Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Valgerður gefur ekki kost á sér Valgerður H. Bjarnadóttir bæjarstjórnarfulltrúi Vinstri-grænna á Akureyri hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í annað sætið á lista flokksins fyrir sveitastjórnarkosningarnar í vor. Valgerður sóttist eftir því að leiða listann. 30.1.2006 22:09
Dansinn dunar hjá eldri borgurum Eldri borgarar koma saman á hverjum mánudegi til að dansa línudans og samkvæmisdansa. Við litum á dansæfingu þar sem óhætt er að segja að dansinn duni tímunum saman. 30.1.2006 21:55
Græðandi á skipaskráningarkerfi Íslenska ríkið fengi tvö hundruð milljónir í kassann, með því að taka upp skipaskráningarkerfi að færeyskri fyrirmynd. Þetta segir Kristján Möller alingismaður, sem vill ekki bara bjarga íslenskri farmannastétt, heldur nota féð til að styrkja strandsiglingar hér við land. 30.1.2006 21:28
Samþykktu sjálfir „skipulagsslys“ Sjálfstæðismenn í borgarráði samþykktu fyrir rúmu ári, að flytja bensínstöðina við Geirsgötu í Vatnsmýrina, en segja nú að flutningurinn sé skipulagsslys. 30.1.2006 21:15
ÍAV fá verk án útboðs Bróðurpartur lóðaframkvæmda vegna Tónlistar- og ráðstefnuhússins við Reykjavíkurhöfn verður boðinn út, segir borgarstjóri. Sérstakar aðstæður réttlæti hins vegar að samið verði án útboðs við Íslenska aðalverktaka um fyrsta hlutann, upp á fjögur hundruð milljónir króna. 30.1.2006 21:13
Einn handtekinn fyrir vopnað rán Einn hefur verið handtekinn grunaður um að hafa rænt Happdrætti Háskóla Íslands við Tjarnargötu laust fyrir klukkan tólf í dag. Sá sem er í hald var dæmdur fyrir vopnað rán árið 2004. 30.1.2006 21:07
Múslimar sárir við Dani og Norðmenn Danska stjórnin varaði danska ríkisborgara í dag við því að ferðast til Sádi-Arabíu, þar sem mikil reiði ríkir vegna birtinga teikninga af Múhameð spámanni. Reiðin er einnig farin að beinast gegn Norðmönnum eftir að norskt blað birti teikningarnar. 30.1.2006 21:05
ASÍ vill sambærilegar hækkanir Varaforseti Alþýðusambandsins segir að sambandið verði strax að sækja launahækkanir fyrir sitt fólk. Þessi staða sé komin upp eftir að launanefnd heimilaði hækkun á lægstu launum starfsmanna sveitarfélaga. 30.1.2006 21:01
Sendiferðabíll ók í veg fyrir steypubíl Litlu munaði að alvarlegt slys hefði orðið á Reykjanesbraut í dag þegar sendiferðbíll ók í veg fyrir fulllestaðann steypubíll. Steypubíllinn lenti aftan á sendiferðabílnum með þeim afleiðingum að vörulyfta og afturhleri fóru af honum. Ökumaður steypubifreiðarinnar slasaðist lítillega. Nokkrar skemmdir urðu á ökutækjum. 30.1.2006 20:49
Fjórir segja upp á Hlaðhömrum í Mosfellsbæ Fjórir starfsmenn á leikskólanum Hlaðhömrum í Mosfellsbæ hafa sagt upp störfum vegna óánægju með kjör sín. Leikskólastjórinn segist jafnvel eiga von á fleiri uppsögnum muni sveitafélagið ekki nýtta sér heimild launanefndar sveitafélaganna til launahækkunnar, sem samið var um síðastliðinn laugardag. 30.1.2006 20:05
Hótel Saga og Hótel Ísland ekki seld Búnaðarþing Íslands felldi rétt í þessu tillögu um að Hótel Ísland og Hótel Saga yrðu seld. Samningurinn var felldur með miklum mun og Hótel Saga og Hótel Ísland verða því ekki seld að svo komnu máli. 30.1.2006 17:33
Stjórnvöld standi við skuldbindingar Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur sent frá sér ályktun þar sem þung áhersla er lögð á að stjórnvöld standi við skuldbindingar sínar samkvæmt Kyoto-bókuninni. Bókunin veitir Íslendingum svigrúm til að auka framleiðslu á áli um 280 þúsund tonn til ársins 2012. Í ályktuninni segir að það svigrúm verði að nýta af varfærni og vara við áformum um að skilja eftir framtíðarvandamál sem tengjast of mikilli losun gróðurhúsalofttegunda. 30.1.2006 16:47
Einn handtekinn vegna ráns Lögreglan í Reykjavík hefur handtekið einn mann sem er grunaður um vopnað rán hjá Happdrætti Háskólans í hádeginu. Lögreglan verst allra nánari frétta af málinu þar sem það er í rannsókn. Ekki er enn vitað hversu miklu af peningum þjófurinn náði. Skrifstofa Happadrættisins er enn lokuð vegna vettvangsrannsókna. 30.1.2006 16:24
OgVodafone-númer í símaskrá Nýjustu upplýsingar um símanúmer og heimilisföng viðskiptavina Og Vodafone, verða hér eftir aðgengilegar á simaskra.is og í Símaskránni. Þetta er vegna samkomulags Og Vodafone og Já, sem rekur simaskra.is, 118 og gefur út Símaskrána. Áður var aðeins hægt að fá nýjustu upplýsingar um viðskiptavini Og Vodafone í 118 hjá Já. 30.1.2006 15:36
Segir morðið óviljaverk Sigurður Freyr Kristmundsson sagði að það hefði verið óviljaverknaður þegar hann varð Braga Halldórssyni að bana með því að stinga hann í íbúð við Hverfisgötu 20. ágúst síðastliðinn. 30.1.2006 15:25
Skipa nefnd til að fara yfir lög um kjaradóm Ríkisstjórnin hefur skipað nefnd til að fara yfir lög um Kjaradóm og kjaranefnd. Er henni ætlað að gera tillögur um breytingar á þeim lögum í ljósi reynslunnar og ábendinga sem fram hafa komið um annmarka á þeim. Nefndinni er sérstaklega ætlað að skoða hvort ástæða sé til að breyta fyrirkomulagi launaákvarðana Kjaradóms og kjaranefndar. 30.1.2006 15:04
Fær stærsti árgangur sögunnar inn í framhaldsskólana? Í vor útskrifast stærsti árgangur Íslandssögunnar úr grunnskólum landsins. Framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra, hefur áhyggjur af því hvort framhaldsskólarnir rúmi alla þá sem óska eftir inngöngu. 30.1.2006 14:48
Ræningjans enn leitað Lögreglan leitar enn mannsins sem rændi Happdrætti Háskólans í hádeginu. Maðurinn var klæddur í dökkbláan Kraft-galla. Þeir sem gefið geta upplýsingar eru beðnir um að hafa samband við Lögregluna í Reykjavík í síma 444-1100. 30.1.2006 14:42
Undirrita umsókn fyrir Surtsey Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra undirrita í dag umsókn íslenskra stjórnvalda um að Surtsey verði samþykkt á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna. 30.1.2006 14:01
Jaxlinn kynntur í tannverndarviku Árleg tannverndarvika Lýðheilsustöðvar hófst í dag. Þetta árið verður lögð sérstök áhersla á mikilvægi góðrar tannhirðu en meginmarkmiðið með tannverndarvikunni er að vekja athygli á mikilvægi þess fyrir líf og heilsu fólks að vera með heilbrigðar tennur. 30.1.2006 13:49
Forsetinn í Grundaskóla Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaieff forsetafrú heimsækja Grundaskóla á Akranesi á morgun í tilefni af því að Grundaskóli fékk Íslensku menntaverðlaunin í flokki skóla sem sinnt hafa nýsköpun og farsælu samhengi í fræðslustarfi. 30.1.2006 13:43
Vopnaður maður rændi HHÍ í Tjarnargötu Vopnaður ræningi rændi Happdrætti Háskóla Íslands í Tjarnargötu laust fyrir klukkan tólf. Maðurinn kom inn með byssu og sagðist vera að ræna útibúið: Hann vatt sér síðan að næsta peningakassa, tók laust fé úr honum og hvarf á braut. Honum var veitt eftirför en hefur enn ekki fundist. 30.1.2006 12:44
Myndi raska öllum skuldbindingum Forstjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, sem er móðurfélag Fríhafnarinnar, segir að það muni raska öllum skuldbindingum félagsins og uppbyggingaráformum, ef sala í komuverslun Fríhafnarinnar verður einskorðuð við áfengi og tóbak, eins og Samtök Verslunar og þjónustu knýja á um. 30.1.2006 12:30
Vopnað rán hjá Happdrætti Háskólans Hettuklæddur maður vopnaður byssu rændi Happdrætti Háskóla Íslands við Tjarnargötu laust fyrir klukkan tólf í dag. Mannsins er leitað. Enginn starfsmaður slasaðist í ráninu. 30.1.2006 12:14
Verður Hótel Saga seld? Búnaðarþing kom saman klukkan ellefu í morgun til að taka ákvörðun um það hvort kauptilboði í Hótel Sögu og Hótel Ísland verði tekið. Þingið var kallað saman til þessa aukafundar og er kauptilboðið það eina sem ráðgert er að ræða. Ekki er vitað hvenær þinginu lýkur. 30.1.2006 12:13
Friðurinn úti Friðurinn hefur verið rofinn á vinnumarkaðnum með samþykkt Launanefndar sveitarfélaganna um hækkun lægstu launa, að mati Kristjáns Gunnarssonar, formanns Starfsgreinasambands Íslands. Hann hefur boðað formenn verkalýðsfélaganna á fund í næstu viku til að ræða tillögu launanefndarinnar. 30.1.2006 12:02
Öll atkvæði utan kjörfundar innsigluð Stuðningsmenn Óskars Bergssonar, sem lenti í þriðja sæti í prófkjöri Framsóknarflokksins í Reykjavík um helgina, létu innsigla öll utankjörfundaratkvæði að talningu lokinni. 30.1.2006 12:01
Og Vodafone í Símaskrána Nýjustu upplýsingar um símanúmer og heimilisföng viðskiptavina Og Vodafone, verða hér eftir aðgengilegar á simaskra.is og í Símaskránni. Þetta er vegna samkomulags Og Vodafone og Já, sem rekur simaskra.is, 118 og gefur út Símaskrána. 30.1.2006 11:42
Réttað yfir Sigurði Frey Aðalmeðferð í máli Sigurðar Freys Kristmundssonar hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Sigurður Freyr er ákærður fyrir að hafa banað Braga Halldórssyni í ágúst síðastliðnum með því að stinga hann með hnífi. 30.1.2006 11:34
Innbrot reynt í félagsmiðstöð Tilraun var gerð til að brjótast inn í félagsmiðstöðina í Þorlákshöfn síðustu nótt. Vaktmaður öryggisgæslufyrirtækis tók eftir að einhver hafði reynt að spenna upp hurð á félagsmiðstöðinni en mistekist og er ekki að sjá að hann hafi komist inn. Ekki er vitað hvort sami einstaklingur hafi verið á ferð og braust inn í Sæunni Sæmundsdóttur ÁR aðfaranótt laugardags. 30.1.2006 11:26
Samið við þrjú félög Fulltrúar Reykjavíkurborgar gengu í gær frá samningum við þrjú stéttarfélög um breytingar og framlengingu á samningum félaganna við borgina. Félögin eru Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga, Stéttarfélag lögfræðinga og Útgarður. 30.1.2006 10:39
Eru að slökkva síðustu glæðurnar Slökkviliðsmenn eru að ljúka við að slökkva eld sem kviknaði í sumarbústað við Hafravatn. Enginn reyndist vera í bústaðnum þegar eldurinn kom upp og því engin hætta á ferðum. Sumarbústaðurinn er hins vegar illa skemmdur. 30.1.2006 10:13
Eldur í sumarbústað Slökkviliðsmenn frá öllum stöðvum á höfuðborgarsvæðinu voru sendar að Hafravatni til að slökkva eld sem kom upp í sumarbústað þar fyrir skemmstu. 30.1.2006 09:50
Spassky til Íslands Skákmeistarinn Boris Spassky, sem árið 1972, missti heimsmeistaratitilinn í hendur Bobby Fischers í Laugardalshöllinni, er væntanlegur hingað til lands í næstu viku. Að sögn Morgunblaðsins ætlar hann að taka þátt í hátíðarhöldum til heiðurs Friðriki Ólafssyni fyrsta stórmeistara Íslendinga í skák. Ekki liggur fyrir hvort hann muni hitta Fischer í heimsókninni, en sem kunnugt er er Fischer orðinn íslenskur ríkisborgari og býr í Reykjavík. 30.1.2006 09:45
Steinunn og Ólafur fengu starfslaun í þrjú ár Rithöfundarnir Steinunn Sigurðardóttir og Ólafur Gunnarsson hlutu starfslaun til lengst tíma við úthlutun listamannalauna. Hvort um sig hlýtur starfslaun til þriggja ára. 124 listamenn fengu starfslaun sem nema frá þremur mánuðum upp í þrjú ár og tíu að auki fengu fararstyrk. 30.1.2006 09:31
Í fangelsi fyrir akstur án réttinda Karlmaður var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að keyra bíl ökuréttindalaus á Akureyri. Maðurinn hefur aldrei fengið ökuréttindi og var fyrir sjö árum dæmdur til að fá aldrei ökuréttindi vegna endurtekinna umferðarlagabrota. 30.1.2006 09:20
Kristinn vill skýringu Kristinn H. Gunnarsson þingmaður Framsóknarflokks segir að það verði að fá skýringu á gríðarlegri þátttöku í utankjörfundaratkvæðagreiðslum í prófkjörinu í Reykjavík um helgina. Það hafi líklega aldrei gerst áður að fjórðungur greiddra atkvæða sé utan kjörfundar. 30.1.2006 09:00
Segir nám til stúdentsprófs stytt til að spara fé Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir áform um að stytta námstíma til stúdentsprófs snúast um að spara fé fyrir ríkið og auka miðsstýringu. Hún telur að staldra þurfi við og athuga fremur möguleika á að stytta námstímann í grunnskólanum. 30.1.2006 08:00
Fundu 20 grömm af kókaíni Lögreglumenn fundu að minnstakosti tuttugu grömm af efni, sem talið er vera kókaín, þegar hún var að hreinsa út úr fíkniefnagreni í Austurborignni seint í nótt. Eigandi efnisins var meðal gesta í húsinu og er hann í haldi lögreglu. Hann er grunaður um að hafa ætlað að selja efnið, enda eru menn víst ekki að rúnta með svona mikið efni í einu í bílumn sínum, ef þeir ætla þau til eigin nota. 30.1.2006 07:31
Stjórnskipulegur vandi blasir við Stjórnskipulegur vandi blasir við ef einhver dómari höfðar mál á hendur ríkinu vegna afnáms úrskurðar kjaradóms um laun dómara segir Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari. 30.1.2006 07:00
Stærsti árganur Íslandssögunnar Í vor útskrifast stærsti árgangur Íslandssögunnar úr grunnskólum landsins. Framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra, hefur áhyggjur af því hvort framhaldsskólarnir rúmi alla þá sem óska eftir inngöngu. 30.1.2006 15:28
Herra Ísland segist ekki hafa brotið samninginn Ólafur Geir Jónsson, fyrrum Herra Ísland, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna þess að hann hafi verið sviptur titlinum. 29.1.2006 17:39
Eldur kviknaði í gamalli vörubifreið Eldur kviknaði í gamalli vörubifreið við Svínavatn í Biskupstungum nú fyrir stundu. Engin hætta var á ferðum og tók það slökkvilið skamma stund að ráða niðurlögum eldsins. 29.1.2006 17:22
Íslendingar ljúki háskólagráðum á svipuðum tíma og aðrir Prófessor í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands segir það ekki alls kostar rétt að íslenskir nemendur ljúki námi seinna og skili sér seinna út á vinnumarkaðinn en jafnaldrar þeirra í nágrannalöndunum, eins og haldið hefur verið fram. Íslensk ungmenni ljúki almennt stúdentsprófi seinna en jafnaldrar þeirra í nágrannalöndunum en ef menn skoði sambærilegar gráður á háskólastigi þá ljúki Íslendingar þeim gráðum á svipuðum tíma. 29.1.2006 16:19
Skoða kosti þess að sameinast Hafnarsamlag Eyjafjarðar og Hafnarsamlag Norðulands skoða nú kosti þess að sameinast. Á vefsíðunnni dagur.net er fjallað um að vegna sameiningar Siglufjarðar og Ólafsfjarðar, að þá hafi verið fjallað um það í skýrslu Rannsóknarstofnunnar Háskólans á Akureyri, hvernig skylda fara með hafninar á þeim stöðum, en Siglufjarðarhöfn hefur staðið utan hafnarsamlaga. 29.1.2006 14:28