Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sajid Sadpara varar við óprúttnum aðilum og falsfréttum Sajid Sadpara segir marga hafa komið fram á samfélagsmiðlum undir sínu nafni og nafni föður síns, Ali Sadpara. Frá þessu greinir Sajid í myndskeiði á nýstofnuðum Twitter-aðgangi. 17.2.2021 15:39
Zniesiono poziom zagrożenia w Seyðisfjörður Zniesiono ewakuację budynków mieszkalnych w Seyðisfjörður. 17.2.2021 15:24
Hyggjast smita allt að 90 heilbrigða einstaklinga í rannsóknarskyni Á næstu vikum verður nýju rannsóknarverkefni hrint úr vör þar sem heilbrigðir einstaklingar verða smitaðir af SARS-CoV-2. Tilgangurinn er að kanna betur ónæmisviðbrögð líkamans og hvernig veiran berst á milli einstaklinga. 17.2.2021 15:05
Spilavíti Trumps jafnað við jörðu Trump Plaza spilavítið í Atlantic City í Bandaríkjunum var jafnað við jörðu í dag. Sprengiefni voru notuð til að láta háhýsið falla inn á sig og urðu engar skemmdir á öðrum byggingum sem stóðu þar nærri. 17.2.2021 15:05
Fjórir handteknir til viðbótar vegna morðsins í Rauðagerði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið fjóra til viðbótar í þágu rannsóknar hennar á manndrápi í Rauðagerði um síðustu helgi. Fjórmenningarnir voru handteknir í aðgerðum lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í gær. 17.2.2021 14:54
Íslendingar komist heim án PCR-prófs en líkast til beittir sektum Engum íslenskum ríkisborgara verður meinað að koma til landsins samkvæmt reglugerð um kröfu á farþega um að framvísa neikvæðu PCR-prófi áður en þeir koma til Íslands. Framkvæmdin hefur enn ekki verið fullmótuð en grípa þyrfti til viðurlaga ef Íslendingur kemur ekki með neikvætt próf til landsins. 17.2.2021 14:41
Lög sem taka á stafrænu kynferðisofbeldi samþykkt Sá sem dreifir í heimildarleysi kynferðislegri mynd, eða mynd sem felur í sér nekt, getur nú átt yfir höfði sér allt að fjögurra ára fangelsi. Frumvarp um kynferðislega friðhelgi var samþykkt á Alþingi í dag með 49 samhljóða atkvæðum allra viðstaddra þingmanna. 17.2.2021 14:37
Hættustigi aflýst á Seyðisfirði og óvissustigi á Austfjörðum Hættustigi hefur verið aflýst á Seyðisfirði og einnig óvissustigi vegna ofanflóða á Austfjörðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóran um á Austurlandi. 17.2.2021 14:37
Uppsöfnuð viðhaldsþörf í innviðum upp á 420 milljarða króna Uppsöfnuð viðhaldsþörf í innviðum landsins er fjögurhundruð og tuttugu milljarðar króna á næstu tíu árum samkvæmt nýrri skýrslu Samtaka iðnaðarins og Félags ráðgjafarverkfræðinga sem kynnt var í morgun. Lítið hefur breyst frá því sams konar skýrsla var gerð fyrir fjórum árum. 17.2.2021 14:28
Filippus prins lagður inn á spítala Filippus prins, hertogi af Edinborg, var í gærkvöldi lagður inn á spítala í Lundúnum vegna ótilgreindra veikinda. 17.2.2021 14:28
Eðlilegt að skoða hvort lögregla þurfi frekari valdbeitingarheimildir Skoða þarf hvort lögregla þurfi á ríkari rannsóknar- og valdbeitingarheimildum að halda, segir Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann telur að fara eigi yfir málið í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis. 17.2.2021 14:13
Fjölda drengja rænt úr skóla í Nígeríu Vopnaðir menn myrtu minnst einn nemanda og rændu minnst 27 í árás á skóla í Nígeríu í nótt. Þremur starfsmönnum og tólf ættingjum nemenda var einnig rænt í árásinni. 17.2.2021 13:59
Vill að forseti Alþingis og forsætisnefnd skoði orðræðu Helga Hrafns Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Miðflokksins, vill að forseti Alþingis og forsætisnefnd taki til skoðunar ummæli Helga Hrafns Gunnarssonar, þingmanns Pírata, um Miðflokkinn. 17.2.2021 13:36
„Ekkert merkilegt“ en sjónrænt eldgos í Etnu Etna, stærsta virka eldfjall Evrópu, byrjaði að gjósa með látum gær og sendir reyk og ösku hátt til himins. Sérfræðingar á Sikiley segjast þó hafa séð það verra og er eldgosið ekki sagt ógna nærliggjandi byggðum en þrjú þorp eru vöktuð. 17.2.2021 13:04
Vonandi hægt að opna neyslurými þegar nýr bíll verður afhentur Hægt verður að opna tímabundið neyslurými í bíl Frú Ragnheiðar þar til varanlegt rými verður tekið í notkun samkvæmt nýrri reglugerð. Verkefnastýra Frú Ragnheiðar segir að úrræðið muni bjarga mannslífum og vonast til þess að hægt verði að nýta eldri bíl starfseminnar þegar sá nýji verður afhentur. 17.2.2021 12:20
„Hann stóð sig bara betur í smalamennskunni“ Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir segist enn vera að velta því fyrir sér hvort hún þiggur annað sæti á lista Vinstri grænna fyrir næstu Alþingiskosningar á Norðurlandi eystra. 17.2.2021 12:16
Yfirlögregluþjónn býst við að rýming standi fram yfir hádegi Yfirlögregluþjónn á Austurlandi á frekar von á því að rýming um fimmtíu húsa á Seyðisfirði muni standa eitthvað áfram en Veðurstofan mun nýta gluggann nú í hádeginu þegar styttir upp til að meta stöðugleika hlíðarinnar. 17.2.2021 12:02
Skráðum kynferðisbrotum fjölgar Skráðum hengingarlagabrotum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði milli mánaða í janúar en þau voru 666. Það sem af er ári hafa borist um sex prósent færri tilkynningar um hegningarlagabrot en bárust að meðaltali á sama tímabili þrjú ár á undan. 17.2.2021 11:59
Vilja múlbinda bloggara og áhrifavalda í Kína Kínverskir bloggarar og áhrifavaldar munu í næstu viku þurfa leyfi frá yfirvöldum landsins til að tjá sig um ýmis málefni. Markmið þessarar herferðar er að stýra almenningsáliti í Kína. 17.2.2021 11:52
Breyta aksturstefnu í Tryggvagötu meðan unnið er að sólartorgi fyrir sumarið Tryggvagata við Tollhúsið í miðbæ Reykjavíkur verður lokuð fyrir akandi umferð fram á sumar á meðn yfirborðsfrágangi við endurnýjun götunnar stendur yfir. Til stendur að gatan verði tilbúin fyrir sumarið en eftir breytingar vill borgin að mannlíf fái að njóta sín í götunni. Hluti af því er sólartorg fyrir framan listaverk Gerðar Helgadóttur á Tollhúsinu. 17.2.2021 11:49
Hafa þróað hermilíkan um áhrif bólusetningar Hröð bólusetning elstu aldurshópanna dregur mjög úr fjölda þeirra sem veikjast lífshættulega af Covid-19 þótt ljóst sé að afleiðingarnar yrðu miklar á heilbrigðiskerfið ef kæmi til útbreidds faraldurs, jafnvel þótt vel takist að verja elstu hópana. 17.2.2021 11:47
Áætlun til að efla íslenskan landbúnað: Möguleikar bænda til að framleiða og selja beint frá býli auknir Í mars verður kynnt til sögunnar átak til að ýta undir möguleika bænda til að framleiða og selja afurðir beint frá býli. Markmiðið er að gefa bændum kost á að styrkja verðmætasköpun og afkomu fyrir næstu sláturtíð. 17.2.2021 11:39
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum okkar heyrum við yfirlögregluþjóni á Austurlandi um ástandið á Seyðisfirði þar sem tæplega fimmtíu hús voru rýmd í gær vegna hættu á skriðuföllum. 17.2.2021 11:33
Braut sér leið inn á Reykjavíkurflugvöll Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir að tilkynnt var um aðila sem hafði brotið sér leið inn á Reykjavíkurflugvöll. 17.2.2021 11:29
Tveir hafa kært til Landsréttar en sá þriðji tók sér frest Tveir þeirra þriggja karlmanna sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í gærkvöldi vegna rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á manndrápi í Rauðagerði um helgina hafa kært úrskurðinn til Landsréttar. 17.2.2021 10:57
Aftur greindist enginn með veiruna innanlands en sex á landamærum Fimmta daginn í röð greindist enginn með korónuveiruna innanlands í gær. Sex greindust með veiruna á landamærum, fimm með virk smit í fyrri skimun og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilvikum eins. 17.2.2021 10:43
Eiginkona Kim Jong-un birtist aftur opinberlega í fyrsta sinn í rúmt ár Ri Sol-ju, eiginkona Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu, hefur birst opinberlega í fyrsta sinn í rúmt ár. 17.2.2021 10:30
Mörg flugfélög í samstarf við UNICEF um dreifingu bóluefna Flugfélög um allan heim leggjast á eitt um að koma bóluefna gegn COVID-19 til fátækari ríkja heims. 17.2.2021 10:13
Friðarviðræður í hættu og útlit fyrir umfangsmikla sókn Talibana Ríkisstjórn Afganistan og öryggissveitir hennar eru undir miklu álagi vegna mikils fjölda árása Talibana í landinu. Vígamenn Talibana hafa komið sér fyrir nærri mörgum borgum landsins og hertekið mikilvægar umferðaræðir. 17.2.2021 10:01
Bein útsending: Ný skýrsla um ástand og framtíðarhorfur innviða á Íslandi Samtök iðnaðarins og Félag ráðgjafarverkfræðinga kynna nýja skýrslu um ástand og framtíðarhorfur helstu innviða á Íslandi í beinu streymi frá Norðurljósum í Hörpu kl. 10.00-11.30 í dag. 17.2.2021 09:53
Ræða hvort endurskoða þurfi vopnareglur lögreglu Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir að vopnareglur lögreglu verði teknar fyrir á fundi lögregluráðs sem fram fer á fimmtudaginn. Nokkur umræða hefur verið um aðbúnað lögreglu í kjölfar morðsins sem átti sér stað um síðustu helgi og vangaveltur verið uppi um hvort málið sé merki um aukna hörku í undirheimum. 17.2.2021 09:09
Hafa boðað til kosninga á Grænlandi Mikill meirihluti grænlenska þingsins samþykkti í gærkvöldi að boða til kosninga sem fram munu fara þann 6. apríl næstkomandi, samhliða áður boðuðum sveitarstjórnarkosningum í landinu. Framundan er því sjö vikna kosningabarátta. 17.2.2021 08:13
Yfir tuttugu látnir í fordæmalausu vetrarveðri í Bandaríkjunum Fordæmalaust vetrarveður gengur nú yfir suður- og miðhluta Bandaríkjanna. Kuldamet hafa verið slegin, milljónir fólks eru án rafmagns og að minnsta kosti 21 hefur látist vegna veðursins. 17.2.2021 07:55
Breytileg átt og rigning, slydda eða snjókoma Spáð er breytilegri átt á landinu í dag, þremur til tíu metrum á sekúndu, og rigningu, slyddu eða snjókomu. Hiti verður um eða yfir frostmarki. 17.2.2021 07:46
Trump hellti sér yfir McConnell: „Önug og fýld pólitísk bikkja“ Það verður ekki annað sagt en að Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hafi látið Mitch McConnell, leiðtoga Repúblikana, í öldungadeild Bandríkjaþings, heyra það í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gærkvöldi. 17.2.2021 06:55
Mennirnir úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald Þrír karlmenn, tveir á fertugsaldri og einn á fimmtugsaldri, voru í kvöld úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur til 23. febrúar að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 16.2.2021 22:57
Hefur kært úrskurð héraðsdóms um gæsluvarðhald til Landsréttar Íslenskur karlmaður var í kvöld úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald vegna gruns um aðild að morðinu á albönskum manni í Rauðagerði á laugardaginn. Hann hafði neitað allri aðild að málinu áður en hann var leiddur fyrir dómara að sögn Steinbergs Finnbogasonar, lögmanns hans. 16.2.2021 22:23
Þurftu að koma vél Landhelgisgæslunnar í skjól þegar eldfjall fór að gjósa Áhöfnin á TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, þurfti að hafa hraðann á síðdegis í dag þegar eldfjallið Etna byrjaði skyndilega að gjósa. 16.2.2021 21:54
Ber orðræðu Miðflokksins um útlendingamál saman við gyðingahatur Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, var harðorður í garð þingmanna Miðflokksins vegna umræðu um málefni innflytjenda sem fór fram á Alþingi í dag og kvöld. Sagði hann meðal annars orðræðu þeirra líkjast fordómafullri orðræðu um samkynhneigða á tíunda áratugi síðustu aldar og gyðingahatur. 16.2.2021 21:02
Kisan Bella rúntaði um 150 kílómetra í vélarhúddi bíls Kötturinn Bella fór óvænt í hundrað og fimmtíu kílómetra ökuferð um Suðurland eftir að hún fór inn í vélarhúdd á bíl og var þar í sólarhring. Hún fannst þegar eigandi bílsins fór að setja rúðuvökva á bílinn. 16.2.2021 20:59
Miðflokksþingmaður varar við erlendum glæpahópum Karl Gauti Hjaltason þingmaður Miðflokksins varaði við skipulagðri glæpastarfsemi með tengsl til annarra landa á Alþingi í dag. Dómsmálaráðherra segir að brugðist hafi verið við ábendingum lögreglunnar frá undanförnum árum. 16.2.2021 20:14
Ekki ljóst hvort bólusettir geti borið veiruna til landsins Sóttvarnalæknir vildi að heilbrigðisráðherra drægi til baka ákvörðun um að undanskilja þá tvöfaldri skimun á landamærunum geti þeir sýnt fram á að þeir hafi verið bólusettir við kórónuveirunni. Ekki liggi fyrir vísindalega séð hvort þeir sem eru bólusettir geti borið veiruna án þess að veikjast og þannig smitað aðra. 16.2.2021 19:30
Bóluefni Janssen komið á borð evrópsku lyfjastofnunarinnar Lyfjastofnun Evrópu hefur borist umsókn um skilyrt markaðsleyfi fyrir bóluefni Janssen, sem er dótturfélag bandaríska lyfjaframleiðandans Johnson og Johnson. 16.2.2021 18:33
Fara fram á gæsluvarðhald yfir þremur mönnum í tengslum við morðið í Rauðagerði Lögreglan ætlar að óska eftir gæsluvarðhaldi yfir þremur karlmönnum sem handteknir voru í gær í umfangsmiklum aðgerðum í tengslum við morð sem framið var í Rauðagerði í Reykjavík. Mennirnir verða leiddir fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur í kvöld. 16.2.2021 18:30
Minnst ellefu látnir vegna aftakaveðurs Minnst ellefu hafa látist í suðurríkjum Bandaríkjanna vegna kulda og snjókomu. Þrír létust og tíu slösuðust eftir að hvirfilbylur reið yfir í Norður-Karólínu í morgun. Björgunaraðgerðir eru enn í gangi. 16.2.2021 18:22
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent