Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Óbreyttar veiðiheimildir Botnfiskveiðar Færeyinga við Ísland verða óbreyttar á þessu ári frá því sem verið hefur. Þetta var meðal niðurstaðna viðræðna landstjórnarmannsins Björns Kalsös, sem fer með sjávarútvegsmál í Færeyjum og Árna M. Mathiesens sjávarútvegsráðherra á mánudag, en þeir funduðu í Reykjavík til að ræða fiskveiðisamning Færeyja og Íslands. 11.1.2005 00:01
Fjórir buðu í stálvírinn Fimm tilboð bárust Landsvirkjun í stálvír fyrir Fljótsdalslínur 3 og 4, en þau voru opnuð á mánudag. Hæsta boð kom frá Westfälische Drahtindustrie GmbH upp á 71,4 milljónir króna, en það var það eina sem var yfir kostnaðaráætlun. 11.1.2005 00:01
Hampiðjan til Litháens Hundrað störf hafa verið lögð af í Reykjavík við flutning verksmiðju Hampiðjunnar til Litháens. Þetta er tæpur fjórðungur áætlaðra starfa í álverinu á Reyðarfirði. 11.1.2005 00:01
Ölgerðin kærir Ölgerð Egils Skallagrímssonar hefur kært úrskurð Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur vegna banns við dreifingu á drykknum Kristal Plús. 11.1.2005 00:01
Álagning lækkar Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í gær var ákveðið að halda aukafund á mánudag til að ræða frekar lækkun álagningar fasteignaskatts. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri segir að allir hafi verið sammála um að lækka álagningu, en fram á mánudag verði farið yfir tölur um hversu mikið eigi að lækka. 11.1.2005 00:01
Álagning hækkar ekki Á morgun mun Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri leggja fyrir borgarráð tillögu um að álagningarprósenta fasteignaskatts muni ekki hækka, líkt og gert er ráð fyrir samkvæmt fjárhagsáætlun borgarinnar sem samþykkt var í desember. 11.1.2005 00:01
Segir fjármálin í uppnámi Vegna athugasemda Skipulagsstofnunar við tillögu bæjarstjórnar á Seltjarnarnesi að aðalskipulagi er boðað frekara samráðs við íbúa um skipulagsmál. 11.1.2005 00:01
Sértekjurnar skipta sköpum Samkvæmt rekstraruppgjöri Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri (FSA) fyrir tímabilið janúar til nóvember í fyrra er afkoman í heildina í samræmi við fjárlög. 11.1.2005 00:01
Framkvæmdastjóri hættir Karl Th. Birgisson, framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, hefur sagt upp störfum. "Þetta hefur átt sér alllangan aðdraganda. Ég ætla að láta gamlan draum rætast" segir Karl. 11.1.2005 00:01
Snjóflóðahættu að hluta aflýst Snjóflóðahættu í Reynishverfi við Vík í Mýrdal hefur að hluta verið aflétt. Heimilisfólki á bæjunum Lækjarbakka og Reyni hefur verið leyft að snúa heim. 11.1.2005 00:01
Klórinn ekki mál ráðuneytisins Umhverfisráðuneytið telur ekki ástæðu til að aðhafast vegna vinnslu klórs í Kópavogi án starfsleyfis á þessu stigi málsins. Ráðuneytisstjóri segir að treysta verði Heilbrigðiseftirliti bæjarins til að tryggja öryggi íbúa svæðisins. 11.1.2005 00:01
Kjaraviðræðum ÍJ frestað Ákveðið hefur verið að fresta kjaraviðræðum samninganefnda eigenda og starfsmanna Íslenska járnblendifélagsins á Grundartanga í nokkra daga. 11.1.2005 00:01
Grænmetisframleiðslan í óvissu Að öllu óbreyttu stórhækkar verð á rafmagni til garðyrkjubænda um næstu mánaðamót. Unnið er að lausn málsins því verði ekki að gert mun grænmetisframleiðsla í landinu leggjast af. 10.1.2005 00:01
Tvær bílveltur í hálkunni Fimm manns sluppu ómeiddir þegar bíll sem fólkið var í valt út af Vesturlandsvegi á móts við afleggjarann að Bröttubrekku síðdegis í gær. Tveir menn sluppu líka þegar bíll þeira valt út af Biskupstungnabraut á móts við Svínavatn síðdegis. Mikil hálka var á báðum stöðum. 10.1.2005 00:01
Ekkert lát á loðnuveiðum Ekkert lát er á loðnuveiðunum norður af Langanesi og er langmest af aflanum fryst til manneldis. Hafrannsóknaskipið Árni Friðrikssson er að kortleggja göngurnar og er þess vænst að niðurstöður liggi fyrir upp úr miðri vikunni og að þá verði aukið verulega við kvótann. 10.1.2005 00:01
Olíufélögin hjá áfrýjunarnefnd Lögfræðingar olíufélaganna Esso, Olís og Skeljungs mættu til fundar við áfrýjunarnefnd samkeppnismála á Hótel Sögu klukkan níu í morgun. Einnig var fulltrúi samkeppnisstofnunar boðaður á fundinn sem haldinn er vegna áfrýjunar olíufélaganna á úrskurði samkeppnisráðs vegna samráðs olíufélaganna um verðlagningu olíuvara. 10.1.2005 00:01
Saug fé upp úr stöðumælum Lögreglan í Reykjavík handtók í nótt mann sem var með að minnsta kosti kíló af skiptimynt sem hann hafði sogið upp úr stöðumælum með sérútbúinni ryksugu. Það var vaktmaður í bandaríska sendiráðinu sem sá til mannsins og lét lögreglu vita sem gómaði hann þar í grennd. 10.1.2005 00:01
Loftskip á milli lands og Eyja? Sky-Cat risaloftskip sem Bretar eru að ljúka við að hanna yrði aðeins 45 mínútur á milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur. Slíkt loftskip virðist betri lausn á samgöngumálum Vestmannaeyinga en Herjólfur eða aðrar hefðbundnar ferjur. 10.1.2005 00:01
Seinheppinn þjófur handtekinn Seinheppinn þjófur var gripinn fyrir þjófnað síðdegis í gær þegar hann ætlaði að tilkynna um að hann hefði sjálfur lent í þjófnaði. Maðurinn hafði stolið fjórum fartölvum en hélt svo að bílnum sínum hafi verið rænt. 10.1.2005 00:01
Atvinnuleysi minnkar enn Dregið hefur úr atvinnuleysi undanfarið og líklega mun sú þróun halda áfram á þessu ári, að sögn greiningardeildar Íslandsbanka. Hagvöxtur er mikill um þessar mundir og skilar sér nú í minnkandi árstíðarleiðréttu atvinnuleysi að sögn bankans. 10.1.2005 00:01
Vefur um verkefni sýslumanna Sýslumannafélag Íslands hefur í samstarfi við dóms- og kirkjumálaráðuneytið opnað nýjan vef sem inniheldur upplýsingar um verkefni sýslumanna og ýmsar leiðbeiningar fyrir þá sem til embætta sýslumanna þurfa að leita. Á vefnum er einnig hvert embætti fyrir sig með eigin síðu þar sem helstu upplýsingar um starfsemi þess koma fram. 10.1.2005 00:01
Gallup svarar ráðherrum Stjórnendur IMG-Gallups á Íslandi sitja nú á fundi til að móta afstöðu til niðrandi ummæla þriggja ráðherra um skoðanakönnun sem félagið gerði nýverið um viðhorf til lista yfir staðföstu ríkin svonefndu. 10.1.2005 00:01
Langur málflutningur olíufélaganna Búist er við að munnlegur málflutningur í olíumálinu fyrir áfrýjunarnefnd samkeppnismála standi fram á kvöld. Lögfræðingar stóru olíufélaganna mættu til fundar nefndarinnar í morgun ásamt fulltrúa Samkeppnisstofnunar. 10.1.2005 00:01
Fagna yfirlýsingu Davíðs Starfsmannaráð Landspítala - háskólasjúkrahúss fagnar yfirlýsingu Davíðs Oddssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um ráðstöfun söluandvirðis Símans til uppbyggingar nýs hátæknisjúkrahúss. Ráðið segir yfirlýsinguna styðja við mikið undirbúningsstarf sem stjórnendur og starfsfólk sjúkrahússins hafi innt af hendi með heilbrigðisráðuneytinu. 10.1.2005 00:01
Dómur fyrir innflutning á hassi Þrítugur karlmaður var dæmdur í sjö mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir að hafa flutt með sér til landsins rúmlega 190 grömm af hassi. Maðurinn hafði áður hlotið fangelsisdóma, meðal ananrs fyrir rán, tékkasvik, umferðarlagabrot, nytjastuld og meiriháttar eignaspjöll. 10.1.2005 00:01
Landfylling við Gufunes samþykkt Skipulagsstofnun hefur fallist á fyrirhugaða gerð landfyllinga við vestan- og norðanvert Gufunes í Reykjavík með því skilyrði að framkvæmdir við gerð grjótvarnargarðs og þvergarða innan hans verði utan göngutíma laxfiska, þ.e. frá 1. maí til 30. september. 10.1.2005 00:01
Komið til móts við bændur Drífa Hjartardóttir segir flókið mál að reikna út hækkun raforkuverðs til garðyrkjubænda, en málið verði örugglega leyst og þeir verði ekki látnir sitja uppi með 30-100 prósent hækkun. 10.1.2005 00:01
Fundur ekki ákveðinn Enn er ekki búið að ákveða hvenær viðræður Íslendinga og Bandaríkjamanna um framtíð varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli munu fara fram. 10.1.2005 00:01
Standa við könnun Forsvarsmenn IMG Gallup höfnuðu í gær ávirðingum þriggja ráðherra um skoðanakönnun sem fyrirtækið framkæmdi um stuðning við hernaðaraðgerðir í Írak. 10.1.2005 00:01
Heimsókn til Kína í boði þingsins Halldór Blöndal, forseti Alþingis, mun heimsækja Kína 11.- 18. janúar í boði forseta kínverska þingsins ásamt eiginkonu sinni, Kristrúnu Eymundsdóttur. Með þingforseta í för verða varaforsetarnir Guðmundur Árni Stefánsson og kona hans, Jónína Bjartmarz og eiginmaður hennar, og Sólveig Pétursdóttir ásamt forstöðumanni alþjóðasviðs skrifstofu Alþingis. 10.1.2005 00:01
Tilkynnt um 80 miltisbrandssvæði Tilkynningar hafa borist til Sigurðar Sigurðarsonar dýralæknis um 80 svæði á landinu, þar sem grunur leikur á að miltisbrandur sé í jörðu. Enn eru slíkar tilkynningar að berast, en svæðin verða staðsett nákvæmlega og skráð. </font /></b /> 10.1.2005 00:01
Fréttastjóra Stöðvar 2 sagt upp Sigríði Árnadóttur hefur verið sagt upp sem fréttastjóra á fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar en hún tók við starfinu fyrir tæp</font />u ári. 10.1.2005 00:01
Nær 1900 vilja grænar tunnur Hátt í 1900 íbúar í einbýli í Reykjavík hafa pantað græna sorptunnu að sögn Guðmundar Friðrikssonar hjá Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur. 10.1.2005 00:01
Umdeildar reglur ekki í gildi Umdeildar breytingar á reglum ferðaþjónustu fatlaðra aldraða taka ekki gildi fyrr en settar verða reglur um akstursþjónustu aldraðra, að sögn Bjarkar Vilhelmsdóttur borgarfulltrúa. 10.1.2005 00:01
Bíða viðbragða félagsmálaráðherra ASÍ bíður eftir viðbrögðum félagsmálaráðuneytisins við greinargerð um gagnrýnina á Impregilo. Vonast er eftir viðbrögðum eða fundi í dag. Fjallað verður um málið á miðstjórnarfundi á morgun. </font /></b /> 10.1.2005 00:01
Rannsakar iðnréttindin Sýslumannsembættið á Seyðisfirði rannsakar nú iðnréttindi nokkurra erlendra starfsmanna Impregilo á Kárahnjúkum, m.a. rafiðnaðarmanna og smiða. 10.1.2005 00:01
Páll ráðinn í forsætisráðuneytið Páll Þórhallsson hefur verið ráðinn lögfræðingur á aðalskrifstofu forsætisráðuneytisins samkvæmt auglýsingu sem birt var í byrjun desember. Hann mun m.a. sinna ráðgjöf, skjalagerð og úrlausn lögfræðilegra viðfangsefna á verksviði ráðuneytisins, einkum á sviði stjórnskipunar- og stjórnarfarsréttar. 10.1.2005 00:01
Segir feril Alfreðs senn á enda Það þarf hins vegar engan sérfræðing til að átta sig á því að eftir 35 ára starf að borgarmálum hlýtur að vera farið að styttast eitthvað í annan endann á stjórnmálaferli Alfreðs Þorsteinssonar," segir Guðjón Ólafur Jónsson, varaþingmaður Framsóknarflokksins, á vef framsóknarmanna, hrifla.is. 10.1.2005 00:01
Búnaði við klórvinnslu ábótavant Verkfræðistofa gerði alvarlegar athugasemdir við starfsemi klórverksmiðju Mjallar-Friggjar í haust. Í skýrslum hennar kemur meðal annars fram að búnaði verksmiðjunnar hafi verið ábótavant sem áhættumati. </font /></b /> 10.1.2005 00:01
Ólafur afhenti trúnaðarbréf sitt Ólafur Davíðsson, sendiherra Íslands í Þýskalandi, afhenti forseta Þýskalands, Horst Köhler, trúnaðarbréf sitt í dag. Þýskaland hefur um árabil verið stærsta viðskiptaland Íslands og voru heildarviðskipti landanna á síðastliðnu ári tæplega 60 milljarðar króna. 10.1.2005 00:01
Orkla eignast meirihluta í Elkem Norska fyrirtækjasamsteypan Orkla hefur eignast meirihluta í Elkem sem meðal annars á Íslenska járnblendifélagið. Orkla hafði þar með betur en Alcoa í baráttunni um Elkem. 10.1.2005 00:01
Gallup stendur við könnunina IMG - Gallup á Íslandi segist standa fyllilega við könnun á afstöðu Íslendinga til þátttöku Íslands á lista hinna viljugu þjóða sem studdu hernaðaraðgerðir í Írak. Þrír ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa farið niðrandi orðum um könnunina. 10.1.2005 00:01
Vörðust ásökunum um samráðið Fulltrúar fjögurra olíufélaga vörðust ásökunum um ólögmætt samráð á fundi með áfrýjunarnefnd samkeppnismála í dag. Fulltrúar Samkeppnisstofnunar skýrðu sitt mál einnig. Búast má við niðurstöðu nefndarinnar í mánuðinum. 10.1.2005 00:01
Impregilo skuldar hundruð milljóna Impregilo skuldar hundruð milljóna króna í vangoldna staðgreiðslu launa portúgalskra starfsmanna sinna samkvæmt áætlun íslenskra skattayfirvalda. Impregilo segist ekki bera ábyrgð á skattskyldu starfsmanna frá Portúgal sem hafa starfað við Kárahnjúkavirkjun og vísar á starfsmannaleigur. 10.1.2005 00:01
Dæmdur fyrir hassinnflutning Þrítugur maður var í Héraðsdómi Reykjaness í gær dæmdur í sjö mánaða fangelsi fyrir innflutning á rúmum 190 grömmum af hassi sem hann flutti til landsins í febrúar í fyrra. Fimm mánuðir af refsingunni eru skilorðsbundnir til þriggja ára. 10.1.2005 00:01