Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bandaríkjaþing nærri því að lögfesta hjónabönd samkynhneigðra Frumvarp sem festi rétt samkynhneigðra og para af ólíkum kynþáttum til hjónabands í lög virðist nú eiga greiða leið á Bandaríkjaþingi eftir að hópur repúblikana greiddi atkvæði með því í öldungadeildinni í kvöld. Demókratar stefna á að samþykkja lögin áður en þeir missa meirihluta sinn á þingi. 16.11.2022 23:51
60 prósent aukning á notkun lyfja til uppbótarmeðferðar vegna ópíóðafíknar Veruleg aukning er á notkun lyfja til uppbótarmeðferðar vegna ópíóðafíknar á Íslandi. Frá árinu 2019 hefur orðið tæplega 60 prósent aukning á slíkri lyfjagjöf. Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Diljá Mistar Einarsdóttur þingmanns Sjálfstæðisflokksins fyrr í vikunni. 16.11.2022 23:31
Heitir því að íbúar Ölfuss fái að kjósa um jarðefnavinnsluna Bæjarstjórnarmeirihluti sjálfstæðismanna í Ölfusi heitir því að íbúar fái að kjósa um umdeilda jarðefnavinnslu í sveitarfélaginu. Fjölmennur íbúafundur var um málið í Þorlákshöfn í gærkvöldi. 16.11.2022 21:42
Ráðleggja HM-gestum að nota einnota síma Frönsk persónuverndaryfirvöld ráðleggja þeim sem ætla að sækja heimsmeistaramótið í knattspyrnu í Katar að nota einnota eða tóma síma til þess að forðast að lenda upp á kant við þarlend yfirvöld. Sérfræðingar hafa varað við því að yfirvöld í Katar geti njósnað um fólk með tveimur forritum sem gestir þurfa að ná í. 16.11.2022 21:31
Samflot iðn- og tæknifólks vísa kjaraviðræðum til ríkissáttasemjara Samninganefndir allra stéttarfélaga iðn- og tæknifólks hafa ákveðið að vísa kjaraviðræðum til ríkissáttasemjara en kjarasamningar hafa verið lausir síðan 1. nóvember sl. 16.11.2022 20:32
Hét nýjum degi fyrir Amasonfrumskóginn Luiz Inacio Lula da Silva, nýkjörinn forseti Brasilíu, hét því að nýr dagur væri runninn upp fyrir Amasonfrumskóginn og að hann ætlaði að taka á ólöglegu skógarhöggi þar á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í dag. 16.11.2022 20:03
Vilja að öll sambærileg vistheimili sæti rannsókn Þrjár konur sem beittar voru ofbeldi á Varpholti á Laugalandi segja gríðarlega mikilvægt að sambærileg vistheimili frá sama tíma verði rannsökuð. Þær gagnrýndu skýrslu sem var unnin um málið í velferðarnefnd í morgun. 16.11.2022 20:00
Rússar ábyrgir vegna stöðugra árása á Úkraínu Forseti Póllands og aðalframkvæmdastjóri NATO segja Rússa bera ábyrgð á því með umfangsmiklum árásum sínum á borgir og bæi í Úkraínu að ein af loftvarnaeldflaugum Úkraínumanna sprakk innan landamæra Póllands í gærkvöldi. Miklar skemmdir urðu á innviðum Úkraínu í árásum Rússa. 16.11.2022 19:21
„Við lögum ekki slæma ákvarðanatöku með annarri slæmri ákvarðanatöku“ Formaður Umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar segir óráð að fylla upp í Árbæjarlón að svo stöddu en tæming þess var nýlega úrskurðuð ólögmæt. Ekki sé hægt að laga eina slæma ákvarðanatöku með annarri slæmri ákvörðun. 16.11.2022 19:15
Ríkið sýknað af kröfu manns sem fær ekki að heita Lúsífer Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið af kröfu karlmanns sem í tvígang hefur óskað eftir því að fá eiginnafnið Lúsífer viðurkennt hjá mannanafnanefnd en fengið synjun á grundvelli þess að Lúsífer sé eitt af nöfnum djöfulsins. Í málinu reyndi meðal annars á það að hvaða marki dómstólar geta endurmetið niðurstöðu mannanafnanefndar sem stjórnvalds. 16.11.2022 19:09
Ekið á gangandi og hjólandi í borginni Í tvígang með skömmu millibili var ekið á gangandi og hjólandi vegfarendur í Reykjavík í morgun. Fyrst var bíl ekið á átta ára dreng þegar hann fór yfir gangbraut en um klukkutíma síðar var ekið á hjólreiðamann í Hlíðunum. 16.11.2022 18:24
Leitin að Friðfinni stendur enn yfir Leitin að Friðfinni Frey Kristinssyni, 42 ára, hefur enn engan árangur borið, en síðast er vitað um ferðir Friðfinns fimmtudagskvöldið 10. nóvember þegar hann fór frá Kugguvogi í Reykjavík. 16.11.2022 18:16
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum segir forstjóri Bankasýslunnar að stofnunin hafi ekki gert nein mistök við söluna á hlutum í Íslandsbanka. Forstjóri Ríkisendurskoðunar segir upplýsingar í skýrslu hennar um söluna hins vegar meðal annars byggja á upplýsingum frá Bankasýslunni og skýrslan tali sínu máli. 16.11.2022 18:15
Segir borgarbúa lánsama að hafa aðgang að góðu vatni „Þú lifir ekki án vatns. Og við erum alveg rosalega lánsöm hérna á höfuðborgarsvæðinu hvað við höfum góðan aðgang í gott vatn. En það þarf að halda því við,“ segir Hafsteinn Björgvinsson, umsjónarmaður vatnsverndarsvæðanna í Heiðmörk, en hann er starfsmaður Orkuveitu Reykjavíkur. 16.11.2022 18:04
Dómari sem sýknaði borgina vegna blöðruboltaslyss talinn vanhæfur Hæstiréttur ómerkti dóm Landsréttar í máli leikskólakennara gegn Reykjavíkurborg vegna blöðruboltaslyss í dag. Einn dómaranna við Landsrétt sem sýknaði borgina var talinn vanhæfur vegna þess að hann var borgarlögmaður þegar slysið var tilkynnt til embættisins. 16.11.2022 17:55
Keyrði á 22 lögreglunema í Los Angeles Keyrt var á hóp lögreglunema í Los Angeles í Kaliforníu í dag. Nemarnir voru úti að hlaupa saman þegar bifreið var ekið inn í hópinn. Fimm af nemunum eru alvarlega slasaðir. 16.11.2022 16:45
Nota fjarstýrðar byssur á Vesturbakkanum Ísraelski herinn hefur komið fjarstýrðum byssum fyrir á tveimur stöðum á Vesturbakkanum. Byssunum, sem skjóta táragasi, hvellsprengjum og gúmmíkúlum hefur verið komið fyrir á turni við flóttamannabúðir og á öðrum stað á Vesturbakkanum þar sem mótmælendur koma gjarnan saman. 16.11.2022 16:03
Nowa kampania reklamowa Islandii wystrzelona "w kosmos" Nowa kampania Islandzkiej Agencji Turystycznej obejmuje w szczególności tych, którzy rozpoczęli swoją „podróż” w kosmos. Zachęca się potencjalnych astronautów do częstszego odwiedzania Islandii. 16.11.2022 15:40
Droga Reykjanesbraut będzie zamknięta przez 24 godziny Droga Reykjanesbraut będzie dziś wieczorem zamknięta na odcinku od Grindavíkurvegur do Hafnarfjörður z powodu prac drogowych. Droga zostanie zamknięta dziś wieczorem o 20:00 i zostanie ponownie otwarta jutro wieczorem o 20:00. 16.11.2022 13:02
Mótmæla harðlega fyrirhugaðri risaverksmiðju í Þorlákshöfn Risafyrirtækið Heidelberg Material blés til íbúafundar í Þorlákshöfn þar sem það kynnti áform sín um umsvif í bæjarfélaginu en þau eru af risavöxnum skala. 16.11.2022 12:25
Fjórar hænur drápust í eldsvoða Eldur kom upp í hænsnakofa á Sauðárkróki rétt eftir miðnætti í nótt. Átta hænur voru í kofanum og drápust fjórar þeirra. Vegfarendur komu í veg fyrir að tjónið varð ekki meira. 16.11.2022 12:09
Segir ekkert benda til árásar Andrzej Duda, forseti Póllands, segir engin ummerki um að vísvitandi árás hafi leitt til þess að tveir Pólverjar dóu nærri landamærum Úkraínu í gær. Hann segir að líklega hafi það verið slys sem olli því að loftvarnaflaug frá Úkraínumönnum hafi banað fólkinu. 16.11.2022 11:54
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar heyrum við í fulltrúum Bankasýslu ríkisins að loknum fundi Stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis sem fram fór í morgun. 16.11.2022 11:35
Murdoch snýr baki við Trump Rupert Murdoch er sagður hafa tilkynnt Donald Trump fyrrverandi forseta Bandaríkjanna að hann ætli ekki að styðja framboð hans til endurkjörs sem Trump tilkynnti um í gærkvöldi. Murdoch rekur stóra fjölmiðlasamsteypuna News Corp sem er mjög áhrifamikil á hægri væng stjórnmála víða um heim meðal annars í Bandaríkjunum. 16.11.2022 11:30
Mikilvægt að umræðan um dánaraðstoð fái að þróast áfram á opinn hátt Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra telur mikilvægt að umræðan um dánaraðstoð fái að þróast áfram á uppbyggilegan og opinn hátt. Þá þurfi að halda áfram nauðsynlegri vinnu áður en hægt sé að taka afstöðu til „þessa viðkvæma og mikilvæga málefnis“. 16.11.2022 11:26
Leitin að Friðfinni heldur áfram í dag Leitinni að hinum 42 ára gamla Friðfinni Frey Kristinssyni verður haldið áfram í dag. Ekkert hefur spurst til Friðfinns síðan á fimmtudaginn í síðustu viku, en þá sást hann í Kuggavogi í Reykjavík. 16.11.2022 11:18
Sakborningar í stóra kókaínmálinu spjölluðu allir við dómara á Skype Sakborningarnir fjórir í stóra kókaínmálinu tóku allir afstöðu til ákærunnar í gegnum fjarfundabúnaðinn Skype þegar málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þeir sæta ákæru fyrir innflutning á tæplega hundrað kílóum af kókaíni hingað til lands. Þeir voru handteknir í ágúst síðastliðnum. 16.11.2022 10:26
Líklega loftvarnaflaug sem villtist af leið Líkur eru á að flugskeytið sem banaði tveimur í Póllandi í gær hafi verið úkraínsk loftvarnaflaug sem villtist af leið. Rússar skutu gífurlegum fjölda stýriflauga á skotmörk víðsvegar um Úkraínu í gær. Í fyrstu var talið að ein þeirra eða fleiri hefðu misst marks og lent í Póllandi. 16.11.2022 09:33
Reykjanesbraut lokuð í sólarhring Reykjanesbraut verður lokað í kvöld á kaflanum frá Grindavíkurvegi og í átt að Hafnarfirði vegna malbiksframkvæmda. Veginum verður lokað klukkan 20 í kvöld og er áætlað að opnað verði á ný klukkan 20 annað kvöld. 16.11.2022 09:07
Artemis-1 loks á leið til tunglsins Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) skutu í morgun geimfari af stað til tunglsins. Eftir ítrekaðar frestanir bar fyrsta Space Launch System eldflaugin, sem er sú öflugasta sem hefur verið framleidd, Orion-geimfar á braut um jörðu en þaðan verður farinu flogið til tunglsins. 16.11.2022 08:29
Blóð tekið úr 4.141 hryssu á 90 starfsstöðvum Tekið var blóð úr 4.141 hryssu til framleiðslu eCG/PMSG hórmónsins í ár en heildarfjöldi blóðtökuhryssna í stóðum bænda var 4.779. Tekið var blóð í um 24 þúsund skipti alls, á 90 starfsstöðvum. Í fyrra voru starfsstöðvarnar 120. 16.11.2022 08:15
Víða vindasamt og rigning á suðaustanverðu landinu Veðurstofan reiknar með austan og suðaustan kalda eða strekkingi og allvíða skúrum, en rigningu á Suðausturlandi og Austfjörðum í fyrstu. 16.11.2022 07:33
Fjöldatakmarkanir á ívilnunum vegna vistvænna bifreiða felldar niður Fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fram frumvarp þar sem meðal annars er kveðið á um að fjöldatakmörk virðisaukaskattsívilnunar vegna innflutnings og sölu rafmagns- og vetnisbifreiða verði felld niður. 16.11.2022 07:03
Jay Leno með þriðja stigs bruna eftir vinnu við gufuknúinn fornbíl Jay Leno er mikill bílaáhugamaður og safnar bílum. Hann var að vinna við 115 ára gamlan gufuknúin bíl á laugardag og brenndist illa í andliti eftir að eldur kviknaði í bílskúr hans. 16.11.2022 07:01
Öskraði, braut afgreiðsluborð og veittist að starfsmanni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var nokkrum sinnum kölluð til í gærkvöldi og nótt vegna ofurölvi einstaklinga, meðal annars að bensínstöð í póstnúmerinu 110 þar sem maður hafði öskrað og slegið í afgreiðsluborð úr gleri með þeim afleiðingum að það brotnaði upp úr borðinu. 16.11.2022 06:46
Trump lýsir yfir framboði Donald Trump fyrrverandi forseti Bandaríkjanna tilkynnti í nótt um formlegt framboð sitt fyrir næstu kosningar árið 2024. 16.11.2022 06:37
Biden segir ólíklegt að flugskeytinu hafi verið skotið frá Rússlandi Joe Biden Bandaríkjaforseti segir ólíklegt að flugskeyti sem varð tveimur að bana í Póllandi hafi komið frá Rússlandi og vísar til brautar flugskeytisins. Aðspurður vildi hann hins vegar ekkert fullyrða um málið og sagðist vilja bíða og sjá. 16.11.2022 06:23
Fullyrða að flugskeytið hafi verið rússneskt Utanríkisráðuneyti Póllands fullyrti í kvöld að flugskeyti sem varð tveimur að bana í austanverðu landinu síðdegis í dag hafi verið framleitt í Rússlandi. Varnarmálaráðuneyti Rússlands hafði áður hafnað því að rússnesk vopn hafi valdið mannfallinu. 15.11.2022 23:41
Segir meirihlutann í afneitun um „óleyfisframkvæmd“ Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sakar meirihlutann í borgarstjórn Reykjavíkur um að vera í afneitun um það sem hann kallar óleyfisframkvæmd að tæma Árbæjarlón. Meirihluti borgarstjórnar vísaði frá tillögu um að fylla lónið aftur. 15.11.2022 23:20
Bandaríkjaher faldi leynilega stjórnstöð í gígum Rauðhóla Ein mikilvægasta herstöðin á Íslandi á árum síðari heimsstyrjaldar var starfrækt í Rauðhólum. Stöðin var vel falin ofan í gervigígum og þaðan var loftvörnum Íslands stjórnað. Nánast ekkert hefur verið ritað um þessa starfsemi opinberlega. 15.11.2022 22:42
Katrín segist fylgjast grannt með stöðunni í Póllandi Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir íslensk stjórnvöld fylgjast grannt með gangi mála í Póllandi í kjölfar þess að tveir létust þar þegar flugskeyti lenti á bæ nærri landamærunum að Úkraínu. 15.11.2022 22:37
„Eitt stórt klúður frá upphafi til enda“ „Tilfinning þjóðarinnar reyndist rétt, það er staðfest í þessari skýrslu,“ segir Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar um skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Kristrún flutti ræðu í sérstakri umræðu á Alþingi fyrr í kvöld þar sem Bjarni Benediktsson, fjármála og efnahagsráðherra var til andsvara. 15.11.2022 22:14
Bein útsending: Reyna enn að senda far til tunglsins Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) ætla að gera enn eina tilraunina til að skjóta Artemis-1 af stað til tunglsins í fyrramálið. Þetta verður í fjórða sinn sem geimskotið verið reynt en síðasta tilraun átti sér stað í september. 15.11.2022 22:01
Hækka viðbúnaðarstig pólska hersins eftir sprengingarnar Pólska ríkisstjórnin tilkynnti í kvöld að viðbúnaðarstig hersins hefði verið hækkað eftir að tveir létust af völdum flugskeyta sem komu yfir landamærin að Úkraínu í dag. Forseti Úkraínu sakar Rússa um að stigmagna átökin. 15.11.2022 21:43
Annað heimilið sem þau þurfa að yfirgefa á þessu ári Rússnesk hjón sem hafa mótmælt stríðinu í Úkraínu fá ekki pólitískt hæli á Íslandi og verða flutt til Ítalíu á morgun. Í nokkur ár hafa hjónin komið reglulega til Íslands með ferðamenn og hafa þegar fengið atvinnutilboð. Kærunefnd Útlendingamála taldi það ekki næga ástæðu til að veita þeim hæli. 15.11.2022 21:01