Fleiri fréttir

Gáfu sígarettu með bíómiða

Útvarpsstöðin XFM gaf í gær forsýningarmiða á myndina "Takk fyrir að reykja" eða "Thank you for smoking" og hverjum miða fylgdi sígaretta. Boðsmiðinn gildir á sérstaka forsýningu á fimmtudag í Smárabíó en skilyrði þess að fá miða á sýninguna er að reykja. Fulltrúar Lýðheilsustöðvar eru síður en svo ánægðir með uppátækið og ætla að láta lögfræðinga sína skoða lögmæti þess að gefa sígarettur í beinni útsendingu. Þess má geta að enginn undir 18 ára fær miða.

Landhelgisgæslan leitaði báts

Þyrla Landhelgisgæslunnar auk björgunarbáta leituðu í nótt sex tonna handfærabáts um 40 sjómílur suðaustur af Horni. Báturinn hafði farið út úr sjálfvirkri tilkynningarskyldu og náðist ekki samband við hann um tíma. Nálægir bátar náðu sambandi við hann um hálftvöleytið og var allt í lagi um borð og var þyrlu og björgunarbátum þá snúið við.

Verður fluttur á sjúkrahús á Neskaupsstað

Kínverjinn sem ráðist var á í vinnubúðum Impregilo um helgina er enn á legudeild í Reykjavík en verður fluttur á sjúkrahúsið á Neskaupsstað bráðlega. Lögregla á Egilsstöðum verst allra frétta af rannsókninni en segist þó ekki rannsaka málið sem tilraun til manndráps. Kínverjar í vinnubúðunum vilja lítið sem ekkert tjá sig um málið og torveldar það rannsókn málsins. Lögreglan segist þó ekki hafa fundið neinar vísbendingar um að fótur sé fyrir orðrómi um að árásin sé til komin vegna spilaskuldar.

Heilsuleysi fylgikvilli offitu

Einari Má Kristjánssyni hefur ekki tekist að ná af sér þeim fimmtán kílóum sem er forsenda þess að komast inn á næringarsviðið á Reykjalundi.

Skólar hefjast á ný

Velflestir grunnskólar landsins verða hefjast í dag. Samkvæmt upplýsingum Hagstofu eru yfir fjögur þúsund og þrjú hundruð börn sem setja í fyrsta skipti upp skólatöskuna í þessa dagana. Um 44 þúsund börn og unglingar eru skráð til náms í grunnskólum landsins í vetur.

Fyrsta íslenska konan keppir

Guðlaug Þorsteinsdóttir hóf keppni í Íslandsmótinu í skák sem hófst í fyrradag en hún er fyrsta íslenska konan til að taka sæti í landsliðsflokki Íslandsmótsins og vinna sér rétt til að tefla um skákmeistara titilinn.

Hross sturluðust á Menningarnótt

Hross við Faxaflóann fældust vegna sprenginga á Menningarnótt. Hestur fældist við Mosfellsbæ og olli banaslysi. Málið er í rannsókn lögreglu. Þórarinn Jónasson hrossabóndi segir flugeldasýninguna hafa skelft hross sín mjög.

Stefnt að niðurstöðu fyrir októberlok

Helgi Magnús Gunnarsson, sá eini sem unnið hefur að rannsókn á samráði olíufélaganna, sneri aftur til vinnu í gær. Stefnt er á að ljúka rannsókn á samráði olíufélaganna fyrir októberlok. Óljóst er hvort einstaklingar verða ákærðir.

Kynnir áform sín í september

Rannveig Guðmundsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, ætlar að fjalla um pólitískt framhald sitt á kjördæmisþingi flokksins í Suðvesturkjördæmi um miðjan september.

Fóru til Florída í boði Alcoa

Tveir lögreglumenn frá Eskifirði fóru í boði Alcoa Fjarðaáls á tveggja vikna námskeið í Florída í Bandaríkjunum árið 2004. Mennirnir þáðu styrk í eigin nafni frá Alcoa og öðrum fyrirtækjum og stofnunum á Austurlandi til að sækja námskeið í fíkniefnaleit. Þá styrkti dómsmála- ­ráðu­­neytið mennina til fararinnar.

Reksturinn verður boðinn út

Ríkiskaup munu bjóða út rekstur á farsímakerfum á svokölluðum skuggasvæðum, svæðum þar sem farsímasamband er slæmt eða ekkert. Útboðin, sem verða að öllum líkindum tvö, eru hluti af því verkefni Fjarskiptasjóðs að bæta GSM-móttöku á svæðum þar sem ekki hefur verið talið standa undir kostnaði að halda úti GSM-þjónustu.

Kínverjarnir þegja allir sem einn

Lögreglan á Egilsstöðum rannsakar líkamsárásina í starfsmannabúðum Impregilo ekki sem manndrápstilraun. Enginn hefur verið handtekinn. Mögulegt er að árásarmenn séu horfnir úr landi samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Í betra ástandi en talið var

Hann kemur mikið betur upp heldur en ég bjóst við og mér líst vel á þetta, sagði Bjarni Thoroddsen hjá Stálsmiðjunni í Reykjavík í gær þegar hvalveiðiskipið Hvalur 9 var tekið í slipp í fyrsta sinn í sautján ár. Botninn virðist vera næstum því bara eins og hann var þegar hann fór niður nema fyrir utan alla hrúðurkarlana sem eru á honum.

Besti pylsuvagn heimsálfunnar

Pylsuvagn Bæjarins beztu í Tryggvagötu er næstbesti matsöluturn í Evrópu, samkvæmt breska blaðinu The Guardian, sem birti lista yfir fimm bestu matsöluturna álfunnar í ferðablaði sínu á laugardaginn var. Galdurinn pylsanna er sagður felast í remúlaðinu og einungis einn turn þykir taka Bæjarins beztu fram, en það er skoskur hafragrautsvagn sem ferðast um fjölfarna staði. Ég er orðlaus, segir Guðrún Kristmundsdóttir, eigandi pylsuvagnsins.

Gæsluvarðhald fellt úr gildi

Hæstiréttur hefur fellt úr gildi úrskurði Héraðsdóms Reykjaness frá 15. ágúst um að tveir menn, sem handteknir voru í kjölfar skotárásar í Hafnarfirði þann 21. júní síðastliðinn, skyldu sitja áfram í gæsluvarðhaldi til 12. september.

Ólögmæt notkun upplýsinga

Ólögmætt var að nota lista um mætingar nemanda í þeim tilgangi að meina einum þeirra þátttöku á hátíð fyrir unglinga á vegum Samfés. Þetta kemur fram í úrskurði sem Persónuvernd kvað upp 14. ágúst síðastliðinn.

Himinninn stærsta tjaldið

Slökkt verður á öllum götuljósum í Reykjavík milli klukkan tíu og hálf ellefu hinn 28. september og borgarbúum þannig gert kleift að njóta stjörnudýrðar himinhvolfsins. Myrkvunin verður sú fyrsta í heiminum sinnar tegundar, en ekki er vitað til þess að heil borg hafi verið myrkvuð áður af ásetningi.

Erlendar konur í meirihluta

Erlendar konur settu svip sinn á maraþonið í miðborg Reykjavíkur um helgina. Um eitt hundrað konur hlupu fullt maraþon, 42,2 kílómetra, þar af voru íslensku konurnar um nítján talsins.

Enn í gjörgæslu

Ökumaður bifreiðar sem lenti í árekstri á Vesturlandsvegi norðan Þingvallavegar um miðnætti á laugardagskvöld er enn í gjörgæslu. Að sögn vakthafandi læknis er líðan hans óbreytt, en honum er haldið sofandi í öndunarvél. Einn lést í slysinu sem varð eftir að hestar hlupu í veg fyrir bílinn.

Endurbætur vega í Skriðdal

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs telur brýnt að bæta vegakafla hrigvegarins um Haugaá og Vatnsdalsá í Skriðdal. Á þessu svæði er hringvegurinn mjór malarvegur og á honum eru krappar beygjur og mjóar brýr sem komnar eru til ára sinna. Bæjarráðið telur að fyrirhuguð vegagerð á þessu svæði bæti umferðaröryggi mikið og minnki hættu á umferðar- og mengunarslysum.

Fara hringinn á einum tanki

Stefán Ásgrímsson, ritstjóri FÍB blaðsins, og Óskar Örn Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, og dóttir hans Þuríður Arna lögðu af stað klukkan ellefu í gærmorgun frá Reykjavík í hringferð um landið en markmiðið er að komast ferðina á einum tanki. Takist það mun Hekla veita félaginu full afnot af bifreiðinni, sem er Skoda 1,9 dísil, í eitt ár.

Verktaki ráðinn í sorpið

Heilbrigðiseftirlitið á Austurlandi hefur gert athugasemdir við að gáma til að setja sorp í hefur vantað á Kárahnjúkum og gámarnir ekki fluttir nægilega ört niður af fjallinu til að tæma þá.

Ráfaði ölvaður af slysstað

Bíll valt í nágrenni Þingeyrar aðfaranótt sunnudags. Þegar lögreglan á Ísafirði kom á vettvang var bíllinn gjörónýtur en engan ökumann að sjá.

Lýðheilsustofnun lætur lögfræðinga kanna lögmætið

Lýðheilsustöð hefur ákveðið að láta lögfræðinga sína skoða lögmæti þess að gefa sígarettur í beinni útsendinu. Útvarpsstöðin XFM hefur í allan dag verið að gefa forsýningarmiða á myndina "Takk fyrir að reykja" (Thank You For Smoking) sem verður frumsýnd á föstudag í Smárabíói og Regnboganum. Boðsmiðarnir sem gefnir hafa verið gilda á sérstaka forsýningu á fimmtudag í Smárabíói en útvarpsstöðin lét sígarettu fylgja hverjum miða.

Hunsa boð um rússneskar þyrlur

Þrátt fyrir að íslensk stjórnvöld geti sparað að minnsta kosti á fimmta milljarð króna, með því að kaupa rússneskar björgunarþyrlur í stað franskra eða bandarískra, hefur boð um að skoða þennan valkost verið hunsað ítrekað. Utanríkisráðuneytið fékk í apríl boð frá rússneska sendiherranum um að kynna sér þessar þyrlur en ráðuneytið virti sendiherrann ekki svars.

Vill fá Hring aftur heim í Hringsdal

Landeigandi í Hringsdal vill að líkamsleifar landnámsmanns, sem fundust við uppgröft í dalnum í síðustu viku, verði fluttar aftur í dalinn til sýnis fyrir almenning. Forstöðumanni Fornleifastofnunar líst vel á hugmyndina en segir hana þó erfiða í framkvæmd.

Hvalur 9 í slipp í dag

Hvalur níu, eitt af fjórum hvalveiðiskipum Hvals hf., var tekið í slipp í dag í fyrsta skipti í sautján ár. Stjórnarformaður Hvals heldur í vonina um að hvalveiðar verði leyfðar.

Mögulegt vestnorrænt fríverslunarsvæði

Það var ályktun ársfundar Vestnorræna ráðsins í Færeyjum í dag, að ríkistjórnir Íslands, Færeyja og Grænlands eigi að kanna möguleika á aðild Grænlands að Hoyvíkur-samningnum. Sá samningur er víðtækur fríverslunarsamningur sem gerður hefur verið og leiðir hann til íslensks-færeysks efnahagssvæðis þegar hann tekur gildi síðar á árinu.

Ný verslanamiðstöð

Ef tillögur þróunarfélagsins Þyrpingar hf hljóta náð fyrir augum skipulagsnefndar Seltjarnarnessbæjar verður verslanamiðstöð byggð á rúmlega tveggja hektara landfyllingu norðaustur af Eiðistorgi

Kennsla hefst á velgengnisviku

Kennsla nýnema í grunnnámi hófst í dag við Háskólann á Akureyri. Kennslan hefst með velgengnisviku sem er sérstök kynningarvika fyrir nýnema til að undirbúa þá undir nám og störf í háskóla. Kennsla eldri nemenda hefst mánudaginn 28. ágúst samkvæmt stundaskrá.

Segir samninganefnd um varnarmál óvirka

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar segir að ekkert hafi verið gert til að virkja samninganefndina sem forsætisráðherra skipaði til að fjalla um varnarmál við Bandaríkjamenn, þótt aðeins mánuður sé í að öll starfsemi verði á bak og burt af Keflavíkurflugvelli. Litlar sem engar upplýsingar hafa þó fengist um framtíð þess eða um hvernig viðræður samninganefndarinnar, sem fjalla átti um það hvernig varnarmálum Bandaríkjamann og Íslendinga yrði háttað í framtíðinni, gengur.

Þjófnuðum hefur fækkað í Kópavogi

Þjófnuðum hefur fækkað um 27% í Kópavogi og hnuplmálum einum og sér um 40% á tímabilinu 1. janúar til 30. júní samanborið við sama tíma fyrir ári.

Útikennslustofa tekin í gagnið

Útikennslustofa, fyrsta sinnar tegundar á Íslandi verður opnuð formlega af Skógræktarfélagi Reykjavíkur á fimmtudaginn næstkomandi.

Lokun og tafir vegna vegaframkvæmda

Hringvegur 1 er lokaður til suðurs frá Grundartangavegi að Akrafjallsvegi við Hvalfjarðargöng frá klukkan 7:30-20:00 í dag. Vegfarendum er bent á að aka Akrafjallsveg.

Skólastarf hefst á morgun

Skólastarf hefst þriðjudaginn 22. ágúst. Alls munu 15.155 börn og unglingar stunda nám í grunnskólum Reykjavíkur í vetur. Rúmlega 1.500 börn hefja nám í 1. bekk.

Matt Dillon og Marissa Tomei á leið til landsins

Stórstjörnurnar Marissa Tomei og Matt Dillon eru á leið til landsins þann 30. ágúst í tilefni að opnun Iceland Film Festival. Þau leika aðalhlutverk í kvikmyndinni Factotum sem er opnunarmynd hátíðarinnar. Myndin er framleidd af Jim Stark sem framleiddi meðal annars mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Á köldum klaka. Leikstjóri myndarinnar er hinn norski Bent Hammer. Kvikmyndaunnendur hafa til mikils að hlakka en hátíðin mun standa í þrjár vikur.

Umferðarslys á Vestfjörðum um helgina

Tvö umferðarslys urðu í umdæmi lögreglunnar á Ísafirði um helgina. Árekstur varð í Mjóafirði, á laugardaginn síðastliðinn, þegar tvær bifreiðar sem komu úr gagnstæðum áttum rákust saman.

Sjö tölvuskjám stolið í Hafnarfirði

Brotist var inn í Menntasetrið við Lækinn í Hafnarfirði um helgina og sjö tölvuskjám stolið. Lögreglan í Hafnarfirði segir málið í rannsókn.

Actavis styrkir Youth in Europe í Vilnius

Actavis styrkir forvarnarverkefnið "Youth in Europe" í Vilnius. Samstarfssamningur þess efnis var undirritaður um helgina í höfuðstöðvum Actavis í Hafnarfirði.

Sjá næstu 50 fréttir