Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gripnir með stolna fartölvu Tveir grunsamlegir menn vopru gripnir glóðvolglir með fartölvu í fórum sínum í vesturborginni undir morgun og taldi lögreglan sig vera búna að finna þjófa, sem skömmmu áður höfðu brotist inn i fasteignasölu í miðborginni og stolið þaðan fartölvu. Mennirnir reyndust hinsvegar blá saklausir af því, en þó ekki saklausir eftir allt, því tölvan reyndist vera úr íbúð í vesturborginni, þar sem þeir höfðu brotist inn og stolið henni. 9.6.2006 10:00
Segir fullum sáttum náð í deilu innan Framsóknar Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir í samtali við NFS að þeir Halldór Ásgrímsson, formaður flokksins, hafi náð fullum sáttum á fundi þeirra í gærkvöld; handtakið sem sjá má á forsíðu Morgunblaðsins hafi verið traust. 9.6.2006 09:48
Fundu stolinn bíl við fíkniefnaleit Glænýr pick up bíll fanst falinn inni í bílskúr þegar lögreglan í Keflavík var að gera húsleit í Garðinum í nótt vegna gruns um fíkniefnamisferli. Þegar lögreglumenn höfðu fundið kannabis á ýmsum vinnslustigum og nokkrar kannabisplöntur á heimili hins gurnaða, datt þeim í hug að líta inn í bílskurinn, þar sem bíllinn fanst. 9.6.2006 09:30
Tekinn fyrir handrukkun vegna fasteignaviðskipta Eins konar handrukkari var handtekinn á Akureyri í nótt eftir að fórnarlamb hans kallaði á lögreglu þegar rukkarinn var farinn af vettvangi. Það sem er óvenjulegt við þennan sjálfskipaða innheimtumann er að hann tengist ekki fíkniefnaheiminum heldur tengist málið fasteignaviðskiptum. 9.6.2006 09:00
Bjargað úr sundlaug í Reykjanesi Maður slasaðist í sundlauginni í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp í nótt og lá meðvitundarlaus á laugarbotninum og farinn að blána þegar félagar hans fundu hann. 9.6.2006 08:45
Urðu bensínlausir á sportbáti vestur af Engey Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Reykjavík var kallað út laust fyrir miðnætti til að aðstoða tvo menn á bensínlausum sportbáti vestur af Engey. Bátinn rak stjórnlaust og kölluðu bátsverjar eftir hjálp. 9.6.2006 08:15
Aðsúgur gerður að lögreglu á Akureyri Aðsúgur var gerður að lögreglumönnum i miðbæ Akureyrar í nótt, þegar þeir ætluðu að handtaka skemmdarvarg og urðu þeir að beita pipargasi, eða meis, til að verja sig. 9.6.2006 07:45
Sættir hjá Guðna og Hallóri Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, og Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðhera og varaformaður flokksins, náðu fullum sáttum á heimili Halldórs í gærkvöldi, að því er Morgunblaðið greinir frá. 9.6.2006 07:26
Efla á kennslu í fornleifafræði Sveitarfélagið Skagafjörður og Hólaskóli ákváðu í dag að leggja til stöðu við skólann fyrir fornleifafræðing til að halda áfram Hólarannsókninni og efla kennslu í fornleifafræði. 8.6.2006 23:13
Gæsluvarðhald yfir grunuðum fíkniefnainnflytjendum Hæstiréttur veitti í gær lögreglunni í Reykjavík gæsluvarðhald yfir þremur mönnum fram til 14. júlí. Mennirnir voru viðriðnir innflutning á fíkniefnum og tveir þeirra játuðu að nokkru leyti á sig brotin. Um var að ræða rúmlega 15 kíló af bæði amfetamíni og 10 kíló af hassi sem fundust í bifreið sem hafði verið flutt til landsins frá Hollandi. Héraðsdómur hafði synjað gæsluvarðhaldi yfir einum mannanna en yfir hinum tveimur var gæsluvarðhaldsúrskurðurinn staðfestur. 8.6.2006 22:45
Stígamót minna öryggismál á útihátíðum Stígamót vilja minna skipuleggjendur útihátíða sumarsins að huga að öryggismálum í tíma. Í fréttatilkynningu frá Stígamótum kemur fram að ellefu stúlkur hafai leitað samtakanna vegna nauðganna á útihátíðum en allar hjálparbeiðnirnar bárust löngu eftir að útihátíðunum lauk. 8.6.2006 22:35
J og B meirihluti í Dalvíkurbyggð Nýr meirihluti er kominn fram í Dalvíkurbyggð. J-listi óháðra og B-listi Framsóknarmanna hafa myndað meirihluta í bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar. Svanfríður Jónasdóttir verður bæjarstjóri fyrri hluta kjörtímabilsins en auglýst verður eftir bæjarstjóra fyrir seinna tímabilið í samræmi við stefnuskrá Framsóknarflokksins. Ráðið verður í starfið samkvæmt tilnefningu B-listans. 8.6.2006 22:28
LSH var ekki heimilt að víkja Tómasi Zoega úr starfi yfirlæknis Ákvörðun Landspítala-Háskólasjúkrahúss að svipta Tómas Zoega yfirlæknisstöðu sinni var ólögmæt. Þetta var úrskurður hæstaréttar í dag. Tómas var yfirlæknir á geðsviði hjá Landspítalanum frá 1991. Eftir að spítalarnir voru sameinaðir ákvað stjórn spítalans árið 2001 að yfirlæknum yrði ekki leyft að reka eigin stofur samhliða vinnu á LSH. Tómasi var gert að hætta rekstri stofu sinnar og þegar hann gerði það ekki var honum tilkynnt árið 2005 að hann myndi ekki gegna áfram yfirlæknastöðunni. 8.6.2006 22:00
Nokkuð um hraðakstur í Langadal 15 ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi síðdegis í dag. Allir voru þeir stöðvaðir í Langadal. Sá sem ók hraðast mældist á 126 km hraða eða 36 kílómetra hraða yfir leyfilegum hámarkshraða. 8.6.2006 22:00
Níu verk keppa í dansleikhús samkeppninni í ár 25 tíma dansleikhús samkeppni stendur nú yfir í Borgarleikhúsinu. Samkeppnin er nú haldin í fjórða sinn. Það eru Leikfélag Reykjavíkur og Íslenski dansflokkurinn sem standa að samkeppninni og SPRON er einnhelsti styrktaraðili keppninnar. 8.6.2006 21:53
Unnið verði að endurreisn þorskstofnsins Þingflokkur Vinstri - grænna hvetur stjórnvöld til að vinna markvisst að endurreisn þorskstofnsins og annarra mikilvægra nytjastofna í hafinu kringum Ísland. Flokkurinn tekur líka undir það sem fram kemur í nýrri skýrslu Hafrannsóknastofnunar þar sem segir meðal annars að nýting fiskistofnananna þurfi að lúta lögmálum sjálfbærrar þróunar. 8.6.2006 19:02
Landvernd kærir Ölfus vegna malarnáms í Ingólfsfjalli Stjórn Landverndar hefur tekið ákvörðun um að leggja fram kæru vegna framkvæmdaleyfis sem sveitarfélagið Ölfus veitti Fossvélum til malarnáms í Þórustaðanámu sem er í brún Ingólfsfjalls. 8.6.2006 18:49
Helmingaskipti á nefndaformönnum í borginni Formennsku í lykilnefndum Reykjavíkurborgar verður skipt til helminga milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, þrátt fyrir að stærðarhlutföll flokkanna í borgarstjórn séu sjö á móti einum. Þá er rætt um að Guðlaugur Þór Þórðarson verði stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur fyrri tvö árin en Björn Ingi Hrafnsson seinni tvö. 8.6.2006 18:43
Má teljast heppinn að ekki fór verr Brúarsmiður má teljast heppinn að ekki fór verr þegar átta tonn af steypustyrktarjárni féllu á hann á mótum Suðurlands- og Vesturlandsvegar á tíunda tímanum í morgun. 8.6.2006 18:29
Akstur undir áhrifum og kynferðisleg áreitni í Héraðsdómi í dag Héraðsdómur dæmdi karl fyrir akstur undir áhrifum lyfja og konu fyrir akstur undir áhrifum áfengis. Maður var sýknaður af ákæru um að hafa haft í frammi kynferðislega tilburði við unga stúlku. 8.6.2006 17:53
Bolvíkingar fiska vel Þrír aflahæstu smábátar landsins frá áramótum og til vertíðarloka ellefta maí, eru allir frá Bolungarvík. Á tímabilinu réru þeir um það bil hundrað róðra hver, fengu allir vel á sjötta hundrað tonn, eða samanlagt rúmlega sextán hundruð tonn, sem er rúmlega tólf tonn upp á hvern dag hjá bátunum í heild. 8.6.2006 17:45
Farþegi sem réðst á leigubílstjóra dæmdur í fimm ára fangelsi Hæstiréttur dæmdi í dag Guðbjart J. Sigurðsson í fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps, auk greiðslu skaðabóta upp á tæplega 700.000 krónur. Hann er dæmdur fyrir að veita leigubílstjóra stórhættulegan áverka á hálsi með eggvopni. 8.6.2006 17:30
Og Vodafone forgangsraðar gögnum um Netið Ný þjónusta sem Og Vodafone hefur tekið í gagnið gerir það að verkum að viðskiptavinir geta síður átt von á því að verða fyrir truflunum þegar þeir vafra um netið. Vefsíðum, póstþjónustu og gögnum vegna fjarvinnutenginga er forgangsraðað þannig að fólk verður minna vart við bilanir og aðrar truflanir á netinu. 8.6.2006 16:11
Hundruð nýrra botndýrategunda hafa fundist við landið Fjörutíu prósent af þeim botndýrum sem fundist hafa við Ísland í svokölluðu BIOICE-botndýraverkefni hafa ekki fundist áður hér við land. Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu Hafrannsóknarstofnunarinnar sem unnið hefur að verkefninu ásamt nokkrum aðilum. 8.6.2006 15:45
Ný sveitarstjórn mun velja nafn á sameinað sveitarfélag í Borgarfirði Ný sveitarstjórn í sameinuðu sveitarfélagi í Borgarfirði mun taka ákvörðun um nafn á sveitarfélagið eftir að kosning á sameiginilegum fundi fráfarandi sveitarstjórna féll á jöfnu. Frá þessu er greint á vef Skessuhorns. 8.6.2006 15:30
Læknanemar mæta til vinnu á morgun Samningar hafa náðst í kjaradeilu læknanema og yfirstjórnar Landspítalans. Á fundi fulltrúa spítalans og fulltrúa læknanema sem lauk fyrir stundu lagði spítalinn fram tilboð sem fulltrúar nema samþykktu, eftir að hafa borið tilboðið undir samnemendur sína. 8.6.2006 15:27
Ný sveitarstjórn þarf að ákveða nafn Ný sveitarstjórn í sameinuðu sveitarfélagi í Borgarfirði mun taka ákvörðun um nafn á sveitarfélagið eftir að kosning á sameiginilegum fundi fráfarandi sveitarstjórna féll á jöfnu. 8.6.2006 15:24
Litlar líkur á harðri lendingu í íslensku efnahagslífi Í vefriti fjármálaráðuneytisins í dag eru ræddar líkur á harðri lendingu efnahagslífsins. Hörð lending er skilgreind sem djúp niðursveifla sem einkennist af ört vaxandi atvinnuleysi og vanskilum heimila og fyrirtækja. Forsvarsmenn fjármálaráðuneytisins telja litlar líkur á harðri lendingu. 8.6.2006 15:00
Litlar breytingar á fylgi stjórnmálaflokkanna Mjög litlar breytingar hafa orðið á fylgi stjórnmálaflokka í landinu milli mánaða samkvæmt nýjum Þjóðarpúsli Gallups. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 40 prósent, Samfylkingarinnar 29 prósent og Vinstri - grænna 17 prósent. Tíundi hver maður kysi Framsóknarflokkinn ef gengið yrði til kosninga nú og Frjálslyndir njóta stuðnings fjögurra prósenta landsmanna. 8.6.2006 13:57
Bruni í húsnæði í Súðarvogi Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að verksmiðjuhúsnæði við Súðarvog laust fyrir hádegi vegna elds sem þar hafði komið upp. Að sögn slökkviliðs voru menn að vinnu inni í húsnæðinu við slípun nærri loftræstistokki og svo virðist sem neisti hafi hlaupið í óhreinindi í loftræstistokknum með þeim afleiðingum að eldurinn kviknaði. 8.6.2006 13:15
Slasaðist minna en í fyrstu var talið Maðurinn, sem varð undir járnbita við byggingu mislægra gatnamóta á mótum Suðurlands- og Vesturlandsvega í morgun, meiddist minna en óttast var. Það tók björgunarmenn um hálfa klukkustund að losa manninn, sem var svo fluttur í sjúkrabíl á Landsspítalann í Fossvogi, þar sem gert var að sárum hans og hann gekkst undir rannsóknir. 8.6.2006 13:15
Alvarlegt bílslys á mótum Eyrarbakkavegar og Þorlákshafnarvegar Tvær konur slösuðust mjög alvarlega þegar jeppi þeirra lenti í hörðum árkestri við stóran hópferðabíl á mótum Eyrarbakkavegar og Þorlákshafnarvegar um klukkan ellefu í morgun. Allt lögreglulið og sjúkrabílar frá Selfossi voru send á vetvang og tækjabíll frá Slökkviliðinu í Hveragerði til að klippa flakið utan af konunum. 8.6.2006 12:56
Þurfa líklega að brenna matvæli frá herstöð Líkur eru á að varnarliðinu verði gert að brenna tugi tonna af fyrsta flokks matvælum, sem nú eru í stórmörkuðum og frystigeymslum á Keflavíkurflugvelli, í stað þess að fá að gefa þau íslenskum sjálfseignarstofnunum sem vinna að líknarmálum. 8.6.2006 12:45
Þora ekki út á kvöldin eftir árásir Skemmtiferð útskriftarnema frá Verzlunarskóla Íslands til Búlgaríu hefur tekið heldur óskemmtilega stefnu því að minnsta kosti þrír þeirra hafa orðið fyrir árásum og þá hafa nokkrir verið rændir. Kveður svo rammt að þessu að hluti hópsins þorir ekki lengur út á lífið af ótta við árásir og nokkrir hafa þegar haldið heim, fyrr en áætlað var. 8.6.2006 12:30
Ekki farið út í ævintýrafjárfestingar í OR Verðandi borgarstjóri, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, segir að ekki verði farið út í neinar ævintýrafjárfestingar í Orkuveitunni. Eitt fyrsta verk nýs borgarstjórnarmeirihluta verði að fara rækilega ofan í áform um kaup hennar á grunnneti Símans. 8.6.2006 12:15
Meirihlutasamstarf J og B lista í Dalvíkurbyggð Joð - listi - óháð framboð og Bé - listi - Framsóknarmanna hafa gert með sér samkomulag um meirihlutasamstarf í bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar. Svanfríður Jónasdóttir, Joð-lista verður bæjarstjóri fyrri hluta kjörtímabilsins og síðan verður auglýst eftir bæjarstjóra. Bjarnveig Ingvadóttir, Bé-lista verður forseti bæjarstjórnar. 8.6.2006 10:47
Vinnuslys á mótum Suðurlands- og Vesturlandsvegar Vinnuslys varð nú rétt í þessu á mótum Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar, þar sem unnið er að gerð mislægra gatnamóta. Járnstykki sem verið var að hífa upp datt niður úr kranaklónni og á mann á jörðu niðri. Verið er að flytja manninn á sjúkrahús og er ekki enn kunnugt um meiðsli hans en að sögn vitna slapp hann ótrúlega vel miðað við aðstæður. 8.6.2006 10:02
Tengivagn valt þegar vegkantur gaf sig Tengivagn aftan í flutningabíl valt þegar vegkantur á þjóðveginum undir austanverðu Ingólfsfjalli gaf sig í gærkvöldi. Minnstu munaði að vagninn tæki flutningabílinn með sér í veltuna. Unnið er að vegaframkvæmdum á þessum slóðum og er talið að rekja megi óhappið til þess. 8.6.2006 09:30
Hafa orðið fyrir aðkasti í útskriftarferð í Búlgaríu Stúlkur úr hópi útskriftarnema úr Verslunarskóla Íslands hafa orðið fyrir aðkasti og að minnsta kosti tvisvar meiðst í strandbæ í Búlgaríu síðustu daga. 8.6.2006 09:15
Enn leitað að 24 ára karlmanni Eftirgrennslan lögreglunnar í Reykjavík eftir Hauki Frey Ágústssyni, sem er tuttugu og fjögurra ára, þrekvaxinn og einn og áttatíu á hæð, hefur engan árangur borið. 8.6.2006 08:45
Stóru olíufélögin hafa öll hækkað bensínlítrann Olíufélagið Skeljungur fylgdi í gær fordæmi Essó og hækkaði bensínlítrann um tvær krónur og fimmtíu aura. Olís varð svo hinum félögunum samstíga með hækkanir í gærkvöldi. 8.6.2006 08:00
Lögreglan lýsir eftir ungum manni Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir Hauki Frey Ágústssyni sem ekkert hefur spurst til frá 1. júní. Haukur Freyr er fæddur 1982; hann er 180 sentimetrar á hæð, um 100 kíló, hokinn, ljósskolhærður með ljóst skegg umhverfis munninn. 7.6.2006 23:22
Dæmdir í skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás Tveir ungir menn voru í dag dæmdir í Héraðsdómi Norðurlands eystra í skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás sem framin var við skíðahótelið í Hlíðarfjalli í október í fyrra. Annar maðurinn var dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi en hinn í 30 daga. 7.6.2006 23:06
Framúrskarandi Íslendingar Íslandsdeild JCI kynnti í dag í Norræna húsinu árlega útnefningu sína á sex framúrskarandi ungum Íslendingum. JCI er alþjóðleg hreyfing sem leitast eftir því að efla stjórnunarhæfileika og frumkvæði ungs fólks. Hreyfingin útnefnir árlega framúrskarandi þjóðfélagsþegna, ungt fólk sem þykir skara fram úr á sínu sviði. 7.6.2006 22:30
Ártúnsskóli fær Íslensku menntaverðlaunin í ár Ártúnsskóli fékk íslensku Menntaverðlaunin í ár sem Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti í kvöld. Alls voru veitt verðlaun í fjórum flokkur en þrír grunnskólakennarar fengu einnig viðurkenningu fyrir störf sín. 7.6.2006 22:27
Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent