Fleiri fréttir

Nýta olíufélögin sér fákeppni?

Flutningsjöfnunarsjóður olíuvara kemur ekki í veg fyrir að olíufélögin virðast nýta sér fákeppni í strjálbýlinu og selja bensínlítrann á allt að níu krónum hærra verði þar en þar sem samkeppni er virk, t.d. á höfuðborgarsvæðinu.

Rafn Jónsson látinn

Rafn Jónsson tónlistarmaður lést á heimili sínu í Hafnarfirði í gær eftir langa baráttu við MND- taugasjúkdóminn. Rafn var fæddur á Ísafirði árið 1954 og hefði því orðið fimmtugur síðar á þessu ári. Hann barðist hetjulega við sjúkdóminn af einstöku æðruleysi og lét aldrei bugast þótt á móti blési.

Jarðskjálfti við Goðabungu

Jarðskjálfti upp á rúmlega tvo og hálfan á Richter varð vestan við Goðabungu í Mýrdalsjökli um klukkan sex í morgun. Hann kemur jarðvísindamönnum ekki á óvart miðað við virkni á svæðinu undanfarin misseri og telja þeir hann ekki boða frekari tíðindi.

Samræmd vakstöð siglinga

Nú klukkan 16 verður undirritaður samningur milli Landhelgisgæslunnar, Neyðarlínunnar hf. og Slysavarnarfélagsins Landsbjargar annars vegar og Siglingastofnunar hins vegar um rekstur og fyrirkomulag vaktstöðvar siglinga.

Skipið í Straumsvík komið á flot

Tyrkneska skipið Kiran Pacific, sem strandaði á skeri skammt frá Straumsvík í fyrrakvöld, er komið á flot. Hollenskir björgunarmenn dældu lofti í tanka skipsins í dag og náðu að draga það frá skerinu, að því er virðist án þess að skemmdir hlutust af.

Andstaða við að rífa Austurbæ

Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Frjálslynda flokksins í Reykjavík, leggur til að borgarráð lýsi yfir andstöðu við að rífa Austurbæjarbíó.

Ísraelinn var varaður við

Björgunarsveitarmenn fundu lík 25 ára Ísraela um einn kílómetra frá Hrafntinnuskeri um klukkan hálf eitt í nótt. Maðurinn, sem ætlaði sér að ganga frá Landmannalaugum í Þórsmörk, var varaður við áður en hann lagði af stað þar sem útbúnaður hans þótti ekki nægilega góður miðað við aðstæður.

62% gegn fjölmiðlafrumvarpinu

93% landsmanna telja líklegt að þau muni greiða atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni um fjölmiðlalögin samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallups. 4,5% segja ólíklegt að þeir greiði atkvæði og 3% telja það hvorki líklegt né ólíklegt. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Ríkisarfarnir vildu á Grundartanga

Krónprins og krónprinsessa Noregs gerðu víðreist um Suðurland í dag og heimsóttu meðal annars landa sína í Járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga. Prinsinn og prinsessan óskuðu sérstaklega eftir því að heimsækja járnblendiverksmiðjuna og er ástæðan eflaust sú að verksmiðjan er nú alfarið í eigu Norðmanna.

44% þurfi til að fella lögin

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra telur eðlilegt að miða við að 44% kjósenda þurfi til að fella fjölmiðlalögin.  Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra segir vinnu starfshópsins sýna að ekkert hafi verið hugsað fyrir þessum hlutum þegar stjórnarskráin var samin.

Tilkynningum um barnaklám fjölgar

Verkefnisstjóri Barnaheilla segir skorta á samstarf lögreglu við samtökin í málefnum barna. Tilkynningum til ábendingarlínu samtakanna fer fjölgandi og tengist þriðjungur þeirra barnaklámi.

Hafnar hugmyndum um 75% þátttöku

Starfshópur ríkisstjórnarinnar um þjóðaratkvæðagreiðslu telur heimilt að setja skilyrði um hana en að þau verði að vera hófleg. Nefndin hafnar hugmyndum um 75% þátttöku og að 2/3 hluta þurfi til að nema fjölmiðlalögin úr gildi.

Stjórnarskrárbrot að leggja hömlur

Varaformaður Samfylkingarinnar segir að það sé stjórnarskrárbrot að leggja hömlur á þjóðaratkvæðagreiðslu um fjölmiðlalögin. Þingflokksformaður Vinstri grænna tekur undir það og segir skýrslu hinna vísu manna aðeins innlegg í umræðuna en engan endanlegan dóm.

Frá ritstjórn Vísis

Vegna bilunar í tækjabúnaði eru fréttir Stöðvar 2 ekki enn komnar inn á vef Vísis  (VefTíví). Óvíst er hvort tekst að setja upptöku af fréttum Stöðvar 2 inn á Vísi fyrr en að morgni þriðjudags. <em><strong>Ritstjórn Vísis</strong></em>

Ungir listamenn niðri í fjöru

Listhneigð ungmenni komu saman í fjörunni við Sörlaskjól í dag. Tilefnið var verkefni á sumarnámskeiði Myndlistarskólans í Reykjavík þar sem landslag var málað og lífríki sjávar grandskoðað.

Stærri en reglur kveða á um

Herbergin sem kínverskir starfsmenn við Kárahnjúkavirkjun gista í eru örlítið stærri en reglur um aðstöðu fyrir starsmenn kveða á um, að sögn Ómars R. Valdimarssonar, talsmanns Impregilo.

Fimm ára í grunnskóla

Fimm ára börnum á Súðavík hefur verið boðin frí þjónusta í leikskólum bæjarins hluta úr degi í níu ár. Þau hljóta kennslu í ellefu til fjórtán klukkustundir á viku með börnum í fyrsta bekk grunnskólans.

Árni í Malaví

Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, hélt til viðræðna við félagsmálaráðherra og forseta Malaví í Afríku í gær.

Landsmótið hafið á Hellu

Landsmót hestamanna hófst á Gaddstaðaflötum við Hellu á Rangárvöllum í gær. Mótið stendur til 4. júlí og er það sextánda í röðinni.

Réttindalausir aka vinnuvélum

Hluti starfsmanna flugþjónustufyrirtækisins IGS á Keflavíkurflugvelli sem starfa á stærri bílum og öðrum farartækjum sem notuð eru við afgreiðslu flugvéla hafa til þess engin réttindi samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Djúpstæðar deilur um skilyrðin

Starfshópur ríkisstjórnarinnar um tilhögun þjóðaratkvæðagreiðslu skilaði áliti sínu í gær. Djúpstæðar deilur stóðu um hvort hægt væri að setja takmarkanir um þátttöku eða atkvæðavægi. Lagst er gegn því að setja skilyrði um aukinn meirihluta. Vænlegast þykir að setja ákvæði um lágmarkshlutfall þeirra sem greiða atkvæði gegn lögum, 25-44% atkvæðisbærra manna þurfi til að fella lögin úr gildi.

Auðvelt að rökstyðja 44% skilyrðið

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra telur að færa megi rök fyrir því að setja skilyrði um að 44% atkvæðisbærra manna verði að greiða atkvæði gegn fjölmiðlalögunum eigi þau að falla úr gildi.

Styður vilja stjórnarandstöðunnar

Meginniðurstaða skýrslunnar styður þá eindregnu skoðun stjórnarandstöðunnar að stjórnarskráin heimili ekki að sett verði lög um þjóðaratkvæðagreiðslu með girðingum eða þröskuldum," segir Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar.

Impregilo sakað um hýrudrátt

"Þolinmæði okkar er því sem næst á þrotum og næstu skref eru að fara með þessi mál beint í lögfræðing," segir Aðalbjörn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Austurlands. Verktakafyrirtækið Impregilo er sakað um að klípa daglega tíma af mörgum starfsmönnum sínum án sýnilegrar ástæðu.

Kæru vísað frá

Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands vísaði frá Kæru vegna ummæla Ingva Hrafns Jónssonar í þættinum Hrafnaþingi á Útvarpi Sögu um forseta Íslands.

Lögheimili kjósanda breytt

Þóru Magnúsdóttur, 81 árs gömlum Reykvíkingi, brá í brún þegar hún ætlaði að kjósa á laugardaginn. Þóra taldi sig eiga að greiða atkvæði í ráðhúsi Reykjavíku samkvæmt lögheimili, en þar var henni hins vegar tilkynnt að lögheimili hennar hefði verið breytt og hún ætti að kjósa í Laugardalshöll.

Þinghlé að hefjast hjá dómstólum

Þinghlé hefst hjá flestum héraðsdómstólum landsins á morgun og standa þar til í byrjun september. Í Héraðsdómi Reykjavíkur verða ný mál ekki þingfest í þinghléi.

Ísraelskur ferðamaður varð úti

Ferðamaðurinn sem björgunarsveitir á Suðurlandi leituðu að í fyrradag fannst látinn um eittleytið aðfaranótt mánudags á gönguleið milli Landmannalauga og Þórsmerkur.

Upphlaup hans gamaldags pólitík

Morgunblaðið sakar Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, um "gamaldags pólitík" í leiðara sínum í gær. Forsetinn hafi "haldið því fram að frétt á forsíðu Morgunblaðsins á kjördag um breytta hætti varðandi birtingu upplýsinga um fjölda auðra seðla hefði verið eins konar tilkynning til landsmanna að þeir ættu að skila auðu".

2.500 athugasemdir vegna netléna

Samkeppnisstofnun sendi um 2500 eigendum að íslenskum netlénum athugasemdir þess efnis að vefsíður þeirra uppfylltu ekki upplýsingaskyldu þeirra sem veita rafræna þjónustu á netinu.

Kiran Pacific á síðasta séns

"Þetta gat ekki farið betur miðað við aðstæður," sagði Helgi Jensson, hjá Umhverfisstofnun, skömmu eftir að tyrkneska súrálsflutningaskipið Kiran Pacific losnaði af strandstað á þriðja tímanum í gær. Eftir að skipið losnaði hafði ekki orðið vart við olíuleka eða mengun frá skipinu.

Fá svar um skólavist í ágúst

Fjölmargt ungt fólk sem ekki hefur fengið svar frá framhaldsskólum landsins um skólavist þarf að bíða svars fram í ágúst. Framhaldsskólar eru að fara í sumarfrí og ná margir þeirra ekki að ganga frá málunum fyrir þann tíma. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sagði í Fréttablaðinu á föstudag að öllum nýnemum yrði tryggð skólavist.

Hrærður yfir stuðningnum

"Ákveðin öfl úr ákveðnu pólitísku litrófi hafa beitt sér mjög gegn mér og hvatt fólk til að skila auðu. Morgunblaðið hefur farið þar fremst í flokki eins og forsíða blaðsins í dag ber með sér. Hlutfall auðra seðla í þessum kosningum er lítil uppskera miðað við það sem á undan hefur gengið," sagði Ólafur Ragnar Grímsson.

Önnur talning Norðvesturkjördæmi

Ólafur Ragnar Grímsson hefur hlotið 71% atkvæða í Norðvesturkjördæmi þegar talin hafa verið 1.500 atkvæði eða rúmlega 7%.

Lokatölur úr Reykjavík og Kraga

Talningu er lokið í Reykjavíkurkjördæmi suður og í Suðvesturkjördæmi. Í báðum kjördæmum hlaut Ólafur Ragnar Grímsson um 64% atkvæða. Auðir seðlar voru tæpur fjórðungur greiddra atkvæða.

Sameining felld í Fljótsdalshreppi

Íbúar Fljótsdalshrepps felldu naumlega tillögu um sameiningu við Austur-Hérað, Fellahrepp og Norður-Hérað. Sameiningin var samþykkt í hinum hreppunum þremur.

Kjörfundaratkvæði í Kraganum talin

Talningu kjörfundaratkvæða í Suðvesturkjrödæmi erlokið. Einungis á eftir að telja 4.400 til 4.500 utankjörfundaratkvæði. Ólafur Ragnar Grímsson hlaut 63,3% greiddra atkvæða.

Dræm kjörsókn viðvörunarmerki

"Ég fór í þessar kosningar vegna þess að ég hafði ákveðna hluti að segja. Ég vonaðist til að þetta færi öðruvísi en það er þjóðin sem ræður," sagði Baldur Ágústsson um úrslit kosninganna.

Nýjar tölur úr Suðurkjördæmi

Öll kjörgögn eru nú komin í hús á talningarstað á Selfossi þar sem talning atkvæða í Suðurkjördæmi fer fram. Búið er að telja tæplega 15.000 atkvæði og hefur Ólafur Ragnar Grímsson hlotið tæp 70% atkvæðanna.

Landið allt - lokatölur forsetakosninganna

Talningu atkvæða í forsetakosningunum er nú lokið í öllum kjördæmum. Kjörsókn var rétt tæp 63,0%. Ólafur Ragnar Grímsson hlaut rúmlega 67% greiddra atkvæða.

Ekki forseti þjóðarinnar

"Aðalatriðið er það að samkvæmt þessum tölum er Ólafur Ragnar Grímsson með minnihluta atkvæðisbærra manna á bak við sig. Hann er því ekki forseti þjóðarinnar, heldur forseti vinstrimanna," sagði Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði.

Kjörsókn í sögulegu lágmarki

"Þetta er mun minni kjörsókn en skoðanakannanir bentu til og í ljósi þess hvernig umræðan hefur verið síðustu vikur," segir Þórólfur Þórlindsson prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands.

Þyrlan sótti kjörkassa

Landhelgisgæslan kom yfirkjörstjórn Suðurkjördæmis til hjálpar við að flytja atkvæði frá Vestmannaeyjum á talningarstað á Selfossi. Veður kom að mestu í veg fyrir flug en þyrla Landhelgisgæslunnar komst þangað sem aðrar flugvélar komu ekki og sótti kjörseðla til talningar.

Sjá næstu 50 fréttir