV-frumvarps verði frestað Stjórn Alfreðs, félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík suður, skorar á forystumenn Framsóknarflokksins að fresta afgreiðslu frumvarps um Ríkisútvarpið um óákveðinn tíma eða á meðan málið er rætt betur innan flokksins. 29.11.2006 14:21
Íslendingar taka upp stjórnmálasamband við Líberíu Íslendingar hafa tekið upp stjórnmálasamband við Afríkuríkið Líberíu. Fastafulltrúar landanna hjá Sameinuðu þjóðunum undirrituðu yfirlýsingu þess efnis í New York í gær. Líbería er í Vestur-Afríku með strönd að Atlantshafi og þar búa um 3,5 milljónir manna. 29.11.2006 13:58
Reyndu að hafa hraðbanka á brott með sér Lögregla leitar nú óprúttinna manna sem reyndu í nótt að hafa hraðbanka í útibúi Landsbankans að Klettshálsi í Reykjavík á brott með sér. Mennirnir höfðu náð að losa hraðbankann og drösla honum út úr anddyri útibúsins en þar virðast þeir hafa gefist upp enda eru hraðbankar níðþungir. 29.11.2006 13:42
Sveitarstjórn geti gefið framkvæmdaleyfi með staðfestingu aðalskipulags Við viljum ekki virkjanir í Jökulsám Skagafjarðar í tillögum að aðalskipulagi, segir í ályktun fjölmenns fundar sem haldinn var í félagsheimilinu Árgarði í Lýtingsstaðahreppi í gækvöldi. 29.11.2006 13:30
Varar við afnámi styrkja í landbúnaði Valdimar Einarsson, ráðgjafi á Nýja-Sjálandi, varar við afleiðingum þess að afnema styrkjakerfi íslensks landbúnaðar og að fella niður innflutningshömlur á erlendum landbúnaðarafurðum. Þetta kom fram í erindi hans á morgunverðarfundi Bændasamtaka Íslands sem haldinn var undir yfirskriftinni "Á að vera landbúnaður á Íslandi?" á Hótel Sögu í morgun. 29.11.2006 13:29
Flestir fyrrverandi starfsmenn komnir með vinnu Flestir fyrrverandi starfsmanna Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli eru komnir með aðra vinnu. Fimmtíu og sex fyrrverandi starfsmenn Varnarliðsins, sem búsettir eru á Suðurnesjum, eru ekki komnir með aðra vinnu. 29.11.2006 13:15
Gæði íss ófullnægjandi í 62 prósentum tilvika Örverufræðileg gæði íss úr vél voru ófullnægjandi hjá 62 prósentum fyrirtækja samkvæmt könnun sem gerð var á vegum matvælaeftirlits umhverfissviðs Reykjavíkur. 22 prósent fyrirtækja voru með fullnægjandi niðurstöður og 16 prósent fengu senda athugasemd. 29.11.2006 12:48
Hægt að stöðva framkvæmdir fyrirtækja ef starfsmannaleigur veita ekki upplýsingar Samkvæmt nýju frumvarpi félagsmálaráðherra verður hægt að stöðva framkvæmdir hjá fyrirtækjum ef starfsmannaleigur sem þau skipta við sinna ekki upplýsingaskyldum sínum. 29.11.2006 12:30
Framsóknarráðherra lét hlera síma sjálfstæðismanna Sjálfstæðismenn töldu að símar forystumanna Sjálfstæðisflokksins, Morgunblaðsins og Vísis væru hleraðir á fjórða áratug síðustu aldar, í tíð vinstristjórnar sem þá var við völd. Maðurinn sem sagður er hafa flett ofan af þessum meintu hlerunum var Bjarni Benediktsson, sem seinna átti eftir að fyrirskipa hleranir á símum vinstrimanna þegar hann varð dómsmálaráðherra. 29.11.2006 12:18
Sjúkraflugvél Landsflugs ekki í Eyjum í gærkvöld Kallað var eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar í gærkvöldi til að sækja alvarlega veikan sjúkling til Vestmannaeyja þar sem sjúkraflugvél Landsflugs var ekki í Eyjum þegar til átti að taka. 29.11.2006 12:15
Hald lagt á átta kíló af kókaíni það sem af er ári Íslenskur karlmaður á þrítugsaldri situr í gæsluvarðhaldi eftir að hafa verið handtekinn í Leifsstöð með stærstu kókaínsendingu sem fundist hefur í fórum eins manns til þessa. Tollgæslan hefur lagt hald á samtals átta kíló af kókaíni það sem af er árinu eða áttfalt meira en allt árið í fyrra. 29.11.2006 12:00
Aukin framlög til endurreisnar og þróunar í Afganistan Íslensk stjórnvöld hyggjast auka framlög til endurreisnar- og þróunarverkefna í Afganistan auk þess sem standa á að flugflutningum í þágu þeirra bandalagsríkja sem hafa liðsafla í sunnanverðu Afganistan. Frá þessu greindi Geir H. Haarde forsætisráðherra á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem lauk í Ríga í Lettlandi í dag. 29.11.2006 11:47
Lögreglan á Akureyri lýsir eftir manni Lögreglan á Akureyri lýsir eftir Gunnhalli Gunnhallssyni sem ekkert hefur spurst til síðan aðfararnótt laugardagsins 25. nóvember. Gunnhallur var sennilega klæddur í svarta dúnúlpu og gallabuxur og er 44 ára gamall. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Gunnhalls eru beðnir að hafa samband við lögregluna á Akureyri í síma 464-7705. 28.11.2006 20:32
Bregst við ásókn í búsetu í atvinnuhúsnæði Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra hélt sídegis í dag fund með staðgengli borgarstjórans í Reykjavík, formanni Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og formanni félagsmálanefndar Alþingis ásamt fleirum í því skyni að bregðast við vanda sem virðist stafa af aukinni ásókn í búsetu í atvinnuhúsnæði. 28.11.2006 19:46
Ríkið sýknað af kröfu Ásatrúarfélagsins Íslenska ríkið var í dag sýknað, í Héraðsdómi Reykjavíkur, af kröfum Ásatrúarfélagsins um sambærilegar greiðslur í sinn hlut frá hinu opinbera og þjóðkirkjan fær. Allsherjargoði telur þó að um áfangasigur sé að ræða. 28.11.2006 19:18
Þrautaganga þorsksins heldur áfram Þrautaganga þorskstofnsins heldur áfram, samkvæmt nýjustu haustmælingum Hafrannsóknarstofnunar. Fimmta árið í röð eru þorskárgangar lélegir. Staðfesting á fyrri spám, segir sérfræðingur hjá Hafró en framkvæmdastjóri LÍÚ segir að ekki þurfi að draga úr veiðum 28.11.2006 19:04
Ungir framsóknarmenn á móti því að RÚV verði gert að hlutafélagi Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna (SUF) samþykkti í dag samhljóða ályktun þar sem þingmenn eru hvattir til þess að samþykkja ekki fyrirliggjandi frumvarp um RÚV ohf. Meðal annars kemur fram í ályktuninni að SUF telur að hvorki sé hagsmunum RÚV, né almennings, best borgið með hlutafélagavæðingu heldur sé réttara að huga að því að breyta RÚV í sjálfseignarstofnun með breska ríkisútvarpið BBC sem fyrirmynd. 28.11.2006 18:52
Hefur sótt um embætti dómara Ingimundur Einarsson, sem hafði verið valinn í starf aðstoðarlögreglustjóra hjá nýju embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, hefur sótt um embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. 28.11.2006 18:51
Stríð gegn hryðjuverkum notað sem skálkasjól til hlerana Ólafur Hannibalsson segir í uppsiglingu að stríðið gegn hryðjuverkum verði notað með sama hætti og kalda stríðið, til að afsaka hleranir á símum fólks. Bæði heima- og vinnusími föður hans voru hleraðir þegar hann var þingmaður og forseti Alþýðusambandsins á sjöunda áratugnum. 28.11.2006 18:30
Falsaðir seðlar í umferð Þrír falsaðir seðlar hafa uppgötvast í borginni á síðustu dögum. Fölsunarmálum hefur þó fækkað á síðustu árum og þakkar Seðlabankinn það nýjum öryggisþáttum í peningaseðlunum. 28.11.2006 18:25
Raforkuverð til almennings hækkar um 2,4 prósent um áramót Raforkuverð til almennings á veitusvæði Orkuveitu Reykjavíkur hækkar um 2,4 prósent frá áramótum. Þetta kom fram á stjórnarfundi Orkuveitunnar í dag. Fram kemur á heimasíðu fyrirtækisins að hækkunina megi rekja til hækkunar á gjaldskrá Landsvirkjunar um tíu prósent frá ársbyrjun 2005, en Orkuveitan kaupir um 60 prósent af rafmagni til almennings af Landsvirkjun. 28.11.2006 16:56
Björn á ráðherrafundi Pompidou-hópsins Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, flutti í dag ræðu á ráðherrafundi Pompidou-hópsins svokallaða í Strassborg, en hópurinn starfar undir handarjaðri Evrópuráðsins og samræmir stefnu og starf þátttökuríkjanna í baráttunni gegn fíkniefnum. 28.11.2006 16:38
Tap HB Granda ríflega milljarður á fyrstu níu mánuðum ársins Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækisins HB Granda nam rúm einum og hálfum milljarði króna á þriðja ársfjórðungi ársins samkvæmt uppgjöri. Er það nærri milljarði meiri hagnaður en á sama tíma í fyrra. Hins vegar er tap fyrirtækisins á fyrstu níu mánuðum ársins rúmlega milljarður en ríflega 900 milljóna króna hagnaður varð af rekstri fyrirtækisins á sama tíma í fyrra. 28.11.2006 16:17
Fréttir Stöðvar 2 fá nýtt útlit og lengjast Í kvöld verða breytingar hjá sjónvarpsfréttastofu 365 miðla. Tekið verður upp upprunalega heitið Fréttastofa Stöðvar 2 og samfara því fær fréttastofan og öll umgjörð fréttaútsendingarinnar - sem og Ísland í dag og Ísland í bítið - nýja og gerbreytta ásýnd. Fréttastef hafa líka verið endurunnin. Fréttatími Stöðvar 2 lengist á þessum tímamótum og hefst frá og með deginum í dag kl. 18.18. 28.11.2006 16:12
Rafmagn fór af í Reykhólasveit í slæmu veðri Rafmagn er nú komið á á flestum stöðum í Reykhólasveit á Vestfjörðum en rafmagn fór þar af fyrr í dag. Að sögn Þorsteins Sigfússonar, svæðisstjóra Orkubús Vestfjarða á Hólmavík, var slæmu veðri líklega um að kenna og er dísilrafstöð nú notuð til rafmagsframleiðslu að Reykhólum. 28.11.2006 16:00
Keyrði ítrekað á annan bíl Lögreglan í Reykjavík fékkst í gær við heldur óvenjulegt mál tengt umferðinni. Þannig ók maður bíl sínum ítrekað og vísvitandi á annan bíl sem var mannlaus og kyrrstæður á bílastæði og hlutust af því nokkrar skemmdir. 28.11.2006 15:46
SVÞ gagnrýnir að verkefni séu færð frá einkafyrirtækjum til sýslumanns Samtök verslunar og þjónustu mótmæla harðlega þeirri ákvörðun utanríkisráðuneytisins að fela sýslumannsembættinu á Keflavíkurflugvelli að taka við vopnaleit og öryggiseftirliti með farþegum á vellinum í stað Securitas og Öryggismiðstöðvar Íslands. 28.11.2006 15:40