Fleiri fréttir

Nýr fundur í kjaradeilu slökkviliðsmanna boðaður í fyrramálið

Samninganefnd slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og launanefnd sveitarfélaganna hittast hjá ríkissáttasemjara klukkan 10 í fyrramálið. Fyrsti fundur í deilunni hjá ríkissáttasemjara var í dag.Formaður LSS segir lítils skilnings gæta hjá viðsemhjendum á eðli að aðstæðum slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

Tvö hundruð bíða greiningar

Um 200 börn bíða greiningar hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Vonir standa til að jafnvægi verði komi á biðlistann eftir tvö ár. Aldrei hafa fleiri greinst einhverfir en nú.

Flugumferðastjórn útskrifar úr grunnnámi

Þrettán útskrifuðust úr grunnnámi í flugumferðarstjórn hjá Flugmálastjórn í dag en það er fyrsta slíka útskrifin hér á landi í sjö ár. Meirihluti útskriftarnemanna er frá Kosovo.

Baugsmálið kostar nærri 1.500 milljónir

Málsvarnarlaun sexmenninganna sem ákærðir eru í Baugsmálinu, rannsóknarvinna, almannatengsl og annar kostnaður Baugs vegna málaferlanna.,- nema eitt þúsund og tvö hundruð milljónum króna. Kostaður hins opinbera vegna málsóknarinnar nemur að minnsta kosti 200 milljónum.

Hvalveiðar hefjast að nýju

Sjávarútvegsráðherra segir stefnt að hvalveiðum í atvinnuskyni og ákvörðun verði tekin áður en langt um líður. Fyrirvari sem Ísland setti um að hefja ekki veiðar að nýju er liðinn. Ráðherrann segir hvalveiðar stundaðar sem aldrei fyrr og þar séu Bandaríkin stórtækust.

Dýrast í Garðabæ

Garðabær er dýrasta sveitarfélag landsins þegar kemur að því að fá leikskólavist og skóladagvist fyrir börn. Skiptir þá engu hvort um er að ræða hjón eða einstætt foreldri. Þetta kemur fram í nýrri verðlagskönnun Alþýðusambands Íslands.

Sáttafundi lauk án árangurs

Sáttafundi slökkviliðsmanna og viðsemjenda þeirra hjá Ríkissáttasemjara lauk án árangurs nú fyrir stundu. Annar fundur hefur verið boðaður á morgun. Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn samþykktu í gærkvöldi heimild til boðun verkfalls um allt land.

Gæsluvarðhald framlengt vegna afmfetamínsmygls

Búið er að framlengja gæsluvarðhald yfir tveimur Litháum vegna gruns um amfetamínsmygl. Gæsluvarðhald yfir öðrum manninum var framlengt til 7. apríl og yfir hinum til 2. mars. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í morgun Litháa á fertugsaldri í farbann til tuttugasta og fjórða mars næstkomandi vegna málsins.

Frítt dagblað kemur út í haust

Dagsbrún stefnir á að hefja útgáfu nýs dagblaðs í Danmörku í haust blaðinu verður dreift frítt. Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagbrúnar, staðfesti þetta í viðtalið á fréttavaktinni eftir hádegi í dag. Búið er að stofna vinnuhóp til að kanna með hvaða leiðum hagkvæmast er að dreifa blaðinu.

Samræmd stúdentspróf heyra sögunni til

Ákveðið hefur verið að fella niður samræmd stúdentspróf í framhaldsskólum í núverandi mynd. Menntamálaráherra hyggst leggja fram frumvarp á vorþingi þar sem þetta verður lagt til. Ýmsir vankantar hafa verið á framkvæmd prófana að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu og hafa framhaldskólarnir átt í erfiðleikum með að bæta samræmdu prófunum við prófahald sem þar hefur tíðkast um árabil.

Liggur þungt haldinn á gjörgæslu

Maðurinn sem féll af þaki við Lyngás í Garðabæ í gærdag liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Hann er með alvarlega áverka og er haldið sofandi í öndunarvél. Maðurinn var við störf á þakinu þegar slysið átti sér stað. Vinnueftirltið vinnur nú að rannsókn málsins. Að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði mun fallið hafa verið nokkuð hátt.

Ekki samstaða um hvort að vændiskaup eigi að vera refsiverð

Ekki náðist samstaða um hvort gera ætti kaup á vændi refsiverð í starfshóp sem dómsmálaráðherra skipaði árið 2004 og farið hefur yfir málið. Starfshópurinn kannaði mismunandi löggjöf um vændi á Norðurlöndum og víðar.

Lithái úrskurðaður í farbann

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í morgun Litháa á fertugsaldri í farbann til 24. mars næstkomandi vegna rannsóknar á amfetamínsmygli. Maðurinn er búsettur hér á landi. Gæsluvarðhald yfir tveimur Litháum, sem einnig eru taldir tengjast málinu, rennur út klukkan fjögur í dag. Fyrir þann tíma verður tekin afstaða til þess hvort óskað verður eftir að það verði framlengt.

Styrkir vegna ættleiðinga frá útlöndum

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að veita styrki vegna ættleiðinga frá útlöndum frá og með næsta ári. Kostnaður para sem ættleiða börn erlendis frá er gjarnan um ein milljón króna.

Banaslys í Garðabæ

Stúlkan sem lést eftir að hafa orðið fyrir bíl á Bæjarbraut í Garðabæ fimmtánda þessa mánaðar hét Halla Margrét Ásgeirsdóttir. Minningarathöfn um Höllu Margréti fer fram í Vídalínskirkju klukkan 18 í dag.

Rask á þjónustu slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna

Þegar hefur orðið rask á þjónustu slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna í morgun þótt þeir hafi ekki gripið til formlegra hópaðgerða. Eftir því sem NFS kemst næst, mættu slökkvililðs- og sjúkraflutningamenn ekki á endurmennturnarnámskeið í morgun, en þar var skyldumæting. Þá hafa þeir hafanð yfirvinnu, en menn í yfirvinnu manna svonefnda dagbíla, sem eru tveir sjúkrabílar, sem flytja fólk á milli sjúkrahúsam á daginn vegna myndatöku og annara rannsókna.

Félagsráðgjafar höfnuðu tilboði borgaryfirvalda

Félagsráðgjafar höfnuðu í morgun tilboði borgaryfirvalda í kjaraviðræðum aðilanna og svöruðu með gagntilboði. Formaður stéttarfélags félagsráðgjafa segir mikið hafa borið í milli.

Nýsköpunarverðlaunin ekki fyrir konur?

Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, segir að sér virðist sem hvatningu Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands í ár hafa ekki verið beint til ungra kvenna. Verðlaunin voru veitt í gær og að þessu sinni voru þau gefin af Viðskiptaháskólanum. Fjögur verkefni voru tilnefnd og voru þau öll unnin af karlmönnum. Leiðbeinendur þeirra voru einnig karlar. 140 verkefni komu til greina.

Meleyri lokað

Einni elstu rækjuverksmiðju landsins, Meleyri á Hvammstanga verður lokað innan skamms þar sem öllum 20 starfsmönnunum verksmiðjunnar hefur verið sagt upp. Þá verða aðeins sex til sjö rækjuverksmiðjur eftir í rekstri hér á landi en þær voru 20 fyrir nokkrum árum.

Bæjarstjórinn tregur til að boxa

20-30 nemendur Háskólans á Akureyri afhentu Kristjáni Þór Júlíussyni bæjarstjóra á Akureyri boxhanska á Akureyrarflugvelli í morgun. Bæjarstjórinn virtist tregur til að veita hönskunum viðtöku.

Baugsmálið í dóm

Ákæruliðirnir í Baugsmálinu snúa annars vegar að brotum á lögum um ársreikninga og hins vegar að brotum á tollalögum vegna innflutnings á bílum, en málið var dómtekið í gærkvöldi að lokinni aðalmeðferð. Dómarar hafa nú þrjár vikur til að kveða upp dóm.

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn samþykkja verkfall

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn samþykktu einróma í gær heimild til boðunar verkfalls um allt land þar sem ekkert hefur þokast í samkomulagsátt í kjaraviðræðum þeirra og Launanefndar sveitarfélaganna. Ef af því verður hefst það væntanlega 16. eða 17. mars.

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn samþykkja heimild til verkfalls

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn hafa samþykkt heimild til boðunar verkfalls um allt land þar sem ekkert hefur þokast í samkomulagsátt í kjaraviðræðum þeirra og Launanefndar sveitarfélaganna. Ef af því verður hefst það væntanlega 16. eða 17. mars.

Erilsamt hjá lögreglunni í Hafnarfirði

Maður liggur alvarlega slasaður á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi eftir að hann féll af þaki við Lyngás í Garðabæ um klukkan hálf tvö í dag. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Hafnarfirði mun fallið hafa verið nokkuð hátt og var maðurinn fluttur með sjúkrabifreið á gjörgæsludeild .

Stefnir í verkfall slökkviliðsmanna

Slitnað hefur upp úr samningaviðræðum sveitarfélaga og slökkviliðsmanna, sem hyggjast óska eftir heimild til verkfallsboðunar á stéttarfundum víða um land í kvöld. Formaður samninganefndarinnar segir þolinmæði slökkviliðsmanna á þrotum. Heimildir NFS herma að slökkviliðsmenn íhugi að vinna ekki yfirvinnu á næstu dögum, sem er stór hluti af starfi þeirra.

Lést af slysförum

Stúlkan, sem varð fyrir bíl í Garðabæ þann15. þessa mánaðar er látin. Hún var fædd árið 1990 og var nemi í Garðaskóla í Garðabæ. Stúlkan var á leið yfir gangbraut á Bæjarbraut í Garðabæ þegar slysið varð. Talið er að ökumaður bifreiðarinnar hafi blindast af sól þegar slysið varð. Þetta er þriðja banaslysið í umferðinni það sem af er þessu ári.

Hjálmar Árnason fékk hjartaáfall í nótt

Hjálmar Árnason, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, fékk hjartaáfall í nótt. Hann gekkst undir hjartaþræðingu á Landspítalanum í dag og mun vera úr allri hættu. Tilkynnt var við upphaf þingfundar í morgun að hann yrði frá þingstörfum í nokkrar vikur. Ísólfur Gylfi Pálmason er varamaður hans á þingi.

Valgerður segir áhrif stóiðju ofmetin

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra segir áhrif stóriðju ofmetin í íslensku efnahagslífi. Ráðherrann segir þensluna helst stafa af útlánaaukningu bankanna. Þá segir hann ekki rúm fyrir allar þrjár stórframkvæmdirnar sem mest sé rætt um. Ekki verði á næstu tíu árum reist álver í Helguvík ef stækkað verði í Straumsvík.

Ellefu ára fangelsi fyrir morð

Magnús Einarsson var í dag dæmdur í ellefu ára fangelsi fyrir að bana konunni sinni á heimili þeirra í Kópavogi í nóvember árið 2004. Hæstiréttur þyngdi fangelsisdóm héraðsdóms yfir Magnúsi um tvö ár. Magnús var ákærður fyrir að bregða þvottasnúru um háls Sæunnar á heimili þeirra í Hamraborg í Kópavogi og þrengja síðan að þannig að hún lést af völdum kyrkingar. Börn þeirra tvö voru sofandi í íbúðinni á sama tíma. Magnús játaði að hafa banað konu sinni, en afbrýðisemi vegna framhjálds konu hans hafi valdið því að hann missti stjórn á sér.

Vetrarhátíð sett kl. 20 í beinni á NFS

Fimmta Vetrarhátíðin í Reykjavík hefst í kvöld kl. 20 á Austurvelli þar sem Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri setur hátíðina. Sýnt verður beint frá setningunni á NFS. Búast má við litskrúðugum gjörningi í kjölfarið þar sem öllu ægir saman, Vetri konungi, ljósum, risatrommum, dönsum og eldi.

Málflutningi í Baugsmálinu lokið

Málflutningi verjenda í Baugsmálinu er lokið og það hefur nú verið dómtekið. Búast má við að dómur verði kveðinn upp innan þriggja vikna.

Herör skorin upp gegn ölvunarakstri

Aukið fjármagn og nýjasta tækni verða notuð til að góma ökumenn sem aka undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Vel menntað og vel launað fólk er líklegra en annað til að aka etir að hafa fengið sér einn áfengan drykk, en þeir sem minni menntun hafa og lægri laun eru líklegri til að aka eftir fleiri en einn.

Þorgerður í stað Geirs til Indlands

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, fer í opinbera heimsókn til Indlands um helgina í stað Geirs H. Haarde, utanríkisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins. Þetta er af óviðráðanlegum ástæðum eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

11 ára fangelsi fyrir að myrða eiginkonu sína

Hæstiréttur dæmdi í dag Magnús Einarsson í ellefu ára fangelsi fyrir að verða Sæunni Pálsdóttur eiginkonu sinni að bana í Hamraborg í Kópavogi í nóvember árið 2004. Hæstiréttur þyngdi dóms héraðsdóms um tvö ár.

Ráðherra segir farið yfir fjárhagsleg málefni HA

Menntamálaráðherra hefur sent frá yfirlýsingu sér vegna umræðu um fjárhagsstöðu Háskólans á Akureyri. Þar kemur fram að ráðherra hafi á undanförnum mánuðum unnið að því í góðri samvinnu við rektor Háskólans á Akureyri að fara yfir fjárhagsleg málefni skólans. Markmiðið sé að finna varanlega lausn á málefnum skólans.

Hæstiréttur staðfestir nauðgunardóm HV

Hæstiréttur hefur staðfest eins og hálfs árs dóm Héraðsdóms Vestfjarða yfir manni sem ákærður var fyrir að hafa nauðgað ungri stúlku í júní 2004.

Dómur þyngdur í Hæstarétti vegna morðs í Hamraborg

Hæstiréttur þyngdi í dag dóm yfir Magnúsi Einarssyni, sem ákærður var fyrir að hafa myrt eiginkonu sína, Sæunni Pálsdóttur, að heimili þeirra að Hamraborg í Kópavogi 1. nóvember 2004. Héraðsdómur hafði dæmt hann í níu ára fangelsi en Hæstiréttur þyngdi dóminn í ellefu ár að kröfu ákæruvaldsins sem áfrýjaði dómnum.

Bæjarfulltrúar Neslistans áfram í efstu sætum

Búið er að ákveða hvernig Neslistinn á Seltjarnarnesi verður skipaður við næstu sveitarstjórnarkosningar, en listinn hefur nú þrjá af sjö bæjarfulltrúum í bæjarstjórn Seltjarnarness. Bæjarfulltrúarnir skipa áfram sömu sæti og við síðustu kosningar.

Samið um 900 nýjar íbúðir í Hveragerði

Samningar á milli byggingafyrirtækisins Eyktar og Hveragerðisbæjar voru undirritaðir á bæjarskrifstofunum í Hveragerði í gærkvöldi. Í samningnum er stefnt að byggingu 8-900 íbúða hverfis austan Varmár á næstu 12 árum þar sem ríflega 2000 einstaklingar munu búa. Gangi uppbyggingaráformin eftir munu þau kalla á nýjan grunnskóla og 6 deilda leikskóla í Hveragerði. Strax verður hafist handa við athuganir á landssvæði því sem um ræðir og í kjölfar þeirra hefst vinna við deiliskipulag. Gert er ráð fyrir að gatnagerð á svæðinu hefjist á næsta ári.

Röskva og Vaka í samstarf í Stúdentaráði HÍ

Eftir margra ára baráttu hafa þær tvær stóru fylkingar sem barist hafa um Stúdentaráð Háskóla Íslands tekið höndum saman. Um sögulegt samstarf er að ræða og hefur stjórn Stúdentaráðs nú í fyrsta sinn 90% atkvæða á bak við sig.

Sjá næstu 50 fréttir