Fleiri fréttir

Hamborgari stoppaður í tollinum

McDonald's hamborgari var stoppaður í íslenska tollinum nú á dögunum. Ekki er vitað hver endanleg örlög hamborgarans urðu.

Stanford-nauðgarinn losnar úr fangelsi á morgun

Brock Turner fyrrverandi nemandi Stanford-háskóla sem sakfelldur var fyrr á árinu fyrir að nauðga skólasystur sinni, losnar úr fangelsi á morgun eftir að hafa afplánað þrjá mánuði af sex mánaða dómi sem hann fékk þar sem hann hefur hagað sér vel innan veggja fangelsins.

Átök í Gabon eftir umdeildar kosningar

Óöld ríkir í Afríkuríkinu Gabon eftir að stjórnarhermenn réðust á höfuðstöðvar stjórnarandstöðunnar í landinu í morgun. Margir eru særðir, sumir alvarlega, segja leiðtogar stjórnarandstöðunnar. Árásin var gerð nokkrum klukkustundum eftir að forseti landsins, Ali Bongo, lýsti yfir sigri í kosningum sem hafa verið gagnrýndar harðlega.

Víða næturfrost í nótt

Næturfrost var sumstaðar á láglendi á Vestfjörðum og um norðanvert landið í nótt og fór það sumstaðar niður í þrjár gráður. Hætt er við að ber hafi sumstaðar skemmst í frostinu, einkum í lægðum, en kalda loftið leitar í lægðir. Minni hætta er á skemmdum eftir því sem ofar dregur. Spáð er heldur hlýnandi veðri næsta sólarhringinn að minnstakosti, þannig að víða verður áfram hægt að tína ber.

Byssumaðurinn í Kristjaníu særðist í átökum við lögreglu

Til skotbardaga kom í morgun á milli lögreglunnar í Kaupmannahöfn og manns sem grunaður er um að hafa sært tvo lögreglumenn og einn almennan borgara í fríríkinu Kristjaníu í gærkvöldi. Lögreglan hafði gert áhlaup inn í hverfið í gærkvöldi til að uppræta þar hasssölu þegar maðurinn, sem sagður er á þrítugsaldri, tók upp byssu og hóf skothríð.

Hitt hægrið á sviðið í Bandaríkjunum

Ný hægrisinnuð stjórnmálahreyfing hefur umtalsverð áhrif á forsetakosningar í Bandaríkjunum. Meðlimir hreyfingarinnar eru sagðir fordómafullir, hafna pólitískri rétthugsun og fjölmenningu.

Birgðastaðan er sögð í jafnvægi

Fréttablaðið sagði frá því í gær að um 1.800 tonn væru til í frystigeymslum frá síðustu sláturtíð. Það magn sé í líkingu við það sem hefur verið síðustu ár. Árið 2014 hafi um tvö þúsund tonn verið eftir í frystigeymslum.

Starfsfólk leikskólanna plagað af mikilli streitu

Fleiri leikskólastjórar skila inn veikindavottorðum vegna streitu og einkenni hennar eru sögð fara vaxandi. Veikindi starfsmanna á deildum eru rakin til þreytu. Mikil óánægja er með vinnuálag, skort á viðurkenningu og stjórnun.

Komið að leikslokum hjá Plain Vanilla

Grundvöllur fyrir rekstri Plain Vanilla brást þegar ljóst varð að ekkert yrði úr gerð sjónvarpsþátta sem byggðu á leiknum. Mikil stemning ríkti innan fyrirtækisins 2013 og 2014.

Ábyrgðarmenn leystir undan láni systurinnar

Tveir ábyrgðarmenn voru leystir undan ábyrgð á láni systur sinnar. Úrskurðarnefnd fjármálafyrirtækja segir Landsbankann ekki hafa sýnt nein gögn sem staðfestu að greiðslumat hefði farið fram.

Stríður straumur inn og úr landi

Tæp milljón manna fór um Leifsstöð frá janúar til og með júlí á þessu ári. Það er 35 prósenta fjölgun frá því á sama tíma í fyrra.

Sjá næstu 50 fréttir