Bílar

Fjórar bílasölur flytja starfsemi á nýtt sölusvæði við Hestháls

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Mynd af planinu í gær.
Mynd af planinu í gær.

Bílaumboðið Askja - Notaðir bílar, Bílaland, Bílabankinn og Bílamiðstöðin eru óðum að koma sér fyrir á nýju og sameiginlegu bílasölusvæði á lóð við Krókháls 7 og Hestháls 15 í Reykjavík og tók fyrstu söluskrifstofurnar til starfa þar í nýju húsnæði í gær.

Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá BL og Öskju.

Lóðin er í heild um 23 þúsund fermetrar að stærð og er hún sérhönnuð fyrir fleiri en eitt bílasölufyrirtæki með umfangsmikla starfsemi í huga.

Skipulag lóðarinnar var hannað af arkitektum Arkís, þar sem boðið er upp á rúmgott og malbikað útisvæði fyrir alls um 800 bíla í stæði, sérhannaða lýsingu til að sýna og skoða bíla, vöktun öryggisfyrirtækja og fleira. Á athafnalóð Bílalands við Hestháls 15, skammt austan Jaguar Land Rover, eru nú liðlega um tvö hundruð notaðir bílar til sölu.

„Þetta nýja bílasölusvæði verður bylting fyrir okkur og styður mjög við vaxandi starfsemi bílasölu í Hálsahverfi. Fyrir okkur í Öskju er þetta mjög jákvætt enda erum við með aðstöðu fyrir öll okkar merki í næsta nágrenni,“ segir Þorgeir Ragnar Pálsson, sölustjóri hjá Öskju.

„Við hjá Bílalandi erum afar ánægð að flytja okkar sölustarfsemi á þetta nýja bílasölusvæði. Núna erum við mjög sýnileg og í alfaraleið þar sem Vesturlandsvegur og Suðurlandsvegur mætast,“ segir Sigurður Ófeigsson framkvæmdastjóri Bílalands.

Staðsetningin á nýja bílasölusvæðinu er góð á milli Hestháls, þar sem BL er með sölu og þjónustu fyrir Jagúar og Land Rover og Krókháls, þar sem Bílaumboðið Askja er til húsa, en Askja er umboðsaðili Mercedes-Benz, Kia og Honda. Aðgengi á milli Hestháls og Krókháls er því aukið sem bætir aðgengi viðskiptavina að fyrirtækjum á svæðinu. Í hverfinu er því að byggjast upp miðstöð bílaviðskipta og verður þetta nýja bílasölusvæði góð viðbót við þá flóru sem þegar er staðsett þar.

Aðgengi á nýja bílasölusvæðið er bæði frá Krókhálsi og Hesthálsi. Hleðslustöðvar verða á svæðinu enda rafbílasala að aukast á komandi árum. Fullkomin lýsing er á svæðinu og mikið verður lagt upp úr snyrtilegum frágangi.

Fréttin hefur verið uppfærð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×