Fleiri
Holtasóleyin hafði það 22.10.2004 00:01 Næg bílastæði Nýtt kirkjuhús Íslensku Kristskirkjunnar að Fossaleyni í Grafarvogi verður vígt á morgun, sunnudag. 22.10.2004 00:01 Fréttamenn til hliðar Bogi Ágústsson, forstöðumaður fréttasviðs Ríkisútvarpsins, hefur ákveðið að stjórnarmenn í Félagi fréttamanna skuli ekki fjalla um kennaradeiluna í fréttum. Þessi ákvörðun er tekin eftir að stjórn Félags fréttamanna ákvað að veita verkfallssjóði Kennarasambands Íslands 220 þúsund króna styrk. 22.10.2004 00:01 Ofbeldi handrukkara orðum aukið Lögreglan og bráðamóttakan segja að meint ofbeldi handrukkara í íslenskum samtíma sé orðum aukið. Dæmi séu um hótanir og ógnanir en sem betur fer lítið um efndir. Sögusögnum sé komið á kreik og viðhaldið til að skapa ótta. </font /></b /> 22.10.2004 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Eldur í fjölbýli Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað út laust fyrir klukkan 10 í gærmorgun vegna elds í fjölbýlishúsi við Þverbrekku 4 í Kópavogi. Minni hætta reyndist þó á ferðum en virtist í fyrstu, en reyk lagði upp úr þaki hússins. 23.10.2004 00:01
Menntun vanmetin "Kennaraverkfallið sem enn stendur yfir er ótvírætt merki um alvarlega og djúpstæða deilu í samfélagi okkar um það hver starfsskilyrði og kjör kennara í grunnskólum landsins skuli vera," sagði Páll Skúlason háskólarektor við brautskráningu stúdenta frá Háskóla Íslands í gær. 23.10.2004 00:01
Bilun í sjálfvirkum símsvara Bilun í gagnagrunni Þjónustuvers Símans gerði það að verkum að frá því á föstudag áttu viðskiptavinir í miklum erfiðleikum með að ná í þjónustunúmerið 800 7000 og lá símsvörun niðri um tíma á föstudagskvöldið. Aðfaranótt laugardags var gert við til bráðabirgða þannig að hægt væri að sinna lágmarksþjónustu. 23.10.2004 00:01
Íslendingar þurfa að gefa meira Um helgina var haldin á Þingvöllum ráðstefna Norræna samvinnuráðsins í málefnum fólks með þroskahömlun. Halldór Gunnarsson, formaður Þroskahjálpar, segir hinar Norðurlandaþjóðirnar vera framarlega í þróunaraðstoð en nú sé komið að Íslendingum að sýna samstöðu í verki. 23.10.2004 00:01
Verslun truflaði umferð Það jaðraði við umferðaröngþveiti í Stykkishólmi þegar Bónus opnaði sína 22. verslun og þá þrettándu á landsbyggðinni á slaginu tíu á laugardagsmorguninn. Að sögn lögreglu fylltist bærinn af kaupglöðum gestum. 23.10.2004 00:01
Annir hjá Kópavogslöggunni Þrjú fíkniefnamál komu upp í Kópavogi aðfaranótt laugardags. Lögregla stöðvaði annars vegar ökumann og hins vegar tvo gangandi vegfarendur í annarlegu ástandi. Fundust bæði hass og amfetamín við leit á viðkomandi einstaklingum. 23.10.2004 00:01
Telja systurina hafa verið drepna Systkini Birgittu Írisar Harðardóttur segja að hún hafi ekki sprautað sig sjálf með banvænum skammti eiturlyfja. Einhver annar hafi sprautaði efninu í Birgittu og drepið hana. Hún hafi aldrei sprautaði sig sjálf. Eiður Örn Ingvason, þrítugur Reykvíkingur, er ákærður fyrir að koma ekki til hjálpar þegar Birgitta lést 22 ára gömul. Nánar í DV í dag. 22.10.2004 00:01
Ókeypis leikskólavist frá áramótum Leikskólavist fyrir fimm ára börn verður ókeypis í Fjarðabyggð frá og með áramótum samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar í gær. Þetta nær til fjögurra stunda leikskólavistar fyrri hluta dags. 22.10.2004 00:01
Félagi segir Annþór ganga of langt Máni Andersen, félagi handrukkarans Annþórs Kristjáns Karlssonar, segir Annþór hafa gengið of langt. Máni er vitni í máli þar sem Annþór er ákærður fyrir hrottalegar barsmíðar. <b><font face="Helv" color="#008080"></font></b> 22.10.2004 00:01
Rafmagnslaust í Hlíðahverfi í gær Rafmagnslaust varð í um það bil klukkustund í Hlíðahverfinu í Reykjavík í gærkvöldi vegna bilunar í háspennustrengs. Meðal annars varð rafmagnslaust í Perlunni og rafmagn fór af umferðarljósunum á mótum Miklubrautar og Lönguhlíðar og þurftu lögreglumenn að handstýra umferð um gatnamótin þar til rafmagn komst aftur á. 22.10.2004 00:01
Fjórir stútar teknir í nótt Fjórir ölvaðir ökumenn voru teknir úr umferð í Reykjavík í gærkvöldi og í nótt og einn fyrir að aka réttindalaus eftir að hafa verið sviptur þeim. Þá voru þrír sektaðir fyrir að vera með útrunnin ökuskírteini og nokkrir fyrir að hafa gleymt þeim heima. 22.10.2004 00:01
Deilendur kallaðir á fund Halldórs Ákveðið var á ríkisstjórnarfundi í morgun að kalla fulltrúa deilenda í kennaradeilunni á fund með Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra á mánudag. 22.10.2004 00:01
Ekið á tvö lömb Bíl var ekið á tvö lömb skammt frá Borgarnesi í gærkvöldi og drapst annað þeirra strax en aflífa þurfti hitt. Bíllinn skemmdist eitthvað en var ökufær eftir. 22.10.2004 00:01
Jón Ólafsson greiði 300m í skatt Ríkisskattstjóri hefur úrskurðað að Jón Ólafsson þurfi að greiða rúmar 300 milljónir í viðbótarskatt vegna skattrannsóknar auk þeirra 97 milljóna sem hann hefur þegar greitt. </font /></b /> 22.10.2004 00:01
Teknir á 164 kílómetra hraða Tveir ungir ökumenn voru mældir á 164 kílómetra hraða á Laugarvatnsveginum í gær og svifti Selfosslögreglan þá ökuréttindum á staðnum. Þeir voru í kappakstri og voru stöðvaðir rétt neðan við Laugarvatn. Þeirra bíður nú sektir upp á tugi þúsunda króna. 22.10.2004 00:01
Hindra óæskilega hópamyndun Reykjavíkurborg hefur skipulagt vaktir í hverfum borgarinnar þessa vikuna til að ná sambandi við unglinga og koma í veg fyrir óæskilega hópamyndun í kennaraverkfallinu. Þetta kemur í kjölfar ákvörðunar forvarnarnefndar Reykjavíkurborgar sem hefur veitt 750 þúsund krónur til að vinna gegn neikvæðum afleiðingum kennaraverkfalls á ungt fólk. 22.10.2004 00:01
Tveir síbrotamenn dæmdir Tveir síbrotamenn voru í morgun dæmdir í Héraðsdómi Reykjaness til fangelsisvistar og er hvorugur dómurinn skilorðsbundinn. 22.10.2004 00:01
Ekki óskað gæsluvarðhalds Lögreglan ætlar ekki að óska eftir því að mennirnir þrír sem réðust inn á ritstjórn DV í vikunni og tóku fréttastjóra hálstaki verði settir í gæsluvarðhald. Rannsókn málsins lýkur í dag. 22.10.2004 00:01
Ekki verið rætt um lög Forsætisráðherra hefur kallað til sín deilendur í kennaradeilunni á mánudaginn. Hann segir að viðræðuslitin í gær séu mikil vonbrigði. Ekki hafi þó verið rætt um að setja lög á verkfallið. 22.10.2004 00:01
Lán upp á 13,2 milljarða uppgreidd Landsmenn hafa greitt upp lán hjá Íbúðalánasjóði fyrir 13,2 milljarða síðan bankarnir kynntu ný húsnæðislán sín. Þetta samsvarar þriggja mánaða útlánum sjóðsins. 22.10.2004 00:01
Þjóðarblómið tilkynnt í dag Það verður holtasóley, blóðberg eða gleym-mér-ei sem verður þjóðarblóm Íslendinga. Úrslitin verða tilkynnt í dag klukkan hálf fjögur. Málið var rætt á ríkisstjórnarfundi í morgun. 22.10.2004 00:01
Áhyggjur vegna skattalækkana Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar lýsir yfir þungum áhyggjum vegna áforma ríkisstjórnarinnar um skattabreytingar að því er fram kemur í ályktun fundar stjórnar félagsins í gær. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar dregur í efa þá fyllyrðingu að nú sé svigrúm til skattalækkana. 22.10.2004 00:01
Stefán dæmdur í 3 ára fangelsi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Stefán Loga Sívarsson, annan „Skeljagrandabróðurinn“, í þriggja ára fangelsi fyrir mjög alvarlega líkamsárás sem hefði getað leitt til dauða. Milta mannsins rifnaði svo hann hlaut innvortis blæðingu. 22.10.2004 00:01
Holtasóley þjóðarblóm Íslendinga Holtasóley er þjóðarblóm Íslendinga. Frá þessu var greint við athöfn í Salnum í Kópavogi í dag að viðstöddum forseta Íslands og landbúnaðarráðherra. 22.10.2004 00:01
Skemmdarvarganna enn leitað Lögreglunni í Keflavík hafa borist vísbendingar vegna spellvirkja sem unnin voru á kirkjugarðinum í Keflavík í gær. Um tuttugu legsteinum var velt um koll og krossar rifnir upp, auk þess sem grafskrift, lugtir og fleira var eyðilagt. 22.10.2004 00:01
Ódýrara að fara til tannlæknis Það ætti að verða ódýrara að fara til tannlæknis frá og með 1. nóvember því heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að hækka upphæðir í gjaldskrá fyrir tannlækningar um 4%. 22.10.2004 00:01
Vel að sér um alþjóðastofnanir Íslendingar virðast ágætlega að sér um alþjóðastofnanir samkvæmt könnun sem fram fór í rúmlega 60 löndum í sumar. Í könnuninni var meðal annars spurt hvort fólk hafi heyrt um ýmsar alþjóðastofnanir. 22.10.2004 00:01
Uppsagnir flugfreyja afturkallaðar Iceland Express hefur dregið uppsagnir allra flugfreyja hjá félaginu til baka eftir að samningar tókust. Samningar áttu að renna út við lok mánaðarins. Um fjörutíu flugfreyjur vinna hjá félaginu. 22.10.2004 00:01
Ingibjörg Sólrún tekur frumkvæðið Varaformaður Samfylkingarinnar hefur í þessari viku tekið pólitískt frumkvæði og snúið aftur í stjórnmálinn við stjórnvöl framtíðarhópsins. Sá hópur hannar nú stefnuna sem samþykkt verður á sama landsfundi og kýs á milli Ingibjargar og Össurar 22.10.2004 00:01
Stjórnleysi í útgáfu leyfa Einungis 40 prósent starfandi fiskeldisstöðva eru með rekstrarleyfi og af 83 starfandi stöðvum virðast aðeins 70 vera með starfsleyfi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Valdimars Inga Gunnarssonar um stöðu og framtíðaráform í íslensku fiskeldi. 22.10.2004 00:01
Sex milljarða tekjur árið 2007 Óraunhæft er að spá stýrihóps um aukið verðmæti sjávarfangs nái fram að ganga Samkvæmt spánni var gert ráð fyrir að útflutningsverðmæti fiskeldis yrðu komin upp í 36 milljarða króna árið 2012. Í fyrra nam útflutningsverðmætið 1,5 milljarði króna. 22.10.2004 00:01
Ekkert vandamál Það er ekki stefnt að því að eitt fagráðuneyti hafi yfirumsjón með útgáfu leyfa til fiskeldis, að sögn Árna M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra. 22.10.2004 00:01
Kópavogur braut eigin reglur Kópavogsbær úthlutaði tveggja mánaða gömlu fyrirtæki byggingarétti fyrir fjölbýlishús. Fyrirtækið var selt hæstbjóðanda. Eigendur högnuðust um tugmilljónir og eru verktakar ósáttir með vinnubrögð bæjarins. 22.10.2004 00:01
Harður árekstur á Vesturlandsvegi Harður árekstur varð á Vesturlandsvegi rétt fyrir klukkan fimm. Lögregla og sjúkralið eru nýkomin á vettvang og ekki nánari fregnir að hafa. 22.10.2004 00:01
Ákærður fyrir manndrápstilraun Tuttugu og fimm ára gamall karlmaður, sem hjó til annars með öxi á veitingastað í Hafnarfirði fyrir skömmu, hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps. Maðurinn, sem mun sitja í gæsluvarðhaldi þar til dómur verður kveðinn upp, hefur áður verið dæmdur fyrir ofbeldi og fíkniefnabrot. 22.10.2004 00:01
Húsleit og handtökur Þrír menn voru handteknir eftir húsleit á Ólafsfirði í gær. Tveir mannanna eru grunaðir um innbrot í leikskóla bæjarins en þeim þriðja var sleppt fljótlega eftir handtökuna. 22.10.2004 00:01
Bandaríkjamenn eiga samúð mína "Bandaríkjamenn eiga alla mína samúð að hafa kosið yfir sig þennan Bush," segir Signý Jóhannesdóttir, formaður Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði, er hún er spurð um afstöðu sína til bandaríkjaforseta og forsetakosninganna sem framundan eru í Bandaríkjunum. 22.10.2004 00:01
Dæmdur í þriggja ára fangelsi Stefán Logi Sívarsson var, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás sem hann framdi í apríl. Ríkissaksóknari fór fram á að Stefán yrði dæmdur í fjögurra ára fangelsi. 22.10.2004 00:01
Samkeppnisstofnun gagnrýnd Hagfræðistofnun Háskóla Íslands segir að útreikningar Samkeppnisstofnunar á hagnaði olíufélaganna þriggja vegna meins samráðs hafi ekki við rök að styðjast. Forstöðumaður segist undrandi á skorti á rökstuðningi Samkeppnisstofnunar. Útreikningar hafa áhrif á hugsanlegar sektir. </font /></b /> 22.10.2004 00:01
Verð sjávarafurða hækkar Verð sjávarafurða var hærra í september en í ágúst síðastliðnum samkvæmt verðvísitölu sjávarafurða sem Hagstofan birti í morgun. Verð sjávarfurða reiknað í íslenskum krónum hækkaði um tæpt eitt prósent á tímabilinu, þrátt fyrir sterkari krónu í september í ár en á sama tíma í fyrra. Frá þessu greinir í Vegvísi greiningardeildar Landsbankans. 22.10.2004 00:01
Byssumaður sagður hættulaus Nítján ára piltur sem strauk úr fangelsi í vikunni og sagður var hættulaus hefur verið ákærður fyrir rán í Hringbrautarapótek sem hann framdi vopnaður skammbyssu. Hann er líka ákærður fyrir að hafa lagt haglabyssu að andliti manns í heimahúsi. Pilturinn er í gæsluvarðhaldi og kom hann í héraðsdóm í óvenju mikilli gæslu. 22.10.2004 00:01
Næg bílastæði Nýtt kirkjuhús Íslensku Kristskirkjunnar að Fossaleyni í Grafarvogi verður vígt á morgun, sunnudag. 22.10.2004 00:01
Fréttamenn til hliðar Bogi Ágústsson, forstöðumaður fréttasviðs Ríkisútvarpsins, hefur ákveðið að stjórnarmenn í Félagi fréttamanna skuli ekki fjalla um kennaradeiluna í fréttum. Þessi ákvörðun er tekin eftir að stjórn Félags fréttamanna ákvað að veita verkfallssjóði Kennarasambands Íslands 220 þúsund króna styrk. 22.10.2004 00:01
Ofbeldi handrukkara orðum aukið Lögreglan og bráðamóttakan segja að meint ofbeldi handrukkara í íslenskum samtíma sé orðum aukið. Dæmi séu um hótanir og ógnanir en sem betur fer lítið um efndir. Sögusögnum sé komið á kreik og viðhaldið til að skapa ótta. </font /></b /> 22.10.2004 00:01