Fleiri fréttir

Bannað að vitna í umræður

Á fundi borgarráðs sl. þriðjudag var lagt fram minnisblað þar sem áréttaðar voru reglur um hvað má fjalla um að loknum lokuðum fundum í nefndum og ráðum borgarinnar.

Sala fasteigna fyrir 1,2 milljarða

Tillaga meirihluta bæjarráðs Vestmannaeyja, að fela bæjarstjóra að ganga til viðræðna við Fasteign hf. um sölu á fasteignum bæjarins fyrir allt að 1,2 milljarð króna, var samþykkt á fundi bæjarráðs í gær. Fulltrúi minnihlutans lagðist gegn tillögunni.

Stefna forstjóra Heilsugæslunnar

Félag hjúkrunarfræðinga ætlar að stefna forstjóra Heilsugæslunnar í Reykjavík fyrir Félagsdóm brot á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Forstjórinn segir enga vinnudeilu hafa átt sér stað.</font /></b />

Hefur ekki játað

Maðurinn sem úrskurðaður var í tveggja vikna gæsluvarðhald vegna gruns um aðild að hvarfi fyrrverandi sambýliskonur sinnar var yfirheyrður stuttlega fyrir dómi í dag. Að sögn Sigurbjörns Víðis Eggertssonar hjá rannsóknardeild lögreglunnar liggur engin játning fyrir í málinu.

Dómur í fíkniefnamáli

Liðlega þrítugur maður var dæmdur í 30 daga óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi í dag fyrir fíkniefnabrot. Maðurinn framdi brotin í fyrra og hitteðfyrra og var hann meðal annars fundinn sekur um ræktun tuga kannabisplantna.

Varað við orkudrykkjum og áfengi

Neysla á orkudrykkjum og áfengi samhliða hreyfingu getur valdið hjartatruflunum og í versta falli leitt til skyndilegs dauða. Matvælastofnanir í Danmörku og Svíþjóð vara fólk við örvandi orkudrykkjum.

Flutt til Hafnarfjarðar

Ákveðið hefur verið að fjarlægja þriggja metra háa eftirlíkingu af majónesdós sem sett var upp við Suðurlandsveg rétt vestan Þjórsár í lok síðasta mánaðar samkvæmt yfirlýsingu frá Gunnar Majones.

Umhverfi fjölmiðla í Evrópu

Aðalhöfundar skýrslu um fjölmiðlamarkaði í tíu Evrópulöndum segir samkeppnislög verða æ mikilvægari. Litlir markaðir hafa sérstöðu. Myndi aldrei mæla með því að lög væru sett sem yrðu til þess að brjóta þurfi upp starfandi fyrirtæki á markaði. </font /></b />

Forseta Íslands komið í klípu

Stjórnarandstaðan segir að ríkisstjórnin sé að reyna að koma forseta Íslands í klípu með því að leggja fram í einu frumvarpi breytingar á fjölmiðlalögum og afnám fyrra lagafrumvarps. Ef forseti skrifi ekki undir sé hann að samþykkja fyrri lög og neita þjóðinni um atkvæðagreiðslu. Fyrstu umræðu lauk á Alþingi í dag. </font /></font /></b /></b />

Varað við þunglyndislyfjum

"Það hefur verið mikil umræða um þessi svokölluðu SSRI þunglyndislyf erlendis og að vel athuguðu máli ákváðum við að senda læknum þessa áminningu," segir Sigurður Guðmundsson, landlæknir.

Tveggja vikna gæsluvarðhald

Maður á fimmtugsaldri hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í tengslum við hvarf þriggja barna móður. Ekkert hefur spurst til konunnar frá því á aðfaranótt sunnudags. Ummerki á heimili mannsins benda til voðaverks.

Uppbygging í Súðavík

Súðavíkurhreppur hefur ákveðið að byggja tvö 500 fermetra atvinnuhúsnæði og tvö einbýlishús. Ekkert atvinnuhúsnæði hefur verið byggt í Súðavík síðustu 24 árin.

Eftirlit í lögsögu Svalbarða

Þorsteinn Már Baldvinsson, segir mikilvægt að máli Svalbarðasvæðisins verði haldið vakandi. Mótmæli íslenskra stjórnvalda séu liður í því. "Það er mjög mikilvægt að við látum þá vita að það sé álit okkar að þeir hafi ekki lögsögu í þessu máli."

Róttækari aðgerða þörf

Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir eðlilegt að íslenska ríkisstjórnin mótmæli 80 þúsund tonna heildarkvóta á Svalbarðasvæðinu en róttækari aðgerða sé þörf.

Sömu lögin, segir Steingrímur

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna, segir enga ástæðu til að ætla annað en að forseti Íslands staðfesti ekki nýju fjölmiðlalögin frekar en hin fyrri. Þetta séu sömu lögin.

Fannar saklaus og Bragi kærður

Í mars hóf lögreglan rannsókn á meintum kynferðisafbrotum Fannars Ólafssonar körfuboltamanns gegn tveimur stúlkum á meðferðarheimilinu Torfastöðum. Fannar er sonur þeirra sem reka meðferðarheimilið og hefur starfað þar á sumrin. hefur frá upphafi haldið fram sakleysi sínu. Ríkissaksóknari hefur nú vísað málinu frá.

Marco hitti dóttur sína

Marco Brancaccia, yfirmaður ítölsku fréttaþjónustunnar ANSA í Mið-Ameríku, fékk að hitta átta ára gamla dóttur sína í gær eftir að hafa reynt það frá því hann kom til Íslands á sunnudag. Marco á í forræðisdeilu við Snæfríði Baldvinsdóttur, dóttur Jóns Baldvins Hannibalssonar sendiherra.   </font />

Frumvarp úrskurðað þinglegt

Halldór Blöndal, forseti Alþingis, úrskurðaði í morgun að nýja fjölmiðlafrumvarpið væri þinglegt. Stjórnarandstaðan lýsti sig algerlega ósammála niðurstöðunni við upphaf þingfundar, bæði að efni og formi til. Harðar umræður urðu um úrskurðinn með hlátrasköllum.

SUF vill samráð um frumvarpið

Ungir framsóknarmenn telja að ekki eigi að samþykkja ný lög um fjölmiðla án samráðs við stjórnarandstöðu, hagsmunaaðila og fólkið í landinu. Mikið ríði á að frumvarpið fái vandaða meðferð en verulega hafi skort á það við afgreiðslu fyrri laganna.

Vilja minnka veiðiálag í Elliðaám

Samráðshópur um málefni Elliðaánna á vegum borgarráðs leggur til að þeim tilmælum verði beint til veiðimanna í sumar að þeir hlífi laxi sem mest með því að sleppa veiddum laxi.

Vatnsrennsli í Elliðaár handstýrt

Mælst er til þess að vatnrennsli í Elliðaár verði handstýrt og að enginn veiðimaður hafi með sér meira en einn lax í soðið úr ánum í sumar.

Blóð fannst í bíl hins handtekna

Fjörtíu og fimm ára gamall maður var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í tengslum við hvarf á fyrrverandi sambýliskonu hans og barnsmóður.

Höfðu útilokað afturköllun

Sjálfstæðismenn höfðu skoðað þann möguleika að afturkalla fjölmiðlalögin - en útilokað hann. Fyrir fáeinum dögum töldu þeir það ekki standast stjórnarskrá. Dómsmálaráðherra hefur sagt að afturköllun laga væru brellibrögð.

Jón Baldvin sakaður um barnsrán

Jón Baldvin Hannibalsson sendiherra hefur verið kærður fyrir aðild að barnsráni og því að hafa beitt áhrifum sínum sem sendiherra Íslands í Bandaríkjunum í því skyni. Það er fyrrum sambýlismaður og barnsfaðir Snæfríðar Baldvinsdóttur, Marco Brancaccia sem kærir. Jón Baldvin segir við DV í dag að hann hafa hótað sér og Bryndísi lífláti.   <font face="Helv"></font>

Vinnuálag í Latabæ

Vegna vinnulags hefur margoft þurft að breyta framleiðsluáætlunum sjónvarpsverkefnisins í Latabæ sem er það viðamesta og dýrasta á öllum Norðurlöndum þetta árið. </font />

Eldur í sófa

Vegfarandi sem átti leið eftir Miðholti í Mosfellsbæ í gærkvöldi, sá hvar eldur logaði inni í stofu á húsi við götuna. Hann hringdi þegar í neyðarlínuna og urðu lögreglumenn fyrstir á vettvang. Þeir höfðu snör handtök og báru logandi sófa út á götu svo að eldurinn næði ekki að dreifa sér, en hann logaði eingöngu í sófanum.

Kvótinn 220 þúsund tonnum minni

Hafrannsóknastofnun leggur til að loðnukvótinn á sumar- og haustvertíðinni verði aðeins 335 þúsund tonn, sem er 220 þúsund tonnum minni upphafskvóti en í fyrra.

Veiðar á Hrefnu nánast óþarfar

Hafrannsóknastofnun ætlar síðsumars að gera tilraunir til að fylgjast með ferðum hrefna hér við land sem gæti orðið undanfari þess að veiðar yrðu nánast óþarfar til að fylgjast með lífsháttum stofnsins.

Davíð fundar með Bush

Davíð Oddsson, forsætisráðherra hittir nú skömmu eftir hádegi George Bush Bandaríkjaforseta á fundi í Hvíta húsinu. Þar hyggjast þeir ræða framtíð varnarsamstarfs Íslendinga og Bandaríkjamanna. Vonir standa til að línurnar skýrist á fundinum og að framtíðarstefna Bandaríkjamanna liggi endanlega fyrir að honum loknum.

Skortur á matvælum

Fjölskylduhjálp Íslands á í erfiðleikum vegna skorts á matvælum handa skjólstæðingum sínum. Það er lokað hjá Mæðrastyrksnefnd og Hjálparstofnun kirkjunnar á þessum tíma árs, og því hafa fleiri leitað til fjölskylduhjálparinnar en hún getur sinnt.

Launamunur mestur á Vestfjörðum

<span class="frettatexti">Launamunur á milli kynja á Vestfjörðum, er lang mestur í veitustarfsemi, þar hafa konur aðeins rúm 38 prósent af launum karla og hetjur hafsins bera minna úr býtum en línumenn og vélstjórar í veitustarfseminni. </span>

Gæsluvarðhald framlengt

Gæsluvarðhald hefur verið framlangt til 27. september, yfir konunni sem grunuð er um að hafa ráðið dóttur sinni bana, á Hagamel í lok maí. Konan er vistuð á réttargeðdeildinni að Sogni. Játning liggur ekki fyrir, en lögreglan segir að rannsókn sé á lokastigi.

Ræða varnarmál í Washington

Þungavigtarmenn í Bandaríkjastjórn verða á fundi þeirra Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra, og George Bush, forseta Bandaríkjanna, síðdegis. Þar munu þeir ræða framtíð varnarsamstarfs.

Kannar hvort frumvarp sé þinglegt

Halldór Blöndal, þingforseti, hefur fallist á að kanna hvort nýja fjölmiðlafrumvarpið sé þinglegt, eða ekki. Stjórnarandstaðan gerði harða hríð að ríkisstjórninni, á þingi í gær. Afturköllun gamla fjölmiðlafrumvarpsins og framlagning hins nýja, var fordæmd og Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna spurði hvort frumvarpið væri þinglegt.

Sýslumannsembættið í þrot

Sýslumannsembættið á Sauðárkróki stefnir í fjárhagslegt þrot, ef mótshaldarar Landsmóts ungmennafélaganna vilja ekki greiða löggæslukostnað við mótið, eins og þeir hafa hótað. Framkvæmdastjóri mótsins hefur látið hafa það eftir sér á opinberum vettvangi að fyrr muni hann sitja sekt af sér í fangelsi, en að greiða löggæslukostnað.

Staðan nú allt önnur

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir að staðan nú sé allt önnur, en þegar hann sagði það vera brellu að afturkalla fjölmiðlalögin. Eftir að ljóst varð að ekki yrði af þjóðaratkvæðagreiðslu, heldur lagt fram nýtt fjölmiðlafrumvarp, hefur mikið verið vitnað í orð Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra, sem hann skrifaði á heimasíðu sína þriðja júní síðastliðinn.

Flugumferð að aukast

Greinileg aukning er að verða á flugumferð um Norður-Atlantshaf, eftir samdrátt síðustu ára vegna hryðjuverkaárásanna í Bandaríkjunum 11. september 2001 og bráðalungnabólgu-faraldursins á árunum 2002 - 2003, segir í fréttatilkynningu frá Flugmálastjórn Íslands.

Slæm tíðindi fyrir tölvuþjófa

Fartölvuþjófar munu ekki eiga sjö dagana sæla í framtíðinni. Tölvufyrirtækið Skýrr bíður nú fartölvueigindum upp á þjónustu sem staðsetur tölvur hvar sem er í heiminum. Ef einhver verður fyrir því að tölvunni hans er stolið getur sá hinn sami tilkynnt þjófnaðinn til lögreglu.

Bragi hlýtur Jules Verne verðlaun

Alþjóðleg samtök um vetnisorku, International association for hydrogen energy (IAHE), veittu nýlega Braga Árnasyni prófessor hin eftirsóttu Jules Verne verðlaun. Bragi veitti verðlaunum viðtöku á heimsráðstefnu um vetnisorku sem fram fór í Yokohama í Japan 30. júní síðastliðinn.

Strangt eftirlit með skipum

Norðmenn passa vel upp á íslensk skip sem eru á síldveiðum við Svalbarða, að sögn forráðamanna Samherja hf. Vilhelm Þorsteinsson EA11 hefur verið við síldveiðar í lögsögu Svalbarða undanfarinn hálfa mánuð eða frá mánudagskvöldinu 21. júní síðastliðinn.

Davíð ítrekar stuðning við innrás

Nýlokið er fundi þeirra George Bush, forseta Bandaríkjanna, og Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra, í Hvíta húsinu í Washington. Á fréttamannafundi fyrir stundu kom fram að engin niðurstaða hefði fengist í málið í viðræðum þjóðarleiðtoganna, en Bush tók fram að Davíð hefði sótt mál sitt af krafti.

Banaslys í Skutulsfirði

Níu ára stúlka beið bana þegar hún hrapaði í fjallinu Kubbanum ofan Holtahverfis á Ísafirði á þriðja tímanum í dag. Fjallið Kubbi er í botni Skutulsfjarðar og gnæfir yfir byggðinni í botni fjarðarins. Stúlkan, sem var til heimilis á höfuðborgarsvæðinu og gestkomandi á Ísafirði, hafði ásamt frænda sínum á sama aldri farið í göngu upp í hlíðar fjallsins.

Vonir um samkomulag

Vonir eru bundnar við að á næstu dögum náist samkomulag um meginlínur í áframhaldandi viðræðum um alþjóðaviðskipti með landbúnaðarafurðir. Takist það hafa menn blásið lífi í viðræður sem stöðnuðu eftir að ráðherrafundi Alþjóða viðskiptastofnunarinnar í september lauk án samkomulags.

Sjá næstu 50 fréttir