Fleiri fréttir Borgarráð samþykkir að selja Fríkirkjuveg 11 Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að selja húsið að Fríkirkjuvegi 11, sem áður var einbýlishús Thors Jensens athafnamanns. Þar hafa um árabil verið höfuðstöðvar Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar en í tillögunni sem lögð var fyrir á fundi borgarráðs er gert ráð fyrir því að fundið verði nýtt húsnæði fyrir þá starfsemi. 12.10.2006 14:35 Skattbyrðin hækkaði langmest á Íslandi á síðasta ári Skattbyrðin á Íslandi miðað við landsframleiðslu, hækkaði meira á síðasta ári en í nokkru öðru OECD landi, samkvæmt nýrri úttekt OECD. 12.10.2006 14:25 Gorbatsjov aftur í Höfða eftir tuttugu ár Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi leiðtogi Svoétríkjanna, sneri aftur í Höfða nú í hádeginu, tuttugu árum eftir að hann og Ronald Reagan, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, komu þar saman til fundar til að ræða afvopnunarmál stóveldanna tveggja. 12.10.2006 14:20 Ekið á mann á Akureyri Ekið var á mann við bílaleigu á Akureyri rétt eftir hádegi í dag. Maðurinn var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri en hann var með áverka á fæti. 12.10.2006 14:03 83 teknir fyrir hraðakstur í borginni í gær Lögreglan í Reykjavík tók í gær 83 ökumenn fyrir hraðakstur í borginni. Lögregla var víða við hraðamælingar og nýtti meðal annars myndavélabíl sinn óspart eftir því sem fram kemur á vef hennar. 12.10.2006 13:49 Innflutt vinnuafl aldrei eins mikið Innflutningur á erlendu vinnuafli hefur aldrei mælst eins mikil og í september eða tæplega eitt þúsund manns. Á fyrstu níu mánuðum þessa árs hafa um 4.400 nýir erlendir starfsmenn verið skráðir á íslenskum vinnumarkaði. Allt árið í fyrra voru 3.900 erlendir starfsmenn skráðir. 12.10.2006 13:44 Himnesk hollusta innkallar döðlur vegn mítla Fyrirtækið Himnesk hollusta hefur innkallað lífrænt ræktaðar döðlur sem það selur vegna svokallaðra mítla sem fundist hafa í þeim. Um er að ræða 250 og 400 gramma bakka með döðlum sem eru bestar fyrir 30.05.07 og 31.07.07. 12.10.2006 13:33 Ólöf Nordal sækist eftir 2. sæti í Norðausturkjördæmi Ólöf Nordal, framkvæmdastjóri á Egilsstöðum, hefur ákveðið að sækjast eftir öðru sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í alþingiskosningum í vor. 12.10.2006 13:00 Hinar tvær stíflurnar að klárast Ein risastífla við Kárahnjúka dugar ekki til að stöðva Jöklu. Þær verða þrjár stíflurnar sem mynda munu Hálslón, og allar eru þegar komnar í flokk stærstu mannvirkja hérlendis, því tvær hliðarstíflur eru að verða tilbúnar. 12.10.2006 12:45 Reykjavík verður friðarmiðstöð Borgaryfirvöld vinna að því að gera Reykjavík að miðstöð sáttarstarfs í alþjóðlegum deilumálum með því að koma á fót friðarstofnun í borginni, að því er fram kom í hádegisfréttum RUV. 12.10.2006 12:35 Svigrúm til hækkunar hámarkslána að myndast Félagsmálaráðherra telur að innan skamms verði hámarkslán Íbúðalánasjóðs hækkuð í 90%. Frá þessu er greint í Morgunkorni greiningardeildar Glitnis. 12.10.2006 12:24 Tekið tillit til matarskattslækkunar við vaxtaákvörðun Tekið verður tillit til lækkunar matarskatts við næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans um mánaðamótin, segir Davíð Oddsson seðlabankastjóri. Hann segir að skattalækkunin auki spennu en það sé þó til bóta að lækkunin komi ekki til framkvæmda fyrr en næsta vor þegar væntingar séu um að verðbólgan hafi hjaðnað töluvert. 12.10.2006 12:19 Hvalreki í Hrútafirði Hvalreka er að finna í landi Stóru-Hvalsár í Hrútafirði, í nágrenni við réttina. Á myndinni má sjá hvalinn liggjandi á flúru skammt frá landi. 12.10.2006 12:00 Hefja morgunflug til Bandaríkjanna Icelandair ætlar að fljúga á þrjá nýja staði og hefja morgunflug til Bandaríkjanna á næsta ári, en leggja niður flug til San Fransisco. 12.10.2006 12:00 Styrktaruppboð fyrir Ómar Ragnarsson 12.10.2006 11:52 Standa saman að frumvarpi um að gefa megi samkynhneigða saman Frumvarp sem heimilar prestum og forstöðumönnum skráðra trúfélaga sem hafa vígsluheimild, að gefa saman samkynhneigða í staðfesta samvist hefur verið lagt fram á Alþingi. Sem kunnugt er náðist ekki samkomulag um þetta atriði þegar samstaða var um umtalsverðar réttarbætur í málefnum samkynhneigðra í vor vegna andstöðu kirkjunnar. 12.10.2006 11:46 Björgólfur Thor kemur hvergi nærri tilboðinu í West Ham 12.10.2006 11:25
Sjá næstu 50 fréttir
Borgarráð samþykkir að selja Fríkirkjuveg 11 Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að selja húsið að Fríkirkjuvegi 11, sem áður var einbýlishús Thors Jensens athafnamanns. Þar hafa um árabil verið höfuðstöðvar Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar en í tillögunni sem lögð var fyrir á fundi borgarráðs er gert ráð fyrir því að fundið verði nýtt húsnæði fyrir þá starfsemi. 12.10.2006 14:35
Skattbyrðin hækkaði langmest á Íslandi á síðasta ári Skattbyrðin á Íslandi miðað við landsframleiðslu, hækkaði meira á síðasta ári en í nokkru öðru OECD landi, samkvæmt nýrri úttekt OECD. 12.10.2006 14:25
Gorbatsjov aftur í Höfða eftir tuttugu ár Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi leiðtogi Svoétríkjanna, sneri aftur í Höfða nú í hádeginu, tuttugu árum eftir að hann og Ronald Reagan, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, komu þar saman til fundar til að ræða afvopnunarmál stóveldanna tveggja. 12.10.2006 14:20
Ekið á mann á Akureyri Ekið var á mann við bílaleigu á Akureyri rétt eftir hádegi í dag. Maðurinn var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri en hann var með áverka á fæti. 12.10.2006 14:03
83 teknir fyrir hraðakstur í borginni í gær Lögreglan í Reykjavík tók í gær 83 ökumenn fyrir hraðakstur í borginni. Lögregla var víða við hraðamælingar og nýtti meðal annars myndavélabíl sinn óspart eftir því sem fram kemur á vef hennar. 12.10.2006 13:49
Innflutt vinnuafl aldrei eins mikið Innflutningur á erlendu vinnuafli hefur aldrei mælst eins mikil og í september eða tæplega eitt þúsund manns. Á fyrstu níu mánuðum þessa árs hafa um 4.400 nýir erlendir starfsmenn verið skráðir á íslenskum vinnumarkaði. Allt árið í fyrra voru 3.900 erlendir starfsmenn skráðir. 12.10.2006 13:44
Himnesk hollusta innkallar döðlur vegn mítla Fyrirtækið Himnesk hollusta hefur innkallað lífrænt ræktaðar döðlur sem það selur vegna svokallaðra mítla sem fundist hafa í þeim. Um er að ræða 250 og 400 gramma bakka með döðlum sem eru bestar fyrir 30.05.07 og 31.07.07. 12.10.2006 13:33
Ólöf Nordal sækist eftir 2. sæti í Norðausturkjördæmi Ólöf Nordal, framkvæmdastjóri á Egilsstöðum, hefur ákveðið að sækjast eftir öðru sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í alþingiskosningum í vor. 12.10.2006 13:00
Hinar tvær stíflurnar að klárast Ein risastífla við Kárahnjúka dugar ekki til að stöðva Jöklu. Þær verða þrjár stíflurnar sem mynda munu Hálslón, og allar eru þegar komnar í flokk stærstu mannvirkja hérlendis, því tvær hliðarstíflur eru að verða tilbúnar. 12.10.2006 12:45
Reykjavík verður friðarmiðstöð Borgaryfirvöld vinna að því að gera Reykjavík að miðstöð sáttarstarfs í alþjóðlegum deilumálum með því að koma á fót friðarstofnun í borginni, að því er fram kom í hádegisfréttum RUV. 12.10.2006 12:35
Svigrúm til hækkunar hámarkslána að myndast Félagsmálaráðherra telur að innan skamms verði hámarkslán Íbúðalánasjóðs hækkuð í 90%. Frá þessu er greint í Morgunkorni greiningardeildar Glitnis. 12.10.2006 12:24
Tekið tillit til matarskattslækkunar við vaxtaákvörðun Tekið verður tillit til lækkunar matarskatts við næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans um mánaðamótin, segir Davíð Oddsson seðlabankastjóri. Hann segir að skattalækkunin auki spennu en það sé þó til bóta að lækkunin komi ekki til framkvæmda fyrr en næsta vor þegar væntingar séu um að verðbólgan hafi hjaðnað töluvert. 12.10.2006 12:19
Hvalreki í Hrútafirði Hvalreka er að finna í landi Stóru-Hvalsár í Hrútafirði, í nágrenni við réttina. Á myndinni má sjá hvalinn liggjandi á flúru skammt frá landi. 12.10.2006 12:00
Hefja morgunflug til Bandaríkjanna Icelandair ætlar að fljúga á þrjá nýja staði og hefja morgunflug til Bandaríkjanna á næsta ári, en leggja niður flug til San Fransisco. 12.10.2006 12:00
Standa saman að frumvarpi um að gefa megi samkynhneigða saman Frumvarp sem heimilar prestum og forstöðumönnum skráðra trúfélaga sem hafa vígsluheimild, að gefa saman samkynhneigða í staðfesta samvist hefur verið lagt fram á Alþingi. Sem kunnugt er náðist ekki samkomulag um þetta atriði þegar samstaða var um umtalsverðar réttarbætur í málefnum samkynhneigðra í vor vegna andstöðu kirkjunnar. 12.10.2006 11:46
Harma að fjármagn sé ekki eyrnamerkt leiknu íslensku sjónvarpsefni Stjórn Félags leikskálda og handritshöfunda fagnar nýjum samingi milli Ríkisútvarpsins og Menntamálaráðuneytisins um aukinn hlut íslensks dagskrárefnis í Ríkissjónvarpinu á næstu fimm árum. Í ályktun frá stjórninni er það hins vegar harmað að í samningnum sé hvorki fjármagn né útsendingarhlutfall eyrnamerkt leiknu íslensku sjónvarpsefni. 12.10.2006 11:05
Forval VG á höfuðborgarsvæðinu 2. desember Kjörstjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á höfuðborgarsvæðinu hefur ákveðið að forval flokksins vegna þingkosninga í vor í Reykjavíkurkjördæmum suður og norður og Suðvesturkjördæmi verði haldið þann 2. desember. 12.10.2006 11:00
Afli meiri í upphafi nýs fiskveiðiárs en í fyrra Nýtt fiskveiðiár virðist hefjast ágætlega því aflinn í nýliðnum september var um 86.500 tonn sem er tæplega 22 þúsund tonnum meiri en í sama mánuði í fyrra. Þetta sýna nýjar tölur Fiskistofu. 12.10.2006 10:45
Flug milli Eyja og Selfoss hefst á næstunni Áætlunarflug á milli Vestmannaeyja og Selfoss hefst um leið og búið verður að endurnýja starfsleyfi fyrir Selfossflugvöll sem rann út fyrir tæpri viku. Flugfélag Vestmannaeyja hyggst fljúga á þessari leið og verður þetta fyrsta áætlunarflug um Selfossvöll til þessa. 12.10.2006 10:32
Samkeppniseftirlitið samþykkir samruna Exista og VÍS Samkeppnistofnun hefur lagt blessun sína yfir samruna Exista og VÍS. Exista keypti ríflega 80 prósenta hlut í VÍS í sumar og á Exista og dótturfélög þess nú nánast allt hlutafé í VÍS. 12.10.2006 10:24
Forsetinn fékk fyrsta eintakið Forseti Íslands tók í dag við fyrsta eintakinu af bókinni og geisladisknum "Ljóð í sjóð", sem MND-félagið gefur út. Í bókinni eru ljóð og myndlist eftir alla helstu listamenn þjóðarinnar og á geisladisknum eru lög sem tónlistarmenn gáfu félaginu. MND, eða hreyfitaugahrörnun, er ólæknandi sjúkdómur en um sex Íslendingar greinast með MND á hverju ári. 11.10.2006 20:46
Tap fyrir Svíum Íslenska landsliðið tapaði 2-1 fyrir Svíum í undankeppni EM á Laugardalsvelli í kvöld eftir að staðan hafði verið jöfn í leikhléi 1-1. Íslenska liðið var mun sterkari aðilinn í síðustu mínúturnar og átti Eiður Smári Guðjohnsen meðal annars skot í slá sænska marksins. 11.10.2006 20:15
Davíð trúir ekki á að Jón Baldvin hafi verið hleraður Davíð Oddsson fyrrverandi forsætisráðherra leggur lítinn trúnað á fullyrðingar Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra um að sími hans hafi verið hleraður í tíð Viðeyjarstjórnarinnar enda hafi sérfræðingar frá NATO og norsku öryggislögreglunni yfirfarið símann árlega. Davíð telur illboðlegt að hafa ekki sýnilegar varnir á Íslandi og hefði sjálfur sagt upp varnarsamningnum. Hann álasar þó ekki eftirmanni sínum fyrir samninginn sem undirritaður var í Washington í dag - en kallar hann bútasaum. 11.10.2006 19:29
Við sýndum hugrekki, visku og ábyrgð Mikhail Gorbatsjov, fyrrum leiðtogi Sovétríkjanna, kom til landsins í dag. Á morgun, 12 október, eru 20 ár síðan leiðtogafundur hans og Ronald Reagans, fyrrum Bandaríkjaforseta, var haldinn í Höfða. Einkavél Björgólfs Thórs Björgólfssonar forstjóra Novators lenti með Gorbosjov á Reykjavíkurflugvelli um klukkan 16:00. Gorbasjov sagði meðal annars í viðtali sem Þórir Guðmundsson, varafréttastjóri NFS, átti við hann í dag og flutt verður ás NFS í kvöld, að leiðtogafundurinn 12. október 1986 í Reykjavík hafi markað þáttaskil í viðræðum um takmörkun kjarnorkuvopna. 11.10.2006 18:16
"Farvegur þjóðarsáttar, " segir iðnaðarráðherra um tillögur auðlindanefndar "Farvegur þjóðarsáttar um viðkvæmt deilumál," segir iðnaðarráðherra um tillögur auðlindanefndar um verndun og nýtingu auðlinda sem kynntar voru í dag. Fulltrúar stjórnarandstöðu í nefndinni gerðu þó athugasemdir við hvernig rannsóknarleyfum um nýtingu jarðhita og vatnsafls verður úthlutað fram til ársins 2009 11.10.2006 18:06
Fimm ára fangelsi fyrir hrottafengið ofbeldi og nauðganir Karlmaður á sextugsaldri, Jón Pétursson, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að hafa ítrekað nauðgað fyrrverandi unnustu sinni og svipt hana frelsi og fyrir að hafa ráðist á aðra fyrrverandi sambýliskonu sína með ofbeldi í þrígang. 11.10.2006 17:39
Veita um 70 milljónir í friðarsjóð SÞ Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, hefur ákveðið að veita framlag sem nemur einni milljón bandaríkjadala, um 70 milljónum króna til sérstaks sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna til uppbyggingar friðar í stríðshrjáðum löndum (Peacebuilding Fund). 11.10.2006 17:01
Skrifað undir varnarsamning í Washington - Rice heimsækir Ísland Geir H. Haarde forsætisráðherra, Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra og Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, skrifuðu undir nýtt samkomulag milli Íslands og Bandaríkjanna um varnarmál í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna í Washington nú á fimmta tímanum. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra var einnig viðstaddur undirritunina. 11.10.2006 16:52
Íbúðalánasjóður eykur hlutdeild sína á markaði Íbúðalánasjóður hefur aukið hlutdeild sína á íbúðalánamarkaði að undanförnu og námu útlán hans á þriðja ársfjórðungi 11,4 milljörðum króna. Til samanburðar námu ný íbúðalán banka og sparisjóða 9,8 milljörðum á sama tímabili eftir því sem fram kemur í Vegvísi Landsbankans. 11.10.2006 16:42
Valgerður fundaði með Wolfowitz Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra átti í dag fund með Paul Wolfowitz, forseta Alþjóðabankans þar sem meðal annars var rætt um þau málefni sem eru ofarlega á baugi í starfsemi bankans, eins og orkumál og barátta gegn spillingu. 11.10.2006 16:22
Glitnir styður árveknisátak Krabbameinsfélags Íslands Glitnir hefur ákveðið að styðja árveknisátak Krabbameinsfélags Íslands sem nú stendur yfir. Af því tilefni hefur verið skipt um lit á vefsíðu Glitnis auk þess sem höfuðstöðvar Glitnis við Kirkjusand eru lýstar með bleiku ljósi. 11.10.2006 16:10
Sakfelldur fyrir tilraun til ólöglegra fuglaveiða Héraðsdómur Austurlands svipti í dag karlmann skotvopna- og veiðileyfi í eitt ár og sektaði hann um 70 þúsund krónur fyrir tilraun til ólöglegra fuglaveiða með því að hafa ekið bíl utan vega og merktra slóða til þess að komast nær veiðislóð. Annar maður sem var með honum í för var hins vegar sýknaður af sömu ákæruatriðum. 11.10.2006 15:46
Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Atvinnuleysi í september reyndist eitt prósent og minnkaði um 0,2 prósentustig milli mánaða samkvæmt áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins. Þegar horft er til septembermánaðar í fyrra hefur atvinnuleysi minnkað um 0,4 prósentustig en þá var það 1,4 prósent. 11.10.2006 15:19
Vel hægt að taka upp neysluviðmið hér á landi Starfshópur, sem iðnaðarráðherra skipaði til að kanna hvort hægt væri að semja neysluviðmið fyrir Íslands líkt og í nágrannaríkjunum, mælir með því að notuð verði svokölluð útgjaldaaðferð til að áætla framfærslukostnað heimila hér á landi. Jafnframt er lagt til að sérfróðum og hluthlausum aðila verði falið að vinna neysluviðmið með þeirri aðferð í samvinnu við Hagstofu Íslands. 11.10.2006 14:58
Bókaútgefendur og rithöfundar fagna lækkun virðisaukaskatts Félag íslenskra bókaútgefenda og Rithöfundasamband Íslands fagnar þeim tillögum ríkisstjórnarinnar að lækka virðisaukaskatt á bókum, blöðum og tímaritum úr 14 prósetum í sjö prósent þann 1. mars næstkomandi enda hafi niðurfelling eða lækkun virðisaukaskatts á bækur um langt skeið verið eitt helsta baráttumál útgefenda og rithöfunda. 11.10.2006 14:33
Fagna lækkun virðisaukaskatts en vilja afnema tolla og vörugjöld Stjórn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, fagnar þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að lækka virðisaukaskatt á matvæli, veitingaþjónustu og hótelgistingu sem og lækkun tolla á innflutt matvæli og afnámi vörugjalda að mestu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. 11.10.2006 14:08
Landhelgisgæslan og Þyrluþjónustan fá flugrekstrarleyfi Flugmálastjórn Íslands hefur veitt bæði Þyrluþjónustunni og Landhelgisgæslunni svokallað JAR-OPS 3 flugrekstrarleyfi en það var gert nú um mánaðamótin. Þetta þýðir að Þyrluþjónustan og Landhelgisgæslan mega flytja bæði fólk og vörur. 11.10.2006 14:00
Sektaður fyrir að hafa auglýst bjór Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag framkvæmdastjóra Rolf Johansen og Co. til greiðslu sex hundruð þúsund króna fyrir hafa brotið áfengislög með því að birta auglýsingar á áfengum bjór í bæði tímariti og dagblaði á síðasta ári. 11.10.2006 13:45
SVÞ svara Guðmundi Ólafssyni prófessor Samtök verslunar og þjónustu harma órökstuddar fullyrðingar Guðmundar Ólafssonar háskólaprófessors um matvöruverslunina vegna lækkunar matvælaverðs og eru þess fullviss að aðgerðir ríkisstjórnarinnar munu að fullu skila sér til neytenda. Í tilkynningu sem Samtökin sendu frá sér í dag, segir að viðvarandi ótrú Guðmundar á verslunareigendum og fullyrðingar um að lækkun skatta og tolla skili sér ekki til neytenda í lægra vöruverði veki undrun allra þeirra sem þekkja til verslunar á Íslandi. SVÞ telja að verslun í landinu muni kappkosta að láta hverja þá breytingu sem gerð verður á álögðum gjöldum á matvæli endurspeglast í smásöluverði til neytenda. 11.10.2006 13:40
Unnið að frumhönnun nýs húss að Sogni Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra segir að bæta þurfi við þrettán plássum á réttargeðdeildina að Sogni. Unnið er að frumhönnun nýs húss sem byggja á á svæðinu. 11.10.2006 13:30
Gorbatsjov kemur til landsins í dag Mikhail Gorbatsjov, fyrrum leiðtogi Sovétríkjanna, lendir á Reykjavíkurflugvelli um klukkan fjögur í dag og kemur til landsins í einkaflugvél Björgólfs Thors Björgólfssonar. 11.10.2006 13:00
Matarpokinn rúmlega helmingi dýrari í Reykjavík en í Danmörku Matarpoki sem keyptur er í Reykjavík er rúmlega helmingi dýrari en ef hann væri keyptur í Danmörku. Ef fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru teknar með í reikningsdæmið er munurinn enn sláandi. 11.10.2006 12:45
Vill verndar- og nýtingaráætlun innan fjögurra ára Auðlindanefnd iðnaðarráðherra legggur til að Alþingi samþykki verndar- og nýtingaráætlun fyrir auðlindir í jörðu sem lög eða þingsályktun eigi síðar en árið 2010. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu nefndarinnar sem kynnt var í dag. 11.10.2006 12:43