

Maður var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi og gert að greiða fyrrverandi unnustu sinni 800 þúsund krónur í miskabætur fyrir brot gegn blygðunarsemi og stórfelldar ærumeiðingar.
Samband íslenskra sveitarfélaga segir að mótvægisaðgerðir stjórnvalda vegna áhrifa kórónufaraldursins á þau dugi ekki til. Sveitarstjórnarráðherra segir almennar aðgerðir stjórnvalda einnig koma sveitarfélögum til góða.
Það er fátt eða ekkert, sem stoppar elsta Íslendinginn, Dóru Ólafsdóttur, sem er hundrað og átta ára til að ganga til verka því hún skellti sér í gær af hjúkrunarheimilinu sínu í Reykjavík í ís rúnt í Hveragerði með syni sínum þar sem hún notaði tækifærið í leiðinni til að safna birkifræjum.
Belgíska listakonan Delphine Boël, sem barist hefur fyrir því undanfarin sjö ár fyrir dómstólum að fá það viðurkennt að Albert II, fyrrverandi konungur Belgíu, sé faðir hennar var í dag krýnd sem prinsessa af Belgíu.
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að kona búsett í Bandaríkjunum fái að bera vitni í gegnum fjarfundarbúnað í dómsmáli gegn nuddara sem ákærður er fyrir kynferðisbrot gegn fjórum konum. Konan sem fær að bera vitni er brotaþoli í málinu.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, segir að íslenskt samfélag hafi nú einstakt tækifæri á því að líta í spegil til þess að spyrja sig hvort samfélagið sem skapað hefur verið sé eins og við viljum hafa það.
Inga Sæland, formaður Miðflokksins, greip orð Sigurðar Inga Jóhannssonar í ræðu hans í eldhúsdagsumræðum um aukna atvinnu á lofti, í andsvari hennar við stefnuræðu forsætisráðherra.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ræddi um það sem hann vildi gjarnan fá að sjá aftur eftir að búið er að vinna bug á kórónuveirunni, í eldhúsdagsumræðum á Alþingi í kvöld.
Málefni innflytjenda og þeirra sem minna mega sín voru í forgrunni í ræðu Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur, þingmanns utan flokka, í eldhúsdagsumræðum á Alþingi í kvöld.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, var gagnrýnin á ríkisstjórnarinnar í ræðu sinni í eldhúsdagsumræðum á Alþingi í kvöld.
Starfsmaður í verslun Rúmfatalagersins við Bíldshöfða hefur greinst smitaður af kórónuveirunni.
Það vakti nokkra lukku á Alþingi í kvöld þegar Sigurður Ingi Jóhannsson greip orð Loga Einarssonar, formanns Samfylkingarinnar, og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, á lofti í upphafi ræðu hans í eldhúsdagsumræðu á þingi í kvöld.
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, gagnrýndi ríkisstjórnina fyrir að stíga ekki nógu fast til jarðar í aðgerðum gegn hlýnun jarðar, er hann tók til máls í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi í kvöld.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, greip orð Katrínar Jakobsdóttur í stefnuræðu hennar um franska rithöfundinn Albert Camus á lofti, í andsvari hans við stefnuræðunni. Sagði hann að stefna ríkisstjórnarinnar væri í anda Camus.
Kórónuveirufaraldurinn lék lykilhlutverk í stefnuræður Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, í eldhúsdagsumræðum á Alþingi nú í kvöld.
Umræða um stefnuræðu forsætisráðherra fer fram í kvöld klukkan 19:30.
Í leynilegu bréfi sem Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, sendi Donald Trump Bandaríkjaforseta í desember 2018 líkir hann sambandi þeirra félaga við blómstrandi Hollywood-ástarsamband.
Hæstiréttur Írlands dæmdi í dag að brauðið sem selt er á skyndibitastaðnum Subway innihaldi svo mikinn sykur að það geti lagalega ekki flokkast sem brauð.
Enginn af þeim fimm skipverjum Gullvers sem fóru í skimun vegna Covid-19 í morgun reyndist vera smitaður. Skipið mun halda á ný til veiða í kvöld.
Í kvöldfréttum okkar förum við yfr helstu atriði í síðasta fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem lagt var fram á Alþingi í dag.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu Landverndar um ógildingu ákvörðunar sveitarstjórnar Reykhólahrepps að veita framkvæmdaleyfi fyrir vegi um Teigsskóg.
Jón Þór Ólafsson er nýr formaður Pírata. Sá háttur er hafður á í Pírataflokknum að við upphaf hvers löggjafarþings er nýr formaður valinn með hlutkesti.
Yfirvöld í Ísrael og Líbanon hafa samþykkt að hefja viðræður sem ætlað er að binda enda á deilur um lögsögu ríkjanna.
Forseti Íslands setti Alþingi í dag.
Forstjóri Landspítala segir að þessa dagana leggist að meðaltali inn sjúklingur með Covid-19 á tólf tíma fresti.
A children’s report on the state of human rights in Iceland has been presented to the United Nations Committee on... The post Children Present Human Rights Report To UN appeared first on The Reykjavik Grapevine.
Yfirvöld í Aserbaídsjan og Armeníu hafa ekki orðið við ákalli Rússlands, Frakklands og Bandaríkjanna um vopnahlé í átökum þeirra á milli.
Þrettán liggja nú inni á Landspítala vegna Covid-19, tveimur fleiri en þegar tölur voru birtar á Covid.is í morgun.
Landsréttur þarf að taka aftur fyrir mál konu sem sökuð var um hlutdeild í nauðgun á konu með þroskahömlun.
Þingsetningarathöfn hófst klukkan hálf tvö í dag með guðsþjónustu í Dómkirkjunni en á sama tíma kom fólk sér fyrir á Austurvelli til að sýna þeim samstöðu sem eru á lægstu launum. Þau vilja minna stjórnvöld á fyrir hverja þau vinna og á að fólk í fátækt bíði enn eftir kjarabótum.
Eldur kom upp í fiskiskipi úti fyrir Norðurlandi á öðrum tímanum í dag.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 15:00 í dag.
Reiknað er með að hálf milljón ungra stúlkna verði hnepptar í hjónaband á þessu ári til viðbótar við þær tólf milljónir stúlkna sem að jafnaði eru þröngvað í hjónaband á barnsaldri árlega
Ragnar Jónasson’s ‘Hidden Iceland’ has made history by occupying three of the top places on the German bestseller list published... The post Icelandic Author Tops German Bestseller Lists appeared first on The Reykjavik Grapevine.
Starfsmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur greinst með kórónuveiruna.
Slökkvilið Alamedasýslu í Kaliforníu í Bandaríkjunum birti í gær myndband af aðstæðunum sem slökkviliðsmenn vinna nú við í ríkinu.
Fimm skipverjar á Gullveri, skipi Síldarvinnslunnar, bíða niðurstöðu úr Covid-19 skimun sem þeir fóru í snemma í morgun.
Listi Kínverjanna yfir áhugaverða og mikilvæga Íslendinga vekur furðu.
Alþingi verður sett þriðjudaginn í dag og hefst þingsetningarathöfnin klukkan 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni.
Alexei Navalní, rússneski stjórnarandstæðingurinn, sakar Vladímír Pútín, forseta Rússlands, um að hafa staðið að baki því að eitrað var fyrir honum með taugaeitrinu novichok í ágúst.
Í kappræðunum gekk Trump fram af mikilli hörku og hunsaði margar þeirra reglna sem hann hafði samþykkt að fara eftir. Þær snúa meðal annars að framíköllum og tímalengd ummæla.
Menningarsalinn er að finna á Hótel Selfossi og hefur hann staðið ófullgerður frá árinu 1986.
Fjármálaráðherra telur ásættanlegt að nýta sterka skuldastöðu ríkisins tímabundið til að bregðast við efnahagslægðinni sem nú gengur yfir.
Fjárframlög til samgöngumála verða aukin á næsta ári um rúma tíu milljarða króna frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum sem nema um 440 milljónum króna.
Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hefur áhyggjur af því að tyrknesk stjórnvöld sendi nú sýrlenska málaliða til að leggja Aserum lið í átökum þeirra við nágranna sína Armena um fjallahéraðið Nagorno-Karabakh. Tyrkir styðja Asera í átökunum en neita því að hafa sent erlenda málaliða þangað.