Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fólk getur skort hugrekki til að framkvæma almennilegt hraðpróf „Ég held að þetta geti verið bundið við þann sem er að taka prófið. Það þarf ákveðið hugrekki til að setja pinnann alveg inn í nefkokið og það getur vel verið að sumir veigri sér við það. En ég vona ekki samt,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. 22.12.2021 22:30
Strætó loks á leið í vistþorpið eftir að íbúar sökuðu borgina um tvískinnung Strætó mun hefja ferðir í Gufunesþorp í Reykjavík þann 2. janúar næstkomandi en til að byrja með verða strætósamgöngur úr Gufunesi í formi pöntunarþjónustu. 22.12.2021 21:18
Íslendingur vann 439 milljónir í Víkingalottó Jólin koma snemma hjá sumum í ár en ljónheppinn Íslendingur vann fyrsta vinning í Víkingalottó núna fyrr í kvöld. Vinningurinn hljóðaði upp á 439 milljónir íslenskra króna en hann er með tölurnar sínar í áskrift og á von á skemmtilegu símtali í fyrramálið. 22.12.2021 20:31
Borða svið á Selfossi á aðfangadagskvöld Reykdal Magnússon á Selfossi slær ekki slöku við því hann, sem er að verða 87 ára gengur 10 kílómetra á dag ganginn í blokkinni, þar sem hann býr. Hann notar peninga í göngunni og svo koma líka svið og rófustappa við sögu þegar Reykdal er annars vegar. 22.12.2021 20:13
Atburðarásinni svipar til aðdraganda gossins Jarðskjálftahrinan á Reykjanesi er enn í fullum gangi þó stórum skjálftum hafi farið fækkandi með deginum. Skjálftavirknin á Reykjanesi er að færast til suðvesturs og er núna á nákvæmlega sama stað og kvikugangurinn sem myndaðist í vor áður en gos hófst í Geldingadölum. 22.12.2021 20:09
Segir málfrelsið og frelsi fjölmiðla undir í máli Assange Ritstjóri WikiLeaks segir ómannúðlega meðferð breskra stjórnvalda á Julian Assange skipta alla sem láti málfrelsið og frjálsa fjölmiðla sig varða máli. Mótmælendur við breska sendiráðið kröfðust þess í dag að Assange verði sleppt úr haldi þegar í stað. 22.12.2021 19:20
Náð betri árangri ef stjórnvöld hefðu sleppt því að veita undanþágur Sóttvarnalæknir telur að betri árangur náist í baráttunni við kórónuveiruna með því að halda sig við þær samkomutakmarkanir sem ákveðnar hafa verið. 22.12.2021 18:45
Finnur ekki eiginkonuna og krefst skilnaðar Íslenskur karlmaður segist ekki hafa hitt eiginkonu sína í sextán ár og krefst því skilnaðar. Stefnan var nýlega birt í Lögbirtingablaðinu enda hefur manninum ekki tekist að hafa uppi á eiginkonunni til að birta henni stefnuna með hefðbundnum hætti. 22.12.2021 18:42
Pfizer fær grænt ljós á lyf gegn Covid Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa nú veitt leyfi fyrir notkun lyfsins Paxlovid við kórónuveirunni. Lyfið er framleitt af fyrirtækinu Pfizer, sem áberandi hefur verið í framleiðslu á bóluefnum gegn Covid-19. 22.12.2021 18:06
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Jarðskjálftahrinan á Reykjanesi er enn í fullum gangi þó stórum skjálftum hafi farið fækkandi með deginum. Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir og svo gæti farið að kvika komi nokkuð hratt upp á yfirborðið. Farið verður yfir nýjustu vendingar í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2. 22.12.2021 18:00
Ómíkron geti markað upphafið að enda faraldursins Ómíkron er að verða ráðandi afbrigði kórónuveirunnar hér á landi en sjötíu prósent af þeim sem greindust í gær voru með það. Einn hefur þurft að leggjast inn á sjúkrahús með ómíkron en svo virðist sem yngra fólk sé líklegra til að fá það en fyrri afbrigði. 22.12.2021 17:53
Brúneggjamálinu vísað frá dómi Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað máli tveggja helstu hluthafa í Brúnegg ehf gegn Ríkisútvarpinu og MAST frá dómi. 22.12.2021 16:13
Ísland styður verkefni sem miðar að því að útrýma fæðingarfistli í Síerra Leóne Fæðingarfistill er ein alvarlegasta og sorglegasta afleiðing barnsfæðinga ungra stúlkna í þróunarríkjum. 22.12.2021 16:08
Þríeykið snýr aftur á upplýsingafundi á Þorláksmessu Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar á morgun, fimmtudaginn 23. desember, klukkan 11. 22.12.2021 16:00
Franska forsetafrúin ætlar í mál vegna kenningar um að hún sé trans Brigitte Macron, forsetafrú Frakklands, ætlar að leita réttar síns vegna samsæriskenningar, sem gengið hefur um á netinu, um að hún sé trans. 22.12.2021 15:35
Tólf lentu í þriggja bíla árekstri á Snæfellsnesvegi Þriggja bíla árekstur varð rétt eftir hádegi í dag á Snæfellsnesvegi þar sem tólf voru í bílunum, bæði börn og fullorðnir. Einn var fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttökuna í Fossvogi. 22.12.2021 15:23
Persónuafslátturinn hækkar um fjögur þúsund krónur Persónuafsláttur næsta árs verður tæpar 54 þúsund krónur samþykki Alþingi frumvarp um breytingar tekjuskatts. Um er að ræða hækkun um rúmar þrjú þúsund krónur. 22.12.2021 15:16
Ögmundur og Kristinn segja meðferðina á Assange ekkert annað en pyndingar Mótmælendur kröfuðst þess fyrir utan breska sendiráðið í dag að Julian Assange stofnandi WikiLeaks verði nú þegar látinn laus úr bresku fangelsi og þar með ekki framseldur til Bandaríkjana. Ögmundur Jónasson fyrrverandi dómsmálaráðherra segir að þar biði hans allt að 170 ára fangelsi. 22.12.2021 15:09
Vanræksla í æsku og grípa hefði þurft mun fyrr inn í 22 ára karlmaður hefur verið dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tvö kynferðisbrot og rán. Héraðsdómur segir nauðsynlegt að maðurinn leiti sér aðstoðar en hann glímir meðal annars við neysluvanda og persónuleikaröskun vegna ítrekaðra áfalla í æsku. 22.12.2021 15:05
Mikill meirihluti smitaðra með ómíkronafbrigðið Ómíkron verður sífellt meira ráðandi afbrigði kórónuveirunnar hér á landi. Af þeim 267 innanlandssmitum og 51 landamærasmiti í gær var um sjötíu prósent samkvæmt upplýsingum frá Íslenskri erfðagreiningu. 22.12.2021 13:26
Tryggingastofnun hafði betur gegn Gráa hernum Íslenska ríkið var sýknað í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli Gráa hersins gegn Tryggingastofnun. Grái herinn hefur þegar ákveðið að áfrýja málinu til Landsréttar og Hæstaréttar ef til þess kemur. 22.12.2021 13:24
Bjarni segir skaða af sóttvarnaaðgerðum verða bættan Fjármálaráðherra heitir því að ríkið muni hlaupa undir bagga með fyrirtækjum sem lendi í áframhaldandi rekstrarerfiðleikum vegna kórónuveirufaraldursins. Borgarstjóri gagnrýnir hins vegar að ekki séu gefin skýr skilaboð um aðgerðir til að mæta stöðu fólks og fyrirtækja. 22.12.2021 13:19
Aldrei hafa jafn margir greinst kórónuveiruna á landamærum Aldrei hafa jafn margir greinst kórónuveiruna á landamærum en í gær en um helmingur þeirra sem greindist með veiruna í gær var fullbólusettur. Sóttvarnalæknir telur viðbúið að fleiri fullbólusettir greinist með kórónuveiruna samhliða útbreiðslu ómíkrónafbrigðis veirunnar. Aðeins einn hefur þurft að leggjast inn á sjúkrahús hér á landi með ómíkronafbrigðið. 22.12.2021 12:12
Skjálftarnir líkjast undanfara eldgoss Jarðskjálftahrinan á Reykjanesi er mjög svipuð undanfara eldgossins sem hófst í Geldingadölum í vor. Prófessor í jarðeðlisfræði telur líklegt að kvika sé að brjóta sér leið upp að jarðskorpunni en segir alls ekki víst að hún muni skila sér á yfirborðið í eldgosi. 22.12.2021 11:51
Búið að skemma aðventuna fyrir ástvinum þeirra sem hvíla í Heydalakirkjugarði „Það er búið að vinna skemmdarverk á leiðunum hjá fólkinu mínu,“ segir Rósa Elísabet Erlendsdóttir, íbúi á Breiðdalsvík. Hún heimsótti leiði ættvina sinna í Heydalakirkjugarði nú fyrir jól til að votta þeim virðingu en kom að þökulögðum leiðum, brotnum krossum og afsöguðum trjábolum. 22.12.2021 11:48
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður fjallað um jarðskjálftahrinuna á Reykjanesi en mikill fjöldi skjálfta hefur riðið þar yfir síðan í gærkvöldi. Stærsti skjálftinn kom í morgun, 4,9 stig að stærð. 22.12.2021 11:39
UNICEF sendir hjálpargögn á hamfarasvæði Filippseyja Hátt í níuhundruð þúsund börn þarfnist aðstoðar. 22.12.2021 11:35
Hafþór ráðinn aðstoðarmaður Lilju Hafþór Eide Hafþórsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Lilju Alfreðsdóttur, ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra. Hann hefur þegar hafið störf. 22.12.2021 11:27
Hröð fækkun nýsmitaðra vekur vonir um stutta bylgju í Suður-Afríku Verulega hefur dregið úr fjölda nýsmitaðra undanfarna daga. Sérfræðingar segja það mögulega til marks um að faraldur ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar hafi þegar náð hámarki en afbrigðið greindist fyrst þar í landi. 22.12.2021 11:00
267 greindust innanlands 267 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 111 af þeim 267 sem greindist innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 42 prósent. 156 voru utan sóttkvíar, eða 58 prósent. 22.12.2021 10:57
Megas eftir sem áður á heiðurslaunum listamanna Tónlistarmaðurinn Megas verður áfram á heiðurslaunum listamanna en til greina kom að hann yrði sviptur laununum vegna ásakana um kynferðisofbeldi. Ekki verður fleirum bætt á lista yfir þá sem þiggja heiðurslaun listamanna. 22.12.2021 10:31
Óþægilegt að fá skjálftahrinu rétt fyrir jól Grindvíkingar taka skjálftahrinunni sem nú gengur yfir á Reykjanesinu með ró og reyna að halda sinni rútínu fyrir hátíðirnar. Hún vekur þó upp óþægilegar minningar frá stóru hrinunni í byrjun árs og vöknuðu margir upp við vondan draum í nótt að sögn bæjarstjórans. 22.12.2021 10:25
Hafa þurft að loka deildum á leikskólum í Hafnarfirði vegna smita Loka hefur þurft deildum á leikskólunum Hraunvallaskóla og Stekkjarási í Hafnarfirði vegna kórónuveirusmita sem þar komu upp. Fjöldi barna og starfsmanna leikskólanna eru nú í sóttkví vegna þessa. 22.12.2021 10:09
Óvissustig vegna skjálftanna við Fagradalsfjall Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum lýsir yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu við Fagradalsfjall. Hrinan hófst í gær og stendur enn yfir. 22.12.2021 10:08
Gagnrýnir aðgerðaleysi til að mæta þeim sem mest missa vegna sóttvarna Borgarstjóri segir aðgerðir ríkisstjórnar til að mæta fólki og fyrirtækjum vegna hertra sóttvarnaaðgerða ekki nógu skýrar. Óljóst sé hvort standi til að koma til móts við fólk og fyrirtæki sem hljóti skaða af sóttvarnaaðgerðum. 22.12.2021 10:01
Frakkar gera ráð fyrir allt að 100 þúsund greiningum á dag Olivier Veran, heilbrigðisráðherra Frakklands, segir mögulegt að brátt muni 100 þúsund einstaklingar greinast daglega með Covid-19 í landinu en fjöldinn er nú í kringum 70 þúsund. 22.12.2021 09:57
66°Norður og UN Women fá styrk til atvinnusköpunar fyrir flóttakonur Verkefnið snýr að því að vinna að atvinnusköpun fyrir konur á flótta frá Sýrlandi, Afganistan og Írak. 22.12.2021 09:47
Snarpir skjálftar við Fagradalsfjall og sá stærsti 4,9 stig Þrír snarpir jarðskjálftar fundust vel á höfuðborgarsvæðinu upp úr klukkan 9 í morgun. Sá stærsti varð klukkan 9.23 og mældist 4,9 að stærð. Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir vegna skjálftanna. 22.12.2021 09:16
Þingmenn vilji vita meira um ástæður aðgerða hverju sinni Þingmaður Sjálfstæðisflokksins kallar eftir því að þingmenn fái að vita meira um rökin á bak við þær sóttvarnaaðgerðir, sem eru í gildi hverju sinni. Þá telur hann tíma til kominn að tekið sé meira mið af félagslegum- og andlegum áhrifum við ákvarðanatöku um aðgerðir. 22.12.2021 08:59
Ekki ósennilegt að Allir vinna verði framlengt „að einhverju leyti“ Ekki er ósennilegt að átakið Allir vinna verði framlengt að einhverju leyti. Málið verður tekið til umræðu í fjárlaganefnd milli annarar á þriðju umræðu á þingi. 22.12.2021 08:14
Skattlaust ár fyrir heilbrigðisstarfsfólk í bráðaþjónustu? „Hvernig væri að veita heilbrigðisstarfsfólki í bráðaþjónustu skattlaust ár?“ spyr Ragnar Freyr Ingvarsson, læknir og fyrrverandi yfirmaður Covid-göngudeildar Landspítalans, í Facebook-færslu. 22.12.2021 08:12
Takmarka skammtastærðina til að bregðast við kartöfluskorti Neytendur í Japan munu aðeins geta keypt lítinn skammt af frönskum kartöflum á McDonald's í næstu viku vegna kartöfluskorts. Skortinn má meðal annars rekja til flóða í Kanada og áhrifa kórónuveirufaraldursins á aðfangakeðju heimsins. 22.12.2021 07:29
Yfirgnæfandi líkur á rauðum jólum suðvestantil Veðurstofan spáir norðaustlægri eða breytilegri átt, þremur til tíu metrum á sekúndu, og dálitlum éljum við norður- og austurströndina í dag. Annars staðar verður víða léttskýjað og frost núll til tíu stig þar sem kaldast verður í innsveitum á Norðausturlandi, en frostlaust syðst. 22.12.2021 07:10
Fjórar bílasölur flytja starfsemi á nýtt sölusvæði við Hestháls Bílaumboðið Askja - Notaðir bílar, Bílaland, Bílabankinn og Bílamiðstöðin eru óðum að koma sér fyrir á nýju og sameiginlegu bílasölusvæði á lóð við Krókháls 7 og Hestháls 15 í Reykjavík og tók fyrstu söluskrifstofurnar til starfa þar í nýju húsnæði í gær. 22.12.2021 07:00
Yfirvöld í Ísrael leggja drög að bólusetningu með fjórða skammtinum Heilbrigðisyfirvöld í Ísrael leggja nú drög að bólusetningarátaki sem mun miða að því að gefa landsmönnum fjórða skammtinn af bóluefnum gegn Covid-19 til að bregðast við mögulegri bylgju sýkinga af völdum ómíkron-afbrigðisins. 22.12.2021 06:44
Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Innlent