Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Færri bjóða í lóðir en áður Boðnar voru tíu til fjórtán milljónir króna í hverja lóð í tíu lóða útboði Reykjavíkurborgar í lóðir í Úlfarsárdal, en tilboðin voru opnuð í gær. Alls bárust 143 tilboð í lóðirnar frá aðeins sautján bjóðendum. 5.5.2006 08:00
Vilja gagnsæi í starfskjörum þingmanna og ráðherra Samtök atvinnulífsins segja að ekki skapist sátt um starfskjör kjörinna fulltrúa ef þau verði áfram ógagnsæi og ákvörðuð á mörgum stöðum. Þau vilja að þingmenn og ráðherrar deili lífeyriskjörum með öðrum í landinu en miðað við núverandi stöðu geta lífeyriskjör ráðherra umfram almenna launþega eftir þrjú kjörtímabil verið ígildi yfir 100 milljóna króna starfslokagreiðslu. 5.5.2006 08:00
Deilt um skattbyrði í ljósi nýrra útreikninga Síðustu þrír fjármálaráðherrar Sjálfstæðisflokksins eru mestu skattpíningarráðherra Íslandssögunnar fyrir fólk með lágar tekjur og meðaltekjur, sagði Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í umræðum á þingi í kvöld um skattbyrði. Fjármálaráðherra sakaði Samfylkinguna um hentistefnu í skattaumræðum og sagði vitlausar fullyrðingar um skattbyrði ekki verða réttari þótt fleiri endurtækju þær. 4.5.2006 22:53
Hugbúnaður til bjargar mannslífum 100 Íslendingar látast á íslenskum sjúkrahúsum árlega vegna óhappa við lyfjagjöf. Íslenskt fyrirtæki, TM Software, hefur hannað forrit sem tugir spítala víðs vegar um heim hafa keypt til að minnka líkurnar á mistökum. 4.5.2006 22:40
Þrettán sækja um brauðið í Odda Þrettán prestar og guðfræðingar sóttu um stöðu sóknarprests í hinu sögufræga Oddaprestakalli í Rangárvallasýslu. Umsóknarfrestur rann út 2.maí síðastliðinn en dóms- og kirkjumálaráðherra skipar í embættið frá og með 1.júlí næstkomandi, að fenginni umsögn valnefndar. 4.5.2006 21:45
Brá og stökk fyrir vaktstjórabílinn Maður slasaðist á fæti við störf sín í verksmiðju Norðuráls á Grundartanga um hálfsjöleytið í kvöld. Hann var við vinnu við eitt af bræðslukerjum álversins þegar lítil sprenging varð. Ekki var sprengingin þó alvarleg sem slík, fyrir utan það að manninum brá svo mikið að hann stökk niður af kerinu og í veg fyrir vaktstjórabílinn sem kom þar aðvífandi. 4.5.2006 21:42
Þingi frestað fram yfir sveitarstjórnarkosningar Þingi var frestað á níunda tímanum í kvöld eftir að tvenn lög höfðu verið samþykkt. Önnur sneru að stofnun nýrrar Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli til bráðabirgða. Margs konar starfsemi á Keflavíkurflugvelli mun heyra undir hina nýju stofnun, meðal annars slökkvilið og rekstur flugbrauta. Þá var samþykkt að breyta lögum um framhaldsskóla á þann hátt að fella niður samræmd stúdentspróf. 4.5.2006 21:21
Óbyggðahlaup á Vestfjörðum í sumar Nýtt óbyggðahlaup verður háð á Vestfjörðum um miðjan júlí í sumar. Keppnin ber heitið Vesturgatan - víðavangshlaup Höfrungs og er hlaupið um 25 kílómetra leið. Frá þessu er sagt í vefriti Bæjarins besta. Leiðin liggur frá Stapadal í Arnarfirði, út í Lokinhamradal, fyrir Sléttanes og inn að Hrauni/Sveinseyri í Dýrafirði. 4.5.2006 20:30
Gengi bréfa í Kauphöll Íslands hækkaði í dag Úrvalsvísitalan hækkaði um tvö komma þrjú prósent í dag og virðist sem trú landans á markaðinum hafi aukist eftir annars miklar lækkanir að undanförnu. 4.5.2006 20:14
Ástsælasti sálmurinn er Dag í senn Söngmálastjóri þjóðkirkjunnar gerði nýverið könnun meðal presta og organista á því hver sálmanna í nýju sálmabókinni ætti skilið að kallast ástsælastur. Í efsta sæti á lista yfir tíu efstu trónir sálmurinn sem hefst svo: "Dag í senn, eitt andartak í einu", sem er ljóð eftir biskupinn fyrrverandi Sigurbjörn Einarsson við erlent lag. 4.5.2006 20:00
Þyrlusveit gæslunnar varla tilbúin í haust Nær útilokað er að Landhelgisgæslan hafi til reiðu fjögurra þyrlna fullmannaða sveit í haust, þegar áætlað er að herþyrlur fari af landi brott. Það tekur til að mynda lágmark fjóra til fimm mánuði að þjálfa nýjan flugmann. 4.5.2006 19:24
Bankar bregðast seint við Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, gagnrýndi í dag viðskiptabankana fyrir að bregðast seint við í að draga úr útlánum sínum. Jafnframt sagði hann brýnt að breyta fyrirkomulagi opinbera íbúðalánakerfisins fyrir áramót. 4.5.2006 19:19
Unga fólkið í framboð á Akureyri Nýr framboðslisti verður kynntur á Fiðlaranum á Akureyri á opnum fundi klukkan 20:00. Listinn er í nafni Framfylkingarflokksins sem er þverpólitískt framboð ungs fólks á Akureyri sem telur að ekki hafi verið hlustað nægilega á rödd unga fólksins í bæjarfélaginu. 4.5.2006 19:07
Gengi krónunnar hækkað um yfir 4% á 2 dögum Krónan styrktist verulega í dag, annan daginn í röð, og hækkaði gengi hennar um tvö og hálft prósent í kjölfar eins komma sjö prósenta hækkunar í gær. Gengi bandaríkjadals er nú komið niður undir sjötíuogeina krónu og gengi evru er í nítíuogeinni krónu. Íslensk hlutabréf hækkuðu einnig í dag eftir lækkanir síðustu daga, og hækkaði úrvalsvísitalan um 2,3 prósent. 4.5.2006 19:04
Samið um Héðinsfjarðargöng Vegagerðin tilkynnti í dag að lægsta tilboði í Héðinsfjarðargöng hefði verið tekið. Skrifað verður undir 5,7 milljarða króna verksamning á Siglufirði eftir tvær vikur og er stefnt að því að framkvæmdir hefjist fyrir lok þessa mánaðar. 4.5.2006 18:55
Dagur vill vegagerðina til borgarinnar Dagur B. Eggertsson fagnar ummælum Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra vegalög séu í endurskoðun með það fyrir augum að færa viðhald og nýbyggingu allra umferðarmannvirkja í þéttbýli alfarið yfir til sveitarfélaganna. Hann segist hafa nefnt þessa hugmynd fyrir tveimur árum en þá hafi Sturla talið hana fráleita. 4.5.2006 18:48
Borgarar og leiðtogar funda um Sundabraut Opinn fundur um Sundabraut með leiðtogum allra framboðslista verður haldinn í Rimaskóla í kvöld klukkan 20:00. Þar munu frambjóðendur svara spurningum um hvaða stefnu stóru flokkarnir hafa varðandi málefni Sundabrautar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í lok mánaðarins. 4.5.2006 18:41
Opnað fyrir tilboð í 10 lóðir í Úlfarsárdal Opnað var fyrir tilboð í dag í þær einbýlishúsalóðir í Úlfarsárdal sem ekki gengu út í fyrra lóðaútboði. Alls bárust 143 tilboð frá 17 bjóðendum. 4.5.2006 18:36
Heimilt að samkeyra upplýsingar lögreglu og skattayfirvalda Vinnumálastofnun er heimilt að samkeyra upplýsingar stofnunarinnar með upplýsingum lögreglu, Útlendingastofnunar og skattayfirvalda, eftir að ný lög um atvinnuréttindi útlendinga hér á landi tóku gildi 1. maí. Þetta er heimilað til að unnt sé að athuga hvort atvinnurekendur fari að lögum við ráðningu erlendra starfsmanna. 4.5.2006 18:35
Bensínið lækkar vegna styrkingar krónunnar Olíufélagið og Skeljungur lækkuðu í dag verðið á bensíni og olíum vegna styrkingar krónunnar gagnvart Bandaríkjadalnum og lækkunar heimsmarkaðsverðs. Lítrinn af bensíni lækkar um 2,20 krónur hjá Olíufélaginu sem rekur Essostöðvarnar en um tvær krónur hjá Skeljungi. Dísil- og gasolían lækkar um 2 krónur hjá Olíufélaginu en um 1,80 hjá Skeljungi. 4.5.2006 18:24
Krónan sterkari í dag Krónan styrktist um 2,5% í dag. Evran er því komin niður undir 90 krónurnar og dollarinn kominn nálægt 70 krónum á ný, en hann fór undir 60 krónur þegar lægst var í vetur. Svo virðist sem jákvæð skýrsla um fjármálastöðugleika sem kynnt var í gær hafi þessi áhrif á traust erlendra fjárfesta á íslenska markaðinum. Þetta kemur fram í hálffimmfréttum KBbanka. 4.5.2006 18:00
Óvissu um afdrif starfsmanna á Keflavíkurflugvelli aflétt Allir starfsmenn sem sagt hefur verið upp störfum á Keflavíkurflugvelli og heyra undir nýstofnaða Flugmálastjórn þar, geta fengið vinnu hjá hinni nýju stofnun. Geir h Haarde, utanríkisráðherra, segir stofnunina setta á laggirnar til bráðabyrgða en í framtíðinni muni starfsemin á Keflavíkurflugvelli heyra undir samgönguráðuneytið. 4.5.2006 17:47
Fasteignaskattar lækka í Árborg Bæjarstjórn Árborgar hefur ákveðið að lækka fasteignaskatta í sveitarfélaginu úr 0,37% í 0,30%. Þessi lækkun bætist ofan á lækkun sem ákveðin hafði verið í desember í fyrra. Samtals hafa fasteignaskattar því lækkað um 25% í Árborg. Fasteignaskattar hafa lækkað víða á suðvesturhorninu í kjölfar gífurlegrar hækkunar á fasteignaverði enda eru skattarnir reiknaðir út frá fasteignamati. 4.5.2006 17:35
Viðskiptabankarnir þola vel skell Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabankans, segir að staða viðskiptabankanna sé það sterk að þeir þoli áföll. Hann segir þá hins vegar verða að hægja á vexti sínum. Seðlabankastjóri gagnrýnir bankastarfsemi ríkisins í gegnum íbúðalánasjóð og segir stöðuna á húsnæðismarkaðnum óviðunandi. 4.5.2006 17:32
Segir yfirvöld þurfa standa vörð um erlent launafólk Starfsgreinafélag Austurlands gagnrýnir yfirvöld harðlega fyrir slæleg vinnubrögð lögreglu og annarra opinberra aðila með eftirliti á kaupum og kjörum erlends launafólks. Félagið kærði fyrirtæki á Austurlandi í október fyrir að ráða erlenda verkamenn sem skráðir voru ferðamenn í landinu. 4.5.2006 17:31
Dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir rán í apóteki Karlmaður á þrítugsaldri var í dag dæmdur í tólf mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa framið rán í Árbæjarapóteki vopnaður hnífi í febrúar á síðasta ári. Það kemur til þyngingar dómsins að maðurinn rauf skilorð þegar atburðurinn átti sér stað. 4.5.2006 17:13
Skoruðu á þýsk stjórnvöld og KSÍ vegna vændis tengdu HM Fulltrúar kvennahreyfingarinnar á Íslandi afhentu í dag Knattspyrnusambandi Íslands áskorun vegna þess vændis og mansals sem fylgja mun heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu í sumar. Það var formaður KSÍ sem tók við áskoruninni þar sem farið er fram á að sambandið mótmæli þeirri ofbeldisvæðingu sem felist í því að flytja tugþúsundir kvenna til Þýsklands frá Mið- og Austur-Evrópu til þess að stunda vændi á meðan HM fer fram. 4.5.2006 17:00
Vegagerð í þéttbýli hugsanlega alfarið til sveitarfélaganna Vegalög eru í endurskoðun með það fyrir augum að færa viðhald og nýbyggingu allra umferðarmannvirkja í þéttbýli alfarið yfir til sveitarfélaganna. Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, segir þetta gert í ljósi fenginnar reynslu af deilum um lagningu Sundabrautar. 4.5.2006 16:26
Samþykkt að byggja hestaaðstöðu í Almannadal Borgarráð samþykkti í dag að úthluta hesthúsalóðum í Almannadal á Hólmsheiði til Hestamannafélagsins Fáks. Á þessu nýja svæði, sem er skammt austur af Rauðavatni, er gert ráð fyrir húsnæði fyrir allt að fjórtán hundruð hross. 4.5.2006 16:22
Vilja skýrari reglur um hljóðmengun Íbúasamtök Laugardalshverfa, Grafarvogs og Þriðja hverfis hafa farið þess á leit við borgarstjórn Reykjavíkur að settar verði reglur um mat á áhrifum framkvæmda á lífsgæði íbúa. 4.5.2006 15:11
Sakar stjórnarandstöðu um verðbólguna Stjórnarandstæðingar sökuðu stjórnarliða um að flýja af hólmi fyrir sveitarstjórnarkosningar og forðast að ræða efnahagsmál. Þingmaður Framsóknarflokksins svaraði með því að segja að stjórnarandstaðan hefði talað upp verðbólguna. 4.5.2006 15:06
Tíunda hvert barn misnotað fyrir 18 ára aldur Talið er að tíunda hvert barn á Íslandi verði fyrir einhverskonar kynferðislegu ofbeldi fyrir 18 ára aldur. Yfirstígum óttann, ráðstefna á vegum samtakanna Blátt áfram, fer fram í Kennaraháskóla Íslands í dag. 4.5.2006 14:52
Borgarstjóri kannar flutning Árbæjarsafns Borgarráð fól í dag Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, borgarstjóra, að kanna kosti og galla þess að flytja stóran hluta Árbæjarsafns út í Viðey. Sérstakur starfshópur á vegum borgarstjóra gerir úttekt á flutningunum. 4.5.2006 14:43
Bauhaus fær lóð við Vesturlandsveg Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í dag samning við þýsku byggingavöruverslunina Bauhaus um að hún fái lóð í svokölluðum Höllum við rætur Úlfarsfells austan Vesturlandsvegar. Greiðir Bauhaus um það bil 600 milljónir króna fyrir byggingarréttinn á lóðinni. 4.5.2006 14:16
Rafmagnslaust í Hafnarfirði Í Hafnarfirði hefur verið rafmagnslaust í nokkrum götum í nágrenni sundlaugar bæjarins frá því klukkan tvö í nótt. Starfsmaður Hitaveitu Suðurnesja, sem annast rafveitu Hafnarfjarðar, sagði ástæðuna fyrir rafmagnsleysinu vera bilun í spenni. Unnið væri að viðgerðum og búist væri við að rafmagn kæmist aftur á um klukkan fjögur í dag. 4.5.2006 13:54
Síðasti þingfundadagur fyrir kosningar Aðeins tvö frumvörp, og jafnvel bara eitt, verða að lögum frá Alþingi í dag, á síðasta þingfundadegi fyrir sveitarstjórnarkosningar. Þing kemur saman klukkan hálf tvö í dag og er það í síðasta sinn fyrir sveitarstjórnarkosningar í lok mánaðarins. 4.5.2006 13:00
Óttinn yfirstiginn Yfirstígum óttann, ráðstefna á vegum samtakanna Blátt áfram, fer fram í Kennaraháskóla Íslands í dag. Markmið ráðstefnunnar er að skoða hvað samfélagið getur gert til að fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi á börnum. Robert E. Longo er aðal fyrirlesari á ráðstefnunni. 4.5.2006 12:10
Færist undir samgönguráðuneytið Yfirtakan á rekstri Keflavíkurflugvallar undir stjórn utanríkisráðuneytisins er aðeins biðleikur þar til völlurinn verður færður undir samgönguráðuneytið. 4.5.2006 12:06
Átak gegn mænusótt í Nígeríu Fjölmörg íslensk fyrirtæki og einstaklingar koma að alheimsátaki gegn mænusótt sem Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, kynnti í morgun. Framlag Íslendinga mun veita 300 þúsund börnum í Nígeríu, bólusetningu gegn mænusótt. 4.5.2006 12:02
"Vændi er ekki íþrótt" Fulltrúar kvennahreyfingarinnar á Íslandi ætla að afhenda þýska sendiráðinu áskorun klukkan tvö í dag. Í fréttatilkynningu hreyfingarinnar segir að tilefnið sé það vændi og mansal sem talið er að verði fylgifiskur heimsmeistarakeppninnar í fótbolta en hún fer fram í Þýskalandi í sumar. Slagorð aðgerðanna verða "vændi er ekki íþrótt." Sömu áskorun á einnig að afhenda Knattspyrnusambandi Íslands klukkan þrjú. 4.5.2006 10:35
Þrír slösuðust í árekstri Þrír slösuðust í alvarlegu umferðarslysi á Snæfellsnessvegi á móts við Fíflholt í gær, þegar jeppi og fólksbíll skullu þar saman. Báðir ökumenn og farþegi úr jeppanum voru fluttir á Slysaldeild Landsspítalans, en eru ekki í lífshættu. 4.5.2006 09:15
Síðustu þingfundir fyrir kosningar Alþingi kemur saman til fundar í dag í síðasta skipti fyrir sveitarstjórnarkosningar sem fara fram 27. maí. Þing kemur næst saman 30. maí. Allar líkur eru á að tvö frumvörp verði að lögum í dag. 4.5.2006 09:00
Vilja flytja Árbæjarsafn í Viðey Hugmyndir eru uppi um að flytja Árbæjarsafn út í Viðey og koma því fyrir í austurenda Viðeyjar þar sem byggð var í fyrri tíð. Morgunblaðið greinir frá þessu í dag og hefur eftir Degi B. Eggertssyni, formanni skipulagsnefndar að honum þyki þetta spennandi hugmynd. 4.5.2006 08:45
Fótbrotnaði í fótboltaleik Unglingsstúlka slasaðist í knattspyrnuleik í Ólafsvík í gærkvöldi og ákvað læknir að kalla eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar til að flytja hana á slysadeild Landsspítalans í Reykjavík. 4.5.2006 08:15
Óvenjulegur óróleiki Óvenjulegur óróleiki var á peningamarkaðnum hér á landi í gær þegar úrvalsvísitalan lækkaði um hátt í tvö prósent en krónan styrktist um leið um hátt í tvö prósent. 4.5.2006 07:58