Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stillt upp hjá Sjálfstæðisflokknum í Norðvesturkjördæmi Stillt verður upp á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Þetta var ákveðið á kjördæmaráðsþingi flokksins sem fer fram á Ísafirði nú um helgina. 8.10.2006 15:04
Birkir Jón sækist eftir 2. sæti í Norðausturkjördæmi Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sækist eftir 2. sæti á lista flokksins í Norðausturkjördæmi. Birkir lýsti þessu yfir á kjördæmaráðsþingi flokksins sem nú stendur yfir á Djúpavogi. 8.10.2006 14:32
Réttað í Þverárrétt Búið er að rétta um mest allt land en í dag fara einar síðustu réttir haustsins fram í Eyjafjarðarsveit. Réttað er í Þverárrétt í dag og hófust stóðréttir þar klukkan tíu í morgun. 8.10.2006 14:09
Skiluðu rússneska fánanum Tveir karlmenn um tvítugt skiluðu skömmu fyrir hádegi í dag rússneskum fána sem þeir stálu af lóð rússneska sendiráðsins. Mennirnir skiluðu fánanum á lögreglustöðina við Hverfisgötu. Teknar voru af þeim skýrslur en þeir ásamt þriðja manninum brutust inn á lóð rússneska sendiráðsins við Túngötu aðfaranótt laugardags, eftir að hafa verið að skemmta sér í miðborg Reykjavíkur. Rússneska sendiráðið lítur málið alvarlegum augum 8.10.2006 13:46
Geta ekki notað eigin tungu á veitingastöðum Talið er að um 2000 útlendingar starfi hér réttindalausir á svörtum markaði. Formaður Matvíss er uggandi fyrir hönd félagsmanna sinna og segir fyrir neðan allar hellur að geta ekki notað eigin tungu á veitingastöðum á Íslandi. 8.10.2006 13:29
Vier Minuten hlaut Kvikmyndaverðlaun Þjóðkirkjunnar Kvikmyndin Vier Minuten eftir Chris Kraus hlaut Kvikmyndaverðlaun Þjóðkirkjunnar en verðlaunin er nú veitt í fyrsta sinn á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík 2006. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands veitti verðlaunin. 8.10.2006 12:59
Mercedes Benz sigraði í sparaksturskeppni Mercedes Benz 180 CDI sigraði í sparaksturkeppni sem haldin var í gær. Þessi fólksbíll frá Benz eyddi rétt rúmum þremur lítrum á hundraði, sem þykir einkar góður árangur. 8.10.2006 12:26
Orka virkjana í Skagafirði einungis nýtt innan héraðs Baráttusamtök hafa verið stofnuð í Skagafirði gegn virkjun fallvatna héraðsins. Hugmyndir sveitarstjórnar Skagafjarðar eru háðar því skilyrði að orkan verði einungis nýtt innan héraðs, samkvæmt sérstakri bókun. Í henni segir að það sé samfélagsleg skylda að meta alla möguleika til eflingar atvinnu- og mannlífs í Skagafirði. 8.10.2006 12:16
Verið að ljúka við tvöföldun Reykjanesbrautar í Hafnarfiði Næstu daga verður lokið við nýja tvöfalda Reykjanesbraut í Hafnarfirði norður fyrir mislæg gatnamót við Urriðaholt. Á fjórða ár eru liðið frá því framkvæmdir hófust við breikkun Reykjanesbrautar. 8.10.2006 11:54
Keyrði ölvaður á stólpa Rúmlega tvítugur karlmaður var fluttur á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahús á áttunda tímanum í morgun eftir að hafa ekið á stólpa við Breiðhöfða. Maðurinn er grunaður um ölvun við akstur. 8.10.2006 10:45
Alvarlega slasaður eftir árekstur á Kringlumýrarbraut Ökumaður fólksbifreiðar er alvarlega slasaður eftir bílslys á Kringlumýrarbraut í kvöld. Hann er fótbrotinn á báðum fótum en er ekki talinn í lífshættu. 7.10.2006 21:08
Skilningsleysi gagnvart Sogni Magnús Skúlason, yfirlæknir á réttargæsludeildinni að Sogni sakar stjórnvöld um skilningsleysi á málefnum deildarinnar en í eitt ár hafa átta geðsjúkir afbrotamenn verið þar í vistun þó að einungis séu sjö sjúkrarúm á deildinni. Fyrir viku varð að losa eitt rúm vegna bráðainnlagnar og var þá pláss losað með því að senda vistmann í ótímabundið leyfi. 7.10.2006 19:01
Fengu ekkert í samningum við Bandaríkjastjórn Íslendingar fengu ekkert í samningum við Bandaríkjastjórn umfram það sem NATO-aðild veitir, að mati Michaels Corgans, prófessors við Boston-háskóla. Hann telur að Bandaríkjamenn hafi komið fram af mikilli óbilgirni í uppgjöri þjóðanna í varnarmálum. 7.10.2006 18:57
Sala á helmingi Icelandair Fjárfestingahópur með rætur í Sambandsarmi atvinnulífsins verður kjölfestan í nýjum eigendahópi Icelandair. Félagið hefur fengið nafnið Langflug en um helgina er unnið að því að ganga frá sölu til þess og annarra fjárfesta á meirihluta í flugfélaginu og tengdum rekstri. 7.10.2006 18:54
Sækja mannskap á nýju þyrluna frá Noregi Landhelgisgæslan fékk í dag nýja þyrlu, sem er sömu gerðar og TF-LÍF og er hún leigð frá Noregi. Tveir norskir flugmenn komu með þyrlunni og koma þeir til með að starfa hér á landi næsta árið þar sem Gæsluna skortir þjálfaðan mannskap. 7.10.2006 18:51
15 ára á bíl foreldra sinna Lögreglan á Akureyri hafi í dag afskipti af 15 ára stúlku sem var að aka um bæinn á bíl foreldra sinna. Eftir að hafa stöðvað stúlkuna ók lögreglan með hana heim til foreldra sinna þar sem hún ræddi við þau. 7.10.2006 18:00
Sleit háspennulínu Lögreglan á Akureyri þurfti í dag að aðstoða mann sem var að flytja bát sinn við bæinn. Hátt mastur var á bátnum sem fór í háspennulínu á Moldhaugahálsi rétt fyrir norðan Akureyri. Þrír strengir slitnuðu við þetta en um sveitalínu er að ræða og fór rafmagn af bæjum í kring. Maðurinn slapp ómeiddur og báturinn að mestu óskemmdur. 7.10.2006 17:52
Ný þyrla Gæslunnar komin til landsins Ný leiguþyrla Landhelgisgæslunnar lenti á Reykjavíkurflugvelli laust fyrir klukkan fimm. Hún er sömu gerðar og TF-LÍF, Super Puma, og er leigð frá Noregi. Koma hennar er liður í eflingu Landhelgisgæslunnar í kjölfar brotthvarfs þyrlusveitar Varnarliðsins. Bæði Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, og Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, voru viðstaddir þegar þyrlan lenti og lýstu þeir yfir mikilli ánægju með hve skamman tíma tók að fá þyrluna til landsins. 7.10.2006 17:15
Hvetja til að jafnréttislögum verði fylgt við uppstillingu á lista Atvinnu- og stjórnmálahópur Femínistafélags Íslands og nemendur stjórnmálaskóla félagsins hvetja til þess að við uppsetningu lista fyrir komandi Alþingiskosningar verði fylgt jafnréttislögum. 7.10.2006 16:45
Sveinn sækist eftir fyrsta sæti í Norðvesturkjördæmi Sveinn Kristinsson, bæjarfulltrúi á Akranesi, gefur kost á sér í fyrsta sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Sveinn varð varabæjarfulltrúi á Akranesi árið 1990 en var kjörinn bæjarfulltrúi 1994. 7.10.2006 16:30
Dagný sækist ekki eftir endurkjöri Dagný Jónsdóttir alþingismaður sækist ekki eftir sæti á framboðslista Framsóknarflokksins á næsta kjörtímabili. 7.10.2006 16:05
Ný þyrla Landhelgisgæslunnar á leið til landsins Ný þyrla Landhelgisgælunnar er nú á leið til landsins. Hún hélt á stað frá Noregi í morgun og hafði viðkomu á leiðinni í Færeyjum. Reiknað er með að hún lendi við flugskýli Landhelgisgæslunnar um klukkan hálf fimm. Þyrlan verður þriðja þyrla Landhelgisgæslunnar og bætist í hóp TF-LÍF og TF-Sif. 7.10.2006 16:00
Rennslið í Skaftá að ná jafnvægi Rennslið við Sveinstind í Skaftá er að ná jafnvægi eftir hlaup sem hófst í ánni fyrir um 10 dögum. Fréttavefurinn Sudurland.is greinir frá þessu en þar segir að hlaupið hafi aldrei orðið verulegt enda stutt síðan hljóp úr báðum Skaftárkötlum. 7.10.2006 15:45
Flugslys sviðsett á Bíldudalsflugvelli Neyðar- og björgunarsveitaæfing hefur staðið yfir á Bíldudal í dag. Sett var á svið flugslys þar sem flugvél með 21 farþega um borð lenti harkalega á Bíldudalsflugvelli. 7.10.2006 15:15
Slapp ómeiddur eftir bílveltu Ungur karlmaður slapp ómeiddur þegar hann velti bíl sínum, um hádegisbil í dag, við Reyjarskóla í Hrútafirði. Ökumaðurinn var einn í bílnum og er bílinn gjörónýtur. 7.10.2006 15:00
Yoko Ono ætlar að helga stað friðarsúlunnar Yoko Ono, ekkja bítilsins John Lennon, er nú stödd hér á landi en í þessari heimsókn sinni ætlar hún meðal annars að helga staðinn þar sem friðarsúlur hennar koma til með að rísa í Viðey. 7.10.2006 14:30
Jens vill 4. sætið í Suðvesturkjördæmi Jens Sigurðsson formaður Ungra jafnaðarmanna í Kópavogi gefur kost á sér í 4. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Jens var um tveggja ára skeið framkvæmdastjóri Framtíðarhóps Samfylkingarinnar og Ungra jafnaðarmanna. 7.10.2006 14:15
Konur þriðjungur álversstarfsmanna á Reyðarfirði Mikil ásókn er í störf í álverinu á Reyðarfirði og hafa yfir fimmtánhundruð umsóknir borist. Þótt konur séu þriðjungur þeirra starfsmanna, sem þegar hafa verið ráðnir, vilja forsvarsmenn Alcoa-Fjarðaáls ná jöfnu kynjahlutfalli og bjóða því konum í sérstaka heimsókn á morgun. 7.10.2006 13:34
Keldur seldar? Nefnd sem fjallað hefur um málefni Tilraunastöðvar Háskólans í meinafræði að Keldum, leggur til að reist verði fimm þúsund fermetra bygging í Vatnsmýrinni undir starfsemina og Keldur verði seldar. 7.10.2006 13:14
Virkjanir hafa mikil áhrif á ferðaþjónustu í Skagafirði Skagafjarðarvirkjanir koma til með að hafa mikil áhrif á ferðaþjónustu ef af þeim verður, að mati eigenda Ferðaþjónustunnar á Bakkaflöt, en flúðasiglingar fyrirtækisins koma þá til með að leggjast af. 7.10.2006 12:45
Kaupa Icelandair Líkur eru á því að gengið verði frá sölu á ríflega helmingshlut í Icelandair á næstu dögum, að stærstum hluta til hóps fjárfesta með tengsl við fyrrum Sambandsfyrirtæki. 7.10.2006 12:10
Hátt í fimmtíu bílar eru skráðir í sparaksturskeppni Hátt í fimmtíu bílar eru skráðir í sparaksturskeppni sem hefst við Húsgagnahöllina á Bíldshöfða nú klukkan ellefu. FÍB og Atlantsolía standa að keppninni og geta þeir sem vilja vera með mætt til leiks allt til klukkan hálf eitt. 7.10.2006 11:00
Jón Baldvin ekki í framboði í Suðvesturkjördæmi Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, er ekki á meðal þeirra sem buðu sig fram í prófkjör hjá Samfylkingunni í Suðvesturkjördæmi. Framboðsfrestur rann út í gærkvöldi og gefa 19 manns kost á sér. 7.10.2006 10:42
Ríflega helmingshlutur í Icelandair group seldur? Gengið verður frá sölu á ríflega helmingshlut í Icelandair group til hóps fjárfesta um helgina, að því fram kemur í Morgunblaðinu. Þar segir að Finnur Ingólfsson, fyrrverandi forstjóri VÍS fari fyrir hópi fjárfesta sem kaupi 30 prósent í fyrirtækinu en ásamt honum komi einnig að kaupunum þeir Helgi S. Guðmundsson og Þórólfur Gíslason. 7.10.2006 10:35
Kringlumýrarbraut lokuð vegna slyss Vegna alvarlegs umferðarslyss hefur lögregla lokað Kringlumýrarbraut til suðurs rétt sunnan við Bústaðabrú. Um bílveltu er að ræða eftir árekstur við annan bíl og er tækjabíll með klippur á vettvangi. Lokun er við gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar til suðurs. Umferð sem kemst inn á brautina er vísað upp á Bústaðaveg eða inna á Hamrahlíð. Búast má við að brautin verði lokuð til kl. 20:30 í minnsta lagi. Lögrgela getur ekki gefið frekari upplýsingar að svo stöddu. 7.10.2006 19:33
19 gefa kost á sér Framboðsfresti vegna prófkjörs Samfylkingarinnar í SV-kjördæmi lauk kl. 22:00 í kvöld. Alls gefa 19 einstaklingar kost á sér í prófkjörinu. 6.10.2006 22:45
Jakob Frímann sækist eftir 3. sæti Jakob Frímann Magnússon hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3.sætið á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Framboðsfrestur rann út í kvöld. 6.10.2006 21:45
Ragnheiður stefnir á 3. sæti í Kraganum Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri og oddviti sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ, hefur ákveðið að sækjast eftir 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar í vor. Prófkjör fer fram 11. nóvember. 6.10.2006 21:30
Ferðir um draugabæ Skoðunarferðir um yfirgefna herstöðina á Miðnesheiði eru nýjasta útspilið í ferðaþjónustu á Suðurnesjum. Þar sem áður var eitt stærsta bæjarfélag landsins eru nú auðar götur og mannlaus hús. Tvær ferðir í draugabæinn á Keflavíkurflugvelli verða farnar á morgun. Fyrsta ferðin var farin í dag og hana fóru eldri borgarar og skólafólk úr Reykjanesbæ. 6.10.2006 21:18
Bardagi að bresta á Bardagi er að bresta á um Skagafjarðarvirkjanir, segir Ómar Ragnarsson, eftir að sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti í gærkvöldi að setja tvær virkjanir, Villinganesvirkjun og Skatastaðavirkjun, inn á aðalskipulagstillögu. Ómar segir að Villinganesvirkjun hafi skemmri líftíma en meðal kolanáma þar sem lón hennar fyllist á fáum áratugum. 6.10.2006 20:51
Framkvæmdastjórn fyrir rektor til mánaðamóta Framkvæmdastjórn Háskólans í Reykjavík mun sinna verkefnum Guðfinnu Bjarnadóttur rektors fram til mánaðamóta. Þetta var tilkynnt á fundi rektors með starfsmönnum skólans í dag, en háskólaráð hefur veitt Guðfinnu launalaust leyfi til októberloka, á meðan hún tekur þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. 6.10.2006 20:30
ÖBÍ undirbýr málsókn gegn lífeyrissjóðunum Öryrkjabandalagið undirbýr víðtæka málsókn gegn lífeyrissjóðunum vegna stórfelldrar kerfisbundinnar kjaraskerðingar fátækasta fólks landsins. Sjóðirnir hafa ekki sinnt erindi um að eitt prófmál hafi verið höfðað. 6.10.2006 20:15
Mótmæla brottrekstri Rafiðnaðarsamband Íslands hótar því að verkalýðshreyfingin beiti sér gegn stækkun álversins í Straumsvík vegna uppsagna þriggja starfsmanna hjá Alcan í gær. Í ályktun sambandins segir að þrír iðnaðarmenn á aldrinum 58 til 60 ára hafi verið reknir fyrirvaralaust með þeim orðum að fyrirtækið væri ekki ánægt með vinnubrögð þeirra. 6.10.2006 20:00
Ratsjárstofnun sögð hafa fylgst með sprengjuflugvélunum Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, segir Ratsjárstofnun hafa fylgst með rússneskum sprengjuflugvélum fyrir viku. Annað kemur fram í dagbókarfærslum flugumferðarstjóra í Keflavík. Ólafur Örn Haraldsson, forstjóri Ratsjárstofnunar, segir að Flugmálastjórn í Reykjavík hafi verið látin vita en vill ekki segja hvenær. Ríkisstjórnin skoðar nú boðskipti milli stofnana sem hafa eftirlit með flugumferð. 6.10.2006 19:45
Rýmt fyrir enn hættulegri manni Geðsjúkum afbrotamanni, sem dæmdur var á Sogn í kjölfar líkamsárásar og líflátshótana, var sleppt fyrir viku án dómsúrskurðar vegna þess að það þurfti að taka í vistun hættulegri einstakling. Kona sem maðurinn hefur ofsótt á grundvelli ranghugmynda árum saman fékk ekki að vita af lausn mannsins fyrr en hann sendi henni ástarbréf og blóm daginn eftir að honum var sleppt. 6.10.2006 19:09