Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hefur loks náð endanlegum sættum við íslenska fræðasamfélagið Fornsagnafræðingurinn Lars Lönnroth var gerður að heiðursdoktor við Háskóla Ísland í dag. Hann segist þakklátur fyrir að íslenska fræðasamfélagið hafi tekið sig í sátt og sér eftir að hafa stutt rangan málstað í einu mesta deilumáli síðustu aldar. 23.9.2021 20:01
Ný Maskínukönnun: Hvorki ríkisstjórnin né Reykjavíkurmódelið ná meirihluta Ef úrslit kosninganna á laugardag verða eins og í könnun Maskínu fyrir fréttastofuna væri Sjálfstæðisflokkurinn að fá sögulega útreið með 20,6 prósent atkvæða. Flokkur forsætisráðherrans, Katrínar Jakobsdóttur, væri líka að tapa verulegu fylgi frá síðustu kosningum með 11,5 prósent. Könnun Maskínu var gerð 15.-22. september og tóku tæplega sex þúsund afstöðu. 23.9.2021 19:00
Kapphlaup um nýja bálstofu í uppsiglingu Kapphlaup virðist vera í uppsiglingu milli Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma og einkaaðila um byggingu nýrrar bálstofu. Forstjóri kirkjugarðana telur aðeins pláss fyrir eina bálstofu í landinu. 23.9.2021 19:00
Stjórn Geðhjálpar: Mikilvægt að starfsemi Hugarafls „sé hafin yfir allan vafa“ Stjórn Geðhjálpar segir að ásakanir gagnvart stjórnenda Hugarafls bendi til þess að „innan þeirra sé ekki unnið eftir þeim gildum sem samtökin vilja byggja á“. 23.9.2021 18:56
Trzydziestolatek zmarł w Sky Lagoon We wtorek wieczorem w kąpielisku Sky Lagoon znaleziono nieprzytomnego mężczyznę, który leżał na dnie basenu. 23.9.2021 18:08
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Stjórnarflokkana vantar einn þingmann svo ríkisstjórnin haldi velli samkvæmt nýrri könnuna Maskínu fyrir Stöð 2, Vísi og Bylgjuna. Við greinum frá niðurstöðu könnunarinnar í fréttum Stöðvar 2 í kvöld sem verða í opinni dagskrá. 23.9.2021 18:00
Svona voru kappræðurnar á Stöð 2 Leiðtogar stjórnmálaflokkanna sem bjóða fram krafta sína til Alþingis næstu fjögur árin mæta í sjónvarpssal Stöðvar 2 á Suðurlandsbraut og takast á í kappræðum að loknum kvöldfréttum Stöðvar 2. 23.9.2021 17:33
Fylgi Katrínar meira en næstu þriggja samanlagt Þegar landsmenn eru spurðir að því hvern af leiðtogum stjórnmálaflokkanna þeir vilji sjá sem næsta forsætisráðherra þá svara 36 prósent þeirra: Katrín Jakobsdóttir. Þetta kemur fram í nýrri Maskínukönnun. 23.9.2021 17:27
„Lögregla sleppir framburði sem hreinsar manninn af þátttöku í manndrápi“ Lögmaður Murats Selivrada, sem er einn ákærðu í Rauðagerðismálinu svokallaða, gagnrýndi harðlega skýrslu lögreglu í málinu. Hvergi hafi komið fram í niðurstöðukafla skýrslunnar að Angjelin Sterkaj hafi gengist við því að hafa fyrirskipað Claudiu Sofiu Coelho Carvalho að vakta bifreiðar í eigu Armandos Beqirai kvöldið sem hann var skotinn til bana. 23.9.2021 17:25
Þrír lögreglumenn lokið störfum eftir að þeir tilkynntu einelti Þrír lögreglumenn hafa hætt eða verið sagt upp störfum eftir að þeir tilkynntu einelti og önnur samskiptavandamál til dómsmálaráðuneytisins, fagráðs ríkislögreglustjóra eða yfirmanna. Tveir þeirra störfuðu hjá embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum og einn á höfuðborgarsvæðinu. Allir voru karlkyns. 23.9.2021 17:07
Langar raðir kjósenda í Kringlunni og Smáralind Landsmenn streyma til að kjósa utan kjörfundar sem aldrei fyrr en á þriðja tímanum í dag höfðu rúmlega 37 þúsund manns greitt atkvæði á landvísu. 23.9.2021 17:03
Eigandi bílsins skilaði sér sjálfur í Landamannalaugar Björgunarsveitarfólki sem var kallað út vegna mannlauss bíls nærri Landmannalaugum var snúið við á leiðinni eftir að eigandi bílsins skilaði sér sjálfur í skála þar. Eigandinn var erlendur ferðamaður sem hafði verið að njóta náttúrunnar. 23.9.2021 15:54
Sýndi mikinn skapofsa og hrækti í andlit starfsmanns Karlmaður sem rauf einangrun vegna Covid-19 sýndi starfsmönnum farsóttarhúss mikinn skapofsa og hrækti í andlit starfsmanns þar hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Lögregla er með fjölmörg mál tengd manninum til meðferðar. 23.9.2021 15:49
Skera upp herör gegn öflugum gróðurhúsalofttegundum í kælibúnaði Umhverfisstofnun Bandaríkjanna tilkynnti um verulega hertar reglur um framleiðslu svonefndra vetnisflúorkolefna, öflugra gróðurhúsalofttegunda sem eru notaðar í ískápum og loftkælitækjum. 23.9.2021 15:41
36 nowych przypadków COVID-19 W szpitalu z powodu Covid-19 przebywa obecnie siedem osób, trzy z nich są na oddziale intensywnej terapii. 23.9.2021 15:39
Íslenskan glímir við ímyndarvanda Mikilvægt er að skólakerfið glími við ímyndarvanda íslenskunnar að mati Íslenskrar málnefndar, sem gefið hefur út árlegt álit sitt á stöðu íslenskrar tungu. 23.9.2021 15:21
Atli Rafn hafði betur gegn Leikfélagi Reykjavíkur í Hæstarétti Hæstiréttur dæmdi í dag Leikfélag Reykjavíkur til að greiða leikaranum Atla Rafni Sigurðarsyni 1,5 milljónir í miskabætur og þrjár milljónir í málskostnað. 23.9.2021 15:13
Linie lotnicze Play dodają nową destynację Wprowadzając nową destynację, Play odpowiada na zwiększone zapotrzebowanie na loty do i z Islandii. 23.9.2021 15:11
Tugmilljóna króna tjón vegna tölvuárásar Rússneskir tölvuþrjótar hafa síðan á föstudag haft allt tölvukerfi hátæknifyrirtækis í gíslingu. Þeir krefjast tuga milljóna króna lausnargjalds. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins ætlar ekki að verða við kröfum þeirra. Hann býst við að hægt verði að hefja einhverja starfsemi á ný í fyrirtækinu í dag. 23.9.2021 14:41
Segir af sér vegna „ómannúðlegrar“ brottvísunar Biden-stjórnarinnar á Haítum Sérstakur sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar vegna ástandsins á Haítí sagði af sér í dag til að mótmæla umdeildum brottvísunum Haíta sem sóttust eftir hæli í Bandaríkjunum. Hundruðum Haíta hefur verið flogið til heimalandsins þrátt fyrir ófremdarástand sem ríkir þar. 23.9.2021 14:11
Hefja söfnun fyrir nýrri kirkju í Grímsey Grímseyingar komu saman í félagsheimili eyjunnar í gærkvöldi þar sem samþykkt var einróma að byggja nýja kirkju í svipaðri mynd og þeirri sem brann í vikunni. Hafin er söfnun til þess að fjármagna verkið. 23.9.2021 13:35
Bætir 300 ferkílómetrum við Vatnajökulsþjóðgarð Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur undirritað breytingar á reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð sem kveður á um þrjú hundruð ferkílómetra stækkun á norðursvæði þjóðgarðsins. 23.9.2021 13:35
Styrkur til Sambands íslenskra kristniboðsfélaga um menntun afskiptra nemenda í Kenía Bæta á aðstöðu til menntunar í tveimur grunnskólum og tveimur framhaldsskólum í sýslunni. 23.9.2021 12:53
Logi Einarsson búinn að greiða atkvæði Landsmenn ganga flestir að kjörborði Alþingiskosninganna á laugardaginn en óvenju margir hafa þó nýtt möguleikann á að kjósa utan kjörfundar þetta árið. Þeirra á meðal er Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, sem mætti í Kringluna í dag. 23.9.2021 12:51
Fannst meðvitundarlaus á botni lónsins Maðurinn sem lést í Sky Lagoon á þriðjudag fannst meðvitundarlaus á botni lónsins. 23.9.2021 12:44
Hálkublettir og snjóþekja á Hellisheiði og í Þrengslum Snjóþekja er nú á Hellisheiði sem og á Þrengslavegi að vegamótum við veg 38. Þá er búið að loka Nesjavallaleiðinni vegna snjóa. 23.9.2021 12:41
„Við héldum að við myndum sleppa“ Skólahald í leik- og grunnskóla á Reyðarfirði hófst aftur í morgun eftir að skólunum var lokað í byrjun vikunnar vegna hópsmits kórónuveirunnar. Leikskólastjóri kveðst bjartsýnn en þó megi lítið út af bregða til að allt fari úr skorðum á ný. Hópsmitið hafi komið aftan að bæjarbúum. 23.9.2021 12:36
Guðni kannast við nafnlaust bréf en enga formlega ábendingu Guðni Bergsson, fyrrverandi formaður KSÍ, hafnar því að honum hafi borist formleg ábending um að tveir landsliðsmenn væru sakaðir um kynferðisofbeldi. Hann hafi þó séð frásögn af málinu sem deilt var á samfélagsmiðlum. 23.9.2021 12:33
Jafnmargir treysta Katrínu mikið og treysta Bjarna lítið Yfir helmingur landsmanna segjast bera mikið traust til Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra og yfir þriðjungur til Sigurðar Inga Jóhannssonar, formanns Framsóknarflokksins. Bjarni Benediktsson er í þriðja sæti yfir þá sem landsmenn treysta þótt enn fleiri beri lítið traust til hans. 23.9.2021 12:16
María og Sigríður skipaðar dómarar Dómsmálaráðherra hefur skipað Maríu Thejll í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjaness frá 1. október 2021 og Sigríði Rut Júlíusdóttur í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur frá sama degi. 23.9.2021 11:58
Bannað að selja áfengi eftir miðnætti á kosningavökum Engar undanþágur á samkomutakmörkunum verða veittar fyrir kosningavökur stjórnmálaflokkanna. Gestir þeirra geta því ekki neytt áfengis eftir miðnætti nema þeir mæti með það sjálfir eða fái það gefins frá flokkunum. 23.9.2021 11:51
Dregur saman á milli stóru flokkanna rétt fyrir kosningarnar í Þýskalandi Aðeins fjórum prósentustigum munar nú á fylgi jafnaðarmanna og Kristilega demókrataflokks Angelu Merkel, fráfarandi kanslara, þremur dögum fyrir sambandsþingkosningar í Þýskalandi. Dregið hefur saman með flokkunum á lokametrum kosningabaráttunnar. 23.9.2021 11:39
Elín Hirst vill Katrínu sem forsætisráðherra „Við viljum Katrínu Jakobsdóttur áfram sem forsætisráðherra“ segir í heilsíðu auglýsingu í Morgunblaðinu í dag. Undir rita fjölmargir þjóðþekktir einstaklingar, þeirra á meðal Elín Hirst, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Tveir stuðningsmenn kostuðu auglýsinguna. 23.9.2021 11:36
Hádegisfréttir Bylgjunnar Fylgst verður með málflutningi í Rauðagerðismálinu svokallaða í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan tólf. Ákæruvaldið fer fram á 16 til 20 ára fangelsisdóm yfir Angjelin Sterkaj, sem grunaður er í málinu. 23.9.2021 11:34
Bólusetning við inflúensu hefst 15. október Von er á 95 þúsund skömmtum af bóluefni við inflúensu til landsins í ár. 23.9.2021 11:24
Bótakröfur upp á tugi milljóna í Rauðagerðismálinu Réttargæslumaður Þórönnu Helgu Gunnarsdóttur, ekkju Armando Beqirai, tveggja barna þeirra og foreldra Armandos fór fram á tæplega 70 milljónir króna í bótagreiðslu frá sakborningum í Rauðagerðismálinu. Ýmist er um miskabótakröfur að ræða eða kröfur vegna missis á framfærslu. 23.9.2021 11:18
36 greindust með Covid-19 innanlands í gær 36 greindust með Covid-19 innanlands í gær. 346 eru nú í einangrun og 1.170 í sóttkví. 23.9.2021 10:47
Farið fram á 16 til 20 ára dóm: „Hrein og klár aftaka“ Síðasti dagur aðalmeðferðar í Rauðagerðismálinu svokallaða fer fram í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur. Ákæruvaldið hefur farið fram á að Angjelin Sterkaj verði dæmdur til 16 til 20 ára fangelsisvistar. 23.9.2021 10:35
Facebook þarf að afhenda gögn um þjóðarmorð á róhingjum Alríkisdómari í Bandaríkjunum skipaði samfélagsmiðlarisanum Facebook að gera opinber gögn um reikninga sem tengdust þjóðarmorði á róhingjum í Búrma en var lokað. Skammaði hann Facebook fyrir að afhenda ekki alþjóðlegum rannsakendum gögnin. 23.9.2021 10:34
Brynjar kominn í rafskútubann eftir byltuna Brynjar Níelsson alþingismaður segir að á hans heimili sé búið að setja blátt bann við frekari rafskútunotkun, eftir að hann rotaðist við notkun á slíku tæki á dögunum. Hann varar við rafskútunotkun að kvöldi til, nú þegar farið er að dimma. 23.9.2021 10:32
Nokkrar tilgátur en enginn handtekinn eftir morðtilræði í Úkraínu Enginn hefur enn verið handtekinn eftir að óþekktir menn létu byssukúlum rigna yfir bíl eins nánasta ráðgjafa forseta Úkraínu í gær. Tilgátur eru um að óánægðir óligarkar eða jafnvel rússnesk stjórnvöld hafi fyrirskipað tilræðið. 23.9.2021 09:21
Tekur við sem framkvæmdastjóri SÍF Telma Eir Aðalsteinsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Sambands íslenskra framhaldsskólanema (SÍF) og hefur hún þegar hafið störf. 23.9.2021 08:48
Stjórnarmyndunarviðræður í fullum gangi í Noregi Þrír flokkra af vinstri væng og miðju norskra stjórnmála koma saman til síns fyrsta fundar til að ræða mögulega stjórnarmyndun í dag. Framtíð olíuiðnaðarins, skattamál og samskiptin við Evrópusambandið eru talin helstu ágreiningsmál flokkanna. 23.9.2021 08:44
Segir Íslendinga lata að taka Strætó Strætisvagnabílstjóri segir Íslendinga lata að nýta sér almenningssamgöngur. Flestir farþegar séu annað hvort krakkar eða útlendingar. Aðeins einn af hverjum tuttugu vissu af bíllausa deginum sem haldinn var hátíðlegur í gær. 23.9.2021 08:44
Helmingur allra ofbeldisbrota heimilisofbeldi Um helmingur allra ofbeldisbrota sem komið hafa til meðferðar hjá lögreglu frá því í ársbyrjun 2020 falla undir heimilisofbeldi, samtals 1.554 brot. 23.9.2021 08:20