Fleiri fréttir

Barnshafandi konur sérstakt áhyggjuefni

Ekki er hætta á zikaveirusjúkdómur verði landlægur á Íslandi en sóttvarnalæknir segir sjálfsagt að fólk sem hyggur á ferðalög á svæðinu sé á varðbergi.

Bifvélavirkjun er líka fyrir stelpur

Talsverður skortur hefur verið á bifvélavirkjum undanfarið. Þær Ásrún Loftsdóttir og Sigþrúður Sveinsdóttir ættu því ekki að þurfa að kvíða framtíðinni þar sem þær útskrifast báðar á þessu ári sem bifvélavirkjar frá Borgarholtsskóla. Stelpunum finnst námið skemmtilegt.

Segir aðkomu Rússa vendipunkt í Sýrlandi

„Einnig er orðið ljóst hverjir berjast gegn hryðjuverkamönnunum af heiðarleika og hverjir hjálpa þeim og nota í eigin þágu,“ segir utanríkisráðherra Rússlands.

Hjólar í Íslandsvin og hommahatara

Páll Óskar hvetur Íslendinga til þess að senda nýleg ummæli Graham áfram á biskup Íslands "eða einhverja aðra grúppíu hans úr þjóðkirkjunni.

Loksins opið í Bláfjöllum

Brekkurnar í Bláfjöllum verða opnar í dag frá klukkan 14 til 21. Ekki hefur verið opið í brekkunum sökum veðurs í viku eða frá því síðasta þriðjudag.

Hækkun yfirborðs sjávar meiri en áður var talið

Vísindamenn hafa til þessa vanmetið hækkun yfirborðs sjávar sem rakin er til hlýnunar jarðar og gæti hækkunin jafnvel verið tvöfalt meiri en áður hefur verið talið. Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem þýskir vísindamenn gerðu og voru birtar í virtu vísindatímariti í gær.

Óvenju mikið um hval á loðnumiðunum

Óvenju mikið er af hvölum á loðnumiðunum norðaustur af Langanesi og eru þeir að sækja í loðnuna í kap0pi við veiðiskipin. Að sögn Sigurjóns Sigurbjörnssonar stýrimanns á fjölveiðiskipinu Polar Amarok virðist hvölum fjölga ár frá ári.

Sænska aðgerðasinnanum sleppt úr haldi í Kína

Sænskur aðgerðasinni sem setið hefur í varðhaldi í Kína frá því í byrjun janúar hefur verið látinn laus. Peter Dahlin var handtekinn þegar kínverska lögreglan gerði rassíu á meðal aðgerðarsinna og lögfræðinga sem hafa látið sig mannréttindi í landinu varða. Í síðustu viku kom hann fram í kínverskum miðlum og játaði á sig margvísleg brot. Nú hefur Dahlin verið sleppt og hann sendur rakleiðis úr landi.

Þurftu að kaupa gögn um sjúkrahótel

Landspítali þurfti, líkt og aðrir verktakar, að kaupa útboðsgögn um sjúkrahótel í fyrra til að öðlast upplýsingar. Framkvæmdastjóri sjúkrahótelsins segir samráð hafa átt sér stað í aðdraganda útboðs.

Unnu úr 263.000 tonnum

Fiskimjölsverksmiðjurnar þrjár sem Síldarvinnslan á og rekur í Neskaupstað, á Seyðisfirði og í Helguvík tóku á síðasta ári á móti rúmlega 263 þúsund tonnum af hráefni. Í sömu röð unnu verksmiðjurnar úr 145.911 tonnum; 73.928 tonnum og 43.656 tonnum. Á árinu 2014 tók verksmiðjan í Neskaupstað á móti 110.215 tonnum af hráefni, verksmiðjan á Seyðisfirði 24.283 tonnum og verksmiðjan í Helguvík 27.273 tonnum.

Sjá næstu 50 fréttir