Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tökum á og tökum til í Árborg Sveitarfélagið Árborg er nú að kynna tiltektarátak í sveitarfélaginu sem ber nafnið "tökum á - tökum til". Þar eru íbúar og lóðaeigendur hvattir til að láta sitt ekki eftir liggja heldur taka til hendinni til að fegra bæina á Selfossi, Eyrarbakka og á Stokkseyri, sem og sveitirnar í kring. Þetta kemur fram á fréttavefnum sudurland.is. 3.5.2006 20:31
Megum ekki ganga á náttúruhöfuðstólinn Íslendingar verða að gæta sín að ganga ekki um of á ósnortna náttúru landsins því hún á eftir að verða þeim ríkuleg auðlind þegar fram í sækir. Þetta segir dr Patrick Eagan, prófessor í umhverfisfræðum við háskólann í Wisconsin, sem hér er staddur í boði bandaríska sendiráðsins. 3.5.2006 19:28
Engin hætta á hagkerfishruni á íslandi Einn þekktasti hagfræðingur heims, Frederic S. Mishkin telur sáralitla hættu á hruni í íslensku hagkerfi. Í skýrslu sem hann vann ásamt Tryggva Herbertssyni frá Hagfræðistofnun fyrir Viðskiptaráð er meðal annars lagt til að eftirlit með fjármálastofnunum verði allt fært undir Seðlabankann 3.5.2006 19:23
Skemmtiferðaskipið Nordic Dream stendur í ljósum logum Skemmtiferðaskipið Nordic Dream stendur í ljósum logum utan við Ísafjarðardjúp, en á skipinu eru um eitt þúsund farþegar. Ekki er hér þó um raunverulegar atburð að ræða heldur æfingu. 3.5.2006 19:23
Hjólað í vinnuna Umhverfissvið Reykjavíkurborgar tekur þátt í heilsuátakinu „Hjólað í vinnuna" og hefur að því tilefni festi kaup á fjórum hjólum og hvatt starfsfólk til þess að nota hjól í styttri vinnuferðir innanbæjar.Með þessu vill Umhverfissvið sýna gott fordæmi og vonast til að starfsmenn Umhverfissviðs noti hjólin sem vinnutæki. 3.5.2006 19:21
Velferðarkerfi á villigötum Ríkið er stærsti bótaþegi lífeyris, segir Stefán Ólafsson prófessor enda fari allt að 85% til ríkisins vegna skerðingar bóta og skattlagningar. Á ráðstefnu um brotalöm í velferðarkerfinu í dag sögðu fulltrúar aldraðra og öryrkja að það þyrfti þverpólitíska þjóðarsátt um að afnema þá þjóðarskömm sem kjör þessara hópa væru. 3.5.2006 19:14
Metsala á erlendum verðbréfum Aldrei hafa íslenskir fjárfestar selt jafnmikið af erlendum verðbréfum og síðastliðinn marsmánuð, í það minnsta ekki frá því mælingar hófust árið 1994. Nettósala nam 44,3 milljörðum króna í marsmánuði en leita þarf aftur til ársins 2002 til að finna nettósölu, síðan þá hafa íslenskir fjárfestar keypt meira en þeir hafa selt. Þetta kemur fram í Vegvísi Landsbankans. 3.5.2006 18:57
Þakka bílbeltum og líknarbelgjum lífið Þrennt var flutt á slysadeild eftir harðan árekstur fólksbíls og jeppa á Snæfellsnesvegi á Mýrum, til móts við bæinn Fíflholt, á þriðja tímanum í dag. Báðir bílarnir eru gjörónýtir og þakkar lögregla bílbeltum og líknarbelgjum að ekki fór verr fyrir fólkinu en ekkert þeirra er í lífshættu. 3.5.2006 18:14
Ríkið mesti lífeyrisþeginn Ríkið er mesti lífeyrisþeginn að mati Stefáns Ólafssonar, prófessors við Háskóla Íslands. Hann segir eldri borgara og öryrkja hafa orðið eftir í góðæri síðustu ára og að ójöfnuður á Íslandi geti orðið jafn mikill og í Bandaríkjunum ef ekki verði gripið til stórtækrar uppstokkunar á samspili almannatryggingakerfis og skattkerfis. 3.5.2006 18:08
Tekinn fyrir of hraðan akstur í áttunda sinn á einu ári Lögreglan á Blönduósi stöðvaði í gærdag ökumann sem mældist á 139 kílómetra hraða á klukkustund. Maðurinn, sem er á sextugsaldri, er góðkunningi lögreglunnar en hann hefur verið stöðvaður átta sinnum fyrir of hraðan akstur á einu ári. Þá eru ekki talin þau umferðarlagabrot sem maðurinn hefur gerst sekur um í öðrum embættum lögreglunnar. Sektir vegna brotanna hljóða upp á 170.000 krónur en maðurinn hefur auk þess fengið níu punkta vegna sömu brota. 3.5.2006 17:41
Þingfundum frestað á morgun til 30. maí Þingfundum verður frestað á morgun en þing kemur saman aftur 30. maí og starfar þá í tvær vikur. Þetta var ákveðið í dag á fundi formanna þingflokka með forseta Alþingis. 3.5.2006 17:14
Ríkisreknir háskólar úrelt rekstrarform Runólfur Ágústsson, rektor á Bifröst, segir háskóla í Evrópu líða fyrir of mikil afskipti ríkis af rekstrinum. Þetta birtist í flótta vísindamanna og kennara vestur um haf til einkarekinna háskóla í Bandaríkjunum. Hann segir ríkisrekna háskóla úrelt rekstrarform sem ekki henti fyrir háskóla nútímans, sem séu fyrst og fremst alþjóðleg þekkingarfyrirtæki. 3.5.2006 17:00
Heimildina var að finna í fjáraukalögum Ríkisendurskoðandi segir að ekki megi draga þá ályktun að stjórnvöldum hafi verið óheimilt að ganga til samninga um byggingu og rekstur tónlistar- ráðstefnuhúss í Reykjavík. Þetta kemur fram í orðsendingu sem hann hefur sent Magnúsi Stefánssyni, formanni fjárlaganefndar um fjárheimildir og bókanir framlaga vegna byggingarinnar. Áður hafði komið fram í fréttum að ríkisendurskoðandi teldi meinbugi á því að gefa út heimild af slíkum toga án þess að samþykki Alþingis lægi fyrir. Bendir ríkisendurskoðandi á að heimild fyrir verkinu hefði legið fyrir í fjáraukalögum árið 2005 en láðst hefði að geta þess í greinargerð sem kynnt var á fundi fjárlaganefndar í morgunn. 3.5.2006 16:53
Svikin loforð yfirvalda um vísindaveiðar á ákveðnum svæðum? Veiðar á hrefnu eru stundaðar inni á svokölluðum hvalaskoðunarsvæðum við strendur landsins, þrátt fyrir gefin loforð yfirvalda um að það yrði ekki gert. Þetta segir varaformaður Hvalaskoðunarsamtaka Íslands. 3.5.2006 16:33
Sala tækja frá Össuri jókst um 93% Sala tækja frá Össuri jókst um 93% mælt í Bandaríkjadölum á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Alls nam salan 60 milljónum dala eða um 3,9 milljörðum króna. Jón Sigurðsson forstjóri fyrirtækisins segir í fréttatilkynningu sem fyrirtækið sendi nýverið frá sér að hann sé sáttur við niðurstöðurnar. Þær séu í efri mörkum þess sem stjórnendur gerðu ráð fyrir. 3.5.2006 16:02
Stærsta ungmennamótið haldið hér Alþjóðaleikar ungmenna verða haldnir í Reykjavík á næsta ári. Leikarnir eru fjölmennasta alþjóðlega íþróttamótið sem haldið er árlega. Ólympíuleikarnir sem við fáum að halda segir formaður undirbúningsnefndar. 3.5.2006 15:46
Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir að sýna stúlkum klámmynd Karlmaður á fertugsaldri var í gær dæmdur fyrir héraðsdómi Reykjavíkur í skilorðsbundið fangelsi fyrir blygðunarsemisbrot og brot gegn barnaverndarlögum með því að hafa sýnt dætrum fyrrum sambýliskonu sinnar klámmynd. Maðurinn var þó sýknaður af ákærum þess efnis að hann hefði haft munnmök við stúlkunar og látið þær hafa munnmök við sig. 3.5.2006 15:01
Bílskúrsbönd Íslands sameinist! Þær íslensku hljómsveitir sem hafa áhuga á að spila á Icelandic Airwaves í haust geta nú farið að senda inn umsóknir til stjórnenda hátíðarinnar. Allir sem gítarnögl geta valdið eru hvattir til að láta vita af sér, bæði nýliðar sem reynslumeiri rokkarar. Umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu hátíðarinnar www.icelandairwaves.com. 3.5.2006 15:01
Dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisafbrot Tæplega þrítugur karlmaður var dæmdur í þriggja og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir gróf kynferðisafbrot gegn stjúpdóttur sinni og vinkonu hennar. Karlmaðurinn, sem er eþíópískur ríkisborgari, var giftur móður annarrar stúlkunnar um fjögurra ára skeið. 3.5.2006 13:45
Skipsflak finnst á botni Arnarfjarðar Skipsflak fannst á botni Arnarfjarðar fyrir helgina þegar verið var að mynda veiðarfæri í sjó með neðansjávarmyndavél um borð í Árna Friðrikssyni RE-200. Á Fréttavef Bæjarins besta kemur fram að talið sé að skipsflakið sé í minna lagi og hafi legið lengi á botni fjarðarins. Ekki var vitað um flak á þessum slóðum en getgátur eru um að flakið sé af seglskútunni Gyðu BA sem fórst með allri áhöfn í tíunda apríl árið 1910. 3.5.2006 13:20
Segir Alþingi verði að samþykkja sérstakt frumvarp Einar Oddur Kristjánsson, varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, telur að skuldbindingar þriggja ráðherra vegna fyrirhugaðs tónlistarhúss við Reykjavíkurhöfn hafi ekkert gildi fyrr en Alþingi hefur samþykkt sérstakt frumvarp þar um. 3.5.2006 12:30
Falsaðir peningaseðlar í umferð á Akranesi Falsaðir fimm hundruð króna seðlar eru í umferð á Akranesi og leggur lögreglan mikla áherslu á að finna falsarann. Tveir falsaðir seðlar hafa komið fram í útibúi KB bankann og þrír fundust við uppgjör eftir dansleik. Að sögn lögreglu eru seðlarnir ekki vandaðir, þegar betur er að gáð. 3.5.2006 12:15
Gæti kostað sex milljarða í fyrstu Slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli getur kostað hátt í sex milljarða króna fyrsta árið eftir að Íslendingar taka við rekstri þess. Rekstur flugvallarins kostar um 1.400 milljónir króna á ári og stofnkostnaður gæti hlaupið á milljörðum. 3.5.2006 12:15
Fjölmargir fara á mis við vaxtabætur Fjölmargar fjölskyldur, sem eiga von á umtalsverðum vaxtabótum eins og í fyrra, og miða jafnvel einhverjar greiðslur við það, fá ekki krónu þegar álagningarseðlarnir berast í sumar. 3.5.2006 12:03
Hundaólar sem gefa rafstuð Hægt er að gefa hundum rafstuð með þar til gerðum hálsólum sem verslun í Reykjavík hefur til sölu. Löglegt er að flytja ólarnar inn og selja, en ekki að nota þær. 3.5.2006 12:03
Atvinna, fjölskyldu- og skipulagsmál í forgrunni L-listinn, listi fólksins sem býður fram í 3. sinn í sveitarstjórnarkosningunum 27. maí næstkomandi kynnti stefnuskrá sína í morgun undir yfirskriftinni "Afl fyrir Akureyri til 2010". Þar er áherslan meðal annars lögð á fjölskylduvænni bæ, eflingu skóla, fría leikskóla og almenningssamgöngur og þá vill L-listinn að bæjarstjóri Akureyrar verði ráðinn á faglegum forsendum. 3.5.2006 11:52
Þórólfur Árnason ráðinn forstjóri Skýrr hf. Þórólfur Árnason, fyrrverandi borgarstjóri hefur verið ráðinn í starf forstjóra Skýrr hf. Þórólfur er vélaverkfræðingur frá Háskóla Íslands og lauk framhaldsnámi í iðnaðar- og rekstrarverkfræði frá Danmarks Tekniske Højskole í Kaupmannahöfn. Þórólfur hefur víðtæka reynslu af markaðsmálum og stjórnun. 3.5.2006 10:57
Mörg fíkniefnamál í Borgarnesi Alls hafa sautján fíknefnamál komið upp hjá lögreglunni í Borgarnesi frá áramótum. Um nokkuð mikið magn fíkniefna er að ræða. 3.5.2006 09:54
Einkaneysla dregst saman Fjármálaráðuneytið gerir í nýrri spá sinni, ráð fyrir minni aukningu einkaneyslu í ár og á næsta ári, en ráðuneytið spáði í janúar. Aukningin í ár verður um það bil 3%, en var hátt í 13% í fyrra. 3.5.2006 09:44
Skilar álitsgerð um tónlistarhúsið í dag Ríkisendurskoðandi skilar í dag fjárlaganefnd Alþingis álitsgerð um heimild fjármálaráðherra til að greiða umsaminn hlut ríkisins í tónlistarhúsinu, sem á að rísa við Reykjavíkurhöfn, og mun þar véfengja heimild stjórnvalda til framkvæmdanna, að því er Fréttablaðið telur sig hafa heimildir fyrir. 3.5.2006 09:24
Íbúar Selfoss safna fyrir nýjum fíkniefnahundi Íbúar á Selfossi hafa hrundið af stað söfnun fyrir lögregluna í bænum til að fylla í skarð fíkniefnahundsins Fernis sem drapst á síðasta ári. 3.5.2006 09:18
Leita peningafalsara á Akranesi Falsaðir fimm hundruð króna seðlar eru í umferð á Akranesi og leggur lögreglan mikla áherslu á að finna falsarann. Tveir falsaðir seðlar hafa komið fram í útibúi KB banka og þrír fundust við uppgjör eftir dansleik. 3.5.2006 08:45
Umhverfismat seinkar ekki gangagerð Íbúasamtök Laugardalshverfa og Grafarvogs segja það misskilning að framkvæmdir á Sundabraut muni tefjast vegna umhverfismats á jarðgöngum. 3.5.2006 08:30
Þúsundir missa allar vaxtabætur sínar Margir eiga eftir að fá óvæntan fjárhagslegan skell þegar álagningarseðlarnir berast í sumar, því þúsundir heimila munu missa allar vaxtabætur vegna hækkunar húsnæðisverðs. Þetta kom fram í máli Atla Gíslasonar þingmanns Vinstri grænna á Alþingi í gær. 3.5.2006 08:15
Hálfur annar milljarður í slökkviliðið Það kostar ríkissjóð tæpan einn og hálfan milljarð króna að yfirtaka rekstur slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli. Þetta kemur fram í umsögn fjármálaráðuneytisins um flutning slökkviliðsins undir flugvallarstjórann á Keflavíkurflugvelli. 3.5.2006 07:45
Heimsækir keppnislöndin Silvía Night heldur af landi brott í dag til að kynna Eurovision-lagið sitt, Congratulations. "Þegar fólk vissi að ég ætlaði að keppa í Eurovision varð það svo yfirfullt af eftirvæntingu. Það getur ekki beðið svo ég ákvað að fara út og minnka spennuna svolítið," sagði Silvía fyrir ferðina í gær. 3.5.2006 07:15
Í-listinn fengi hreinan meirihluta Í-listinn, sameiginlegt framboð Samfylkingarinnar, Vinstri - grænna, Frjálslyndra og óháðra á Ísafirði, næði hreinum meirihluta í bæjarstjórn ef kosið yrði nú. Þetta kemur í ljós í nýrri könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann fyrir NFS. Átta ára valdatíð sjálfstæðismanna og framsóknarmanna virðist á enda samkvæmt þessu. 2.5.2006 21:03
Höft festu starfsmannaleigur í sessi Takmarkanir á frjálsu flæði vinnuafls frá nýjum EES-ríkjum síðustu 2 ár hafa fest starfsmannaleigur í sessi segja Samtök atvinnulífsins. 2.5.2006 23:47
Verðtrygging er lífeyriskerfinu nauðsyn Lífeyriskerfið færi á haus ef verðtryggingin yrði afnumin segir Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. Skiptar skoðanir eru um málið innan verkalýðshreyfingarinnar. 2.5.2006 23:36
Íslensk stjórnvöld ættu að skammast sín Íslensk stjórnvöld ættu að sjá sig um hönd, jafnvel skammast sín fyrir hvernig staðið hefur verið að framkvæmdum við álverið á Reyðarfirði. Þetta segir Hjörleifur Guttormsson sem gagnrýnir harðlega frummatsskýrslu Alcoa um umhverfisáhrif frá álverinu og framgang stjórnvalda í þeim efnum. 2.5.2006 22:40
Krefjast þess að verðhækkanir verði dregnar til baka Neytendasamtökin hafa sent stórri ferðaskrifstofu bréf þar sem þau krefjast þess að ákvörðun þeirra um verðhækkun á pakkaferðum skrifstofunnar verði dregin til baka. Á heimasíðu Neytendasamtakanna segja samtökin að ferðaskrifstofan hafi sent mörgum neytendum sem greitt hafa svonefnt staðfestingagjald bréf þar sem þeim er tilkynnt um að verð ferðanna hafi verið hækkað eða verði hækkað vegna gengisbreytinga að undanförnu. 2.5.2006 22:38
Jarðgöng þurfa ekki í umhverfismat á ný Íbúasamtök Laugardalshverfa og Grafarvogs segja það misskilning að framkvæmdir á Sundabraut muni tefjast vegna umhverfismats á jarðgöngum. Þeim kosti hafi þegar verið gerð skil í umhverfismati og því þyrfti einungis að endurskoða niðurstöður þess umhverfismats út frá nýjum hugmyndum en óþarfi sé að meta gangakostinn upp á nýtt. 2.5.2006 22:34
Þingfundur stendur enn Þingfundur stendur enn á Alþingi en hann hófst í dag laust eftir hádegi. Verið er að ræða breytingar á lögum um almannatryggingar vegna uppsagnar sjálfstætt starfandi sérfræðinga í hjartalækningum á samningi við ríkið. 2.5.2006 22:19
Sumarbústöðum fjölgar um ríflega þriðjung á átta árum Sumarbústöðum í landinu hefur fjölgað um rúman þriðjung í landinu frá árinu 1997. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingarinnar. Í tölum frá Fasteignamati ríkisins kemur í ljós að 7617 sumarbústaðir voru í landinu árið 1997. 2.5.2006 21:30
Þjóðsögur og þulur hjá Nemendaleikhúsinu Þjóðsögur og þulur eru í aðalhlutverki í sýningu Nemendaleikhúss Listaháskóla Íslands sem sett er upp á Litla sviði Þjóðleikhússins. Í sýningunni er drepið á frægum þjóðsögum eins og Nú skyldi ég hlæja ef ég væri ekki dauður, sem er einnig titill sýningarinnar. Auk þess bregður fyrir þeim Gilitrutt, Bakkabræðrum, púkanum og fjósamanninum og Búkollu, svo nokkur séu nefnd. 2.5.2006 20:30